Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt umsögn Hjörleifs B. Kvaran borgarlögmanns og mælt gegn samþykkt frum- varps til nýrra safnalaga í óbreyttri mynd. Nefndin hafði áðurtekið undir orð borgarlög- manns, og talið að með hinum nýju lögum væri verið að að leggja til grundvallarbreyt- ingu á minjavörslunni í Reykjavík. Segir borgarlögmaður í bréfi til borgarráðs, í lok síð- asta árs, að samkvæmt 2. grein frumvarpsins skuli mennta- málaráðherra fara með yfir- stjórn minja- og listasafna, en til minjasafna teljist menning- arminjasöfn og náttúrugripa- söfn. Gera verði alvarlega at- hugasemd við þetta ákvæði frumvarpsins, en af því verði ráðið að ráðherra fari m.a. með yfirstjórn minjasafna (byggða- safna) og listasafna sveitar- félaga. Ákvæðið stríði gegn sjálfsákvörðunarrétti sveitar- félaga samkvæmt 78. grein stjórnarskrárinnar og 1. grein sveitarstjórnarlaga nr. 45/ 1998. Nauðsynlegt sé að frum- varpinu verði breytt og undir- strikað að það taki til safna í eigu ríkisins, eða það endur- samið ef ætlunin sé sú að það taki einnig til safna í eigu sveit- arfélaga, félaga eða einka- stofnana. Þá sé í 10. grein frumvarps- ins fjallað um safnasjóð og þar sé þess getið að öll söfn sem undir lögin muni falla geti sótt um verkefnatengda styrki til safnasjóðs. Til þess að geta sótt um rekstrarstyrki þurfi safn að uppfylla tiltekin skil- yrði, en meðal skilyrðanna sé að safnið hafi sjálfstæðan fjár- hag og starfi eftir stofnskrá sem hlotið hafi staðfestingu safnaráðs. Af þessu verði ráð- ið, að útiloka eigi söfn sveitar- félaga frá rekstrarstyrkjum úr safnasjóði. Byggða- og lista- söfn sveitarfélaga eigi tví- mælalaust að sitja við sama borð og önnur söfn, þegar komi til úthlutunar úr sameig- inlegum sjóðum þjóðarinnar. Er lagt til að mælt verði gegn samþykkt frumvarpsins í óbreyttri mynd. Á fundi menningarmála- nefndar borgarinnar 7. febr- úar sl. var í meginatriðum tek- ið undir þessa umsögn borgarlögmanns, sem og um- sagnir hans um frumvörp til þjóðminjalaga og laga um húsafriðun. Orðrétt segir menningarmálanefnd: „Nefndin vekur athygli á að með frumvarpi til nýrra þjóð- minjalaga er verið að leggja til grundvallarbreytingu á minja- vörslunni í Reykjavík. Sam- kvæmt núgildandi þjóðminja- lögum fer borgarminjavörður með minjavörslu í Reykjavík. Þetta ákvæði er hins vegar fellt niður í frumvarpinu. Þess- ari breytingu andmælir nefnd- in sérstaklega. ... Í Reykjavík hefur verið unnið mjög ötul- lega að því að skrá fornleifar og hús. Árbæjarsafn hefir staðið og stendur fyrir viða- miklum fornleifarannsóknum í Viðey og Aðalstræti og hefur sinnt framkvæmdaeftirliti inn- an borgarmarkanna. Í safninu er orðin til mikil þekking og reynsla af minjavörslu og stór gagna- og heimildasöfn: skrá yfir hús í Reykjavík byggð fyr- ir 1945 og Fornleifaskrá Reykjavíkur. Það hljóta að vakna spurn- ingar um hvort hægt sé að gera svo viðamiklar breyting- ar á minjavörslu í Reykjavík án viðræðna við Reykjavíkur- borg. Breytingin snertir þá grundvallarspurningu hvort öll minjavarsla í landinu eigi að vera á vegum ríkisins og stofn- ana þess en sveitarfélög hafi þar ekki neinu hlutverki að gegna eða hvort sé eðlilegra að minjavarslan verði falin sveit- arfélögunum. Á undanförnum árum hafa sveitarfélögin víða um land einatt haft frumkvæði að verkefnum á sviði minja- vörslu. Má þar nefna fornleifa- skráningu, húsakannanir og verkefni á sviði menningar- tengdrar ferðamennsku. Þess konar verkefni standa heima- mönnum næst og á byggða- söfnum er orðin til reynsla og þekking sem nauðsynlegt er að nýta. Þá er einnig margt óljóst varðandi skyldur og fjárhags- lega ábyrgð, t.d. hvað snertir fornleifaskráningu. Sú skipan sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu virðist í nokkurri andstöðu við þá stefnu að fela sveitarfélögum í auknum mæli verkefni sem hafa verið á sviði ríkisins. Má í því sambandi benda á aðra málaflokka eins og skipulags- og fræðslumál. Minjavarsla og starfsemi safna er nátengd þeim málaflokkum.