Morgunblaðið - 27.02.2001, Síða 22

Morgunblaðið - 27.02.2001, Síða 22
NEYTENDUR 22 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ MARGAR kvartanir hafa borist Neytendasamtökunum það sem af er árinu, vegna þess að verslunareig- endur vilja ekki taka við inneignar- nótum á útsölum. Sesselja Ásgeirs- dóttir hjá kvörtunarþjónustu Neytendasamtakanna segir að sam- kvæmt nýjum verklagsreglum geti fólk skilað jólagjöf og fengið inneign- arnótu sem hægt er að nota á útsölu nema hún hafi verið gefin út skömmu fyrir upphaf útsölunnar eða á útsölunni sjálfri. „En verklagsregl- urnar eru nýjar og ekki allir versl- unareigendur sem hafa tileinkað sér þær.“ Dæmi eru jafnvel um að fólk með ársgamlar inneignarnótur og eldri hafi ekki getað notað þær á út- sölum. Inneignarnótur gilda í fjögur ár nema annað komi fram á nótunni. Þá eru einnig dæmi um að þegar fólk komi að skila jólagjöfum hafi af- greiðslufólk neitað að láta það fá inn- eignarnótur fyrir fullu verði heldur boðið því útsöluverð. Það segir Sess- elja að hafi verið leiðrétt ef það hefur komið á borð hjá Neytendasamtök- unum. Samkvæmt verklagsreglun- um á á fólk að fá fullt verð ef gefin er út inneignarnóta enda þótt útsala sé hafin. Þá bendir hún á að fólk eigi rétt á að fá peninga til baka kaupi það gall- aða vöru sem ekki er hægt að gera við og ekki er til í versluninni. Sesselja segir að þegar neytendur leiti til samtakanna með kvartanir af þessu tagi sé haft samband við versl- anir sem oftar en ekki taki vel í ábendingar. Morgunblaðið/Ómar Sumir verslunareigendur hafa ekki tileinkað sér nýjar verklagsreglur Mörgum synjað um að nota inneignar- nótur á útsölu Inneignarnótur gilda í fjögur ár nema annað komi fram á nótunni. HEILBRIGÐISEFTIRLIT á höf- uðborgarsvæðinu stóð að könnun á nítrítinnihaldi í saltkjöti í síðustu viku en tekin voru 19 sýni. Að sögn Rögnvalds Ingólfssonar, sviðsstjóra matvælasviðs Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, eru litlar líkur á því að nú sé boðið til sölu saltkjöt sem inniheldur of mikið nítrít þ.e. eftir að saltkjötið sem mældist með of mikið nítrít var tekið úr verslunum. Rétt notkun talin skaðlaus Nítrít er aukefni (E 250) sem ásamt matarsalti nefnist nítrítsalt en það er notað við verkun salt- kjöts. Rögnvaldur segir að efnið hafi rotverjandi áhrif og gefi auk þess saltkjöti rauða litinn er það gengur í samband við vöðvarauða kjötsins. „Í of miklu magni er efnið talið stuðla að myndun svokallaðra „nítrósamína“ í kjötinu en meðal þeirra eru þekktir krabbameins- valdar. Rétt notkun efnisins er talin skaðlaus. Leyft hámark nítríts í saltkjöti hér á landi er 120 mg/kg, en það er sama gildi og í flestum öðrum löndum Evrópska efnahags- svæðisins.“ Í könnuninni voru tekin sýni af saltkjöti frá öllum þekktum fram- leiðendum saltkjöts sem dreifa vöru sinni á höfuðborgarsvæðinu. Um var að ræða15 sýni af lambasalt- kjöti og 4 sýni af söltuðu hrossa- kjöti. Sýnin voru frá Búrfelli, Ferskum kjötvörum, Gæðafæði, Goða, Höfn, KEA Kjarnafæði, Kjöthöllinni, Kjötsmiðjunni, Kjöt- vinnslu KS, Kjötvinnslu Nóatúns, kjötvinnslu Samkaupa, Sláturfélagi Suðurlands, Þinni verslun – Mela- búðinni og Þinni verslun – Selja- braut. Könnunin var framkvæmd dagana 12.