Morgunblaðið - 21.02.2001, Side 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MIKILL munur er á kostnaði við
slátrun á lambi og öðrum kjötafurð-
um og þykir sauðfjárbændum
ósamræmið óeðlilegt. Samkvæmt
nýjustu tölum kostar 136 krónur á
hvert kíló að slátra lambi, um 50
krónur á hvert kíló að slátra nauti
og um 30 til 35 krónur að slátra
svíni.
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Landssambands sauðfjár-
bænda, sagði urg í bændum vegna
þessa misræmis og málið væri stöð-
ugt í umræðunni meðal þeirra. Öz-
ur sagði að erfiðlega hefði gengið
að fá svör frá afurðastöðvum en
heyrst hefði að launakostnaði væri
ekki um að kenna, hann væri aðeins
brotabrot af kostnaðinum. Afurða-
stöðvarnar segðu helsta kostnaðar-
liðinn vera fjölda sláturhúsa sem
halda þyrfti uppi í stuttan tíma,
„annars höfum við ekki fengið
neina aðra alhliða skýringu á
þessu“, sagði Özur.
Meðalskilaverð til bónda er 252
krónur á kílóið en heildsöluverð af-
urðastöðvanna 405 krónur, það verð
fer reyndar eftir bitum og skipta
holdfylling og fita þar miklu máli.
Heildsöluverð á læri með hækli er
t.d. 741 kr. en á súpukjöti 450 kr.
„Þetta mál verður alltaf heitara og
heitara í umræðunni og ég trúi ekki
öðru en eitthvað verði gert. Það eru
líka fleiri þættir sem spila inn í eins
og vaxta- og geymslugjald sem
menn vilja endurskoða og hreinlega
gjörbreyta,“ sagði Özur og benti
því til stuðnings á að það væri sín
skoðun að þær aðferðir sem tíðk-
uðust í dag stuðluðu ekki að sölu
heldur frekar að því að sláturleyf-
ishafar sæju sér hag í því að halda
birgðum til að fá aukið vaxta- og
geymslugjald.
Svínum slátrað
árið um kring
Kristinn Gylfi Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Svínaræktarfélags
Íslands, sagði kostnaðarmuninn
skýrast annars vegar af því að svín-
um væri slátrað árið um kring og
þannig næðist hagkvæmni hjá slát-
urhúsunum sem ekki næðist að
sama skapi með sauðfé, þar sem
slátrun þess væri árstíðabundin.
Hins vegar væri nýting skepnanna
afar ólík vegna þyngdarmunar
þeirra, hvert svín vægi um 75 kg en
lamb um 15 svo það lægi í hlutarins
eðli að meiri afurðir næðust úr
hverri svínaslátrun. 50 starfsmenn
slátra 700 lömbum á dag en í svína-
sláturhúsi slátra 6 til 8 menn sama
magni af kjöti. Munurinn sæist
einnig í sjálfri vinnslunni þar sem
kjötvinnslumenn segðust vera álíka
lengi að úrbeina svín og lamb.
Fyrrverandi sláturleyfishafi sagði
það útbreiddan misskilning að milli-
liðirnir tækju allan gróðann. Slát-
urleyfishafinn ynni á 15 til 20 pró-
senta álagningu, kjötvinnslan á 30
til 50% og verslunin 30 til 40%. Út-
seld vinna til bænda væri 130 til
140 krónur á kílóið en það væri
verð sem miðaðist við heildsöluverð
og álagstoppa. Til að selja vöruna
þyrfti svo að veita kjötvinnslunni
eða versluninni afslátt sem gæti
verið á bilinu 5 til 15 prósent.
Sláturkostnaður sláturleyfishafa
væri því raunverulega kominn nið-
ur í um 80 krónur, sem rétt nægði
fyrir daglegum rekstri sláturhús-
anna. „Kaupendurnir eru svo sterk-
ir að þeir hafa heljartak á okkur
framleiðendum,“ sagði sláturleyfis-
hafinn sem ekki vildi láta nafns get-
ið en kvaðst afar ánægður með að
vera hættur störfum í „harðasta
bransa sem ég hef komist í kynni
við“.
Aukning í smásöluverslun
hækkar smásöluálagningu
Steinþór Skúlason, forstjóri SS
og varaformaður Landssamtaka
sláturleyfishafa, sagði að hafa bæri
í huga að við samanburð á slátrun
svína og lamba væri kostnaður við
lömb bæði slátrunar- og heildsölu-
kostnaður en aðeins væri um að
ræða slátrunarkostnað við svín.
