Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ FYRIR skömmu lauk tveimur lokuðum skákmótum og helgarskák- móti á Bermúda og voru tveir ís- lenskir keppendur meðal þátttak- enda. Forsaga málsins er sú, að meðan á Ólympíumótinu í Istanbúl stóð kom aðalskippuleggjandi móts- ins Nigel Freeman að tali við okkur Þröst Þórhallsson og bauð okkur á sitthvort mótið. Á mótinu sem mér var boðið á voru sex keppendur og tefld skyldi tvöföld umferð. Meðal- stig keppenda voru 2.566, en í tilfelli Þrastar voru tólf keppendur og með- alstig 2.454. Í kjölfar þessara lokuðu móta var svo helgarskákmót með öllum keppendunum úr lokuðu mót- unum auk annarra keppenda. Boðið var upp á fría hótelgistingu og uppi- hald, en keppendur þurftu að borga ferðir sjálfir. Þrátt fyrir dálítinn ferðakostnað ákváðum við að slá til, því það er þess virði að komast í sól- ina á þessum árstíma! Aðstæður á skákmótum gerast ekki betri. Gist var á fimm-stjörnu hóteli við strönd- ina með sundlaug í garðinum og í miðri sundlauginni var nuddpottur! Einnig voru eyjarskeggjar mjög vin- gjarnlegir í okkar garð. Þrátt fyrir góðar aðstæður byrjaði mótið frekar illa hjá okkur báðum. Ég byrjaði á að tapa tveimur fyrstu skákunum, en náði þó að klóra í „sundlaugar- bakkann“ þegar á leið og endaði með 5 af 10 sem er viðunandi árangur. Þröstur náði sér hins vegar ekki á strik og endaði með 4½ af 11. Sá hann sjaldan til sólar í byrjununum og verður þetta honum vonandi lexía í að bæta sig á því sviði. Sigurvegari A-mótsins var Pólverjinn Macieja með 7 af 10. Var hann vel að sigr- inum kominn. Þeim sem kannast ekki við nafnið má benda á að hann komst í 16-manna úrslit á heims- meistaramótinu í Nýju-Delhí og tap- aði aðeins fyrir Anand. Eftir lokuðu mótin tók við nokk- urra daga hvíld, en síðan hófst helg- arskákmótið. Áhersla var lögð á að menn tækju þátt í helgarmótinu því eyjarskeggjar vildu spreyta sig gegn erlendu meisturunum. Aðeins voru tefldar 5 kappskákir, tvær skákir á dag, og byrjaði fyrri skákin eldsnemma á morgnana. Í svona stuttu og erfiðu móti skiptir sköpum að vera í góðu formi og tefla sem minnst af löngum og erfiðum skák- um. Eftir þrjár umferðir vorum við Þröstur jafnir og efstir með 3 vinn- inga, en Þröstur lagði meðal annars Macieja að velli í baráttuskák! Þurftum við því að tefla saman í fjórðu umferð um morguninn og lauk þeirri skák með jafntefli eftir ekki langa baráttu. Náðum við því að hvíla okkur fyrir síðustu skákina. Fyrir síðustu umferð voru fimm skákmenn jafnir og efstir með 3½, við Þröstur, stórmeistarinn Shabal- ov, alþjóðlegi meistarinn Doettling frá Þýskalandi og alþjóðameistar- ann Shahade frá Bandaríkunum. Í síðustu umferðinni tefldu saman Shabalov-Doettling, ég fékk Shah- ade og Þröstur tefldi við Blehm frá Tékklandi. Ég náði að sigra Shah- ade, en Þröstur tapaði fyrir Blehm. Jafntefli varð í skákinni hjá þeim Shabalov-Doettling og varð því ljóst að ég var einn sigurvegari mótsins. Haldið var svo veglegt lokahóf seinna um kvöldið. Það var kannski viðeigandi að það var haldið í brids- klúbbnum og supu menn að sjálf- sögðu Bermúdaskál! Þess má geta að þetta er í annað skipti sem Ís- lendingur hefur unnið þetta mót. Ár- ið 1996 sigraði Jóhann Hjartarson með fullu húsi og hefur engum tekist að leika það eftir. Í þriðju umferð helgarmótsins mætti ég alþjóðlegum meistara frá Tékklandi. Fer sú skák fram hér að neðan. Hvítt: Hannes Hlífar (2570) Svart: R. Kalod (2490) Sikileyjarvörn [B85] 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7. 