Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 21
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 21
SAMKVÆMT nýrri verðbólgu-
spá Gjaldeyrismála, sem Ráð-
gjöf og efnahagsspár gefa út, er
enn gert ráð fyrir að vísitala
neysluverðs hækki í mars á
bilinu 0,4-0,8%, meðal annars
vegna þess að gert er ráð fyrir
að lækkunaráhrif útsala fari að
ganga til baka. Frá upphafi til
loka þessa árs er gert ráð fyrir
4% verðbólgu.
Spáin er nánast samhljóða
spá Gjaldeyrismála frá 12.
febrúar síðastliðnum, en spáin
nú er gerð í ljósi vísitölu bygg-
ingarkostnaðar um miðjan
febrúar og launavísitölu fyrir
janúar sem birtar voru síðastlið-
inn föstudag. Vísitala bygging-
arkostnaðar með útreiknings-
tíma um miðjan mánuð hækkaði
um 1 % en spá Gjaldeyrismála
frá 12. febrúar var um 0,4%. Að-
alástæða hækkunarinnar nú er
hækkun gatnagerðargjalda.
Launavísitala hækkaði litlu
minna en samkvæmt forsend-
um spárinnar, eða um 3,1%. Síð-
astliðna 12 mánuði hefur bygg-
ingarvísitalan hækkað um 5,3%
en launavísitalan um 9,2%.
Fram kemur í spá Gjaldeyr-
ismála að áfram sé gert ráð fyrir
að kjarasamningar náist án
meiriháttar kollsteypu í efna-
hagsmálum og að vikmörk nú-
verandi gengisstefnu haldi, en
eins og undanfarna mánuði séu
margir óvissuþættir í verðlags-
málum.
Spá 4%
verð-
bólguSVÍNABÚIÐ Brautarholti hefur
eignast 23,87% hlut í Sláturfélagi
Suðurlands og Geysir, félag í eigu
Kristins Gylfa Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Svínabúsins Brautar-
holti, hefur eignast 5,89% hlut í Slát-
urfélaginu. Alls nemur hluturinn
29,76%.
Um B-deildarbréf er að ræða, en
eigendur þeirra njóta skertra rétt-
inda m.a á aðalfundi en bréfin hafa
forgang á arði, en auk þess er
Svínabúið Brautarholti stærsti ein-
staki eigandi í A-deild stofnsjóðs með
um 2% eignarhlut.
Nafnverð bréfanna er tæpar 60
milljónir króna en viðskiptin voru á
genginu 1,3 og er kaupverð bréfanna
því tæpar 78 milljónir króna.
Að sögn Kristins Gylfa Jónssonar
eru seljendur bréfanna m.a. sjóðir í
vörslu Kaupþings og lífeyrissjóðir.
Ekki er ætlunin með kaupunum að
koma á sameiningu Síld og fisks en
Svínabúið Brautarholti keypti í júní á
síðasta ári 2/3 hluta þess fyrirtækis
af systkinunum Katrínu og Skúla
Þorvaldsbörnum ásamt öllum fast-
eignum Síldar og fisks.
Gengi bréfanna lækkað
um tæp 60% frá 1997
„Ástæðan fyrir kaupunum á þess-
um bréfum í Sláturfélaginu er fyrst
og fremst sú að við höfum mikla trú á
félaginu og höfum átt viðskipti við
það í yfir fjörutíu ár með svínakjöts-
afurðir.
Þetta er traust og vel rekið félag
og gengi bréfanna mjög hagstætt.
Sláturfélagið fór síðast í hlutafjárút-
boð með B-deildarbréf vorið 1997 og
var útboðsgengið þá 3. Fyrst á eftir
hækkaði gengi bréfanna en hefur síð-
an lækkað mjög mikið og við kaupum
bréfin nú á genginu 1,3. Við teljum
því að um mjög góð kaup sé að ræða
og lítum á þetta sem góða fjárfest-
ingu en einnig stuðningsyfirlýsingu
við vel rekið félag,“ segir Kristinn
Gylfi.
Eigendur hluta í B-deild stofn-
sjóðs Sláturfélags Suðurlands njóta
ekki atkvæðisréttar í félaginu vegna
eignar í þeim hluta stofnsjóðs. Þeir
hafa rétt til setu á félagsfundum og
fullt málfrelsi. Að öðru leyti fer um
réttindi þeirra skv. samþykktum
þessum og samvinnufélagalögum.
Kristinn segist telja að það eigi að
eigendavæða samvinnufélög, eins og
Sláturfélag Suðurlands, og það sé
skynsamlegt að skoða til lengri tíma
litið að breyta Sláturfélaginu úr sam-
vinnufélagi í hlutafélag.
„Við teljum eðlilegt að skoða það á
næstu misserum þegar löggjafinn er
búinn að afgreiða þær breytingar á
lögum um samvinnufélög sem liggja
fyrir þinginu. Samkvæmt frumvarp-
inu verður breyting á samvinnufélagi
yfir í hlutafélag gerð mun auðveldari
en nú er.“
10% arður greiddur
til hluthafa
Kristinn Gylfi segir að hlutafélaga-
formið tryggi að fyrirtæki geti að-
lagað sig samkeppnisumhverfi á
hverjum tíma meðal annars með því
að sækja nýtt fé. Eins sé þá tryggt að
eigendur félaga fái á hverjum tíma
rétt verð fyrir eignarhlut sinn í við-
komandi félögum og það sama gildi
um bændur eins og aðra sem eiga í
atvinnurekstri. „Við teljum að bænd-
ur í atvinnurekstri eigi með sama
hætti og aðrir að geta fengið rétt
verð fyrir eignarhluta í sínum félög-
um sem þeir hafa byggt upp við-
skipta- og eignatengsl við í gegnum
langan tíma. Líkt og aðrir í öðrum
einstökum atvinnugreinum í þjóð-
félaginu. Þetta er okkar stefna og
hún snýr einnig að öðrum samvinnu-
félögum sem við eigum eignarhlut í.“
Að sögn Kristins Gylfa er Slátur-
félag Suðurlands mjög sterkt félag á
matvörumarkaði og markaðsvirði
þess mikið. „Félagið hefur verið rek-
ið með góðum hagnaði í langan tíma
og greiðir t.d. núna 10% arð til hlut-
hafa,“ segir Kristinn Gylfi.
Eigendur Svínabúsins Brautarholti eignast tæp 30% í Sláturfélaginu
Stærsti eigandi A- og B-bréfa
Kjötvinnsla Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli.