Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁHRIFA af völdum verkfalls flug- umferðarstjóra sem hófst klukkan sjö í gærmorgun gætti minna en reiknað hafði verið með sökum veð- urskilyrða, bæði í háloftunum og á Íslandi. Innanlandsflug lá niðri vegna veðurs, millilandaflug gekk samkvæmt viðbúnaðaráætlun og yf- irflug var í minna lagi vegna veður- skilyrða í háloftunum og ráðstafana sem erlend flugfélög gripu til. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, gekk millilandaflug ágætlega fyrir sig samkvæmt þeirri áætlun sem sett hafði verið upp á mánudag. Þrátt fyrir að verkfalli hafi verið aflýst í gærkvöld sagði Guðjón að viðbúnað- aráætlun Flugleiða vegna verkfalls- ins myndi gilda áfram fyrripartinn í dag, en ætti að komast í eðlilegt horf seinnipartinn. Innanlandsflug lá allt niðri í gær sökum hvassviðris og slæmra veður- skilyrða svo ekki reyndi á hvort verkfall flugumferðarstjóra hefði áhrif á það. Í gærmorgun voru tveir flugum- ferðarstjórar á vakt ásamt aðalvarð- stjóra í flugstjórnarmiðstöðinni, í stað ellefu á vakt undir venjulegum kringumstæðum. Því var búist við að nokkur röskun yrði á yfirflugi á ís- lenska flugstjórnarsvæðinu. Tals- vert minni umferð var um svæðið og síðdegis höfðu 33 vélar flogið í gegn frá klukkan sjö um morguninn, en til samanburðar flugu 169 flugvélar um flugstjórnarsvæðið allan sólarhring- inn þriðjudaginn 13. febrúar sl. Engin veruleg vandræði hjá British Airways Vegna sterkra vinda í háloftunum var lítið um flug milli Evrópu og Bandaríkjanna um íslenska flug- stjórnarsvæðið í gærmorgun og flug- umferðin fór að mestu sunnan við svæðið. Samkvæmt upplýsingum frá Flugmálastjórn olli verkfallið þó verulegum töfum á flugi margra flugfélaga og bárust kvartanir til flugstjórnarmiðstöðvarinnar vegna verkfallsins frá flugfélögunum Air France, British Airways og KLM. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá British Airways lagði félagið enga formlega kvörtun fram vegna verkfallsins. Hins vegar höfðu menn þar áhyggj- ur af því í gær að verkfallið gæti haft einhver áhrif á starfsemi félagsins, sérstaklega varðandi flug til vestur- strandar Bandaríkjanna og Kanada. Hins vegar gekk flugið ágætlega og vel tókst að greiða úr þeim vandræð- um sem hlutust af skertri þjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu. Engar verulegar seinkanir urðu því á flugi hjá British Airways fyrir utan vand- ræði vegna þoku á Bretlandseyjum í gærmorgun sem olli meiri seinkun á flugi en verkfall flugumferðarstjóra á Íslandi, að sögn upplýsingafulltrúa hjá British Airways. Félagið brá á það ráð að beina þeirri flugumferð sem ekki fór í gegnum flugstjórnar- svæði Íslands framhjá svæðinu og það olli einhverjum minniháttar seinkunum. Von á kvörtunum ef verkfallið drægist Að sögn Alan Gilbert hjá aðal- skrifstofu IATA, Alþjóðasamtökum flugfélaga, höfðu engar kvartanir eða beiðnir um aðstoð borist í gær frá flugfélögum vegna verkfallsins. Hann sagðist þó reikna með því, ef verkfallið stæði í tvo sólarhringa, að mörg flugfélög myndu í kjölfarið senda inn erindi þar sem farið yrði fram á að rætt yrði við íslensk stjórnvöld um leiðir til þess að forð- ast slíkt ástand, sér í lagi vegna hugsanlegs verkfalls 