Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 46
DAGBÓK 46 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sat- urnus og Ingar Iversen koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Staltor kemur í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sólvalla- götu 48, Reykjavík. Skrifstofan er opin miðvikud. kl. 14- 17. S. 551-4349. Fataúthlutun og fatamóttaka er opin annan og fjórða hvern miðvikud í mánuði, kl. 14-17, s. 552-5277. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–16.30 klippimyndir, útsaumur o.fl., kl. 13 smíðastofan opin og spilað í sal, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8- 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna og fótaað- gerðir, kl. 10 banki, kl.13 spiladagur og vefnaður. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið á Hlaðhömrum er á þriðjud. og fimmtud. kl. 13-16,30, spil og föndur. Sundtímar á Reykja- lundi kl. 16 á miðvikud. Pútttímar í Íþróttahús- inu að Varmá kl. 10-11 á laugard. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldriborgara í Mos., á Hlaðhömrum á fimm- tud. kl. 17-19. Jóga kl.13.30-14.30 á föstud. í Dvalarheimilinu á Hlað- hömrum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13-16. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18-20. Kl. 9 böðun, hárgreiðslustof- an og handavinnustofan opnar, kl. 13 opin handavinnustofan. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting og verslunin opin til kl. 13, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félagsstarf aldraða í Garðabæ. Spilað í Kirkjulundi á þriðju- dögum kl. 13.30. Fóta- aðgerðir mánudaga og fimmtudaga. Ath. nýtt símanúmer, 565-6775. Bingó og skemmtikvöld í Kirkjuhvoli 22. febrúar kl. 19.30 á vegum Lionsklúbbs Garða- bæjar. Rútuferðir sam- kvæmt áætlun. Ferð í Þjóðleikhúsið 24. febr- úar kl. 20. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Línudans kl 13. Mynd- mennt kl. 13. Píla kl. 13.30. Á morgun eru púttæfingar í Bæjarút- gerðinni kl. 10 til 12 og bingó kl. 13.30. Leik- húsferð laugardaginn 24. febr. Á sama tíma síðar. Aðgöngumiðar seldir í Hraunseli í dag milli kl. 14 og 16. Haustferð FEBH til Prag, Bratislava, Búda- pest og Vínar, skráning og allar upplýsingar í Hraunseli, s. 555 0142. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Göngu-Hrólf- ar fara í létta göngu frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 10. Söngfélag FEB, kóræf- ing kl. 17. Línudans- kennsla kl. 19.15. Aðal- fundur FEB verður haldinn í Ásgarði, Glæsibæ, 24. febrúar kl. 13.30. Góugleði á vegum FEB og Heimsferða verður haldin föstudag- inn 2. mars nk. Silfur- línan opin á mánudög- um og miðvikudögum frá kl. 10–12. Ath. Opið er á skrifstofu FEB frá kl. 10–16. Upplýsingar í síma 588-2111. Félagsstarfið Hæðar- garði 31. Kl. 9 opin vinnustofa, posulíns- málun og fótaaðgerðir, kl. 13 böðun kl. 13.30 samverustund. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. hringdansar, kl. 17 bobb. Myndlistarsýning frístundamálara í Gjá- bakka stendur yfir til 23. febrúar. Góugleði verður í Gjábakka fimmtudaginn 22. feb. og hefst kl. 14. Fjöl- breytt dagskrá, m.a. munu börn frá leikskól- anum Fögrubrekku og Kársneskórinn syngja nokkur lög, Nokkrir nemendur úr MK koma í heimsókn og Kristín Hreinsdóttir syngur einsöng við undirleik Agnesar Löve. Vöfflu- kaffi. Allir velkomnir. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.10 og 10.10 leikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13 ker- amikmálun, kl. 13.30 enska. Hraunbær 105. Kl. 9- 16.30 bútasaumur, kl. 9- 12 útskurður, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, hárgreiðsla, keramik, tau- og silkimálun og jóga, kl. 11 sund í Grensáslaug, kl. 14 danskennsla, Sigvaldi, kl. 15 frjáls dans Sig- valdi, kl. 15 teiknun og málun. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, hittast á morgun fimmtudag kl. 10 í Keilu í Mjódd. Spiluð keila, spjallað, kaffi. Allir vel- komnir. Nánari upplýs- ingar veitir Ingibjörg Sigurþórsdóttir í síma 545-4500. Norðurbrún 1. Fótaað- gerðarstofan opin frá kl. 9–14, kl. 9–12.30 út- skurður, kl. 9-16.45 handavinnustofurnar opnar, kl. 10 sögustund, kl. 13-13.30 bankinn, kl. 14 félagsvist, kaffi og verðlaun. Vesturgata 7. Kl. 8.30 sund, kl. 9 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 aðstoð við böðun, mynd- listarkennsla og postu- línsmálun, kl. 13–16 myndlistarkennsla, glerskurður og postu- línsmálun, kl. 13–14 spurt og spjallað. Mið- vikudaginn 21. febrúar verður farið kl. 13.20 í Ásgarð, Glæsibæ. Sýnd- ar verða gamlar perlur með Snúði og Snældu. Skráning í síma 562- 7077. Föstud. 23. febrú- ar kl. 15 verður Rebekka með ferða- kynningu á vegum Úr- vals-Útsýnar, happ- drætti, rjómabollur með kaffinu. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9.30 bankaþjónusta, kl. 10 morgunstund og fótaað- gerðir, bókband og bútasaumur, kl. 13 handmennt og kóræf- ing, kl. 13.30 bókband, kl. 14.10 verslunarferð. Bústaðakirkja, starf aldraðra, miðvikudaga kl. 13–16.30 spilað, föndrað og bænastund. Boðið upp á kaffi. Allir velkomnir. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu, Hátúni 12. Félagsvist í kvöld kl. 19.30. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Hallgrímskirkja. Eldri borgarar, opið hús í dag kl. 14–16. Gestir Hafliði Þ. Jónsson píanóleikari og sr. Sigurður Pálsson sóknarprestur. Verið velkomin. Kvenfélagið Aldan. Fundur verður í kvöld í Borgartúni 18 kl. 20.30. Gestur fundarins Hildur M. Jónsdóttir ráðgjafi. ITC-deildin Fífa. Fund- ur í kvöld kl. 20.15 í safnaðarheimili Hjalla- kirkju, Kópavogi, Álfa- heiði 17. Gestir vel- komnir. Blóðgjafafélagið. Aðal- fundurinn verður hald- inn 28. febrúar kl. 20 í anddyri K-byggingar Landspítalans. Fundur- inn er öllum opinn. Kvöldvökufélagið „Ljóð og saga“ verður 40 ára 24. febrúar. Þann dag verður árshátíð í Húna- búð, Skeifunni 11. Veislumatur, skemmti- atriði, dans. Vonast er til að sem flestir félags- menn og einnig afkom- endur látinna félaga mæti. Þátttaka tilkynn- ist til Hrafnhildar Kristinsdóttur, s. 565- 6186 eða 892-5208. Í dag er miðvikudagur 21. febrúar, 52. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur, er liggur til lífsins, og fáir þeir, sem finna hann. (Matt. 7, 14.) HEFUR verið gerð könn- un á því hvort fólk vilji vetr- arfrí í skólum? Á Íslandi eru stutt sumur. Á ekki frekar að leyfa börnunum að njóta þeirra? Fyrir hverja er vetrarfrí? Telur fólk í ferðaþjónustu úti á landi að við höfuðborgarbú- ar viljum koma t.d. til Aust- fjarða á veturna? Við kom- um til Austfjarða mikið til vegna veðurs. Fyrir austan og norðan er oft gott veður á sumrin, oft í kringum 20 stiga hiti. Þannig veður er ekki á veturna og ef vetr- arfríum verður komið á mun fólk ekki fara út á land. Þeir ríku munu kannski fara til útlanda en hinir eru bara heima og börnin líklega ein heima. Þessi fáránlega hugmynd að börn eigi bara að fá 6–8 vikur í sumarfrí gengur ekki upp. Á þá að loka flest- um fyrirtækjum í landinu á meðan? Ég held að foreldr- ar