“ Frumvarp til nýrra safnalaga, þjóðminjalaga og laga um húsafriðun gagnrýnt Hefur í för með sér grundvall- arbreytingu á minjavörslunni Reykjavík KVEIKT verður á nýj- um hnappastýrðum um- ferðarljósum fyrir fót- gangandi í dag á mótum Suðurgötu og Starhaga. Þetta verða þrítugustu og önnur hnappastýrðu gangbrautarljósin í Reykjavík en hin fyrstu voru tekin í notkun á Bú- staðavegi við Grímsbæ 9. september 1971. Ný um- ferðarljós Vesturbær SUMUM Reykvíkingum fannst eins og fyrsti vetr- ardagurinn væri í gær þeg- ar brast á með dimmum hríðaréljum. Það sem af er vetri hafa borgarbúar varla þurft að taka fram skófl- urnar til að moka tröppur húsa sinna og muna margir ekki annan eins góðviðris- vetur. Fyrsti vetrar- dagurinn Morgunblaðið/RAX KJARTAN Eggertsson, skólastjóri Tónskóla Hörp- unnar í Grafarvogi, segir að Fræðsluráð Reykjavíkur hafi neitað skólanum um styrk til tilraunaverkefnis vegna þess að hann hafi kært meinta mismunun tónlistarskóla hvað varðar fjárframlög frá borginni til Samkeppnisstofn- unar. Hrannar B. Arnarsson, varaformaður Fræðsluráðs Reykjavíkur, segir eðlilegt að bíða með breytingu á þeirri stefnumörkun borgarinnar að veita ekki nýjum tónlistar- skólum styrk meðan á með- ferð samkeppnisyfirvalda á málinu stendur. 84 nemendur stunda al- mennt tónlistarnám í Tón- skóla Hörpunnar, sem rekinn hefur verið frá árinu 1999. Að auki á skólinn aðild að verk- efni á vegum borgarinnar sem felst í því að bjóða nem- endum 1. bekkjar grunnskóla í Breiðholti forskólanám í tónlist. Kjartan segir að borgin verji um 420 m.kr. í styrki til 14 tónlistarskóla í borginni og nemi styrkurinn 100–400 þús. kr. á hvern nemanda. Auk þess verji borgin 60 m.kr. á ári til skólahljómsveita. Um- sókn Tónskóla Hörpunnar um að fá fasta fjárveitingu frá borginni miðað við nemenda- fjölda hefur tvívegis verið synjað og að sögn hans hefur verið vísað til stefnu borgar- innar að fjölga ekki þeim tón- listarskólum sem fá fastar fjárveitingar frá borginni. Fleiri tónlistarskólar eru í sömu sporum. Að fenginni synjun við af- greiðslu síðustu fjárhags- áætlunar borgarinnar kærði Kjartan þessa stefnu borgar- innar til Samkeppnisstofnun- ar á þeim forsendum að mis- munun tónlistarskóla á þennan hátt bryti gegn ákvæðum samkeppnislaga. Hann sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær jafn- framt hafa sótt um styrk til Fræðsluráðs af því 17,5 m.kr. framlagi sem veitt er til ým- issa verkefna og kvaðst hafa fengið munnlegt vilyrði fyrir slíku framlagi frá Hrannari B. Arnarssyni. Á síðasta fundi Fræðsluráðs hefði mál- ið verið afgreitt en ekki staðið við fyrirheit um styrk til Tón- skóla Hörpunnar. Hrannar hefði sagt sér á mánudag að ástæðan væri óánægja Fræðsluráðs með kæruna til samkeppnisyfirvalda. Hrannar B. Arnarsson sagðist í samtali við Morgun- blaðið vissulega hafa sýnt Tónskóla Hörpunnar áhuga en fráleitt væri að túlka slíkt sem vilyrði frá Fræðsluráði um styrk. Hann sagði að sú stefnumörkun hefði lengi leg- ið fyrir að nýir tónlistarskólar yrðu ekki teknir inn á fjárlög. Á sama hátt og aðrir tónlist- arskólar sem ekki eru á föst- um fjárlögum hefði Tónskóli Hörpunnar sótt um styrk til borgarinnar út á tilrauna- verkefni, en Fræðsluráð hefði ekki fallist á það á þessu stigi málsins. Fyrrgreindri stefnu- mörkun borgarinnar hefði verið fylgt lengi og margir tónlistarskólar, sem ekki eru á fjárhagsáætlun, væru ósátt- ir við hana og Kjartan hefði óskað eftir úrskurði sam- keppnisyfirvalda um rétt- mæti þeirrar stefnu. „Það liggur fyrir að meðan þessi stefnumótun er til úr- skurðar hjá samkeppnisyfir- völdum fara menn ekki að víkja frá henni heldur bíða niðurstöðu. Að því leyti má segja að þessi kæra hafi áhrif á styrkveitingarnar að við bíðum niðurstöðu og gerum ekki breytingar á meðan.“ „Menn standa frammi fyrir því að það er takmarkað fjár- magn til þessa málaflokks en það er engin listgrein sem fær eins veglega styrki og tónlistin og tónlistarskólarn- ir,“ sagði Hrannar. Hann sagði að komi til þess að samkeppnisyfirvöld geri athugasemdir við stefnu- mörkunina yrði hún sjálfsagt endurskoðuð. Kjartan Eggertsson sagði að í Grafarvogi, þar sem tón- skóli hans starfar, byggju 21% allra grunnskólabarna í borginni en aðeins 12% þeirra barna sem stunda tónlistar- nám. Hann sagði að miðað við að hann fengi framlög af fjár- hagsáætlun í takt við það sem þeir tónlistarskólar fá sem njóta minnstra styrkja ætti framlag til hans að nema 8,4 m.kr. eða 100 þús. kr. á hvern nemanda. Kjartan sagði að segja mætti að með stefnumörkun borgarinnar hefði verið sett kvótakerfi á fjölda tónlistar- skóla í borginni á sama tíma og hundruð barna væru á biðlistum eftir að komast í nám í tónlistarskólum. Tónskóli Hörpunnar fékk ekki styrk frá Fræðsluráði Segir kærumál vera ástæðu synjunarinnar Grafarvogur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.