28. febrúar. Gilbert sagði að flugið vestur um haf færi fram á daginn og síðan flygju vélarnar austur yfir hafið seinni part dags og á næturnar. Þetta fyrirkomulag er vegna hálofta- vinda og er gerð áætlun á hverjum degi sem byggist á veðurskilyrðum. Í vesturfluginu er áætlunin hönnuð til að forðast höfuðvindana, sem eru ráðandi úr vestri. Í austurfluginu er flugáætlunin sett þannig upp að flug- vélarnar nái nýta sér meðvindinn sem best á leiðinni. Í gær voru skil- yrðin þannig að stór hluti af flug- umferð fór sunnan við íslenska flug- stjórnarsvæðið og hafði verkfallið því minni áhrif en ella. Að meðaltali fljúga um 270 vélar á dag gegnum ís- lenska flugstjórnarsvæðið og getur fjöldi þeirra farið upp í 500 við ákveðin veðurskilyrði. Aftur á móti getur fjöldi þeirra orðið nokkru minni, sem virðist hafa orðið raunin í gær. Engin meiriháttar vandræði vegna verkfalls flugumferðarstjóra Veður hamlaði flugi meira en verkfallið GREIÐSLUR og styrkir ríkisins til þess að halda uppi innanlandsflugi til og frá ákveðnum landsvæðum og sjúkraflugi nema alls um 160 millj- ónum króna á ári næstu þrjú ár, en þessa dagana er verið að ganga frá samningum við þrjú flugfélög á grundvelli útboðs sem fram fór í fyrra á vegum Ríkiskaupa. Styrkir til þess að halda uppi áætlunarflugi á ákveðnum landsvæðum nema um 210 milljónum króna á þremur árum en greiðslur vegna sjúkraflugs nema um 270 milljónum. Á þremur árum greiðir ríkið því flugfélögun- um um 480 milljónir króna í styrki og greiðslur og fær Flugfélag Ís- lands stærsta hlutann eða um 339 milljónir króna. Að sögn Jóhanns Guðmundsson- ar, skrifstofustjóra í samgönguráðu- neytinu, hafði Flugfélag Íslands lýst því yfir áður en útboðið fór fram að það hygðist hætta að fljúga frá Ak- ureyri til þeirra fimm staða sem kveðið var á um að það flygi til sam- kvæmt samningi sem undirritaður var í fyrradag. Það væri því óhætt að segja að áætlunarflugið hefði dregist saman og þjónustan við landsbyggðina minnkað ef ríkið hefði ekki ákveðið að styrkja flugið. Það er samgönguráðuneytið sem greiðir styrki vegna áætlunarflugs, en heilbrigðisráðuneytið og Trygg- ingastofnun sjá um greiðslur vegna sjúkraflugs. Flugfélag Íslands fær 50 m.kr. styrk á ári Jóhann sagði að þótt þjónustan vegna áætlunarflugsins hefði verið boðin út væri rétt að tala um styrki í þeim efnum. Um væri að ræða kaup á þjónustu sem ekkert fyrirtæki hefði keypt samkvæmt venjulegum viðskiptalegum forsendum. Hins vegar gegndi útboðið á sjúkraflug- inu öðru máli, því þar væri um að ræða bein kaup á þjónustu. Sam- kvæmt upplýsingum frá samgöngu- ráðuneytinu er gert ráð fyrir að áætlunarflug verði styrkt um 70 milljónir króna á ári næstu þrjú ár, en styrkirnir eru veittir Flugfélagi Íslands og Leiguflugi Ísleifs Otte- sen. Flugfélag Íslands fær um 50 milljónir króna árlega til þess að halda úti áætlunarflugi frá Akureyri til fimm staða, þ.e. Ísafjarðar, Grímseyjar, Þórshafnar, Vopna- fjarðar og Egilsstaða, en flogið verður til þessara staða þrisvar til fimm sinnum í viku. Leiguflug Ís- leifs Ottesen fær um 20 milljónir króna á ári til þess að annast leigu- flug frá Reykjavík til Gjögurs á Vestfjörðum og einnig flug innan Vestfjarða um háveturinn. Sam- kvæmt upplýsingum