Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 25 TÓNLIST fyrir alla er frábært framtak enda tónlistarkynning í skólum landsins mikið nauðsynja- verk. Það var eldhuginn Jónas Ingimundarson sem reið á vaðið á Selfossi haustið 1992 og tveimur árum síðar komu Norðmenn til skjalanna – þjóðargjöfin 1994. Meðal þeirra er sóttu Ísland heim voru norskir djassistar undir for- ystu saxófónleikarans Olavs Dalhe og meðan þjóðargjöfin entist var hún notuð til þess að fjármagna framtakið ásamt fjárframlögum frá íslenskum sveitarfélögum – auk lít- ilsháttar ríkisstyrks. Nú þegar þjóðargjöfin er uppurin má segja að „Tónlist fyrir alla“ sé aðeins fyrir suðvesturhorn landsins því að sveitarfélögin borga fyrir hvern haus sem sækir tónleikana. Því gefur augaleið að hin fjölmennu byggðarlög njóta tónlistarinnar og til þess að breyta því þarf ríkið að styrkja framtakið myndarlega, en það er sosum engin nýlunda að landsbyggðin sitji á hakanum þeg- ar menningin er annars vegar. Breyting á tónlistar- kynningum Með Tónlist fyrir alla varð mikil breyting á tónlistarkynningum í skólum því að nú situr rytmísk tón- list við sama borð og tónskálda- tónlistin. Löngum hefur brunnið við að svonefnd klassík hafi ein staðið til boða þegar listkynningar hafa verið í skólum, rytmíska tón- listin hefur verið eins og óhreinu börnin hennar Evu – hvergi sjáan- leg. Slíkt hefur verið lagt fyrir róða hjá menningarþjóðum, enda tíðkast þar heldur ekki lengur að tala um æðri og óæðri kynþætti frekar en æðri og óæðri tónlist. Þó eimir enn eftir af nítjándu aldar hugsuninni hjá menningarúthlut- unarnefnd DV. Hriflumennskan er þar að vísu ekki ráðandi nema í tónlist, í öðrum listgreinum sem verðlaunaðar eru skiptir formið sem listamennirnir velja sér ekki höfuðmáli til þess að þeir séu gjaldgengir, en í tónlistinni – guð hjálpi okkur. Þar á bæ hefur rytm- ískur tónlistarmaður aldrei verið útnefndur til tónlistarverðlauna. Þar veit trúlega enginn að Miles Davis fékk Sonning-verðlaunin eins og Segovía og Niels-Henning, Björk og Palle Mikkelborg tónlist- arverðlaun Norðurlandaráðs. Kannski telja nefndarmenn tónlist- arverðlauna DV að poppmessu- verðlaunahátíð blaðsins, þarsem vinsældir ráða verðlaunum helst, losi þá við að taka tillit til listar þeirra íslensku tónlistarmanna sem kenndir eru við rytmíska tónlist. Þó skipar klassíkin sinn sess í poppmessukosningum þótt van- kunnáttan blasi jafnaugljóslega við og þegar djassinn á í hlut; ein þeirra hljómplatna sem tilnefningu fengu í fyrra sem besta klassíska hljómplata ársins var djassplatan Guitar Islancio. En víkjum aftur að Tónlist fyrir alla. Fyrir þremur árum heyrði ég Jazzkvartett Reykjavíkur og tríó Björns Thoroddsen ásamt Agli Ólafssyni flytja tónlist sína fyrir börn og unglinga í Reykjavík og Kópavogi. Dagskrá tríós Björns og Egils nefndist „Heimsreisa Höllu“ og var byggð á þjóðlaginu „Ljósið kemur langt og mjótt“. Þessi dag- skrá hefur síðan farið sigurför um Vesturálfu. Nýlega heyrði ég Jazzkvartett Reykjavíkur að nýju í Breiðholtinu. Kvartettinn skipa drengir sem gert hafa garðinn frægan í djassheiminum. Sigurður Flosason altósaxófónleikari, Eyþór Gunnarsson píanisti, Birgir Braga- son bassaleikari og Gunnlaugur Briem trommari. Allir léku þeir einnig á ýmis ásláttarhljóðfæri. Sigurður Flosason hafði orð fyrir þeim félögum.Við yngri áheyrend- urna sagði hann m.a.: „Við spilum alla tónlist, bæði klassík og popp, en okkur þykir mest gaman að spila djass því að þá getum við bullað og bullað og samið ný lög þegar okkur hentar.