Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu Galloper 2500 disel.
Sjálfsk. 5 dyra nýskráður 27.08.
1998 ekinn 45.000. Sumardekk,
vetrardekk, upphækkaður 33“
dekk, vindskeið, varadekkshlíf.
Ásett verð 1,870,000.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ til-
kynnti í gær um viðamiklar breyt-
ingar á skipan sendiherra í utanrík-
isþjónustunni.
Hjálmar W. Hannesson tekur við
embætti sendiherra Íslands í Ottawa
þegar það sendiráð tekur til starfa 1.
maí nk. Svavar Gestsson, aðalræðis-
maður Íslands í Winnipeg, tekur hins
vegar við starfi sendiherra í Stokk-
hólmi frá 15. júní nk. en Hörður
Bjarnason, sem gegnt hefur því emb-
ætti, tekur við starfi fastafulltrúa Ís-
lands hjá Evrópuráðinu í Strassborg
1. ágúst nk.
Þá mun Jón Egill Egilsson sendi-
herra í Moskvu taka við embætti
sendiherra í Berlín 1. ágúst næst-
komandi af Ingimundi Sigfússyni en
hann tekur við starfi sendiherra í
Tókýó þegar það sendiráð tekur til
starfa 1. september næstkomandi.
Benedikt Jónsson tekur hins vegar
við stöðu Jóns Egils í Moskvu.
Loks mun Björn Dagbjartsson
sendiherra taka við embætti sendi-
herra Íslands í Mosambík frá 1. apríl
nk.
Aðrar breytingar í utanríkisþjón-
ustunni eru þær að Stefán Skjaldar-
son sendifulltrúi hefur verið skipaður
sendiherra í utanríkisþjónustunni frá
15. þessa mánaðar og tók þá við stöðu
skrifstofustjóra alþjóðaskrifstofu
ráðuneytisins. Benedikt Ásgeirsson
sendiherra tók við starfi skrifstofu-
stjóra almennrar skrifstofu 15. þ.m.
auk þess að taka við nýjum verkefn-
um á sviði langtímastefnumótunar
fyrir utanríkisþjónustuna. Þá tók
Gunnar Gunnarsson sendiherra við
stöðu skrifstofustjóra varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins 15.
þ.m.
Stefán Haukur Jóhannesson
sendiherra tekur við starfi fastafull-
trúa Íslands hjá EFTA og alþjóða-
stofnunum í Genf frá 1. ágúst nk. og
Grétar Már Sigurðsson sendifulltrúi
hefur verið skipaður sendiherra frá
15. þ.m og tekur við starfi skrifstofu-
stjóra viðskiptaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins frá 1. september nk.
Loks mun Sveinn Björnsson
sendiherra taka við stöðu prótókoll-
stjóra í utanríkisráðuneytinu frá 1.
ágúst nk.
Breytingar að verða í
utanríkisþjónustunni
UNDIRSKRIFTASÖFNUN er
hafin á Netinu til þess að mót-
mæla nýrri reglugerð sem felur í
sér álagningu höfundarréttar-
gjalds á geisladiska og brennara
sem notaðir eru við að brenna efni
á geisladiska.
Einnig er í reglugerðinni kveðið
á um upphæð höfundarréttar-
gjalda sem innheimt eru af
óáteknum segul- og myndböndum
og segul- og myndbandstækjum.
Af þeim hefur áður verið innheimt
höfundarréttargjald, en það hefur
ekki áður verið innheimt af geisla-
diskum og brennurum.
Hálft sjöunda þúsund
Reglugerðin er sett í samræmi
við breytingu á höfundalögum
sem Alþingi samþykkti síðastliðið
vor.
Samkvæmt henni eru greiddar
35 til 100 krónur af hverjum
óáteknum geisladiski. Einnig er
gert ráð fyrir að 1% af verði tölva
með innbyggðum geisladiskaskrif-
urum sé innheimt vegna höfund-
arréttargjalda en 4% af verði
tækja til upptöku, þar á meðal á
geisladiska, smádiska og af tækj-
um til upptöku á minnisflögur, þar
á meðal í MP-3-spilara. Gjöldin
renna til samtaka höfundarrétt-
arhafa.
Um kvöldmatarleytið í gær
hafði hálft sjöunda þúsund manns
skráð sig á lista til þess að mót-
mæla reglugerðinni.
Höfundarréttargjald á geisladiska veldur deilum
Undirskriftasöfnun
vegna gjaldsins
HÁTT á þriðja hundrað hreindýra-
skinn í eigu Ólavíu Sigmarsdóttur
og Signýjar Ormarsdóttur eyði-
lögðust í vinnslu hjá Skinnaiðnaði á
Akureyri nýverið.
Skinnin, sem voru í leðursútun,
eyðilögðust þegar þau ofhitnuðu í
þvotti. Þetta voru hreindýraskinn
sem Ólavíu og Signýju tókst að
safna saman og kaupa á síðasta
hausti eftir veiðitímabil síðasta árs.
