Morgunblaðið - 21.02.2001, Blaðsíða 38
MINNINGAR
38 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Elsku Hákon okkar.
Þessa dagana leitar
hugurinn allur til minn-
inganna um liðna, dýr-
mæta tíma, tíma sem
er afar ljúft að minnast
og geyma hjá sér á stundu sem þess-
ari. Ég geymi margar góðar minn-
ingar um þig, sérstaklega frá því þú
varst lítill drengur. Eitt sumarið
heimsóttuð þið fjölskyldan okkur til
Danmerkur, en þar var þá heimili
okkar. Það voru yndislegir sumar-
leyfisdagar hjá ykkur fjölskyldunni,
mikil tilhlökkun var að fá ykkur öll í
heimsókn. Þið bræðurnir voru svo
ljúfir og líflegir, mörg urðu prakk-
arastrikin sem engum datt í hug að
gera nema þér.
Þegar táningsaldurinn tók við, leið
lengra á milli þess að við hittumst
eins og gengur. Ég skynjaði hversu
mikil tilfinningavera þú varst og
spáðir mikið í lífið og tilveruna sem
HÁKON RAGNARS
✝ Hákon Ragnarsfæddist í Reykja-
vík 15. ágúst 1982.
Hann lést á heimili
sínu 9. febrúar síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Foss-
vogskirkju 19. febrú-
ar.
ungur piltur. Þú hafðir
mikinn áhuga á alls
konar heimilisdýrum,
áttir þau mörg á þínum
uppvaxtarárum. Eitt
sinn fórum við öll upp
að Elliðavatni að veiða,
þú kunnir öll handtökin
svo vel og kenndir litlu
frændsystkinum þínum
hvernig átti að fara að.
Með okkur tókst góður
vinskapur og þér þótti
gaman að koma í heim-
sókn til mín og sitja
heima hjá mér við eld-
húsborðið, teikna og rabba saman.
Blessuð sé minning þín að eilífu,
elsku Hákon okkar, hvíl þú í friði hjá
Guði.
Amma þín Olla í Bólstaðarhlíðinni
kenndi barnrabörnum sínum þessa
bæn, sem við nú sendum þér:
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Megi Guð styrkja fjölskyldu þína á
erfiðum tímum og veita henni styrk í
sorginni.
Þín föðursystir
Ragna, Kristín og Stefán Ari.
Í VIKULEGUM kyrrðar- og
bænastundum í hádeginu á mið-
vikudögum munu prestar, djákni,
sóknarnefndar- og starfsfólk Fella-
og Hólakirkju lesa Passíusálma
Hallgríms Péturssonar í stundun-
um fram að páskum. Ennfremur
mun söngfólk úr kór kirkjunnar
syngja einsöng endrum og sinnum.
Næstkomandi miðvikudag les
Höskuldur Jónsson, gjaldkeri
kirkjunnar, úr Passíusálmunum og
Ragnheiður Guðmundsdóttir syng-
ur einsöng. Organisti kirkjunnar,
Lenka Mátéová, leikur á orgelið.
Bænarefnum má koma til presta
eða djákna kirkjunnar í síma 557
3280 og láta vita í sama síma ef
óskað er eftir akstri til og frá
kirkju. Að lokinni stundinni í kirkj-
unni er hægt að fá léttan hádeg-
isverð í safnaðarheimilinu á vægu
verði.
Fella- og Hólakirkja.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Léttur málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með lítil börn sín. Þorrasamvera
eldri borgara kl. 12.10. Helgistund,
þorramatur. TTT-starf (10-12 ára)
kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Háteigskirkja. Samverustund eldri
borgara kl. 11-16 í Setrinu í um-
sjón Þórdísar Ásgeirsdóttur, þjón-
ustufulltrúa. Við minnum á heim-
sóknarþjónustu Háteigskirkju,
upplýsingar hjá Þórdísi í síma 551-
2407. Kórskóli fyrir 5-6 ára börn
kl. 16. Barnakór 7-9 ára kl. 17.
Kvöldbænir og fyrirbænir í dag kl.
18.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 11-16. Heilsupist-
ill, létt hreyfing, slökun í litla sal.
Bænargjörð, orgelleikur og sálma-
söngur í kirkjunni. Létt máltíð (kr.
