Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN 32 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ GUNNAR Örn Gunnarsson skrifar grein í Morgunblaðið 14. febrúar sl. undir fyrirsögninni „For- ysta“ kennara hvað? Gunnar Örn er menntaður íþrótta- kennari en titlar sig sem „fyrrverandi kennara“. Í greininni vegur hann að mann- orði mínu og það sætti ég mig ekki við. Gunnar Örn fer með ýmsar staðleysur í grein sinni um þá kjarasamninga sem gerðir hafa verið und- anfarin ár. Hann heldur því fram að í kjarasamningi KÍ og HÍK við launanefnd sveitarfélaga árið 1997 hafi falist „eftirgjöf á umsömdum frídögum“. Þarna fer Gunnar Örn með rangt mál. Ekki voru gerðar neinar breytingar á starfstíma skóla og meðallaunahækkun var 33,5%. Ef til vill er Gunnar Örn að rugla saman kjarasamningi þeim sem gerður var við ríkið að loknu fimm vikna verkfalli KÍ og HÍK árið 1995. Þá var samið um fleiri kennsludaga en ég kannast ekki við nokkra „eftirgjöf á umsömdum frídögum“ hvorki í þeim kjara- samningi né öðrum sem ég hef tekið þátt í að gera. Með kjara- samningnum 1995 minnkaði hámarks- kennsluskylda kenn- ara úr 29 kennslu- stundum á viku í 28 kennslustundir og launin hækkuðu um tæp 20%. Gunnar Örn hefur sér til afsökunar að hann er ekki starfandi kennari og byggir væntanlega skoðun sína á nýgerðum kjarasamningi á sögu- sögnum. Því tel ég rétt að fræða hann ör- lítið um samninginn en hefði að vísu valið að gera það á öðrum vettvangi en í blöðunum. Laun hans sem íþrótta- kennara myndu samkvæmt nýja samningnum hækka úr kr. 134.812 á mánuði í að lágmarki kr. 173.555 1. ágúst nk. Sé miðað við meðaltal viðbótarlaunaflokka sem eru til ráðstöfunar í skólanum færu þau í kr. 189.648. Í lok samningstímans yrðu mánaðarlaunin miðað við að Gunnar fengi að meðaltali tvo af þessum viðbótarlaunaflokkum kr. 201.198. Hvað varðar launabreyt- ingar hjá íþróttakennara eins og Gunnari Erni felst ekki í þeim nein tilfærsla á greiðslum fyrir yf- irvinnu inn í grunnlaunin. Í nýja kjarasamningnum er vissulega samið um fleiri skóladaga nem- enda en árlegur vinnutími kennara verður áfram 1.800 klukkustundir á ári. Gunnar Örn sakar mig um óheil- indi og að ég hafi í fjölmiðlum beð- ið Guð að hjálpa kennurum yrði samningurinn felldur vegna þess að þá blasti aðeins við langt verk- fall. Ég minnist þess ekki að hafa ákallað Guð í fjölmiðlum í þessu sambandi. Það var hins vegar og er ennþá sannfæring mín að langt verkfall hefði ekki skilað okkur meiri kjarabótum en kjarasamn- ingurinn sem nú hefur verið sam- þykktur. Mat mitt byggi ég á reynslunni og samanburði á kjara- samningunum sem gerðir voru 1995 að loknu fimm vikna verkfalli, 1997 að loknu eins dags verkfalli og nú án verkfallsátaka. Rétt er að vekja athygli Gunnars Arnar á því að frá árinu 1995 þar til núgildandi kjarasamningur rennur út munu grunnlaun grunnskólakennara hafa hækkað um rúmlega 140% og þess vegna sit ég ekki þegjandi undir því að ég hafi ítrekað samið illilega af mér. „Forysta“ kennara hvað? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Samningar Gunnar Örn, segir Guðrún Ebba Ólafsdóttir, byggir væntanlega skoðun sína á nýgerðum kjarasamn- ingi á sögusögnum. Höfundur er formaður samninga- nefndar Félags grunnskólakennara. MÖRGUM finnst vafalaust að það sé að bera í bakkafullan lækinn að skrifa um flugvallarmálið. Engu að síður er það svo að nú, í aðdrag- anda flugvallarkosninganna, er tækifærið til að koma skoðunum og sjónarmiðum sínum á framfæri. Í umræðunni hefur oftlega komið upp spurningin um það hvers vegna verið sé að greiða atkvæði um málið nú, þegar gildandi skipulag geri ráð fyrir vellinum til ársins 2016. Mér finnst nauðsynlegt að koma betur til skila í umræðunni nauðsyn þess að taka á málinu einmitt nú, en ekki síðar. Svæðisskipulag Sveitarfélögin 8 á höfuðborgar- svæðinu, Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mos- fellsbær, Seltjarnarnes, Bessa- staðahreppur og Kjósarhreppur, hafa undanfarin ár unnið að svæð- isskipulagi fyrir höfuðborgarsvæð- ið allt. Þetta er í fyrsta skipti sem gerð er alvörutilraun til að vinna og fá samþykkt svæðisskipulag á höfuð- borgarsvæðinu. Með slíku skipu- lagi, sem á að gilda til ársins 2024, vilja sveitarfélögin móta stefnu um þróun byggðarinnar, nýtingu lands, meginumferðaræðar og skipulag samgangna, þ.m.t. almenningssam- göngur og hafnir, mörk byggðar og útivistarsvæða, uppbyggingu versl- unar- og þjónustukjarna, framboð á íbúða- og atvinnulóðum og svo framvegis. Þessi vinna er gríðar- lega mikilvæg til að þróun svæð- isins verði ekki tilviljunarkennd heldur byggist á skynsamlegri nýt- ingu lands og landkosta, meðferð opinberra fjármuna o.fl. 33 þúsund nýjar íbúðir Vinnan við svæðisskipulagið er nú á lokaspretti. Áformað var að ljúka henni fyrir síðustu áramót en það hefur dregist, ekki síst vegna umræðunnar um flugvöllinn og framtíð Vatnsmýrar- innar. Samkvæmt áætl- unum svæðisskipulags- ins þarf að byggja um 33 þúsund nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu næstu 24 árin. Það varðar miklu að þessari miklu aukningu sé skipulega fyrir komið og kylfa verði ekki látin ráða kasti um það hvert byggðin stefnir. Land er auðlind og því er brýnt að nýtingu þeirr- ar auðlindar sé stýrt með hagsmuni alls al- mennings að leiðar- ljósi. Og engum dylst að höfuðborgarsvæðið er allt eitt byggðaþóunarsvæði. Fari sveitar- félögin hvert í sína áttina getur bara farið illa og samkeppni á þessu sviði milli sveitarfélaganna leiðir óhjákvæmilega til offjárfest- ingar sem þjóðhagslega er afar óhagkvæm. Það er ein af megin- ástæðum þess að sveitarfélögin vilja vinna sameiginlega að þessu mikilvæga máli. Vatnsmýrin skiptir sköpum Ef byggðar yrðu um 5–6 þúsund íbúðir á flugvallarsvæðinu þá nem- ur það um 15–18% af áætlaðri þörf fyrir nýjar íbúðir á skipu- lagstímanum. Sumir telja jafnvel að unnt væri að byggja enn fleiri íbúðir á svæð- inu. Það er því ljóst, ekki síst vegna stað- setningar svæðisins í miðju borgarinnar, að það hefur úrslitaþýð- ingu fyrir þróun höf- uðborgarsvæðisins hvernig Vatnsmýrin verður nýtt á síðari hluta skipulagstíma- bilsins. Af þeim sök- um er óhjákvæmilegt að tekin verði afstaða til þess í svæðisskipulaginu hvort flugvöllur verður áfram í Vatnsmýri eftir árið 2016 eða ekki. Þeirri ákvörðun er ekki unnt að slá á frest eins og sumir halda fram, m.a. ýmsir ráða- menn þjóðarinnar. Enda liggur það í hlutarins eðli að ákvarðanir í skipulagsmálum varða að öllu jöfnu langa framtíð. Það á í hæsta máta við um flugvöllinn. Þegar niður- staða í