vilji fara í frí á sama tíma og börnin. Það var gerð könnun fyrir stuttu hvernig Íslendingar ferðast, við för- um ekki á hótel, við viljum ferðast með okkar tjöld og ekki förum við að tjalda t.d. í Vaglaskógi um hávetur. Nei, það er ekki hægt að loka börn inni í skólastofum um bjartasta og hlýjasta tíma ársins. Dagný. Innanlandsflug til Keflavíkur HVAÐ er til ráða þegar allt tilstand getur verið frítt fyrir okkur Íslendinga? Er þá málið að segja nei, takk, eða erum við það stolt að geta ekki sagt takk fyrir? Ástæða þess að ég segi þetta er einföld, vegna þess að flugbrautir og öll þjón- usta við þær kosta okkur ekki krónu hvað flugstöð varðar. Þá er einn kostur til staðar, t.d. hús í stærðar- flokki húsnæðis Suðurflugs á Keflavíkurflugvelli. Það er ekki minna heldur en það sem fyrir er á Reykja- víkurflugvelli. Talandi um öryggi, þá er Keflavíkurflugvöllur með eitt besta slökkvilið sem völ er á þótt víðar væri leitað, innan- sem utanlands. Eng- inn kostnaður varðandi snjóhreinsun og hálkuvarn- ir. Hvað er þá málið hjá ráðamönnum nema eitt og það er að safna meiri skuld- um fyrir íslenska skatt- borgara? Svar óskast. Sigurjón Hafsteinsson. Röng myndbirting LESANDI hringdi og gerði athugasemd við að undir fyrirsögninni „björg- unarsveitir kallaðar út á Stykkishólmi“ á mbl.is, föstudaginn 16. febrúar sl., sé mynd af Borgarnesi. Veit blaðamaðurinn ekki að Stykkishólmur er á norðan- verðu Snæfellsnesi en Borgarnes er talsvert langt frá, meira að segja á sunn- anverðu nesinu? Tapað/fundið Kerra hvarf frá Sléttahrauni LÍTIL fólksbílakerra hvarf frá Slettahrauni 32 í Hafn- arfirði föstudagsmorgun- inn 9. febrúar sl. Kerran er sérsmíðuð úr rauðum ryðg- uðum vinkiljárnum og brúnum krossvið. Kerran er ómetanleg öryrkjanum sem hún hvarf frá. Ef ein- hver veit um afdrif kerr- unnar, er hann vinsamleg- ast beðinn að hafa samband við Ingvar í síma 555 3978. Gullhálsmen tapaðist GULLHÁLSMEN, eins og tígull í laginu með 12 stein- um, tapaðist 25. janúar sl. Gæti hafa verið fyrir utan Háaleitisbraut 107. Háls- menið hefur mikið tilfinn- ingalegt gildi fyrir eigand- ann og þess er sárt saknað. Fundarlaun. Skilvís finn- andi er vinsamlegast beð- inn að hafa samband í síma 551 5880. Merktir pennar ÉG er í hjólastól og safna merktum pennum. Mig langar til að fá penna hjá sem flestum fyrirtækjum og stofnunum. Ef þið gæt- uð séð af penna, vinsamleg- ast sendið þá til Helgu Bergmann, Hátúni 12, VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Vetrarfrí í skólum Reykjavík. Með fyrirfram þökk. Grár vettlingur í óskilum 7. FEBRÚAR sl. fannst grár vettlingur í brekkunni á milli Reynimels og Meist- aravalla. Upplýsingar hjá Ásdísi í síma 561 7309 eða 847 0021. Dýrahald Kettlingur týndist ÞRIGGJA mánaða brönd- óttur kettlingur týndist í Árbæjarhverfi sl. fimmtu- dag. Upplýsingar í síma 692 0174. Gormur er týndur HUNDURINN Gormur hvarf frá hundahótelinu að Leirum í Mosfellsbæ að- faranótt sunnudagsins 18. febrúar sl. Gormur er 9 ára, dökkbrúnn og hvítur og er beagle-blendingur. Hann er mjög blíður og elskur að mat og mönnum. Þeir sem vita eitthvað um ferðir Gorms eru vinsamlegast beðnir að hafa samband í síma 898 5828 eða láta Lög- regluna í Reykjavík vita. Fundarlaunum heitið. Víkverji skrifar... EKKI var nú annað hægt enhlæja vel og lengi að frásögn úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík (þar sem oft er að finna skemmti- legar sögur) um mann sem rændi pítsusendil. Vitanlega er ekkert gaman að vera rændur fjármunum