0-0 Be7 8. f4 0-0 9. a4 Dc7 10. Kh1 Rc6 11. Be3 He8 12. Bf3 Nú er kominn upp algeng staða í Najdorf-afbrigð- inu þar sem hvítur sækir á kóngs- væng, en svartur á drottningavæng. Reynslan hefur sýnt að nái svartur að brjóta sóknina á bak aftur stendur hann oft betur að vígi sökum þess að veikingar myndast við sóknarframrás hvítu peðanna. 12. ...Bd7 Aðrir möguleikar eru 12. ...Hb8 og 12. ...Bf8 13. Rb3 b6 14. g4 Bc8 15. g5 Rd7 16. Bg2 Bf8 Á skákmóti í Færeyj- um á síðasta ári lék úkraínski stórmeistar- inn Savchenko á móti mér 16. ...Bb7 og eftir 17. Dh5 Rb4 18. Rd4 g6 19. Dh3 Bf8 20. f5 exf5 21. exf5 Bxg2+ 22. Dxg2 Rc5 kom upp flókin staða sem endaði að lokum með jafntefli 17. Dh5 Annar möguleiki er 17. Hf3 17. ...Rb4 18. Hf2 Bb7 19. Haf1 He7? Upphafið að ógöngum svarts. Betra var 19. ...g6 20. Dh4 Bg7 með færum á báða bóga 20. Dh4 Einnig var hægt að leika Hf3 strax 20. ...g6 21. Hf3! Rxc2 Nú er svartur of seinn til varnaraðgerða því eftir 21. ...Bg7 22. Hh3 Rf8 23. Df2 Rd7 24. f5 fær hvítur stórsókn 22. Bg1 Dc4?! Síðasti möguleikinn var 22. ...Rb4 23. Rd2 Db4 24. Hh3 h5 25. gxh6 Hc8 Ekki 25. ...Dxb2 26. Hb1 Da3 og nú vinnur bæði 27. Rc4 og 27. Rd5 26. Hg3 Kh7 27. Dg5! Sjá stöðumynd 2. Svartur er varnarlaus. Gegn hót- uninni f5 á hann enga viðunandi vörn 27. ...Hce8 28. f5 exf5 29. exf5 Bxg2+ 30. Hxg2 Bxh6 31. fxg6+ Kg7 32. Hxf7+ Hxf7 33. gxf7+ Bxg5 34. fxe8D 1-0 Davíð Ólafsson skákmeistari Hellis Davíð Ólafsson er efstur á Meist- aramóti Hellis þegar ein umferð er eftir. Hann er með vinnings forystu og hefur þegar tryggt sér titilinn skákmeistari Hellis. Einungis Sæv- ar Bjarnason getur náð honum að vinningum, en þeir mætast einmitt í síðustu umferð. Helstu úrslit sjöttu umferðar urðu þessi: 1. Davíð Ólafss. - Sigurbjörn Björnss. 1-0 2. Sævar Bjarnas. - Dagur Arn- grímss. 1-0 3. Baldur Kristinss. - Sigurður D. Sigfúss. 0-1 4. Jón Á. Halldórss. - Björn Þor- finnss. ½-½ 5. Andrés Kolbeinss. - Róbert Harðars. 0-1 Röð efstu manna fyrir síðustu um- ferð er þessi: 1. Davíð Ólafsson 6 v. 2. Sævar Bjarnason 5 v. 3.-4. Sigurður Daði Sigfússon, Ró- bert Harðarson 4½ v. 5.-11. Sigurbjörn J. Björnsson, Jón Árni Halldórsson, Björn Þor- finnsson, Þorvarður F. Ólafsson, Vigfús Ó. Vigfússon, Halldór Garð- arsson, Rafn Jónsson 4 v. o.s.frv. Lokaumferðin verður tefld í kvöld, miðvikudag, og hefst klukkan 19.30. Áhorfendur eru velkomnir. Helsti keppinautur Davíðs um meistaratitil Hellis fór illa að ráði sínu í innbyrðis viðureign þeirra í fjórðu umferð mótsins eins og sjá má í eftirfarandi skák. Hvítt: Davíð Ólafsson Svart: Björn Þorfinnsson Ítalski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4. Bc4 Bc5 5. c3 Rf6 6. e5 De7? Björn hefur margoft teflt þessa byrjun og þekkir hana vel. Að þessu sinni var höndin hins vegar sneggri en hug- urinn og hann gerði sér grein fyrir mistökunum um leið og hann hafði sleppt drottningunni. Besti leikur- inn er 6. ...d5, t.d. 7. exf6 dxc4 8. De2+ Be6 9. fxg7 Hg8 10. Bg5 með flókinni stöðu. 7. 