atkvæðagreiðslunni 17. mars nk. liggur fyrir verður unnið út frá henni og hún mun endur- speglast bæði í tillögu að svæðis- skipulagi nú í vor og eins í tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Reykjavíkur síðar á árinu. Það skipulag sem þá tekur við og mun gilda til ársins 2024 mun að sjálf- sögðu verða jafnbindandi um land- nýtingu í Vatnsmýri eins og núgild- andi skipulag er talið gera varðandi flugvöllinn til ársins 2016. Þess vegna ræðst það án nokkurs vafa hinn 17. mars nk. hvort flugvöllur verður í Vatnsmýrinni í næsta að- alskipulagi Reykjavíkur eftir árið 2016 eða ekki. Flugvöllur? Hvers vegna nú? Árni Þór Sigurðsson Kosningar Óhjákvæmilegt er að tekin verði afstaða til þess í svæðisskipulag- inu, segir Árni Þór Sigurðsson, hvort flug- völlur verður áfram í Vatnsmýri eftir árið 2016 eða ekki. Höfundur er formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur og samvinnunefndar um svæðisskipu- lag höfuðborgarsvæðisins. E inu sinni fyrir löngu, áður en íslenskt sjónvarp fæddist, braut þáverandi formaður útvarps- ráðs gömlu Gufunnar í beinni út- sendingu vínylplötu með dæg- urlagi sem naut mikilla vinsælda. Textinn var óvenju rýr í roðinu („Ég vild’ ég væri hænuhanagrey“ o.s.frv.) og maðurinn vildi reyna að vinna gegn ásókn lágmenning- arinnar sem þá var að brjótast urrandi út úr fylgsni sínu. Stundum er ástvinum tung- unnar öllum lokið yfir enskudekr- inu, þeir fyllast örvæntingu og heift – og ráð- ast á vind- myllur. Nú hefur annar út- varpsráðs- maður gerst hugprúður í anda Don Kíkóta og ætlar að tryggja að dægurlög sem fá að fara til útlanda og keppa í Evró- visjón séu ekki með útlenskum texta. Þau eiga að vera virðulegir merkisberar menningararfsins. Stuðla að varanlegri dægurmenn- ingu. Söngvakeppnin evrópska er ljúf samkoma sem ekki reynir minnstu vitund á heilabúið í okk- ur, móðgast ekki þótt henni sé lýst þannig og er flestum gleymd eftir viku. Við sem annars viljum helst undirstöðubetri tónlist, t.d. betri popptónlist en þarna er á boðstólum eða klassíska tónlist, höfum samt stolist til þess að horfa frá því Íslendingar sendu fyrst fulltrúa árið 1986. Þegar illa stendur illa í bólið hjá manni getur þó blaðrið, glysið og leitin að samnefnaranum lága far- ið svo í taugarnar á manni að heppilegra er að slökkva og gera eitthvað annað. Rjómatertur eru stútfullar af eggjum og smjöri, skreyttar dí- sætum ávöxtum, konfekti og ann- arri óhollustu og okkur finnst þetta gott. Ummmm! Einstaka sinnum. En auðvitað dettur ekki mörgu fullvöxnu fólki í hug að lifa á svona fæði til langframa. Þannig eigum við að líta á uppá- komur eins og söngvakeppnina. Einhverjir í áheyrendaskaranum eru vafalaust sannir aðdáendur tónlistarinnar og þátttakendur taka þetta sumir alvarlega, þeir eiga hagsmuna að gæta. Þeir vilja vinna, verða kannski ríkir og frægir. Og þetta er stundum full atvinna þeirra sem er ekkert verra en að vera til dæmis nudd- ari eða skrifa pistil í blað í stað þess að rita nýja Njálu. En langflestir líta á þetta eins og hverja aðra skemmtun sem ekki ristir djúpt og á ekkert að gera það frekar en nothæfur fimmaurabrandari. Varla dettur nokkrum í hug að hann sé út af fyrir sig efni í doktorsritgerð en hann hefur sitt hlutverk í lífinu. Hvers vegna syngja flestir á