Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 13 STJÓRNIR sjúkrahússins Sólvangs, heilsugæslunnar á Sólvangi og Hafnar, félags um íbúðir fyrir aldraða við Sól- vang, hafa allar lýst sig andvíg- ar áformum bæjaryfirvalda í Hafnarfirði um nýtt deiliskipu- lag á Hörðuvallasvæðinu, þar sem rísi grunnskóli, leikskói, íþróttahús og sundlaug. Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hafnar, sagðist í samtali við Morgun- blaðið telja ljóst að forsendur skipulagsins um umferðar- þunga stæðust ekki. Stjórn Heilsugæslustöðvar- innar á Sólvangi segir í bókun að skipulagið geri ráð fyrir að Sólvangur og heilsugæslustöð- in verði hornreka á svæði sem þær hafa frumbyggjarétt á. Sveinn Guðbjartsson, for- stjóri Sólvangs, sagðist telja að almennt hefði fólk tengt Sól- vangi áhyggjur af áformunum „Hér var búið að skipuleggja svæðið mjög vel fyrir aldraða,“ sagði hann og sagði að sam- kvæmt fyrra skipulagi ætti eft- ir að stækka Sólvang en áform- uðum framkvæmdum vegna nýbyggingarinnar fyrir nokkr- um árum hefði aldrei verið lokið en þá var byggt við sjúkrahúsið fyrir heilsugæslustöð bæjarins. Ekki hefði verið ráðist í við- byggingu fyrir 60 ný sjúkra- rúm, þar sem m.a. væri gert ráð fyrir deild fyrir alzheim- er-sjúklinga og geðfatlaða. Nú eru um 80 sjúklingar á Sólvangi en vegna starfs- mannaskorts vantar um það bil 10 sjúklinga á að húsið sé fullnýtt. Sólvangur er fyrst og fremst hjúkrunarheimili fyrir aldraða sjúklinga. Þar eru alls 123,7 stöðugildi og, auk tveggja lækna og 20–30 hjúkr- unarfræðinga, eru þar fram- kvæmdar meinarannsóknir, röntgenrannsóknir. Þar starfa sjúkraþjálfar, starfsfólk við vinnustofu, þvottahús, sauma- stofu og verkstæði, svo og sjúkraliðar og annað starfs- fólks við aðhlynningu sjúk- linga. Sparkvöllur við gaflinn í stað sólhýsis Sveinn sagði að stjórn sjúkrahússins hefði í bókunum lýst áhyggjum af deiliskipu- lagstillögunni og m.a. sett fram sjónarmið sín á fundi með skipulagsyfirvöldum. „Við er- um áhyggjufull af því að það komi gríðarlega mikil starf- semi á svæðið; stór grunnskóli, íþróttahús, sundhöll og leik- skóli upp í gafl hjá okkur,“ sagði Sveinn og sagði að sam- kvæmt tillögunni kæmi spark- völlur grunnskólans rétt við gaflinn þar sem fyrra skipulag gerði ráð fyrir sólhýsi fyrir sjúklingana á Sólvangi. Sveinn sagði að stjórn sjúkrahússins hefði fyrst 3. febrúar 2000 bókað um áhyggjur sínar af fyrirætlun- um um skólabyggingar og far- ið þess á leit við bæjaryfirvöld að þau sæju til að framkvæmd- irnar yrðu í þeirri fjarlægð frá Sólvangi að heimilisfólk yrði ekki fyrir ónæði vegna hávaða eða að öðrum orsökum, auk þess sem tryggt yrði að bíla- stæði yrðu nægileg fyrir starf- semina á svæðinu og tekið yrði tillit til framtíðarstækkunar Sólvangs. Þá hefði stjórnin harmað að horfið væri frá frek- ari uppbyggingu fyrir aldraða á svæðinu. Í september sl. samþykkti stjórnin enn á ný samhljóða bókun þar sem segir að það sé eitt af verkefnum hennar að gæta þess að forsendur séu fyrir því að sjúklingum og starfsfólki líði sem best á Sól- vangi. Í því skyni hefði verið ráðist í viðamiklar umbætur og framtíðarmarkmið miðuðust að því að vinna áfram að bættri aðstöðu. „Hætt er við að fyrirhuguð skólabygging á svæðinu þrengi mjög að Sólvangi,“ seg- ir í bókuninni þar sem stjórnin segist hafa fullan skilning á þörf fyrir aukið og bætt skóla- húsnæði í Hafnarfirði en bygg- ing 550 barna grunnskóla, 120 barna leikskóla, auk íþrótta- húss og sundlaugar í nálægð við vistarverur þar sem dvelja aldraðir og sjúkir geti engan veginn talist viðunandi. Umferð og hávaði til óþæginda „Stjórn Sólvagns mótmælir nálægð skólans við byggingu hjúkrunarheimilisins og þar með stærð þessara bygginga og telur það óhjákvæmilegt að hávaði og umferð muni verða til mikilla óþæginda fyrir aldr- að heimilisfólk, sérstaklega í ljósi þess að skólaplanið er fyr- irhugað fyrir utan glugga Sól- vangs,“ segir ennfremur. Þá segir að stjórnin fari þess á leit við