Morgunblaðið - 27.02.2001, Qupperneq 19
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 19
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur
komist að þeirri niðurstöðu að fyr-
irhuguð kaup Fjárfestingarfélags
Norðlendinga, sem er að öllu leyti í
eigu Lífeyrissjóðs Norðurlands, á
meirihluta í Íslenskum verðbréfum
hf. samrýmist ekki 36. gr. laga um
starfsemi lífeyrissjóða og leggst
Fjármálaeftirlitið því gegn því að
kaupin fari fram.
Sparisjóður Norðlendinga er
stærsti hluthafinn í Íslenskum verð-
bréfum hf. og skömmu fyrir síðustu
áramót tóku hluthafar Íslenskra
verðbréfa hf. tilboði Fjárfestinga-
félags Norðlendinga í 51% eignar-
hlut í félaginu og hefur Fjármálaeft-
irlitið haft málið til skoðunar síðan.
Lífeyrissjóður Norðurlands hafði þá
um skeið leitað leiða til að efla eigin
eignastýringu og var niðurstaðan sú
að farsælast væri að byggja á sam-
starfi við heimaaðila. Var markmiðið
með samstarfi þessara aðila meðal
annars að auka sérhæfingu við eign-
astýringu lífeyrissjóðsins og skjóta
um leið styrkari stoðum undir fjár-
málaþjónustu á Norðurlandi með efl-
ingu Íslenskra verðbréfa.
Kári Arnór Kárason, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norður-
lands, segist ósáttur við þessa nið-
urstöðu Fjármálaeftirlitsins. Á
heimasíðu lífeyrissjóðsins er haft
eftir honum að málið snúist um túlk-
un á tilteknum lagatexta í lögum um
starfsemi lífeyrissjóða.
„Fjármálaeftirlitið tók sér langan
tíma til að skoða málið og skilaði frá
sér formlegri niðurstöðu 19. febrúar.
Þeir komast að því að kaupin sam-
rýmist ekki lögunum. Að okkar mati
er umsögn eftirlitsins ekki vel unnin
og illa rökstudd og við erum henni al-
gerlega ósammála. Ég býst þó ekki
við áfrýjun af okkar hálfu. Miðað við
þann tíma sem mál virðast taka hjá
eftirlitinu myndum við sennilega
ekki fá svar fyrr en eftir einhverja
mánuði. Það er algerlega óviðunandi
að svona máli skuli haldið opnu í
jafnlangan tíma. Þetta er því niður-
staðan í málinu, a.m.k. hvað þetta til-
boð varðar.“
Áætluð kaup Fjárfestingarfélags Norðlendinga á meirihluta í Íslenskum verðbréfum
Fjármálaeftir-
litið leggst gegn
kaupunum
Alþjóðalánshæfimatsfyrirtækið
Fitch tilkynnti í gær að það hefði gef-
ið Íslandsbanka-FBA hf. langtíma-
lánshæfiseinkunnina A og skamm-
tímaeinkunnina F1. Jafnframt gaf
Fitch bankanum sjálfstæðu ein-
kunnina C og stuðningseinkunnina 2.
Mat Fitch er sambærilegt við mat al-
þjóðlega lánshæfismatsfyrirtækisins
Moody’s sem hækkaði lánhæfisein-
kunn sína í A2, P-1 eftir sameiningu
Íslandsbanka og FBA.
Í fréttatilkynningu frá Fitch segir
að einkunnirnar endurspegli sterka
stöðu bankans á Íslandi, mikil gæði
eigna og fullnægjandi eiginfjárstöðu
en taki einnig tillit til sveiflna í af-
komu vegna markaðsviðskipta. Þar
segir jafnframt að þó að enn sé stutt
frá sameiningu Íslandsbanka og
FBA sé ljóst að hún hafi verið skyn-
samlegt skref og að ný eining hafi
ekki aðeins sterka markaðsstöðu
heldur einnig möguleika á betri fjár-
mögnun og kostnaðarhagræðingu.
Afkoma bankans sé viðunandi þrátt
fyrir tap á markaðsviðskiptum og
eignir séu góðar.
Íslandsbanki-FBA óskaði eftir
matinu og er fyrsta íslenska fyrir-
tækið sem hefur fengið lánshæfisein-
kunn frá tveimur alþjóðlegum mats-
fyrirtækjum. Jafnframt er bankinn
með hæstu lánshæfiseinkunn ís-
lenskra fjármálafyrirtækja. Í til-
kynningu frá Íslandsbanka-FBA
segir að slík niðurstaða frá tveimur
ólíkum lánshæfisfyrirtækjum sé að
mati bankans viðurkenning á styrk
sameiningarinnar og stefnu fyrir-
tækisins og sýni trú þeirra á framtíð-
armöguleikum bankans. Einkunnin
styrki enn frekar stöðu bankans á al-
þjóðlegum fjármálamörkuðum,
hvort sem er á skuldabréfamörkuð-
um eða sambankalánsmörkuðum.
„Alþjóðleg skuldabréf bankans út-
gefin skv. EMTN-rammasamningi
hafa þegar fest sig í sessi og skamm-
tímaskuldabréf bankans sem útgáfa
var hafin á í lok árs 2000 hafa hlotið
góðar viðtökur. Skuldabréf útgefin
undir EMTN-samningnum voru 1,5
milljarðar evra á síðasta ári, eða
tæpir 120 milljarðar íslenskra króna.
Sterk staða Íslandsbanka-FBA á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum efl-
ir því starfsemi hans, gerir bankan-
um kleift að koma enn betur til móts
við auknar kröfur viðskiptavina og
treystir hag hluthafa,“ segir í til-
kynningunni.
Fitch gef-
ur Íslands-
banka-
FBA góða
einkunn
DAIMLERCHRYSLER, stærsti
eigandi Mitsubishi, áætlar að fækka
störfum hjá japanska framleiðand-
anum um allt að 15% eða um 9.500
störf. Aðgerðirnar eru hluti af stærri
endurskipulagningu hjá Daimler-
Chrysler. Einni af fjórum verksmiðj-
um Mitsubishi verður lokað og fram-
leiðslugeta fyrirtækisins minnkuð
um fimmtung. Búist er við að
rekstrarhagnaður DaimlerChrysler
árið 2000 minnki um 90% frá 1999 og
tap verði á starfsemi Daimler-
Chrysler á árinu 2001.
Stjórn fyrirtækins kom saman á
föstudag og samþykkti róttækar
skipulagsbreytingar á Daimler-
Chrysler. Ein helsta breytingin er að
stofnuð verður ný nefnd undir for-
ystu Jurgen Schrempp sem mun
hafa yfirumsjón með hinum mörgu
deildum fyrirtækisins. Síðan Daiml-
er Benz sameinaðist Chrysler hefur
allt gengið á afturfótunum sérstak-
lega á Bandaríkjamarkaði. Eftir-
spurn eftir bílum í Bandaríkjunum
heldur áfram að minnka enda útlit
fyrir að hagvöxtur í Bandaríkjunum
minnki enn frekar á þessu ári.
Niðurskurður
hjá Mitsubishi
♦ ♦ ♦