500) í stóra sal. Spilað, hlustað á
upplestur og málað á dúka og ker-
amik. Söngstund með Jóni Stef-
ánssyni. Eldri borgarar eru sér-
staklega velkomnir en stundin er
öllum opin. Hafið samband við
Svölu djákna í síma 520-1300 eða
862-9162.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45-7.05. Kirkjuprakkarar 6-7 ára
kl. 14.10. Fermingarfræðsla kl.
19.15. Unglingakvöld Laugarnes-
kirkju og Þróttheima heldur sund-
laugarpartý í Laugardalslaug kl.
20, 8. bekkur.
Neskirkja. Orgelandakt kl. 12. Jón-
as Þórir leikur. Ritningarorð og
bæn. Starf fyrir 7 ára börn kl. 14-
15. Opið hús kl. 16. Biblíulestur kl.
17. Umsjón Frank M. Halldórsson.
Bænamessa kl. 18. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur málsverð-
ur á eftir í safnaðarheimilinu. Starf
fyrir 11-12 ára börn kl. 17.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13-16.
Handmennt, spjall og spil. Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl. 16. Bæn-
arefnum er hægt að koma til
presta safnaðarsins. Kirkjuprakk-
arar 7-9 ára kl. 16-17. TTT-starf
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu eftir stundina.
Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9
ára börn kl. 16. TTT-starf fyrir 10-
12 ára kl. 17.15.
Digraneskirkja. Æskulýðsstarf
KFUM&K og Digraneskirkju fyrir
10-12 ára drengi kl. 17.30. Ung-
lingastarf KFUM&K og Digranes-
kirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Opið hús fyrir fullorðna
til kl. 15. Bæna- og þakkarefnum
má koma til Lilju djákna í síma
557-3280. Látið einnig vita í sama
síma ef óskað er eftir keyrslu til og
frá kirkju. Starf fyrir 9-10 ára
stúlkur kl. 15-16. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir. Boðið er upp á léttan há-
degisverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Allir velkomnir. KFUM
fyrir drengi 9-12 ára kl. 16.30-
17.30. Kirkjukrakkar í Engjaskóla
kl. 18-19. KFUK fyrir stúlkur 12
ára og eldri. Annan hvern miðviku-
dag kl. 20.30-21.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
17.
Kópavogskirkja. Samvera 8-9 ára
barna í dag kl. 16.45-17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. TTT-sam-
vera 10-12 ára barna í dag kl.
17.45-18.45 í safnaðarheimilinu
Borgum.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Léttur kvöld-
verður að stund lokinni. Tekið á
móti fyrirbænaefnum í kirkjunni
og í síma 567-0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar,
starf fyrir foreldra ungra barna kl.
10-12 í safnaðarheimilinu.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund í hádegi kl.12, altarisganga
og fyrirbænir. Léttur hádegisverð-
ur frá kl. 12.30-13.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð
kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund
í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund
í Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat
og brauð á vægu verði. Allir ald-
urshópar. Umsjón Ásta Sigurðar-
dóttir. Alfanámskeið í Kirkjulundi
kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl.
22.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. STN-starf í
dag kl. 16.30 í umsjón Vilborgar
Jónsdóttur og er ætlað börnum 6-9
ára.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kyrrðar- og bænastund í kirkjunni
kl. 12-12.30. Íhugun frá systur
Minke um krossferli Krists. Ferm-
ingarfræðsla kl. 14.40-17.15. Bej-
ene frá Eþíópíu kemur í heimsókn.
Opið hús í KFUM&K-húsinu kl. 20.
Fíladelfía. Súpa og brauð kl. 18.
Kennsla kl. 19, krakkaklúbbur,
unglingafræðsla, kennsla fyrir
enskumælandi og biblíulestur. Allir
hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan. Námskeið dr.
Steinþórs Þórðarsonar „Lærum að
merkja biblíuna“ í kvöld kl. 20.
Mörg spennandi efni verða tekin
fyrir og biblían verður aðgengi-
legri. Efni hvers kvölds er sjálf-
stætt og því hægt að byrja hvenær
sem er. Allir velkomnir.
Kapella sjúkrahúss Hvammstanga.
Bænastund í dag kl. 17. Allir vel-
komnir.
Safnaðarstarf
Passíusálmar
í hádeginu
Fella- og Hólakirkja.
