Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 16

Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 16
Ræningjaforingjarnir Matthías, sem Holger Sæmundsson leikur, og Borki, sem Elísabeth Patriarca leikur, gera upp sakirnar. Ronja, sem Sandra Dís Ingólfsdóttir leikur, og ræningjar fylgjast spennt með. Hvolsvelli - Nemendur í 1.–7. bekk Hvolsskóla eru nú í óðaönn að und- irbúa sýningu á leikritinu Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lind- gren, undir leikstjórn Ingunnar Jensdóttur. Nemendur í 1.–2. bekk leika ras- sálfa en nemendur í 3. og 4. bekk leika grádverga. Nemendur í 5.– 7. bekk skipta síðan þremur þáttum leikritsins á milli sín og leikur hver bekkur einn þátt. Mikill undirbún- ingur og skipulagning fylgir sýn- ingu sem þessari enda vel á annað hundrað manns sem tekur þátt í sýningunni. Kennarar og foreldrar hafa saumað og hannað alla búninga en um tónlistarflutning sjá þeir Hall- dór Óskarsson og Helgi Krist- jánsson tónlistarkennarar en mikil tónlist og söngur er í sýningunni. Sýningar á leikritinu verða að- eins tvær, þ.e. ein var í gær á bollu- dag og hin er kl. 18 í dag, sprengi- dag. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Ronja í Hvols- skóla Borgarnesi - Þeir gera bolluvendi og öskupoka, íbúarnir á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Þar er handa- vinnustofa opin daglega frá klukkan 9 til 5 fyrir íbúa heimilisins sem koma saman og sinna ýmiss konar handavinnu undir leiðsögn starfs- manna. Á þessum tíma ársins er það gerð bolluvanda og öskupoka sem tekur drjúgan hluta starfsins. Starfsmenn vefja kreppappír á prik og íbúarnir ,,krulla“. Þetta munu vera hinir einu sönnu bolluvendir og lauslega ágisk- að verða þeir samtals hundrað. Þeir ásamt þrjú til fjögur hundruð ösku- pokum eru seldir í Hyrnunni og eru liður í að afla tekna við handavinn- una. Í handavinnunni eru einnig fram- leiddar sláturnælur sem gerðar eru úr salt- og sýruþolnum vír, ofnar mottur úr afgangslykkjum frá sokkaverksmiðjunnni Trico á Akra- nesi, og pakkningar settar á skrúfur fyrir Vírnet hf. í Borgarnesi. Mikil fjölbreytni er í annarri handavinnu og hægt að kaupa ýmsa nytja- og skrautmuni á dvalarheimilinu. Allur ágóði rennur áfram til handavinn- unnar þannig að kostnaður íbúa er enginn. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Íbúar í föndri. Í baksýn má sjá tilbúna bolluvendi. Eldri borgarar búa til bolluvendi LANDIÐ 16 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hellu - Stofnað hefur verið hluta- félagið Rangárbakkar, hestamið- stöð Suðurlands ehf., um eignir og rekstur hestamannasvæðisins á Gaddstaðaflötum við Hellu en að því standa Rangárbakkar sf. og Hestamannafélagið Geysir í Rang- árvallasýslu, eigendur og fyrri rekstraraðilar svæðisins. Í stofn- samningi er gert ráð fyrir að leitað verði eftir fjárframlagi frá sveit- arfélögum, fyrirtækjum, einstak- lingum og ríkissjóði til að byggja upp og reka svæðið, en starfssvæði Rangárbakka ehf. er í Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skafta- fellsýslu. Að sögn Viðars Steinarssonar, eins af forsvarsmönnum nýja félagsins, hefur þegar borist já- kvætt svar frá 14 af 25 sveitar- félögum á starfssvæðinu, þar af öllum tíu í Rangárvallasýslu. „Þetta er framar björtustu von- um okkar og sannarlega góð byrj- un, en þessi sveitarfélög eru komin með loforð um 30 milljóna króna framlag sem er um 60% áætlaðs framlags sveitarfélaganna allra. Rangárbakkar sf. og Hestamanna- félagið Geysir leggja fram 60 millj- ónir króna í formi eigna á svæðinu, Rangárvallahreppur 10 m. kr. í formi lands og fasteigna, sveitar- félögin á svæðinu 50 mkr. og leitað verður eftir framlögum ríkisins af fjárlögum áranna 2002–2004 um 150 m. kr. Gangi áætlun um fjár- mögnun verkefnisins eftir er áformað að ljúka við uppbyggingu svæðisins seinni hluta ársins 2003, þannig að það verði tilbúið til notkunar árið 2004, þegar lands- mót hestamanna verður næst hald- ið á Suðurlandi,“ sagði Viðar. Miðstöð sunnlenskra hestamanna Markmið forsvarsmanna verk- efnisins er að á Gaddstaðaflötum verði í framtíðinni miðstöð sunn- lenskra hestamanna. Meginhlut- verk hennar verði að stuðla að framþróun í ræktun og sölu á ís- lenska hestinum en því markmiði verður m.a. náð með því að bæta svæðið sjálft, aðkomu og umhverfi þess og að skilgreina Gaddstaða- flatir sem stað fyrir landsmót hestamanna fjórða hvert ár. Á svæðinu er gert ráð fyrir marg- víslegum samkomum hestamanna s.s. reiðhallarsýningum, hesta- íþróttamótum, félagsmótum, kapp- reiðum, kynbótasýningum, einka- sýningum hrossaræktenda, sölusýningum og firmakeppnum. Þar að auki eru möguleikar á margvíslegri annarri nýtingu þar sem þörf er á miklu rými, eins og t.d. fyrir landbúnaðar- og vélasýn- ingar, íþróttaiðkun, tónleikahald, markaði og árlega töðugjaldahátíð. „Við stefnum að því að hefja byggingu reiðhallar á þessu ári, en félagið á nú þegar burðarbita úr Tívolíhúsinu í Hveragerði sem not- aðir verða í húsið. Við ætlum að leggja bundið slitlag á veg inn á svæðið, lagfæra bílastæði, planta trjám og koma starfsemi að stað í reiðhöllinni ásamt markaðssetn- ingu svæðisins. Á næsta ári er áætlað að byggja upp reiðleiðir, skipuleggja tjaldsvæði og bíla- stæði því tengt, ásamt endurbygg- ingu núverandi félagshúss. Árið 2003 verður ráðist í end- urbætur á stóðhestahúsi sem fyrir er, sett sæti í áhorfendabrekkur, svæðið raflýst, reiðvellir endur- gerðir og komið upp veitingaað- stöðu í reiðhöll. Þá er einnig á teikniborðinu að koma upp sögu- sýningu í máli og myndum, t.d. með gömlum munum og lifandi sýningum sem tengir saman hest- inn og gömul vinnubrögð. Á und- anförnum árum hafa hestamanna- félög í nágrenni stærri þéttbýlissvæða á Suðvestur- og Norðurlandi fengið verulega styrki til uppbyggingar á aðstöðu til mótahalds og félagsaðstöðu, eins og t.d. landsmótssvæðið í Reykja- vík og á Melgerðismelum í Eyja- firði. Mótssvæðið á Gaddstaðaflöt- um hefur hingað til eingöngu verið byggt upp af hestamannafélögun- um, nánast án allra framlaga af hálfu ríkis eða sveitarfélaga, en félagsmenn hins vegar lagt ómælt til í formi sjálfboðavinnu. Gadd- staðaflatir eiga ekki stönduga bak- hjarla á borð við Reykjavíkurborg, Akureyrarbæ eða önnur stærri bæjarfélög og þess vegna er leitað eftir aðstoð á svo breiðum grunni sem hér er áformað,“ sagði Viðar Steinarsson, starfsmaður Rangár- bakka ehf. Uppbyggingu haldið áfram á Gaddstaðaflötum við Hellu Hlutafélag stofnað um rekstur hestamiðstöðvar Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Frá mótssvæðinu á Gaddstaðaflötum við Hellu. Hellnum - Vart hefur farið framhjá neinum sem fylgst hefur með frétt- um undanfarna daga að aðalloðnu- veiðin hefur verið út af sunnanverð- um Snæfellsjökli. Íbúar á Hellnum hafa getað fylgst með öllum þeim stóru skipum sem þar eru að veiðum bæði daga og nætur og hafa ljósin frá þeim lýst upp náttmyrkrið. Frá landi séð er engu líkara en úti á haf- fletinum hafi skyndilega myndast lít- ið þorp þar sem greina má ljós frá tíu til tólf skipum og stundum fleiri í þéttri þyrpingu. Um helgina var hér á ferð hópur áhugaljósmyndara frá Hollandi sem gátu varla lýst ánægju sinni yfir því að hafa getað tekið myndir af flot- anum við veiðar skammt utan við Malarrif og fá svo jökulinn bjartan og hreinan í kaupbæti á mánudags- morgninum. Fari svo að loðnan drepist hér undan Jökli má reikna með að mikið verði af fugli í ætisleit á hafsvæðinu framundan Hellnum, svo og hvalir, en þeir sjást iðulega frá landi þegar kringumstæður sem þessar myndast til ætisöflunar skammt undan ströndinni. Loðnuveiði við land- steinana Á EGILSSTÖÐUM hittast nokkrar mæður vikulega með ungbörnin sín í notalegri innisundlaug við Tjarn- arbraut. Litlu krílin eru orðin vatnskettir hinir mestu og skríkja af kátínu í fangi mæðra sinna. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Litlir sundgarpar æfa tökin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.