Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 1

Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 1
48. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 27. FEBRÚAR 2001 ÍSRAELSKI Verkamannaflokkur- inn mun taka þátt í þjóðstjórn Ariels Sharons, verðandi forsætisráðherra. Miðstjórn flokksins komst að þessari niðurstöðu eftir miklar deilur á fimm klukkustunda löngum fundi í Tel Aviv í gær. Tveir þriðju kjósenda miðstjórnar Verkamannaflokksins greiddu at- kvæði með þátttöku í þjóðstjórn með flokki Sharons, Likud-bandalaginu. Beiðni vinstrimanna í flokknum um að styðja ekki ríkisstjórn sem öfga- hægrimenn munu eiga aðild að var því að engu höfð. Ekki einhugur í Verkamannaflokknum Ekki þykir hins vegar vera mikill einhugur um þessa ákvörðun þar sem eingöngu 753 meðlimir mið- stjórnarinnar af 1.500 tóku þátt í at- kvæðagreiðslunni. Ákvörðunin kem- ur innan við mánuði eftir að fráfarandi forsætisráðherra, Ehud Barak, tapaði í kosningum fyrir Ar- iel Sharon með 25% mun. Talsmaður Likud-bandalagsins fagnaði úrslitum atkvæðagreiðsl- unnar mjög. Háttsettur samninga- maður Palestínumanna, Saeb Erak- at, sagði atkvæðagreiðsluna „innanríkismál Ísraela.“ Erakat sagðist hins vegar hlakka til þegar Ísraelar tækju upp þráðinn í samn- ingaviðræðum við Palestínumenn. Miðstjórn Verkamannaflokksins mun koma saman síðar í vikunni til að úthluta embættunum. Búist er við því að Shimon Peres, fyrrverandi forsætisráðherra og handhafi friðar- verðlauna Nóbels, muni verða utan- ríkisráðherra í ríkisstjórninni. Peres hvatti flokkssystkini sín mjög til að styðja þátttöku í ríkisstjórninni og sagði hana verða ríkisstjórn í frið- arhug. „Ég held að Sharon, eins og ég, verði að taka sögulega ákvörðun ... og ég tel að við munum finna leið til að bjarga landi okkar frá blóð- baðinu og Palestínumönnum frá fleiri fórnarlömbum,“ sagði Peres í sjónvarpsviðtali í gær. Fráfarandi utanríkisráðherra, Shlomo Ben Ami, sagði hins vegar aðildina vera mjög misráðna. „Það er bannað í lýðræði að starfa án stjórn- arandstöðu,“ sagði hann á fundinum í gær. „Í stjórnarandstöðu getum við starfað sem heild. Ef við tökum þátt í harðlínuþjóðstjórn þá munu ein- kenni okkar þurrkast út.“ Ferð Powells um Mið-Austurlönd lokið Sharon, sem hefur barist hart fyr- ir myndun þjóðstjórnarinnar, sagði í samtali við Colin Powell, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sl. sunnu- dag að hann mundi ekki hefja við- ræður við Palestínumenn fyrr en Yasser Arafat lýsti því yfir opinber- lega að ofbeldi skyldi stöðvað. Powell lauk ferð sinni um Mið- Austurlönd í gær með heimsókn til Damaskus, höfuðborgar Sýrlands. Þar ræddi hann í tvo og hálfan tíma við Sýrlandsforseta, Bashar al-As- sad. Hart deilt á fundi miðstjórnar Verkamannaflokksins um þátttöku í ríkisstjórninni Samþykkir aðild að þjóðstjórn Sharons AP Shimon Peres hvatti Verka- mannaflokkinn til þátttöku í þjóðstjórn á fundinum í gær. Tel Aviv, Ramallah. AFP.  Powell lofar/24 VOPNAÐIR hópar Dajaka, frum- byggja Borneó, hertu í gær leit sína að innflytjendum frá eyjunni Mad- úra og hótuðu að drepa þá ef þeir flýðu ekki frá eyjunni. Talsmaður lögreglunnar í Jakarta sagði að Dajakar hefðu orðið að minnsta kosti 303 innflytjendum að bana en embættismenn á Borneó og starfsmenn hjálparstofnana óttast að tala látinna hækki í 1.000. Þúsundir innflytjenda frá Madúra flúðu í skóga í grennd við bæinn Sampit þar sem drápin hófust fyrir rúmri viku. Hópar Dajaka leituðu flóttafólksins, vopnaðir spjótum og sveðjum, og hrópuðu „stríð, stríð!“. Þeir sátu einnig um 10.000 flótta- menn í miðbæ Sampit sem bíða þess að verða fluttir frá bænum. Ofbeldið breiddist út til Palang- karaya, höfuðstaðar héraðsins Mið- Kalimantan, í fyrrinótt þegar Dajak- ar kveiktu í tugum húsa í eigu inn- flytjenda. Þeir settu einnig upp vegartálma til að leita að Madúrum og hótuðu að myrða þá. Akbar Tandjung, forseti þings Indónesíu, skoraði á stjórnina að lýsa yfir neyðarástandi á Borneó. Blóðsúthelling- arnar á Borneó Ofbeldið breiðist út Palangkaraya. AP.  