Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 9
EINN var með allar fimm réttar töl-
ur, 1, 3, 17, 25 og 29, í lottóinu um
helgina og hreppir hann því 2.022.700
krónur. Tveir voru með fjórar tölur
réttar auk bónustölunnar 11 og fær
hvor um sig 85.470 krónur. Alls voru
60 manns með fjórar tölur réttar og
fær því hver og einn 6.260 krónur.
Einn fékk
lottópottinn
BILUN varð í sæstrengnum Cant-
at3 snemma á sunnudagsmorgun í
þeim hluta strengsins sem liggur á
milli Danmerkur og Bretlands. Í
fréttatilkynningu frá Landssíman-
um segir að viðskiptavinir fyrirtæk-
isins hafi ekki orðið varir við bilunina
því að sambönd sem venjulega fara
þessa leið voru strax flutt yfir á vara-
leið um gervihnött. Bilunin hefur því
ekki áhrif á símasamband Símans til
útlanda. Ekki er vitað hvað olli bil-
uninni en unnið er að viðgerð.
Bilun í Cant-
at3 truflar
ekki samband
VATNSLEKI varð í prentsmiðju
Morgunblaðsins í fyrrinótt. Tenging
við blásarasamstæðu gaf sig og heitt
vatn lak inn vegna þessa. Einn bíll
frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
kom á staðinn og voru notaðar vatns-
sugur til þess að hreinsa vatnið.
Verkið tók um klukkustund. Ekkert
tjón varð á tækjabúnaði. Orsök bil-
unarinnar má rekja til frosts.
Vatnsleki í
prentsmiðju
Morgunblaðsins
JARÐSKJÁLFTI, sem var 3 á Richt-
er, mældist í Bárðarbungu í Vatna-
jökli kl. 4:18 aðfaranótt sunnudags.
Samkvæmt upplýsingum frá Veður-
stofu hafa ekki verið eftirskjálftar.
Nokkur skjálftavirkni var á sunnudag
við Hestvatn en stærsti skjálftinn á
þeim slóðum var 1,8 á Richter.
Jarðskjálfti
í Bárðarbungu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
BJÖRGUNARSVEITIN Tintron í
Grímsneshreppi var kölluð út á
sunnudagskvöld til að aðstoða tvo
vélsleðamenn sem höfðu lent í
vonskuveðri nærri Stóra-Dímon.
Lögreglunni á Selfossi barst tilkynn-
ing um að mennirnir þörfnuðust að-
stoðar rétt fyrir hálfníu.
Vélsleðamennirnir voru með GPS-
staðsetningartæki og gátu því gefið
upp nákvæma staðsetningu og héldu
þeir kyrru fyrir þangað til björgun-
arsveitin kom á staðinn. Klukkan
hálfellefu var björgunarsveitin búin
að finna mennina en ekkert amaði að
þeim. Þrjár aðrar björgunarsveitir
voru í viðbragðsstöðu ef nauðsynlegt
reyndist að leita að mönnunum, að
sögn lögreglu.
Vélsleðamenn
leituðu aðstoðar
björgunarsveita
♦ ♦ ♦
! ""# $#%& ! ""' #&%&!
Tölvunámskeið á næstunni
Horfðu til framtíðar
Borgartúni 28 · Sími 561 6699
tolvuskoli@tolvuskoli.is · www.tolvuskoli.is
Ath!
Skrá
ning
sten
dur
yfir
Hagnýtt grunnnám
60 stundir - 5. - 30. mars. Kennt
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
frá kl. 810-1210
Nám fyrir byrjendur. Kennd er
undirstaða tölvuvinnslu s.s. Windows,
Word og Excel. Internetið kynnt.
Hagnýtt framhald
40 stundir - 19. mars - 20. apríl.
Kennt mánudaga - miðvikudaga
frá kl. 1730-2030
Námsbraut fyrir þá sem hafa lokið
grunnnámi og vilja auka við
þekkingu sína.
Almenn námskeið, 15 stundir
Word 2 1. - 8. mars
Outlook 6. - 13. mars
Excel 3 7. - 14. mars
Internetið 7. - 12. mars
Word 3 13. - 20. mars
PowerPoint 14. - 21. mars
...matardiskar kr.29,-
Full búð
af nýjum
vörum
Lífstykkjabúðin
Laugavegi 4, sími 551 4473.
Póstsendum
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Opið virka daga kl. 10–18
Opið laugardaga kl. 10–14
Ný vorsending
Mikið úrval af gluggatjaldaefnum
Skipholti 17a, sími 551 2323
Við ráðleggjum
og saumum fyrir þig
Smáskór
sérverslun með barnaskó
Suðurlandsbraut 52 – í bláu húsi við Fákafen – Sími 568 3919
Skriðskór
Teg. 400
Stærðir 18-20
Bláir – rauðir – hvítir
Verð kr. 3.590
Kvartbuxur,
peysur, bolir
og dress
í miklu úrvali
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Glæsilegur
vorfatnaður
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347.
Sérhönnun. St. 42-56
Ný vorfatasending
Prjóna-, hör- og viskos-fatnaður