0-0 Rg4 Eða 7. ...Re4 8. cxd4 Bb6 9. Bd5 og hvítur vinnur mann. 8. cxd4 Bb6 Eftir 8. ...Rxd4 9. Rxd4 Dh4 10. Bf4 Rxh2 11. Bxh2 Dxd4 hefur svartur litlar bæt- ur fyrir manninn, sem hann fórnar. 9. Rc3 – 9...d6 Eða 9. ...0-0 10. Rd5 De8 11. h3 Rgxe5 12. Rxe5 Rxe5 13. Rxb6 axb6 14. dxe5 Dxe5 og hvítur á vinn- ingsstöðu. 10. h3 Rh6 11. He1 0-0 Svartur er varnarlaus. Hann á ekki betri leið en þá, sem hann fer í skák- inni. 12. Bg5! De8 13. Bxh6 gxh6 14. Rd5 Dd8 15. Rf6+ Kg7 16. Dc2 Hh8 17. Rh5+ Kg8 18. Dd2 Df8 19. Df4 -- og svartur gafst upp, því að hann á enga vörn við hótuninni 20. Rf6+ Kg7 21. Dg3+ og mátar. Eftir 19. ...De7 20. Dxh6, ásamt 21. Rf6+ o.s.frv. Skákmót á næstunni 24.2. SA. Hraðskák, yngri fl. 25.2. Hellir. Kvennameistaramót 25.2. SA. Akureyrarmót í hraðsk. 26.2. Hellir. Atkvöld Bermúdaskál Hannesar Hlífars Daði Örn Jónsson Hannes Hlífar Stefánsson Bragi Kristjánsson SKÁK B e r m ú d a SKÁKHÁTÍÐ 2001 20. jan.–4. febr. 2001 Hannes Hlífar Stefánsson Davíð Ólafsson Stöðumynd 2. Íbúð óskast í Kópavogi Fyrirtæki óskar eftir íbúð til leigu fyrir starfs- menn, helst í austurhluta Kópavogs. Góðri fyrirframgreiðslu heitið. Vinsamlega hafið samband í síma 897 6640. Borun rannsóknarholu og vegagerð í Grændal Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 21. febrúar til 4. apríl 2001 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstof- um sveitarfélagsins Ölfuss og bókasafninu í Hveragerðisbæ. Einnig liggur skýrslan frammi í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík. Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Sunnlenskrar orku: http://www. rarik.is/sunnorka/ Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 4. apríl 2001 til Skipulagsstofnunar, Lauga- vegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Skipulagsstofnun. HÚSNÆÐI ÓSKAST S M Á A U G L Ý S I N G A RI KENNSLA Keramiknámskeið Þú getur byrjað þegar þú vilt. Miðvikudagskvöld kl. 20-23. Keramik fyrir alla, Laugavegi 48b, s. 552 2882. FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  1812218  II  GLITNIR 6001022119 II  Njörður 6001022119 I I.O.O.F. 7  18122171/2  Mk. I.O.O.F. 9  1812218½  9.II  HELGAFELL 6001022119 IV/V Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58—60. Samkoma í Kristniboðssaln- um, Háaleitisbraut 58, í kvöld kl. 20.30. Hjónin Mar- grét Hróbjartsdóttir og Benedikt Jasonarson tala. Allir hjartanlega velkomnir. Netfang http://sik.is . Skyggnilýsingafundur verður haldinn á vegum Sálar- annsóknarfélagsins í Hafnafirði 22. febrúar í Góðtemplarahúsinu kl. 20.30. Enski miðillinn John Alexander annast skyggnilýsing- una. Túlkað verður yfir á íslensku. Aðgöngumiðar verða seldir í Góðtemplarahúsinu miðviku- daginn 21. febrúar frá kl. 17-19 og við innganginn fyrir fundinn kl. 19.30-20.30. Stjórnin. Miðvikudagur 21. feb. kl. 20. Fundur jeppadeildar Útivist- ar hjá Arcitc Trucks, Nýbýla- vegi. Dagskrá: 1. Félagsmál. 2. Undirbúningur fyrir Arnar- vatnsheiði og kynntar næstu ferðir. Þátttaka er mikil í jeppaferð á Arnarvatnsheiði 23.—24. febrúar, bókið og takið miða strax. Nýir Útivistarfélagar streyma inn. Skráning á skrifst. eða á netfangi: utivist@utivist.is . Sunnud. 25. febrúar kl. 10.30: a. Stokkseyri—Eyrarbakki, stórstraumsfjara. b. Skíðaferð: Hellisheiði — Hengladalir. Sjá heimasíðu: utivist.is og texta- varp bls. 616. R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.