frá heilbrigð- isráðuneytinu greiðir það um 66 milljón krónur í fasta styrki árlega vegna sjúkraflugs. Fjárhæðin skipt- ist á milli þriggja flugfélaga, þ.e. Flugfélag Íslands, sem sér um sjúkraflug á Norður- og Austur- landi, fær um 47 milljónir, Leiguflug Ísleifs Ottesen, sem sér um flug á Vestfjörðum og suðursvæði, fær um 8 milljónir og Flugfélag Vestmanna- eyja, sem sér um sjúkraflug frá Vestmannaeyjum, fær 11 milljónir króna. Auk þessara greiðslna frá heilbrigðisráðuneytinu fá flugfélög- in greitt sérstaklega fyrir hverja flugferð en Tryggingastofnun rík- isins sér um þær greiðslur. Sam- kvæmt áætlun stofnunarinnar má gera ráð fyrir um 146 sjúkraflug- ferðum á Norður- og Austurlandi. Hvert flug kostar 108 þúsund krón- ur, þannig að Flugfélag Íslands fær um 16 milljónir króna á ári frá stofnunni og með greiðslunni frá ráðuneytinu fær flugfélagið því um 63 milljónir króna á ári fyrir sjúkra- flug. Áætlun Tryggingastofnunar gerir ráð fyrir um 50 sjúkraflug- ferðum frá Vestfjörðum og sam- kvæmt því fær Leiguflug Ísleifs Ottesen um sex milljónir króna frá stofnuninni og því alls um 14 millj- ónir fyrir sjúkraflug með greiðsl- unni frá ráðuneytinu. Gert er ráð fyrir 26 sjúkraflugferðum frá Vest- mannaeyjum og fær Flugfélag Vest- mannaeyja því um tvær milljónir frá Tryggingastofnun og um 13 millj- ónir alls fyrir sjúkraflug. Ríkið greiðir þremur flugfélögum um 480 milljónir króna á næstu þremur árum Styrkir til innan- landsflugs 210 m.kr.                                      !"   #$   #        % &  '   % (   )   TILBOÐ í viðgerð á brúnni yfir Hvítá hjá Ferjukoti í Borgarfirði voru opnuð á mánudag. Að sögn Einars Hafliðasonar, forstöðu- manns brúadeildar hjá Vegagerð- inni, verður gert við steypu- skemmdir í brúnni í því skyni að snyrta hana til. „Við erum að varð- veita þarna gamla og fallega brú sem við ætlum að halda upp á. Formið á henni er mjög fallegt en þetta er tvöföld bogabrú,“ segir hann. Brúin var byggð árið 1928 og er einbreið . Margir muna eftir henni frá því að hún var í alfaraleið á gamla Norðurlandsveginum áður en Borgarfjarðarbrúin leysti þá leið af hólmi. Athygli vekur að tæplega sextán milljóna munur var á hæsta og lægsta tilboði í viðgerðina. Lægsta tilboðið, sem Sandur og stál ehf. á Húsavík gerði, hljóðaði upp á tæpar 8,3 milljónir króna en hæsta til- boðið átti Einar Jónsson í Reykja- vík og var það tæpar 24,3 milljónir. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar var 11,1 milljón. Aron Bjarnason, deildarstjóri viðhalds brúa hjá Vegagerðinni, sagðist eiga von á að fljótlega yrði reynt að semja við lægstbjóðanda en tilboðin standa í einn mánuð. Hann sagði hinn mikla mun á til- boðunum ekki koma mikið á óvart. Búist er við að framkvæmdir hefjist með vorinu en að sögn Arons er vinnan þess eðlis að hún verði að fara fram í hlýju veðri. Gert við brúna hjá Ferjukoti Brúin hjá Ferjukoti. Myndin var tekin í flóðum í apríl 1999. Morgunblaðið/Ómar HRAFNINN virðist ekki alls kostar sáttur við fráganginn á þessum hnútum og virðist hafa mjög ákveðna tilburði til að breyta einhverju. Spurning er líka hvort hann leysir hnútinn eða heggur á hann. Hnútur bundinn eða leystur?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.