Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 14

Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 14
AKUREYRI 14 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ EYÞING – Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri áforma að koma á fót stjórnunarnámi við RHA. Að sögn Péturs Þórs Jónassonar, fram- kvæmdastjóra Eyþings, er undir- búningur í fullum gangi. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við þess- um hugmyndum, það er ljóst að það er mikill áhugi á náminu meðal fólks í stjórnunarstörfum og það höfðar til margra.“ Pétur Þór sagði stefnt að því að byrja strax í vor með eitt námskeið í upplýsingatækni og setja svo á fulla ferð næsta haust en námið stendur yfir í þrjár annir. Sérstök náms- stjórn hefur umsjón með náminu, fylgist með þróun þess og ræður kennara. „Við ætlun að leggja mikla áherslu á að fá góða kennara til liðs við okkur.“ Gert er ráð fyrir að stjórnunar- námið verði stundað með starfi og að það sé hagnýtt fyrir framkvæmda- stjóra og aðra stjórnendur sveitar- félaga, forstöðumenn hinna ýmsu sviða, deilda eða stofnana sveitar- félaga. Námið á einnig að vera hag- nýtt fyrir kjörna fulltrúa í sveitar- stjórnum jafnt og aðra sem vilja auka yfirsýn sína og færni til að tak- ast á við krefjandi verkefni. Þrátt fyrir að í náminu sé lögð áhersla á að draga fram viðfangsefni sveitarfélaga byggist það að stærst- um hluta á efni sem á við í öllum stjórnunarstörfum, hvort heldur er í opinberum rekstri eða einkarekstri. Lögð verður áhersla á að kenna vinnuaðferðir og mikilvægur þáttur í náminu er að saman komi fólk úr ýmsum áttum til að bera saman bækur sínar. Mikilvægt að leita sér endurmenntunar Pétur Þór sagði að á það hefði ver- ið bent að það væru fremur milli- stjórnendur og sérfræðingar ýmiss konar sem öfluðu sér endurmennt- unar en stjórnendur og er afleiðing- in sú að þeir hafa setið eftir. Hver sem skýringin væri stæði eftir sú staðreynd að mikilvægt væri að stjórnendur leituðu sér endur- menntunar til að viðhalda og bæta færni sína í starfi ekki síður en aðrir starfsmenn. Til að auðvelda fólki að skipu- leggja námið samhliða starfi sínu og til þess að auðvelda fólki að sækja námið um lengri veg er miðað við að kennt verði í skorpum 4–5 sinnum á önn. Áætlað er að námið kosti um 270 þúsund krónur. Pétur Þór sagði að á síðari árum hefði þróunin verið sú að fyrirtæki og stofnanir sendu starfsmenn sína í nám það sem hér um ræðir og greiddu námskostnað- inn. Áformað að koma á fót stjórnunarnámi við Rannsóknarstofnun Háskólans Námið byggt á efni sem á við öll stjórnunarstörf VINKONURNAR Katrín Guð- mundsdóttir og Hulda Jónsdóttir voru að búa sér til snjóhús í skafli einum sem hafði myndast eftir snjóruðningstæki í Gilinu neðan við andapollinn á Akureyri í gærdag. Þær ætluðu sér að búa til fínt snjóhús en tóku fram að þær hefðu ekki í hyggju að búa í húsinu þrátt fyrir það. Hulda á heima í Hveragerði en var í heimsókn á Akureyri og þótti bara gaman að leika sér í snjónum sem loksins hefur látið sjá sig að einhverju marki í bæn- um. Hún sagði að enginn snjór væri í heimabæ hennar syðra og til að kóróna allt hefðu jólin meira að segja verið rauð „og það er hundleiðinlegt“, sagði hún og naut þess greinilega að bjástra í skaflinum. Í Hveragerði er lítið um snjó núna og erfitt að standa í húsbyggingum. Morgunblaðið/Kristján Gera snjóhús í snjóskafli VEÐURGUÐIRNIR tóku upp á því að minna aðeins á sig norðan heiða sl. sunnudag og af þeim sök- um varð m.a. röskun á flugi og íþróttaviðburðum á Akureyri. Hins vegar gekk umferðin vel á Akureyri og helgin var hin róleg- asta, að sögn lögreglu. Ekki var hægt að keppa á bik- armóti SKÍ í stórsvigi í Hlíðarfjalli á sunnudag vegna veðurs og þá varð að fresta leik KA og Vals í 1. deild Íslandsmótsins í handbolta um kvöldið þar sem flug- samgöngur fóru úr skorðum seinni part dagsins og þar til í gærmorg- un. Dómarar leiksins komust ekki norður en Valsmenn, sem fóru með flugi um hádegi á sunnudag, voru mættir til leiks og átti leik- urinn að fara fram í gærkvöld. Óhætt er að segja að veðurguð- irnir hafi sýnt sínar bestu og verstu hliðar um helgina, því á laugardag var hið