Þegar ég hringi í
Mumma til að láta hann
vita að Snævar frændi
sé dáinn rifjast upp fyr-
ir mér hvernig ég skýrði út fyrir hon-
um fjölskylduna mína þegar við
kynntumst. Þegar ég var lítil var
Snævar litli bróðir mömmu en samt
GUÐMUNDUR
SNÆVAR ÓLAFSSON
✝ GuðmundurSnævar Ólafsson
fæddist á Hvamms-
tanga 28. október
1945. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut 26. janú-
ar síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Bústaðakirkju 2.
febrúar.
stóri bróðir minn. Við
vorum alin upp saman í
stórfjölskyldunni hjá
Jennýju ömmu. Amma,
Óli afi, Ingibjörg
langamma, mamma,
Snævar, ég og Jói bróð-
ir og ekki bara við,
Snorri frændi, Jó-
hanna, Björk, Davíð
frændi o.fl. o.fl. voru
heimalningar hjá
ömmu. Mínar fyrstu
minningar tengjast því
Snæja frænda, eins og
ég kallaði hann alltaf
þá. Við Snæi að skræla
og skera kartöflur, amma að steikja
franskar, það þótti nú aldeilis flott í
þá daga.
Snævar og Snorri komnir á bíl, ég
fékk stundum að koma með á rúntinn
og hugsa ég að það hafi nú frekar ver-
ið greiði við ömmu heldur en að þeir
hafi viljað hafa stelpuna með. Við
Snæi með nýsteiktar kleinur á leið í
Ölgerðina til Óla afa, ég að bursta
skóna fyrir Snæja, hann og Snorri að
greiða hárið í píku, Jóhanna og Björk
að setja rúllur í hárið, þá var nú ald-
eilis ekki gaman að vera ellefu árum
yngri og fá ekki að fara með, en ómet-
anleg minning fyrir því. Við flutt,
mamma komin með fjölskyldu, en við
Jói samt alltaf hjá ömmu. Hún bjó á
Njálsgötunni en við á Bergþórugöt-
unni, stutt á milli og hægt að velja á
hvorum staðnum var betra í matinn.
Oft vann ömmu matur. Við Snæi átt-
um sama uppáhaldsmat. Það voru
kóteletturnar hennar ömmu, þá
dugði nú ekkert minna en full ofn-
skúffa. Elsku frændi, hafðu þökk fyr-
ir allar góðu stundirnar okkar saman.
Sjáumst vonandi miklu seinna í kót-
elettum hjá ömmu.
Þín frænka,
Ásta.
Birting af-
mælis- og
minning-
argreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Greinunum er veitt viðtaka á
ritstjórn blaðsins í Kringlunni
1, Reykjavík, og á skrifstofu
blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur
unnt að senda greinarnar í
símbréfi (569 1115) og í tölvu-
pósti (minning@mbl.is). Nauð-
synlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en
aðrar greinar um sama ein-
stakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línulengd, –
eða 2.200 slög (um 25 dálks-
entimetra í blaðinu). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi.
Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára og eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk
sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð
og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa sem í
daglegu tali eru nefndar DOS-
textaskrár. Þá eru ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.
Skilafrestur
Eigi minningargrein að
birtast á útfarardegi (eða í
sunnudagsblaði ef útför er á
mánudegi), er skilafrestur sem
hér segir: Í sunnudags- og
þriðjudagsblað þarf grein að
berast fyrir hádegi á föstudag.
Í miðvikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dögum
fyrir birtingardag. Berist
grein eftir að skilafrestur er
útrunninn eða eftir að útför
hefur farið fram, er ekki unnt
að lofa ákveðnum birtingar-
degi. Þar sem pláss er tak-
markað getur þurft að fresta
birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna
skilafrests.
% 3 3
0
4
#
#
#
-7 18
1
, () %" %))
()+6 -
) ,
2
1#
-+ +" -+6+())
1 ( - 6%( 0
! 6)
- L - 6%( - )
"(!
+ - 6)
-+6+()+
(%(
<' + - 6%( 4 &()
)
&' + - 6%( -+ ( ,
"+ "
)
' ( %" (" ' (,
8 3 3
0
40% 4
#
)
)
# #
-./H1 <, <1223838 !%
9F
,
+* 3 )
) %#
1
) 4
((%"
, 1 ()
+" 1 () ( , <
!(( 1 () 8 + < "
8 %(
-+(A
, 1 () ""
< %(
(' ( %" ( ( (,
KIRKJUSTARF