Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 15
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 15 Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar bs., Staðardagskrá 21 fyrir Akureyri, Sam- band Íslenskra sveitarfélaga og umhverf- isráðuneytið boða til kynningarfundar fimmtudaginn 22. febrúar 2001 í Fiðlaranum, Skip- agötu 14, 4. hæð, kl. 9.30 um „Hreinni framleiðslu“ Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing- ur, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á Íslandi, mun kynna sóknarfærin sem felast í þessari aðferð. „Hreinni framleiðsla“ er leið til árangursríkrar stjórnunar og miðar að því að bæta hráefnis- nýtingu fyrirtækja og lækka þannig rekstrar- kostnaðinn. Með aðferðum af þessu tagi má í senn ná fram unhverfislegum og fjárhagsleg- um sparnaði í rekstri fyrirtækja og stofnana. Allir velkomnir. HALLDÓR Jónsson, forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri, segir sjúkrahúsið í einu og öllu hafa farið eftir gildandi lögum þegar samningar voru undirritaðir milli FSA og Íslenskrar erfða- greiningar í desember síðastliðn- um um vinnslu heilsufarsupplýs- inga til flutnings í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Við undirritun samningsins var jafnframt gengið frá samkomulagi sömu aðila um fjölbreytt samstarfs- og þróunar- verkefni. Samningurinn byggist á lögum um gagnagrunn á heilbrigð- issviði nr. 139/1998, lögum um rétt- indi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um skráningu og meðferð persónu- upplýsinga nr. 121/1989 (nú lög um persónuvernd og meðferð persónu- upplýsinga nr. 77/2000). Hinn 16. janúar 2001 staðfesti starfrækslunefnd gagnagrunns á heilbrigðissviði samninginn og samkomulag sömu aðila. Skoðanamunur um hvort samþykki sjúklings þurfi Halldór sendi frá sér fréttatil- kynningu um málið í gær í kjölfar ályktunar frá læknaráði FSA þar sem farið er fram á að breytingar verði gerðar á samningi FSA og ÍE í þá veru að aflað verði skriflegs samþykkis sjúklinga áður en heilsufarsupplýsingar verði fluttar í gagnagrunninn. Þar kemur fram að ljóst sé að skoðanamunur hafi verið um það hvort samþykki sjúk- lings skuli liggja fyrir vegna flutn- ings upplýsinga í gagnagrunninn. Lögin um gagnagrunninn geri aft- ur á móti ekki þá kröfu. Fram kemur að viðræður milli forsvarsmanna FSA og ÍE hafi staðið yfir á árinu 2000, en í nefnd- inni voru fyrir FSA fulltrúar stjórnar FSA, framkvæmdastjórn FSA, starfsmannastjóri, forstöðu- maður tölvu- og upplýsingatækni- deildar og formaður læknaráðs FSA. Samningsdrög og efnisatriði væntanlegs samnings hafi verið kynnt af fulltrúum viðræðunefnd- anna annars vegar á opnum fundi 14. september fyrir starfsmenn sjúkrahússins og hins vegar á sér- stökum fundi fyrir lækna þess 29. september. Með því að formaður læknaráðs FSA hafi setið í viðræðunefnd sjúkrahússins og sitji einnig stjórnarfundi FSA og einnig með því að halda sérstakan kynningar- fund fyrir lækna sjúkrahússins, sem saman mynda læknaráð FSA, telur framkvæmdastjórn sjúkra- hússins að samráðsskyldunni gagn- vart læknaráðinu hafi verið full- nægt. Afstaða læknaráðsins frá því fyrr í þessum mánuði um að leita upplýsts samþykkis sé ekki ný, en bókun sama efnis er til frá því í janúar í fyrra. Fram kemur að framangreindur