ensku í keppninni? Vegna þess að hampaminnst er að sungið sé á tungumálinu sem allir eru orðnir vanir að sé notað í þessari tónlist. Á sama hátt og latína er notuð þegar ný lyf fá heiti. Ef tungu- málið í lagatextanum er of fram- andlegt truflar það áheyrendur, á sama hátt og smámæli eða skringileg rödd getur í fyrstu leitt athyglina frá því sem verið er að segja þegar við hittum mann í fyrsta sinn. Öll kunnum við, fjandvinir Evró, nú að segja einn, tveir, þrír og fjórir og gott kvöld á frönsku eftir margra ára þjálfun. En samt vitum við að enskan er eðlilegasti hlutur í heimi á þessum vettvangi og ekkert við því að segja þótt ís- lenskir popparar vilji fá að keppa á jafnréttisgrundvelli við hina. Misskilningur þeirra sem fárast yfir enskum texta við íslenskt lag er einmitt að þeir halda að um rammíslenskt framlag sé að ræða. En almennileg popptónlist er óþjóðleg. Evróvisjónlögum er ekki ætlað aðstyrkja grundvöll þjóðlegrar menningar frekar en pulsuáti er ætlað að efla heilsuna og gera okkur kleift að vinna hetjudáðir. Þau eru bara afþreying, eins og pulsan er bara skyndibiti. Ef ein- hverjir vilja lifa einvörðungu á skyndibita gera þeir það, hvað sem næringarsérfræðingar segja. Ef fólk vill fremur hlusta á dæg- urlög með texta á ensku en ís- lensku mun það einnig gera það. Útvarpsráð vill nú troða ís- lenskri Birtu inn í dimm sál- arkynni Evrósöngvaneytenda og hefur greinilega aldrei lagt á sig að fylgjast með eins og einni keppni í sjónvarpinu. Hver verða nær undantekningalaust örlög þeirra fulltrúa ókunnra smáþjóða sem reyna að nota tækifærið til að kynna eigin tungu í lögunum? Þeir fá falleinkunn, því miður, með einstaka undantekningum er þetta reglan. Vegna þess að neyt- endurnir eru alls ekki að biðja um rjómatertu með harðfisk- eða há- karlsbotni. Þeir vilja það sem þeir kannast að minnsta kosti við og helst eitthvað mjög sætt sem hægt er að kyngja í snatri og þarf ekkert að tyggja. Ef reynt verður að beita valdi til að breyta afþreyingarléttmeti í eitthvað annað en það er, gera það tormelt, getur farið illa. Almenn- ingur sættir sig allajafna við að gildi varanlegu menningarinnar hafi forgang á afþreyinguna og borgar möglunarlaust þann hluta skattanna sem við notum til að halda uppi grundvallarþáttum eins og íslenskri sinfóníuhljóm- sveit og þjóðleikhúsi. Við sem álít- um þetta nauðsynlegt erum í minnihluta og sannast sagna er ekki auðvelt að útskýra sann- girnina í því að hinir borgi sinn skerf af kostnaðinum. Vonandi dettur aldrei nokkrum í hug að láta úrskurða í þjóðaratkvæða- greiðslu hvort ríkið eigi yfirleitt að styrkja listir og menningu af almannafé. Niðurstaðan gæti orð- ið ískalt bað fyrir oss hina. En ef kjörnir valdhafar ráðsk- ast of mikið með dægurmenn- inguna og heimta að hún verði endingargóð og þáttur í varn- arbaráttunni gegn umheiminum stóra er of langt gengið. Menning- arvaldhafar sem ætla að tjóðra dægurlög við eigin smekk og rétt- hugsun geta alveg eins reynt að mæta á skíðum í veislusali Evró- visjón í Kaupmannahöfn. Dægurlag í tjóðri Evróvisjónlögum er ekki ætlað að styrkja grundvöll þjóðlegrar menningar frekar en pulsuáti er ætlað að efla heilsuna og gera okkur kleift að vinna hetjudáðir. VIÐHORF Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.