Steinþór sagði muninn þó enn
vissulega mjög mikinn en hann
skýrðist að nokkru af því að allt
dilkakjöt væri fryst og því kæmi
frystikostnaður inn í myndina en
svínakjöt væri hins vegar selt
ófrosið. „Þann kostnað má meta á
15 til 20 krónur kílóið. Sauðfjárslát-
urhúsin eru líka aðeins rekin á full-
um afköstum hluta úr ári, þetta sjö
vikur, og standa þess utan ónotuð
en stórgripahúsin eru rekin tólf
mánuði á ári,“ sagði Steinþór og
benti á að þar kæmi fram mikill
munur á föstum rekstrarkostnaði.
Auk þessa væru afskriftir á kíló-
verði á sauðfénaði miklu hærri en á
svínakjöti. Launakostnaður í sauð-
fjársláturhúsum væri svo nær
helmingi meiri en í stórgripahúsum.
Spurður um nettóheildsöluverð til
verslana sagði Steinþór afar sjald-
gæft að verslanir keyptu heila
skrokka, kostnaðurinn ykist því
vegna aukins kostnaðar við sögun
og umbúðir, vinnu og verðmerkingu
og vegna smásöluálagningar og
virðisaukaskatts.
Verðmyndunin væri því mismun-
andi eftir því hversu mikið varan
væri unnin en algengt verð til
bænda væri um 35 til 48% sem
hlutfall af neytendaverðinu. Spurð-
ur um óánægju bænda með sinn
hlut sagði Steinþór að það væri
Sláturfélags Suðurlands, sem væri
að stórum hluta í eigu bænda, að
sjá til þess að verðmyndun og smá-
söluverð til neytenda væru eðlileg.
Spurður hvort hann teldi svo vera
sagði hann erfitt að alhæfa um það,
verðið væri mismunandi eftir
vörum. „En það er alveg ljóst að
þessi aukning í smásöluverslun
hækkar líka smásöluálagningu.
Við viðurkennum sjálfir og erum
ekkert að draga dul á það að sauð-
fjárslátrun hér er mjög óhagkvæm.
Við höfum verið að skera niður
fjölda sláturhúsa og margir aðrir
hafa gert slíkt hið sama,“ sagði
Steinþór, sem taldi að einu leiðirnar
til að sporna við þróuninni væru
enn frekari fækkun sláturhúsa, að
ná upp nýtingartíma og lengja
framboðstímann á lifandi lömbum.
Óánægja með mikinn kostnað við slátrun lamba
Nær þrefalt dýrara að
slátra lambi en nauti
UM 100 flugmenn og áhugamenn
um landgræðslu og varðveislu flug-
vélarinnar Páls Sveinssonar, TF-
NPK, hafa skorað á landbúnaðar-
ráðherra að tryggja rekstur vélar-
innar næstu ár.
Í áskoruninni kemur fram að að
mati flugvirkja sé flugvélin nú í sér-
lega góðu ásigkomulagi og að á
félagsfundi flugmanna í Félagi ís-
lenskra atvinnuflugmanna (FÍA)
hafi verið samþykkt að fljúga flug-
vélinni endurgjaldslaust um ókomin
ár.
Hefur þjónað með
sýnilegum árangri
„Við skorum á yður að veita af
fjárlögum sérstaka fjárhæð til land-
græðsluflugsins, svo halda megi við
hinni sögufrægu og happadrjúgu
flugvél sem þjónað hefur landanum
frá 1946,“ segir í áskoruninni.
„Flugvélin hefur þjónað Land-
græðslu ríkisins í 27 ár með mjög
sýnilegum árangri og ekki verður
annað séð, en að verkefnin séu enn
óþrjótandi.“
Að sögn flugmannanna þyrfti að
kaupa 1.000 tonn af áburði á ári til
þess að flugvélin nýtist með ein-
hverri hagkvæmni miðað við fastan
rekstrarkostnað. Kostnaðurinn við
þau kaup er áætlaður um 50 millj-
ónir króna.
Ráðherra tryggi rekstur Páls Sveinssonar
Flugmenn bjóðast til
að fljúga án greiðslu
Landgræðsluvélin Páll Sveinsson: Kaupa þarf um 1.000 tonn af
áburði á ári til þess að flugvélin nýtist með einhverri hagkvæmni.
NÝTT fjölbýlishús Hússjóðs Ör-
yrkjabandalagsins var tekið í
notkun um síðustu helgi. Það var
Helgi Hjörvar, stjórnarformaður
Hússjóðsins, sem afhenti Páli Pét-
urssyni, félagsmálaráðherra, lykl-
ana að húsnæðinu, en hluti þess
var reistur samkvæmt samningi
milli félagsmálaráðuneytisins og
Hússjóðsins sem undirritaður var
síðastliðið haust.
