Morgunblaðið - 21.02.2001, Page 19

Morgunblaðið - 21.02.2001, Page 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 19 CRESCENDO MASCARA AUGNHÁRALITUR SEM BYGGIR AUGNHÁRIN UPP NÁTTÚRULEG EÐA MIKILFENGLEG Nýjung HR: Ný lúxus formúla gerir þér kleift að byggja augnhárin upp. Liturinn þekur hvert hár, lengir, sveigir og aðskilur. Augnhárin styrkjast verulega við hverja stroku. Náttúruleg eða mikilfengleg förðun. Valið er þitt með Crescendo. Kynning á hágæða snyrtivörum frá Laugavegi 80, s. 561 1330 Kynning í dag, fimmtud. og föstud. Veglegir kaupaukar Gullbrá Nóatún 17, s. 562 4217 Kynning fimmtud. og föstud. KJELL Larsson, umhverfis- málaráðherra Svíþjóðar, mótmælti úlfaveiðum Norðmanna á fundi með hinni norsku starfssystur sinni Siri Bjerke í Kaupmannahöfn í gær. Lýsti Larsson því yfir að fyrsti úlf- urinn, sem norskir veiðimenn skutu í fyrradag, hafi allt eins getað verið sænskur og vill að Norðmenn stöðvi veiðarnar. Úlfaveiðarnar hafa valdið mikl- um úlfaþyt í Svíþjóð og hafa sænsk- ir fjölmiðlar verið óþreytandi að fjalla um málið, oftar en ekki út frá sjónarhóli þeirra sem vernda vilja úlfastofninn. Kveðst sænski um- hverfisráðherrann telja að úlfa- stofninn sé sameiginlegur og því beri Norðmönnum að hafa samráð við þá um veiðar. Svíar eru þeirrar skoðunar að hæfileg stærð stofns- ins sé um 200 dýr en Norðmenn telja að 100 úlfar séu meira en nóg. Hafa norskir veiðimenn leitað í hálfa aðra viku að úlfunum sem leyfilegt er að skjóta og náðu fyrsta dýrinu á mánudag, 31,5 kíló- gramma úlfynju. Á myndinni sést Stein Arnesen, einn af andstæðingum veiðanna, undirbúa hunda sína fyrir daglega sleðaferð í grennd við Harnestad í Noregi í gær. Arnesen hefur ásamt fjórum öðrum mönnum reynt eftir mætti að trufla veiðarnar. Einn af liðsmönnum grænfrið- unga hefur að sögn fréttastofunnar NTB hótað að samtökin höfði mál gegn norskum stjórnvöldum og bendir á að úlfaveiðin takmarki rétt almennings til að ferðast um veiðisvæðið. AP Skutu Norðmenn sænskan úlf? Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. 2001 STJÓRNVÖLD í Makedóníu og Júgóslavíu hafa að sameiginlegu markmiði að fá inngöngu í Evrópu- sambandið (ESB). Þetta sögðu utan- ríkisráðherrar ríkjanna tveggja eftir viðræðufund í Belgrad í gær. Í því skyni að ná þessu takmarki ættu þessi tvö fyrrverandi lýðveldi gömlu Júgóslavíu að efla með sér samstarf, að sögn júgóslavneska ráð- herrans Gorans Svilanovic. Tók hann fram, að leiðtogafundur Suð- austur-Evrópuríkja, sem hefjast á í Skopje, höfuðborg Makedoníu, á morgun, fimmtudag, yrði að sínu mati „stórviðburður fyrir alla þá í þessum heimshluta sem sækjast eft- ir stöðugleika“. Svilanovic sagði að hann vænti þess að Balkanskaga-leiðtogafund- urinn yrði til að ýta undir betri tengsl milli landanna á svæðinu, en þau eiga það öll sameiginlegt að hafa tekið stefnuna á að fá inngöngu í ESB. „Við viljum að rödd Suðaustur- Evrópu heyrist,“ sagði Srdjan Ker- im, utanríkisráðherra Makedóníu. Makedónía og Júgóslavía einhuga um markmið Stefna saman að inngöngu í ESB Belgrad. AFP. TALSMENN hinna alþjóðlegu um- hverfisverndarsamtaka grænfrið- unga (Greenpeace) sökuðu í gær Evrópusambandið (ESB) um að standa í vegi fyrir tilraunum til þess að ná alþjóðlegu samkomulagi um aðgerðir til að hindra ólöglegar og eftirlitslausar fiskveiðar sem stefndu fiskistofnum heimshafanna í hættu. Fiskifræðingar ESB telja að rányrkja geti ógnað þorskstofn- um í Norðursjó. Á blaðamannafundi í Brussel sögðu talsmenn samtakanna að Evrópusambandið, ásamt Mexíkó og Brasilíu, væri að reyna að veikja sáttmála um aðgerðir gegn ólög- legum fiskveiðum sem til stendur að ganga frá á fundi Matvælastofn- unar Sameinuðu þjóðanna í Róm síðar í vikunni. Sáttmálinn miðar að því að gera útgerðarmönnum erfiðara fyrir að koma sér undan skuldbindingum samninga um vernd fiskistofna með því að gera út skip undir hentifána í löndum þar sem ekki eru gerðar miklar kröfur. Hafa Grænfriðungar kallað slíkt „sjó- ræningjaveiðar“. Hentifánaskip ekki háð reglum um möskvastærð Skip skráð í ríkjum eins og Hondúras, Belís og Panama, sem ekki eru aðilar að milliríkjasamn- ingum um fiskveiðar, eru ekki bundin af fiskveiðikvótum, lág- marks-möskvastærðum eða öðrum slíkum reglum, sem settar eru í því skyni að hindra ofveiði. Matthew Gianni, talsmaður grænfriðunga, sagði í gær að ESB hefði tekið þátt í að reyna að veikja átakið gegn „sjóræningjaveiðum“ með því að krefjast þess að út úr texta nýja sáttmálans yrði fellt ákvæði um að ætlazt væri til þess af stjórnvöldum fiskveiðiríkja að þau refsuðu útgerðarfyrirtækjum sem stunda hentifánaveiðar. Grænfriðungar beita sér gegn hentifánaveiðum Brussel. Reuters. Reuters Þorskur á markaði í Peterhead í Skotlandi. 14. febrúar tóku gildi reglur sem banna að þorskur sé veiddur í Norðursjónum á hrygningarstöðum fisksins en Norðursjávarþorskur er talinn vera mjög ofveiddur og er jafnvel óttast að hann muni ekki geta náð sér þrátt fyrir bannið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.