“ Hann orðaði það nokkuð öðruvísi þegar ungling- arnir voru í salnum og í því fólst m.a. velgengni kvartettsins á þess- um tónleikum. Við hvern aldurshóp var talað á því máli er hann skildi. Ímyndunarafl barnanna virkjað Tónleikarnir hófust á dynjandi karabískri sveiflu í lagi Sonny Roll- ins „St. Thomas“. Síðan var æsku- lýðurinn virkjaður í söng: Snert hörpu mína, himinborna dís úr lag- inu Kvæðið um fuglana eftir Davíð og Atla Heimi, og þegar börnin höfðu sungið tvö fyrstu erindin spann Sigurður sóló sinn, en hafði sagt börnunum áður að syngja þriðja erindið í huganum meðan þau skynjuðu hvernig hefðbundinn djassspuni fer fram. Þeim félögum tókst einstaklega vel að flétta sam- an skemmtun og fræðslu. Siggi var úti var leikinn með andblæ ýmissa þjóða: Íra, Kúbana, Argentínu- manna, Búlgara og rokkað að lok- um. Ímyndunarafl barnanna var virkjað í Caravan, börnin lokuðu augunum og voru stödd í eyðimörk þar sem úlfaldalest var á ferð og hvarf svo út í buskann – upp í Árbæ. Þau yngri fengu lag úr „Dýrunum í Hálsaskógi“ en þau eldri úr „Galdrakarlinum í Oz“ og allir fengu að svara blístri Gunn- laugs Briem með klappi. Fyrir unglingana var djassfönkið gamla leikið, s.s. Moanin eftir Bobby Timmons og var hrifning þeirra mikil, það var klappað og blístrað og risið úr sætum. Ný upplifun, ný reynsla. Að fá að hlusta á tónlist sem aldrei heyrist í síbylju nær allra íslenskra útvarpsstöðva var uppgötvun – ekki aðeins fyrir nem- endurna heldur einnig kennara og annað starfsfólk skólans. „Þetta var massað,“ sagði einn tíundabekkingurinn þar sem hann gekk sæll og glaður úr salnum á leið í íslenskutíma. Það verður aldrei ofmetið hversu mikils virði það er fyrir æskuna að kynnast nýjum tónaheimi, hvort sem hann er frá þessari öld eða hinum fyrri, klassík eða djass, ný tónskáldatónlist eða framsækið popp. Það er ekki formið sem ræð- ur því hvort verk er list eða ekki, heldur sköpunin fyrst og fremst. Vonandi ber ríkið gæfu til að styrkja sveitarfélög landsins til að tónlist íslenskra tónlistarmanna eigi sem greiðastan aðgang að ung- um hlustendum þessa lands. Því fé er ekki kastað á glæ. Kynnast nýj- um tónaheimi Sigurður Flosason: „Við spilum alla tónlist, bæði klassík og popp, en okkur þykir mest gaman að spila djass því að þá getum við bullað og bullað og samið ný lög þegar okkur hentar.“ Með Tónlist fyrir alla varð mikil breyting á tónlistarkynningum í skólum, segir Vern- harður Linnet, því að nú situr rytmísk tón- list við sama borð og tónskáldatónlistin. Höfundur er djassgagnrýnandi Morgunblaðsins. annan hvern miðvikudag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.