Ólavía og Signý sauma mikið úr
hreindýraleðri, Ólavía saumar að-
allega töskur, hatta, veski og budd-
ur en Signý alls konar módelflíkur
sem hún hannar sjálf svo sem kjóla,
jakka og vesti.
Að sögn Haraldar Sigurjónsson-
ar, efnafræðings hjá Skinnaiðnaði á
Akureyri, var það bilun í blöndun-
arkerfi sem bilaði og olli skaðanum,
blöndunarkerfið átti að taka inn 40°
heitt vatn en bilunin olli því að það
tók inn 65° heitt vatn og orsakaði
þetta slys.
„Þetta var alveg skelfilegt, við
tókum þetta allt í einu og skinnin
eru öll í henglum,“ sagði Haraldur.
Að sögn Ólavíu er þetta mikill
skaði, fyrir utan framleiðslu og
markaðstap, hún geti ekki framleitt
upp í lager eins og hún sé vön á vet-
urna. Þessi skinn áttu að fara í
framleiðsluna nú í vetur og sumar
og Signý ermeð mikið af pöntunum
sem erfitt verður að framleiða uppí.
Að vísu eru til 80 til 90 skinn úr
eldri sútunum sem eru í allavega
ástandi, aðallega afgangar og eft-
irhreytur frá fyrri veiðitímabilum
sem duga skammt en bjarga þó ein-
hverju.
Haraldur segir skinnin ekki hafa
verið tryggð hjá þeim en reynt
verði að bæta þetta eftir föngum.
„Skinnin skreppa saman og missa
styrk þegar þau hitna svona og
rifna eins og pappír vegna þess að
próteinefni í þeim eyðileggjast.“
Ólavía segir að skinnin hafi ekki
verið tryggð hjá þeim en sútunar-
verksmiðjan ætli að bæta þeim Sig-
nýju þetta eins og unnt er en
skinnatapið er óbætanlegt. Sútun-
arverksmiðjan ætli einnig að leð-
ursúta skinnin sem fást næsta
haust strax eftir veiðitímabilið svo
þau komi sem fyrst til vinnslu hjá
þeim til að brúa bilið eins og hægt
er.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson.
Ólavía Sigmarsdóttir við vinnu á vinnustofu sinni í Klausturseli á Jökuldal.
Á þriðja hundrað hrein-
dýraskinna eyðilagðist
Norður-Héraði. Morgunblaðið.
ÖKUMAÐUR, sem grunaður er um
ölvun við akstur, ók á biðskýli
Strætisvagna Reykjavíkur við
Borgarveg í Grafarvogi að morgni
sunnudags.
Biðskýlið er gjörónýtt en öku-
maðurinn var fluttur á slysadeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Hann var þó talinn lítið slasaður.
Morgunblaðið/Ingólfur
Ölvaður öku-
maður ók nið-
ur biðskýli
KARLMAÐUR hlaut talsverða
áverka þegar hann var stunginn með
hnífi í bakið aðfaranótt sunnudags.
Árásin átti sér stað í fjölbýlishúsi í
Breiðholti. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu leiddu deilur tveggja
manna til þess að annar stakk hinn í
bakið. Árásarmaðurinn var handtek-
inn á vettvangi. Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur úrskurðað hann í
gæsluvarðhald til 5. mars nk.
Óskað var eftir aðstoð lögreglunn-
ar í Reykjavík skömmu eftir mið-
nætti vegna slagsmála í stigagangi
hússins. Þegar lögreglan kom á stað-
inn hafði annar maðurinn verið
stunginn með hnífi í bakið. Hann var
fluttur á slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss í Fossvogi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu er
líðan hans góð miðað við aðstæður.
Stunginn
í bakið
♦ ♦ ♦
PÁLL Skúlason, rektor Háskóla Ís-
lands, sagði við Morgunblaðið í
gær, að helstu ástæður þess að aug-
lýstri stöðu lektors í barna- og ung-
lingageðlæknisfræði við læknadeild
Háskóla Íslands hefði ekki verið
ráðstafað væru þær, að ekki hefði
verið skynsamlegt að ráðstafa stöð-
unni þar sem niðurstöður dóm-
nefndar háskólans annars vegar og
læknadeildar hins vegar um hæf-
asta umsækjandann færu ekki sam-
an. Læknadeild hefði ekki mælt
með þeim umsækjanda sem dóm-
nefnd hefði talið hæfastan. Páll
sagðist því telja sig hafa málefnaleg
rök fyrir þeirri ákvörðun sinni að
ráða ekki í stöðuna. Í krafti emb-
ættis síns hefði hann svigrúm til
þess að taka umrædda ákvörðun.
Umsækjendur voru þrír og allir
taldir hæfir. Staðan var auglýst til
umsóknar í janúar 1999. Hún verð-
ur því auglýst á ný þegar ákvörðun
um það liggur fyrir af hálfu lækna-
deildar.
Ekki ráðið í stöðu lekt-
ors við læknadeild HÍ
Ágreining-
ur um um-
sækjendur