sem manni er trúað fyrir og samúð Víkverja er vissulega með þeim sem ógnað var. Það hlýtur hins vegar að hafa ver- ið óborganlegt að sjá þessa viðureign berrassaðs mannsins með ryksugu- skaft að vopni og sendilsins sem hef- ur ekki þorað annað en lúta í lægra haldi fyrir ofstopanum ef marka má frásögn lögreglunnar. Sá nakti fékk fæðuna án þess að borga uppsett verð en hvað hann kann að hafa þurft að borga að lokum er ekki vit- að. Sá hlær best á hér trúlega vel við. x x x NÆSTA framlag Íslands ísöngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu liggur þá fyrir og nú geta landsmenn andað léttar. Birta fer af stað fyrir hönd okkar en nú er vandamálið bara hvort hún verður ensk eða íslensk. Yfirvöld útvarps- mála, sem ráða fjármagni í þessari för, hafa gefið út skoðun sína og vilja láta syngja á íslensku en tónlistar- menn virðast ekki alls kostar sáttir, telja að við eigum fremur erindi við önnur Evrópulönd uppá enska tungu en móðurmálið og má það til sanns vegar færa. Ekki verður alveg séð hversu mikið hagsmunamál þetta er. Telji menn hentugra að nota ensku getur Víkverji ekki lagst gegn því – ef einhver spyr hann – en hann sér heldur ekki hvort lagið stendur al- veg og fellur með íslenskunni. Og varla stendur íslensk tunga og fellur með ákvörðun um þetta. x x x ÍÞRÓTTIR eru ekki mjög fyrir-ferðarmikil tómstundaiðkun Vík- verja og sjaldan verður honum á að límast við skjáinn vegna þeirra. Verður þó að viðurkenna að stund- um laumast hann til að horfa á einn og einn handbolta- eða fótboltaleik ef einhver hefur sagt honum að um- ræddur leikur sé eitthvað merkileg- ur eða gæti verið spennandi. En það káfar ekki mjög uppá hann hvaða lið eiga í hlut. Hins vegar var það ágæt tilbreyting frá öðru íþróttaefni og ýmsu öðru efni sem ríkissjónvarpið sýnir að horfa á Íslandsmótið í bad- minton sem sýnt var nokkuð frá sl. sunnudag. Þessi íþrótt er alltof sjaldan sýnd og stafar líklega af því að þeir sem stunda hana af alvöru í keppnisskyni eða sem trimm eru ekki nógu stór eða fjársterkur hópur til að auglýsendur vilji verja púðri sínu í markaðsaðgerðir þar. En þetta er ljónskemmtileg íþrótt bæði til að stunda sjálfur og horfa á. Þar getur Víkverji leyft sér að tala um einu íþróttareynsluna sem hann býr yfir. Þarna sprikla menn í léttum dansi um völlinn (lesist: misléttum) til að lauma boltanum yfir netið án þess að andstæðingurinn fái rönd við reist eða berja boltann með skelli í gólfið hjá honum. Er þá hægt að fá margvíslega útrás við þessa iðju. Má heyra í salnum margháttaðar upp- hrópanir vonbrigða eða fagnaðar, skammir eða hrós, eftir því hvernig liðunum vegnar. Er það líklega ekki þýðingarminnsti þátturinn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 smásíld, 4 grískur bók- stafur, 7 þekkja, 8 rang- lætis, 9 húð, 11 siga, 13 bæti, 14 bera, 15 gamall, 17 vind, 20 líkamshluti, 22 munnar, 23 fáum af okkur, 24 rödd, 25 væsk- illinn. LÓÐRÉTT: 1 matreiðslumenn, 2 kindurnar, 3 skyldmenni, 4 hrossahópur, 5 arga, 6 óhreinkaði, 10 aflið, 12 elska, 13 háttur, 15 útlim- ur, 16 húsdýrs, 18 mergð, 19 innihaldslausan, 20 botnfall, 21 borðar. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 óhandhægt, 5 kuldi, 9 lítur, 10 tól, 11 skara, 13 akrar, 15 fress, 18 básar, 21 kál, 22 kodda, 23 uxann, 24 hrákadall. Lóðrétt: 2 halda, 3 neita, 4 hella, 5 getur, 6 ækis, 7 frár, 12 rás, 14 krá, 15 fáks, 16 eldur, 17 skark, 18 blund, 19 skafl, 20 rann. K r o s s g á t a
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.