bæjarstjórn að hún taki fyrirhuguð byggingaráform til endurskoðunar og samþykki stefnu í skólamálum og öldr- unarmálum þar sem annar málaflokkurinn ógni ekki hin- um og bendir á að Sólvangs- og Hörðuvallasvæðið sé fallegt og viðkvæmt svæði sem skipti miklu að verði skipulagt af næmi svo sómi verði að til framtíðar. Sveinn sagði að þeir sem mæltu skipulagstillögunni bót hefðu margir talað um að það væri gaman fyrir gamla fólkið á Sólvangi að vera innan um unga fólkið í skólanum og hann sagði að kannski ætti það við um þá sem væru hressastir. Á Sólvangi væru hins vegar fyrst og fremst sjúklingar og fyrir þá væri þreytandi að vera í grennd við leikvöll þar sem mikið væri um að vera öll kvöld og helgar. „Þetta er ekki það næði sem aldraðir vilja,“ sagði Sveinn. „Þeir sem það vilja geta notið þess á öðrum svæð- um í bænum. Mér finnst dap- urlegt að ekki hafi verið hægt að finna annan stað og ég hef stórar áhyggjur af þessu.“ Kristján Guðmundsson er framkvæmdastjóri Hafnar, félags sem á og rekur tvö fjöl- býlishús með 68 eignaríbúðum fyrir aldraða milli hjúkrunar- heimilisins Sólvangs og Reykjanesbrautar. Að auki á bærinn um 30 íbúðir fyrir aldr- aða á svæðinu, í raðhúsum við Álfaskeið. Kristján sagði að eldra skipulag hefði gert ráð fyrir aukinni byggð fyrir aldraða á svæðinu auk þjónustumið- stöðvar við Lækjargötu. Umferðarforsendur standast ekki „Nú er þessu öllu kollvarp- að,“ sagði Kristján. Hann sagði að ógjörningur yrði að koma fyrir þeirri umferð sem fylgir 550 manna skóla og 120 barna leikskóla af stærstu gerð auk íþróttahúss og sund- laugar á þessu litla og við- kvæma svæði og nefndi að við það bættist um 250–300 komur á heilsugæslustöðina á Sól- vangi sem þjónaði öllum Hafn- arfirði og Bessastaðahreppi og væri ein sú stærsta á höfuð- borgarsvæðinu. Kristján sagði að umferðar- talning sýndi að nú þegar færu um 2.600 bílar um Sólvangsveg á dag en að samkvæmt skipu- lagsforsendum væri gert ráð fyrir að 7–10% foreldra ækju börnum sínum í nýja skólann. Það sagði Kristján ekki stand- ast og vitnaði í því sambandi til talningar sem foreldrafélag Kópavogsskóla gerði fyrr í mánuðinum. Í Kópavogsskóla eru um 400 börn en könnunin leiddi í ljóst að þangað komu 140 bílar með börn í skólann á 10 mínútna tímabili um morg- uninn. Þá kvaðst hann hafa orð skólastjóra í Garðabæ fyrir því að þangað kæmu um 80% barna í skólann í bílum með foreldrum sínum. Kristján sagði að útkoman samkvæmt þessu skipulagi gæti ekki orðið önnur en algjör ringulreið vegna þess hve bíla- eign og umferð væri vanmetin. Eins væri óheppilegt og til þess fallið að auka umferð að skólanum að staðsetja nýja skólann í jaðri skólahverfisins. Kristján sagði að einnig væri vanmetið hve stór hluti starfs- fólks skólans og leikskólans þyrfti að komast til vinnu á einkabílum. Hann sagði að í forsögn hug- myndasamkepninnar hefði verið gert ráð fyrir því að Sól- vangsvegi yrði lokað fyrir um- ferð en samkvæmt afgreiðslu skipulagsnefndar hefði verið fallið frá því og þar með boðið heim aukinni umferð. Eins hefði skipulagsnefnd fellt burt hluta af gamla skipulaginu um íbúðir fyrir aldraða norðan Sólvangs, þ.e. milli sjúkrahúss- ins og Álfaskeiðs. Stjórn Heilsugæslustöðvar- innar í Sólvangi ályktaði einnig vegna málsins í september sl. og í bókun hennar segir að rangt hefði verið fært til bókar hjá skipulagsnefnd að stjórn heilsugæslustöðvarinnar hefði komið að undirbúningi máls- ins. Með skipulagstillögunni væru Sólvangur og heilsu- gæslustöðin gerð hornreka á svæði þar sem þessar stofnan- ir ættu frumbyggjarétt. „Skipulagssvæði skólanna nær uppundir húsvegg þessara stofnana og meðal annars yfir þau bílastæði sem þær hafa haft til umráða. Grunnskóla- byggingin kemur til með að mynda mjög afgerandi bak- grunn að þessu svæði,“ segir þar. Þrengt að stofnununum „Fjölmennum vinnustað eins og skóla fylgir einnig mikil umferð, erill og hávaði, sem beint er inn á svæði sjúkra- stofnana og aldraðra. Allt þetta gerir að verkum að mjög er þrengt að þeim stofnunum sem þarna eru fyrir og allri uppbyggingu á þeirra vegum, auk þess rasks og ónæðis sem því fylgir.