Morgunblaðið - 21.02.2001, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 9
...matardiskar kr.29,-
SÝNING NÆSTA LAUGARDAG - 24. FEBRÚAR
RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11-19.
Sími 533 1100 • Fax 533 1110
Einhver magnaðasta sýning sem sett hefur verið
á svið á Broadway. Eiríkur Hauksson kemur
frá Osló í hverja sýningu og syngur
Freddie Mercury.
Landslið Íslenskra hljóðfæraleikara kemur við sögu og flytur
allra vinsælustu lög hljómsveitarinnar frá upphafi til vorra daga.
Fjölbreytt úrval matseðla.
Stórir og litlir veislusalir.
Borðbúnaður-og dúkaleiga.
Veitum persónulega ráðgjöf við undirbúning.
Hafið samband við
Guðrúnu, Jönu eða Ingólf.
Hljómsveitarstjóri: Gunnar Þórðarson.
Sviðssetning: Egill Eðvarðsson.
Danshöfundur: Jóhann Örn.
Lýsing: Aðalsteinn Jónatansson.
Hljóð: Gunnar Smári.
Söngvarar:
Kristinn Jónsson, Davíð Olgeirsson,
Kristján Gíslason, Kristbjörn Helgason,
Svavar Knútur Kristinsson, Guðrún Árný
Karlsdóttir, Hjördís Elín Lárusdóttur.
Framundan á
Hár & Fegurð
Íslandsmeistaramót
Diskótek í aðalsal
Fjölbreytt
úrval sýninga
Veffang: www.broadway.is • E-mail: broadway@broadway.is
næsta laugardag eftir Queen-sýningu
Sýning laugardaginn 10. mars
Sýning í heimsklassa!
Rokksýning allra tíma á Íslandi !
Hljómsveitarstjóri: Gunnar Þórðarson.
Dansstjórn: Jóhann Örn. - Leikstjórn: Egill Eðvarðsson.
Einkasamkvæmi
- með glæsibrag
Skemmtun 24. MARS
Karlakórinn HEIMIR
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi á eftir
Árshátíðir, ráðstefnur, fundir, vöru-
kynningar og starfsmannapartý
Endurtekin vegna fjölda áskoranna.
Frábærir söngvarar!
Sýning 6. apríl
Sýning 21. apríl
KristjánGíslason túlkar
Cliff Richard
SHADOWS
íslenskir gítarsnillingar leika
Nights on Broadway
Geir Ólafsson og Big Band
SHADOWS-sýning
Hljómsveitin Stormar leikur
fyrir dansi og diskótek í Ásbyrgi
LANDSLAGIÐ
-söngvakeppni Bylgjunnar
Milljónamæringarnir leika fyrir dansi
Queen-sýning
D.J. Páll Óskar í diskótekinu
28. apríl Queen-sýning
D.J. Páll Óskar í diskótekinu,
ásamt Lúdó sextett og Stefán í Ásbyrgi
Karlakórinn HEIMIR
Queen-sýning
Queen-sýning
Í diskótekinu: D.J. Gunnar Gunnarsson:
Best of 70's og 80's.
D.J. Sóley: R&B Hip Hop ásamt hljóm-
sveitinni Dans á rósum í Ásbyrgi
Fegurðardrottning Reykjavíkur
Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar leikur fyrir dansi
BEE-GEES-sýning D.J. Páll Óskar
í diskótekinu, ásamt Lúdó sextett
og Stefán í Ásbyrgi
D.J. Páll Óskar í diskótekinu,
ásamt Lúdó sextett og Stefán
í Ásbyrgi
D.J. Páll Óskar í diskótekinu,
ásamt Lúdó sextett og Stefán
í Ásbyrgi
D.J. Páll Óskar í diskótekinu
24. feb.
4. mars
10. mars
23. mars
24. mars
30. mars
14. apríl
18. apríl
20. apríl
21. apríl
27. apríl
Hljómsveitin
Dans á rósum
frá Vestm.eyjum
leikur fyrir dansi
í Ásbyrgi
Í diskótekinu:
D.J. Gunnar Gunnarsson:
Best of 70's og 80's.