-22. febrúar s.l. Að könn- uninni stóðu heilbrigðiseftirlitin á höfuðborgarsvæðinu, en það eru Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Rannsókn sýna fór fram hjá Iðn- tæknistofnun Íslands. Heilbrigðis- eftirlitin á höfuðborgarsvæðinu hafa um skeið haft með sér sam- vinnu um rannsóknir á matvælum, einkum þeirra er mest eru á mark- aði árstíðabundið eða sérstakrar vöktunar þurfa með. Nítrít í sprengidagskjöti almennt innan leyfilegra marka Sala stöðvuð á einni saltkjötstegund Af 19 saltkjötssýnum sem tekin voru á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku reyndist eitt sýni innihalda meira nítrít en leyfilegt er. Sala var stöðvuð á saltkjöti sem var yfir mörkum. Morgunblaðið/Ásdís Saltkjöt og baunir verða víða í matinn í kvöld. Þegar heil- brigðiseftirlitið á höfuðborgar- svæðinu kannaði í síðustu viku nítrítinnihald í 19 sýnum salt- kjöts kom í ljós að í 1 sýni var nítrít yfir leyfilegum mörkum. ÞAÐ ERU alltaf einhverjir sem gleyma að setja baunir í bleyti fyr- ir sprengidagsmáltíðina, þ.e. salt- kjöt og baunir. Hjördís Edda Broddadóttir, annar framkvæmdastjóra Leið- beiningastöðvar heimilanna, segir að auðvitað sé best að setja baun- irnar (gular hálfbaunir) í bleyti kvöldið áður og einnig sé hægt að setja þær í bleyti um morguninn áður en fólk fer í vinnu, það minnki suðutímann verulega. Hún segir að miðað sé við u.þ.b. ½ sól- arhring í bleyti en bendir á að það sé allt í lagi þótt tíminn sé lengri eða styttri, það ýmist lengir eða styttir suðutímann. „Ef þetta gleymist þá er bara að setja baunirnar strax í pott þegar heim er komið á sprengidag. Það eina sem gerist er að fólk þarf að sjóða baunirnar miklu lengur. Ef baunir eru ekki lagðar í bleyti þarf að sjóða þær alveg lágmark í 2–2½ klst. Ef baunirnar eru lagð- ar í bleyti nægir yfirleitt að sjóða þær í eina klst. og 15 mínútur.“ En hvenær eru baunirnar nægjanlega soðnar? „Þegar þær eru jafnar og engar örður í þeim, annars er þetta alltaf smekksatriði hvers og eins. Í lokin er gott að setja svolít- íð soð af kjötinu út í súpuna þar til hún er hæfilega þykk og sölt. Það má einnig gera baunasúpu úr hraðfrystum baunum. Baun- irnar eru þá soðnar í litlu vatni þangað til þær eru meyrar. Kjöt og grænmeti er jafnframt soðið og bætt út í baunasúpuna.“ Hjördís mælir að lokum með því að nóg sé af grænmeti í baunasúpunni, kart- öflum, gulrófum og gulrótum. Hún segir suma kjósa að sleppa saltkjöti og þá er ráð að nota í staðinn beikonbita í súpuna. Mik- ilvægt er að láta beikonið sjóða góða stund í súpunni svo rétta bragið náist. Þeir sem vilja geta síðan sleppt hvoru tveggja, salt- kjötiu og beikoninu. Í staðinn er þá mjög gott að leysa upp 1-2 súputeninga og bragðbæta súp- una þannig og útkoman verður ekki síður ljúffeng. Morgunblaðið/Ásdís Þó að fólk hafi gleymt að setja baunir í bleyti í morgun er ekki öll nótt úti. Það má nota hraðfrystar baunir í staðinn. Saltkjöt og baunir á síðustu stundu KOMINN er á markað sérstakur hanski til að bera á sig brúnkukrem. Með tilkomu hanskans eru gulir lófar úr sögunni og áferðin er sögð verða jöfn. Setja á kremið í hanskann og því næst strjúka yfir andlit og lík- ama. Eftir notkun er hanskinn þveg- inn með volgu sápuvatni og látinn þorna. Hanskinn er til í tveimur stærðum; stór fyrir líkamann og lítill fyrir andlit. Útsölustaðir eru Lyf og heilsa apótek og allar helstu snyrti- vöruverslanir. Brúnku- hanskinn Nýtt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.