“ Stjórnin telur því áformin skerða framtíðaráform um uppbyggingu öldrunarþjón- ustu og heilsugæslu á Sól- vangssvæðinu. Stjórnir sjúkrahúss, heilsugæslu og íbúða aldraðra við Hörðuvelli andvígar skipulagstillögu Segjast eiga frum- byggjarétt en verða hornreka                                      Hafnarfjörður NÝTT fangelsi mun að lík- indum rísa í Hólmsheiðinni í framtíðinni. Í upphafi var gert ráð fyrir að fangelsið yrði á lóð norðan Suðurlands- vegar, austan Rauðavatns. „Reynslan sýnir, að fang- elsi þurfa að endast í 200 ár eða svo, þannig að við viljum hafa framtíðina fyrir okkur, og þess vegna er okkur nauð- syn á jafn stórri lóð og hér um ræðir. En við erum þó ekki endanlega búnir að gera samning um hana, heldur er- um enn í viðræðum,“ sagði Björn Friðfinnsson ráðu- neyutisstjóri í dómsmála- ráðuneytinu. „Borgarráð heimilaði skrif- stofustjóra borgarverkfræð- ings að hefja viðræður við okkur um þessa nýju lóð í Hólmsheiðinni; það er dálítill flutningur á henni, en ágætis lóð samt. Hugmyndin er sú að fara að vinna af krafti í hönnun á þessu ári, á fyrsta áfanga af þremur,“ sagði Björn. Nýtt fangelsi á Hólmsheiði Reykjavík Á MÁLÞINGI um bæjarlíf og bæjarvitund í Garðabæ, sem afmælisnefnd Garðabæjar gekkst fyrir á laugardaginn var, 24. febrúar, komu fram ábendingar um að framboð á litlum íbúðum í Garðabæ, fyrir þá sem væru að byrja að búa og eins fyrir eldra fólk, væri allt of lítið. Tilgangur mál- þingsins, sem var haldið í fyr- irlestrarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ, var sá að kveikja umræður um mikilvægi sam- heldni í samfélaginu, leita eftir hugmyndum um eflingu bæj- arlífsins og svara við því hvort það sé hlutverk bæjaryfirvalda að hafa forystu í þessum efn- um og þá hvernig. Framsögu- menn voru Þórólfur Þórlinds- son prófessor, Særún Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi formaður Kvenfélags Garða- bæjar, Friðrik Guðjónsson, formaður Nemendafélags FG, og Sigmar Guðmundsson fréttamaður. Hátt í 90 manns sóttu málþingið. „Fólk var aðallega óánægt með að það vantaði minni íbúð- ir í Garðabæ, fyrir þá sem eru að byrja að búa og eins fyrir eldra fólkið,“ sagði Guðfinna Kristjánsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Garðabæjar. „Úr þess- um upplýsingum verður unnið og niðurstaðan lögð fyrir af- mælisnefndina.“ 130 Garðbæingum voru send bréf og þeim sérstaklega boðið til þingsins. „Þetta var fólk sem t.d. starfar í nefndum og ráðum á vegum bæjarins, fólk í frjálsum félagasamtök- um í bænum o.s.frv.,“ sagði Guðfinna. „Bréfin voru númer- uð og svo dregin út 10 núm- eruð bréf eftir hlé og þeir sem áttu viðkomandi bréf voru beðnir um að koma upp og tjá sig. Um þetta fyrirkomulag var áður búið að ræða í sjálfu bréfinu, þannig að fólk vissi að það gæti átt von á þessu. Þetta heppnaðist mjög vel, allir voru prýðilega undirbúnir.“ Guðfinna sagði að Þórólfur Þórlindsson, sem var eini frummælandinn sem ekki er úr Garðabæ, hefði lagt áherslu á, að á tímum hnattvæðingar væri nærsamfélagið alltaf að verða mikilvægara, sérstak- lega væri nauðsynlegt fyrir unga fólkið að hafa rætur ein- hvers staðar. Einnig lagði Þór- ólfur mikla áherslu á nauðsyn þess að grasrótin væri sterk, því ekki væri hægt að efla bæj- arbrag algjörlega að ofan, og þar átti hann við mikilvægi hinna frjálsu samtaka, íþrótta- félagsins, skátanna og þar fram eftir götunum. „Fundar- menn virtust einnig sammála um að það hefði afar mikið að segja,“ sagði Guðfinna. Á málþingi um bæjarbrag í Garðabæ komu fram óskir um breytingar í húsnæðismálum Vantar minni íbúðir í bæinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Á málþinginu í Garðabæ, sem um 90 manns sóttu, var góð stemmning, en ábendingar komu þó fram um að litlar íbúðir skorti í bænum. Garðabær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.