D.J. Sóley:
R&B Hip Hop
Queen-sýning
Hamratún Mos. - Einbýli
130 fm einbýlishús ásamt 37 fm bílskúr, 25 fm sólstofu,
tveimur stofum, 4 svefnherbergjum og sundlaug í garði.
Þarfnast viðgerðar að utan. Verð 14 millj.
Kvöld- og helgarsími eigenda er 566 8910 og 897 8779.
SÉREIGN,
Skólavörðustíg 41, sími 552 9077
ATVINNULEYSI mældist 1,6% í
janúar sl. og jókst atvinnuleysi um
0,3% á milli mánaða frá desember
2000, en samkvæmt upplýsingum
Vinnumálastofnunar var 2.541 á at-
vinnuleyisskrá síðasta virka dag
janúar. Í janúar í fyrra var atvinnu-
leysi 1,8% í janúar og 2,5% í janúar
1999. Atvinnuleysisdagar í janúar sl.
jafngilda því að 2.174 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysisskrá
og þar af eru 937 karlar og 1.237 kon-
ur.
Í heild fjölgaði atvinnulausum að
meðaltali um 13,5% frá desember-
mánuði en undanfarin 10 ár hefur at-
vinnuleysi aukist um 16,3% að með-
altali frá desember til janúar.
Árstíðasveiflan milli desember og
janúar er því í takt við meðaltals-
sveiflu síðustu tíu ára en þó heldur
meiri en undanfarin 3 ár.
Atvinnuástandið versnar alls stað-
ar á landinu. Atvinnuleysið eykst
hlutfallslega mest á Suðurnesjum, á
Norðurlandi eystra og á Austur-
landi. Atvinnuleysi er nú hlutfalls-
lega mest á Norðurlandi vestra en
minnst á höfuðborgarsvæðinu og á
Vesturlandi. Atvinnuleysið er nú
meira en í janúar í fyrra á öllum at-
vinnusvæðum nema á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem það er verulega
minna en í janúar 2000. Það er fyrst
og fremst á Suðurlandi, á Suðurnesj-
um og á Vesturlandi sem atvinnu-
ástandið hefur versnað nokkuð mið-
að við janúar í fyrra.
Atvinnu-
leysi mæld-
ist 1,6%
í janúar
KARLMAÐUR var stunginn í öxl-
ina með hnífi í íbúð í fjölbýlishúsi í
Breiðholti aðfaranótt þriðjudags.
Lögreglan í Reykjavík fékk til-
kynningu um að lagt hefði verið til
manns með hnífi um kl. 2.30 í
fyrrinótt. Árásin var gerð í fjöl-
býlishúsi í Breiðholti. Þegar lög-
reglan kom á staðinn var þar karl-
maður með nokkuð mikið sár eftir
hnífstungu á vinstri öxl. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni var kona í íbúðinni handtekin,
grunuð um verknaðinn. Svo virðist
sem deilum milli þeirra hafi lyktað
með því að konan stakk manninn í
öxlina. Maðurinn var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild Land-
spítala – háskólasjúkrahúss í Foss-
vogi.
Deilum
lauk með
hnífstungu
ÍSLENSKA sjónvarpsfélagið, Ís-
lenska útvarpsfélagið og Ríkisút-
varpið sjónvarp skrifuðu í gær undir
viljayfirlýsingu um að Gallup annist
mælingar á sjónvarpsáhorfi fyrir
fyrirtækin. Mælingarnar eiga að
hefjast á þessu ári.
Í fréttatilkynningu segir að Gallup
muni annast mælingarnar með svo-
kallaðri „People Meter“-áhorfsmæl-
ingu. Það er mælitækni sem felur í
sér að skynjari, sem er áfastur við
sjónvarpstæki, mælir hvaða stöð er
stillt á. Einnig geta áhorfendur
skráð hverjir eru að horfa á sjón-
varpið með fjarstýringu. Í tilkynn-
ingunni segir að þessi tækni sé stað-
all í mælingum á sjónvarpsáhorfi um
allan heim.
Stefnt er að undirritun samnings
til fimm ára, eigi síðar en 31. maí
2001.
Sjónvarps-
áhorf mælt
með skynjara
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