Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 47 DAGBÓK Tilbreyting frá stórborgarferðum... FÆREYJAR Græn borg í bláu hafi Nútímalegur bragur í bland við þjóðlega stemningu einkennir Þórshöfn í Færeyjum, sem er laus við ys og þys stórborganna. Gestrisni og vinátta einkenna móttökurnar hjá frændum okkar. Stuttar helgarferðir – slökun og tilbreyting Flogið er með þotu færeyska flugfélagsins Atlantic Airways frá Reykjavík á föstudagskvöldum og komið til baka á mánudegi. Í boði er gisting á þremur hótelum í höfuðborginni Þórshöfn; Hótel Tórshavn, Hótel Foröyar og á Hótel Hafnia. Tilboðsfargjald til 26. mars 2001 Frá 1. október s.l. höfum við boðið einstakt tilboðsverð sem gildir til 26. mars n.k. Innifalið er flug, flugvallaskattar, gisting í 3 nætur og morgunverður. Heildarverð á mann er frá 26.840- til 28.340- eftir hótelum, miðað við 2ja manna herbergi (gisting í eins manns herbergi kostar 26.840- til 31.340). Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf. Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515, www.gjtravel.is HELGARFERÐIR FRÁ 26.840 Ferðir á næstunni: Skíðaferðir til Crans-Montana í Sviss um páskana, vikuferðir til Berlínar í júní, vikuferðir til Prag í apríl og maí, 8 daga ferð til Prag í águst, og síðast en ekki síst páskaferð til Azoreyja í 9 daga.  Árneshreppsbúar og aðrir ættingjar og vinir. Innilegar þakkir fyrir að gera mér 17. febrúar ógleymanlegan. Gæfan fylgi ykkur. Pálína, Finnbogastöðum. SLÆM tromplega var óvenju algeng í tvímenn- ingi Bridshátíðar og var 5-0-lega frekar regla en undantekning. En það er ekki alltaf auðvelt að verj- ast með 5-lit í trompi. Spil 86 var sérstaklega athygl- isvert: Norður gefur; NS á hættu. (Áttum snúið.) Norður ♠ KG86 ♥ ÁK2 ♦ D982 ♣ DG Vestur Austur ♠ D10743 ♠ -- ♥ D975 ♥ 10864 ♦ 5 ♦ 1064 ♣Á107 ♣K96543 Suður ♠ Á952 ♥ G3 ♦ ÁKG73 ♣82 Vestur Norður Austur Suður Shenkin Ásmundur Zia Guðm. -- 1 grand Dobl Redobl 2 lauf Pass Pass 3 lauf Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Allir pass Þannig gengu sagnir þar sem Zia Mahmood og Ber- net Shenkin voru í AV gegn Ásmundi Pálssyni og Guðm. P. Arnarsyni. Dobl Zia á 15-17 sterku grandi sýndi annaðhvort langan láglit eða hálitina, en sagði ekkert til um punktastyrk. Sem er sniðug sagnvenja, ekki síst til að auðvelda vörnina. Eftir nokkra snúninga tókst NS að komast í sitt rétta geim og Shenkin sýndi mikinn aga að dobla ekki með fimmlit- inn. Hann kom út með laufás og spilaði aftur laufi á kóng Zia. Tígull kom til baka á ás suðurs og spaða- ásinn upplýsti leguna. Þá kom spaði á áttuna og tígli spilað. Trompi vestur er einfalt mál að taka ÁK í hjarta, stinga hjarta, svína spaðagosa, taka kónginn og síðan restina á tígul. Shenkin henti því hjarta. En síðan gerði hann þau mistök að trompa næsta tígul og þá var samgangur í tígli til verka spilið á sama hátt. Zia benti makker á að hann hefði átt að henda aftur hjarta, trompa svo fjórða tígulinn og spila spaða í þessari stöðu: Norður ♠ KG ♥ ÁK2 ♦ 8 ♣-- Vestur Austur ♠ D107 ♠ -- ♥ D9 ♥ 10864 ♦ -- ♦ 10 ♣7 ♣96 Suður ♠ 95 ♥ G3 ♦ K7 ♣-- Tígli er spilað, vestur trompar og spilar spaða (ekki hjarta, vegna gosans í suður). Þar með hlýtur sagnhafi að gefa slag hjarta í lokin (eða spaða, ef hann reynir að stinga hjarta). BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake FISKAR Afmælisbarn dagsins: Þú ert stundum of upptekinn af dagdraumum sem bæði pirr- ar vini þína en einnig leita þeir oft til þín um ráð. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Allt hefur sinn stað og sína stund. Það sem oft sker úr um árangur er að geta einmitt nýtt sér tækifærin og sveigt þau að þeim aðstæðum sem fyrir hendi eru. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þótt nokkuð liggi á skaltu ekki flýta þér það mikið að þú komist ekki yfir öll atriði málsins áður en þú grípur til framkvæmda. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það má ýmislegt læra af ferð- um á framandi slóðir ekki að- eins um mannlífið sem þar á sér stað heldur sér maður einnig margt á heimaslóðun- um í nýju ljósi. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Sú áætlun sem þú hefur á borðinu hjá þér virðist of áhættusöm. Þess vegna skaltu gera á henni nauðsyn- legar lagfæringar án þess þó að taka úr henni mesta púðr- ið. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert ansi upptekinn af sjálf- um þér og ættir aðeins að líta af speglinum og hlusta á þá sem hafa verið að reyna að ná athygli þinni án árangurs. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þegar utanaðkomandi hlutir eyðileggja vinnulag þá er ekki um annað að gera en snúa þessum hlutum sér í hag og nýta þá sér til góðs. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er margt sem dreifir huga þínum frá því verkefni sem þú þarft að geta einbeitt þér að. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er full ástæða fyrir þig til þess að gera þér dagamun en gakktu hægt um gleðinnar dyr því er alvara lífsins tekur við þarftu að vera undir hana búinn.\ Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Hugmyndirnar streyma til þín svo þú átt í vandræðum með að skrá þær helstu hjá þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér tekst nú að leiða til lykta mál sem hefur lengi vafist fyrir þér og með lausn þess hefur þú búið í haginn fyrir gott samband þitt við þína nánustu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þeir eru margir sem myndu gjarnan vilja leggja hönd á plóg ef þér bara tekst að koma þeim í skilning um hvað það er sem þú í raun og veru vilt að verði framkvæmt. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er ýmislegt að gerast hjá þér núna og þú átt fullt í fangi með að komast yfir það allra nauðsynlegasta. Veldu það besta og láttu hitt lönd og leið. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT HRAUN Í ÖXNADAL „Þar sem háir hólar hálfan dalinn fylla,“ lék í ljósi sólar, lærði hörpu að stilla hann, sem kveða kunni kvæðin ljúfu, þýðu, skáld í muna og munni, mögur sveita-blíðu. Rétt við háa hóla hraunastalli undir, þar sem fögur fjóla fegrar sléttar grundir, blasir bær við hvammi, bjargaskriðum háður. Þar til fjalla frammi fæddist Jónas áður. Hannes Hafstein. Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 21. febrúar, verður sjötugur Guðmundur Kr. Guð- mundsson, fv. verkstjóri, Goðaborgum 3, Reykjavík. Eiginkona hans er Jóhanna Þorbjörnsdóttir. Þau eru stödd erlendis. 60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 21. febrúar, verður sextugur Hreggviður Muninn Jóns- son frá Torfastöðum í Jök- ulsárhlíð, nú til heimilis að Tunguheiði 4, Kópavogi. Hreggviður er að heiman á afmælisdaginn en hann og eiginkona hans, Elsa Jóns- dóttir, bjóða ættingjum og vinum í kaffi á heimili þeirra sunnudaginn 25. febrúar milli kl. 15 og 18. STAÐAN kom upp á meistaramóti Taflfélagsins Hellis. Síðasta umferð mótsins fer fram kl. 19.30 í kvöld, 21. febrúar, í húsakynnum félagsins í Mjódd. Alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason (2355) hefur marga hild- ina háð en hann er í hópi forystu- sauða mótsins. Í fyrstu umferð tefldu hann og Haraldur Magnússon (1365) þar sem Sævari tókst að bera sigur úr býtum með svörtu eftir að hafa ginnt óvinakónginn fram á vígvöllinn. 20...Rxa3! 21.Kxa3 Leiðir strax til taps en aðrir leikir voru ekki heldur ákjósanlegir. 21...Da5+ 22.Kb3 Hc4! og hvítur gafst upp enda er fátt sem getur forðað honum frá feigum. Norðurlandamótinu í skólaskák lauk í Laugum í Dalasýslu fyrir stuttu. Svartur á leik. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Staða efstu manna í A-flokki varð þessi: 1. Stefán Kristjánsson 5 vinn- ingar af 6 mögulegum. 2.-3. Allan Rasmussen og Sigurður Páll Stein- dórsson 4 v. 4.-7. Bragi Þorfinnsson, Harald Borchgrevink og Andreas Hagen 3 ½ v. 100ÁRA afmæli. Ídag, miðvikudag- inn 21. febrúar, verður 100 ára Herdís Bjarnadóttir, sem nú dvelur á Heilbrigð- isstofnuninni á Hvamms- tanga. 80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 21. febrúar, verður áttræður Ásgeir Ármannsson, Ás- garði 63, Reykjavík. Hann dvelst að heiman á afmæl- isdaginn. Ásgeir og eigin- kona hans, Lára Herbjörns- dóttir, taka á móti ættingjum og vinum nk. laugardag, 24. febrúar, milli kl. 16 og 18 í félagsheimili knattspyrnufélagsins Vík- ings, Traðarlandi 1, Reykja- vík. 60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 21. febrúar, verður sextug Ósk Elín Jóhannesdóttir, Álfta- hólum 4, Reykjavík. Eigin- maður hennar er Óafur Sverrisson. Þau taka á móti gestum á heimili sínu í dag frá kl. 17-22. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.