skoðanamunur verði ekki leystur, né lögunum breytt af FSA. Verði hins vegar gerð breyting á lögum mun framkvæmd samningsins að sjálfsögðu taka mið af því. Samráðs- skyldu við læknaráð var fullnægt Forsvarsmenn FSA um samnings- gerð við Íslenska erfðagreiningu SIGURBJÖRN Sveinsson, formað- ur Læknafélags Íslands, telur að lög um gagnagrunn á heilbrigðissviði hafi verið brotin með samningi milli Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og Íslenskrar erfðagreiningar, en hann var undirritaður á Akureyri 19. desember síðastliðinn og fjallaði m.a. um söfnun upplýsinga í vænt- anlegan miðlægan gagnagrunn. Hann sagði einkennilegt að læknar væru gagnrýndir fyrir það að gagn- rýna gagnagrunnslögin, þegar aðrir kæmust upp með að fara ekki að þeim. Læknaráð FSA sendi frá sér ályktun nýlega þar sem farið er fram á að samningsaðilar geri þá breyt- ingu á samningunum að aflað verði skriflegs samþykkis sjúklinga eða forráðamanna þeirra áður en heilsu- farsupplýsingar verði fluttar í mið- lægan gagnagrunn Ekki sé gert ráð fyrir því í samningnum. Þá vill læknaráðið að fram- kvæmdastjórn FSA hafi náið samráð við ráðið varðandi framkvæmd og uppbyggingu þeirra verkefna sem fyrirhuguð eru í kjölfar samningsins. Sigurbjörn sat fund með lækna- ráði FSA fyrir skömmu þar sem hann greindi m.a. frá afstöðu Læknafélags Íslands og hvers vegna félagið hefði slitið viðræðum við Ís- lenska erfðagreiningu. Á fundinum var einnig farið yfir hvernig staðið var að samningsgerðinni milli sjúkrahússins og ÍE. Sigurbjörn sagði að samkvæmt lögum væri gert ráð fyrir samráði við félög lækna og ættu þau að fá að segja álit sitt, for- maður læknaráðs FSA hefði setið í viðræðunefndinni en verið bundinn trúnaði um gang mála. Hann hefði í rauninni setið þar „með blankan víx- il“ eins og hann orðaði það. Læknaráðið hefði ekki komið saman til að skila áliti sínu á samn- ingnum og þar með teldi Sigurbjörn að ekki hefði verið farið eftir bókstaf laganna. Læknaráðið hefði aldrei fengið tækifæri til að skýra hug sinn til málsins. Það gerði ráðið nú með áðurnefndri ályktun sem samþykkt var á fundi þess fyrr í þessum mán- uði. Ekki farið eftir bókstaf laganna varðandi samráð Formaður Læknafélags Íslands um samning milli FSA og ÍE BÆJARRÁÐ Akureyrar sam- þykkti á síðasta fundi sínum að hafna að svo stöddu greiðslu mót- framlags til Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri vegna stofnkostn- aðar og meiriháttar viðhalds ársins 2001. Ennfremur hafnaði bæjarráð ósk FSA um greiðslu mótframlags Akureyrarbæjar vegna fjárveitinga til FSA í tilefni afmælis spítalans, sem ákveðin var á fjáraukalögum ríkissjóðs vegna ársins 1998. Bæjarráð samþykkti greiðslu mótframlags vegna þátttöku í stofn- kostnaði FSA samkvæmt fjárauka- lögum fyrir árið 2000, enda liggi fyrir gögn sem staðfesta útgjöld vegna stofnkostnaðar. Jafnframt hefur fjármálastjóra bæjarins verið falið að afla gagna um stofnkostnað, tækjakaup og meiriháttar viðhald sjúkrahússins, sem bærinn hefur tekið þátt í sl. 4 ár. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri hefur átt í bréfaskiftum við ráðuneyti heilbrigðis- og fjármála, þar sem farið er fram á að Akur- eyrarbær verður leystur undan greiðsluskyldu mótframlags líkt og ráðuneytin hafa gert gagnvart Reykjavíkurborg. Bæjarstjóri bendir á að með samningi ríkisins og Reykjavíkurborgar losni borgin undan kostnaðarhlutdeild í Sjúkra- húsi Reykjavíkur í Fossvogi, Vist- heimilinu Arnarholti og Grensás- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur, um ókomna tíð. Að auki fékk borgin endurgreidd framlög til nýfram- kvæmda og viðhalds á Landakoti, sem borgin greiddi á árunum 1995– 1998. Kristján Þór segir að af samningi ríksins og borgarinnar megi draga þá ályktun að ríkið telji sér heimilt að leysa sveitarfélög undan greiðsluskyldu sé eftir því leitað. Jafnframt geti sveitarfélög krafist endurgreiðslu lögbundinna fjár- framlaga allt að fjögur ár aftur í tímann, þegar samningur um yf- irtöku ríkisins á rekstri sjúkrahúss- bygginga er gerður. Kristján Þór telur að samningurinn við Reykja- víkurborg hafi fordæmisgildi og gerir því kröfu um að ríkið geri sambærilegan samning við Akur- eyrarbæ vegna FSA og vísar til jafnræðisreglu stjórnsýslu- og stjórnskipunar. Ríkið hafnar öllum kröfum Ráðuneyti fjármála hefur hafnað öllum körfum Akureyrarbæjar um lausn á greiðsluskyldu og undir það tekur ráðuneyti heilbrigðismála. Ráðuneytið bendir jafnframt á að ákvæði samningsins sem lúta að stofn- og viðhaldskostnaði eigna og endurgreiðslum til borgarsjóðs sé liður í heildarsamningum á milli ríkisins og Reykjavíkurborgar vegna yfirtöku ríkisins á rekstri og stjórnun Sjúkrahúss Reykjavíkur. Einstök ákvæði samningsins verði því ekki slitin úr samhengi og á þeim byggður almennur réttur til að leysa sveitarfélög undan greiðsluskyldu. Einnig bendir heilbrigðisráðu- neytið á að félagsmálaráðherra hafi skipað nefnd til að yfirfara verka- skiptinu ríkis og sveitarfélaga og sé henni m.a. falið að taka afstöðu til þess hvort stofnkostnaður sjúkra- stofnana og heilsugæslustöðva eigi alfarið að vera verkefni ríkisins. Kristján Þór hefur ítrekað spurn- ingar til ráðuneytanna um laga- heimildir ríkisins og óskað eftir af- dráttarlausum svörum en ekki fengið þau enn. Hann spyr m.a. hvort borgarsjóður beri greiðslu- skyldu vegna 15% eignarhlutdeildar hans í fasteignum, sem ráðstafað var með samningi í desember 1998 og einnig hvort borgarsjóður hafi fengið endurgreitt lögbundið fram- lag vegna áranna 1995–1998. Bæjarstjórinn á Akureyri vill losna undan greiðsluskyldu mótframlags til Fjórðungssjúkrahússins Telur samning við borgina vera fordæmi FREYVANGSLEIKHÚSIÐ frum- sýnir leikritið „Bófaflokkur á Broadway“ næstkomandi laugar- dagskvöld, 24. febrúar. Leikritið er eftir Woody Allen, en þýðendur eru Hannes Örn Blandon og Ármann Guðmundsson. Æfingar hafa staðið yfir frá því í byrjun janúar, en um 20 leikendur koma fram í verkinu þó hlutverkin séu fleiri. Leikstjóri er Hákon Waage. Leikritið fjallar um ungan rithöf- und sem reynir að koma verkum sínum á framfæri á Broadway. Hann fær mafíuforingja til að fjár- magna verkið en hann fer fram á það í staðinn að ástkona sín, sem er hæfileikalaus dansmær, fái aðal- hlutverkið í leikritinu, með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum. Margar skrautlegar persónur koma við sögu í þessu grátbroslega leikriti. Freyvangsleikhúsið frumsýnir á laugardagskvöld Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Bófaflokkur á Broadway
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.