besta veður og þá fór m.a. fram bikarmót SKÍ í svigi í Hlíðarfjalli og gekk vel. Þá fór þar einnig fram snjóbrettamót auk þess sem almenningur fjöl- mennti í brekkurnar. Flugvél varð að snúa við Ari Fossdal hjá afgreiðslu Flug- félags Íslands á Akureyr- arflugvelli sagði að síðasta vél frá Akureyri á sunnudag hefði farið í loftið um kl. 15 en eftir það lá flug niðri fram á mánudagsmorgun. Vél sem fór af stað frá Reykjavík eftir það varð að snúa við vegna veðurs. Um 130–140 farþegar biðu eftir flugi á hvorum stað. Þá var að sögn Ara heldur ekki hægt að fljúga frá Akureyri til annarra áfangastaða á sunnudag, Vopna- fjarðar, Egilsstaða og Ísafjarðar og biðu um 20–30 farþegar á Ak- ureyri eftir flugi á þá staði. Ari sagði ástandið á sunnudag hafa verið eitt fyrsta vetr- arstoppið vegna snjókomu og norðanáttar enda hefði frekar ver- ið um tafir að ræða vegna lægð- argangs og sunnanáttar fram að þessu. Ari sagði að þrátt fyrir allt hefði veturinn verið nokkuð góður og flug gengið vel. Morgunblaðið/Kristján Fjöldi fólks beið eftir flugi eftir að fært var orðið á milli Akureyrar og Reykjavíkur í gærmorgun. Veður- guðirnir minntu á sig á sunnudag HVERNIG ætlar Akureyrar- bær að takst á við 2% fjölgun íbúa á ári næsta áratug? er yf- irskrift erindis sem Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, flytur á hádegis- verðarfundi á Fiðlaranum í dag, þriðjudaginn 27. febrúar, en hann stendur frá kl. 12 til 13. Á fundinum mun bæjarstjóri m.a. fjalla um þörf fyrir fjölg- un leik- og grunnskóla og þá mun skipulagsmál bera á góma, m.a. þróun byggðar, þ.e. hvort áfram verði byggt til suðurs eða hvort hugað verði að byggð meðfram ströndinni í norðurátt og einnig um það landrými sem þarf vegna þess- arar fjölgunar. Þá mun Krist- ján Þór ræða um iðnaðarlóðir og hvernig tekið verður á um- hverfismálum. Atvinnuþróunarfélag Eyja- fjarðar, Háskólinn á Akureyri og sjónvarpsstöðin Aksjón efna til fundarins. Bæjar- stjóri á há- degisfundi MENNTUN í dreifbýli er yfirskrift ráðstefnu sem Félag íslenskra leik- skólakennara, kennaradeild Háskól- ans á Akureyri, Kennaraháskóli Ís- lands, Kennarasamband Íslands, Samband Íslenskra sveitarfélaga og Samtök fámennra skóla efna til en hún verður haldin í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði 28. apríl nk. Á ráðstefnunni verður fjallað um stöðu skóla- og fræðslustarfs í dreif- býli á öllum skólastigum, auk fullorð- insfræðslu. Stutt erindi verða flutt um áhugavert skólastarf og rann- sóknarverkefni sem tengjast megin- efni ráðstefnunnar. Stjórutjarnaskóli er um 40 kíló- metra austan Akureyrar og er upp- haf ráðstefnunnar miðað við að þátt- takendur geti nýtt morgunflug þangað. Gisting er fáanleg í skólan- um. Skráning á ráðstefnuna, aðalfund- inn og í gistingu og fæði er í Stóru- tjarnaskóla í síma eða netfangið oli- arn@ismennt.is. Ingvar Sigur- geirsson í Kennaraháskóla Íslands, Rúnar Sigþórsson í Háskólanum á Akureyri eða Þóra Björk Jónsdóttir, Skólaskrifstofu Skagfirðinga, veita nánari upplýsingar um þessa ráð- stefnu. Ráðstefna um menntun í dreifbýli LÖGREGLUUMDÆMIN sjö á Norðurlandi stóðu fyrir sameigin- legu átaki frá hádegi sl. föstudag og fram til hádegis á laugardag, þar sem ástand ökutækja og ökumanna var til sérstakrar skoðunar. Þar sem átakið náði yfir nótt og um helgi vakti það nokkra athygli lögreglumanna að enginn ökumaður á Norðurlandi skyldi tekinn ölvaður við akstur. Alls hafði lögreglan af- skipti af rúmlega 500 ökumönnum þennan sólarhring en aðeins liggja nokkrar kærur eftir verkefnið. Lögreglan á Akureyri stöðvaði 205 ökumenn á umræddu tímabili, þar af um 60 ökumenn aðfaranótt laugardags og reyndist enginn þeirra aka undir áhrifum áfengis. Hins vegar voru 8 ökumenn kærðir, m.a. fyrir að vera ekki í bílbelti eða án ökuskírteinis, og þá voru 37 öku- menn áminntir fyrir að hafa hlutina ekki alveg í lagi. Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn á Akureyri, sagði það hafa komið sér nokkuð á óvart að enginn skyldi tekinn fyrir ölvun við akstur miðað við þann fjölda öku- manna sem stöðvaður var. Enginn ölvaður við stýri á Norðurlandi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.