Frumbyggjar/24 SAKSÓKNARI í Belgrad er að und- irbúa ákæru á hendur Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgó- slavíu, eftir því sem heimildarmaður innan flokkabandalagsins, sem stendur að núverandi ríkisstjórn landsins, greindi Reuters-fréttastof- unni frá í gær. Kvað ákæran snúast um húsakaup Milosevic á árinu 1999. Er saksóknarinn sagður hafa ákveðið að birta Milosevic kæru fyrir meinta misnotkun á opinberu fé og að hann gæti sætt tengdum ákærum um misbeitingu valds og ólöglega gróðastarfsemi. Ákæruatriði þessi eru ekki nógu alvarleg til að sjálfkrafa verði gefin út handtökuskipun, en hin áformaða ákæra er vísbending um að dóms- málayfirvöld í Júgóslavíu hyggist ganga harðar fram gagnvart forset- anum fyrrverandi, sem eftirlýstur er af stríðsglæpadómstóli SÞ í Haag. Rade Markovic, fyrrverandi yfir- maður serbnesku leyniþjónustunn- ar, var handtekinn á laugardag. Handtakan er djarfasta atlagan að valdakerfi Milosevic sem gerð hefur verið eftir að honum var bolað frá völdum í október sl. Markovic var yf- irmaður leyniþjónustunnar síðustu tvö ár valdatíma Milosevic. Milosevic á von á ákæru Belgrad. Reuters. sýkt dýr hefðu getað verið flutt til Frakklands, Þýskalands og Hol- lands sl. þrjár vikur. Mikilvægt væri því að rannsaka umrædda gripi í þessum löndum. Hún sagði framkvæmdastjórnina vera ánægða með viðbrögð breskra stjórnvalda og viðleitni þeirra til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Blair segir ástandið „afskaplega alvarlegt“ Gin- og klaufaveiki varð vart í Bretlandi í síðustu viku og er sjúk- dómurinn enn eitt áfallið fyrir FIMM ný tilfelli gin- og klaufaveiki greindust í Bretlandi í gær og ótt- ast breskir bændur mjög frekari út- breiðslu sjúkdómsins. Alls hefur sjúkdómsins orðið vart á tólf stöð- um á Bretlandi, í Essex, Devon, Wiltshire, Herefordshire og North- umberland. Þúsundum gripa hefur verið slátrað og hófst brennsla á hræjunum í gær. Sjúkdómsins hefur ekki orðið vart á meginlandinu. Eigi að síður hefur þúsundum dýra verið slátrað í Hollandi og Þýskalandi til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómsins. Hollendingar slátruðu ríflega 3.000 dýrum, 2.400 kindum, 600 dádýrum og nokkur hundruð svínum og naut- gripum um helgina. Yfirvöld í þýska ríkinu Nordrhein-Westfalen til- kynntu hins vegar að þar yrði 400 gripum slátrað eftir að staðfest hafði verið að nokkur dýr höfðu ver- ið flutt þangað frá býli í Bretlandi þar sem sjúkdómurinn hefur komið upp. Beate Gminder, sem fer með heil- brigðis- og neytendamál í fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði á blaðamannafundi í gær að breskan landbúnað. Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, hitti leið- toga breskra bænda í gær. Blair sagði ástandið vera „afskaplega al- varlegt“. Yfirvöld í Bretlandi brugðu skjótt við eftir að sjúkdóm- urinn kom upp, bönnuðu útflutning á bresku kjöti og lögðu bann við flutningi á búfénaði. Framkvæmda- stjórn ESB bannaði einnig innflutn- ing á breskum búfénaði í síðustu viku. Tveggja daga fundur landbúnað- arráðherra Evrópusambandsins hófst í Brussel gær. Fyrirhugað hafði verið að ræða vanda bænda vegna kúariðu en gin- og klaufa- veiki var sett á dagskrá í ljósi at- burðanna í Bretlandi. Franz Fischl- er, sem fer með landbúnaðarmál í ESB, sagði í ræðu sinni á fundinum að hann harmaði vanda breskra bænda. Hann lagði einnig mikla áherslu á að stutt yrði við bakið á evrópskum nautgripabændum en neysla á nautakjöti hefur snar- minnkað eftir að kúariða breiddist út um Evrópu. AP Hræ dýra sem slátrað var vegna gin- og klaufaveiki brennd í Heddon-on-the Wall í Norðaustur-Englandi í gær. Þús- undum dýra slátrað London, Brussel, Haag. AFP, AP.  Logandi hrækestir/26 Hollendingar og Þjóðverjar hindra útbreiðslu gin- og klaufaveiki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.