Í húsinu, sem er á Sléttuvegi 9 í
Reykjavík, eru 27 íbúðir sérhann-
aðar með þarfir fatlaðra í huga.
Þar með er húsakostur Öryrkja-
bandalagsins orðinn 580 íbúðir
um allt land en að sögn Önnu Ing-
varsdóttur, framkvæmdastjóra
Hússjóðssins, eru um 440 manns í
Reykjavík á biðlista hjá Öryrkja-
bandalaginu eftir húsnæði í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Helgi Hjörvar afhendir Páli Péturssyni lyklana.
Nýjar sérhannaðar
íbúðir fyrir fatlaða
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hef-
ur dæmt Odda hf. á Patreksfirði til
að greiða Skipaþjónustu Suður-
lands hf. á Þorlákshöfn ríflega 1
milljón króna vegna grálúðukvóta
sem Skipaþjónustan keypti og vist-
aði á skipi Odda hf.
Málsatvik eru þau að Skipaþjón-
usta Suðurlands hf. í Þorlákshöfn
keypti 100 tonn af grálúðukvóta í
ársbyrjun 1995, fyrir þrjár milljónir
króna, og skráði kvótann á skip
Odda hf., Núp BA 69, án þess að
skriflegur samningur væri gerður
um geymslu eða nýtingu hans.
Skipaþjónustan hélt því fram fyrir
dómnum að vistun kvótans hafi ver-
ið í tengslum við samkomulag aðila
um að grálúða sem veidd yrði á
Núp BA yrði flutt út til Frakklands
og andvirði kvótans greitt af and-
virði afurðanna.
Oddi hf. kveðst hins vegar hafa
heimilað skráningu ofangreindra
aflaheimilda á skipið í greiðaskyni
við Skipaþjónustuna, án þess að
neitt samkomulag hafi verið gert
um nýtingu þeirra og ráðstöfun
aflans.
Seldi hluta heimildanna
Í dómnum segir að gegn mót-
mælum Odda hf. verði ekki talið
sannað að komist hafi á með aðilum
samkomulag um að grálúðuafla
Núps BA yrði ráðstafað með þeim
hætti sem Skipaþjónustan lýsti. Af
framburði Halldórs Leifssonar, út-
gerðarstjóra Odda hf., verði hins
vegar ráðið að Oddi hafi nýtt þess-
ar aflaheimildir að hluta í eigin
þágu, en selt hluta þeirra, án sam-
ráðs við Skipaþjónustuna og án
þess að standa skil á andvirðinu.
Engin gögn liggi því til stuðnings,
að Oddi hafi gætt þess að þessar
aflaheimildir, eða heimildir í öðrum
fisktegundum, sem breyta mætti í
aflaheimildir í grálúðu, lægju fyrir
allt til loka fiskveiðiársins, Skipa-
þjónustunni til ráðstöfunar.
Í ljósi þessa sé ósannað að Skipa-
þjónustun hafi fengið þessar heim-
ildir til varðveislu, en ekki til hag-
nýtingar í eigin þágu. Oddi verði af
þessum sökum dæmdur til að
greiða stefnanda eftirstöðvar and-
virðis þessara aflaheimilda, miðað
við það verð sem Skipaþjónustan
hefur sett upp fyrir þær, enda hef-
ur ekki verið sýnt fram á að það sé
ósanngjarnt.
Oddi hf. var því dæmdur til að
greiða Skipaþjónustunni stefnufjár-
hæðina, 1.068.938 krónur, ásamt
dráttarvöxtum.
Erlingur Sigtryggsson, dóm-
stjóri, kvað upp dóminn.
Oddi hf. á Patreksfirði dæmdur
fyrir að vista grálúðukvóta
Nýtti kvótann að
hluta í eigin þágu
FULLTRÚAR sjómannasamtak-
anna og útvegsmanna áttu um
þriggja klukkutíma fund með
ríkissáttasemjara í gær og var
farið yfir kröfurnar en nýr fund-
ur hefur verið boðaður klukkan
13 í dag.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Íslands, seg-
ir að þó viðsemjendur hafi hist af
og til hjá ríkissáttasemjara hafi
þetta í raun verið fyrsti fund-
urinn síðan í maí í fyrra. Kröf-
urnar hafi verið rifjaðar upp en
ekkert nýtt væri að frétta af
málinu. „Þetta er fyrsti fundur-
inn í langan tíma sem menn setj-
ast yfir kröfurnar og ræða þær,
en staðan er að öðru leyti
óbreytt.“
Viðræður á ný í
sjómannadeilunni