Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 24

Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 24
ERLENT 24 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að stjórn George Bush forseta eigi ekki í deil- um við írösku þjóðina heldur einræð- isherrann Saddam Hussein Íraksfor- seta og stjórn hans. Ráðherrann hefur á ferðalagi sínum um nokkur Miðausturlönd reynt að fá stuðning arabaþjóða við að áfram verði beitt viðskiptalegum refsiaðgerðum gegn Saddam en orðið lítt ágengt. Margir álíta að refsiaðgerðirnar komi aðeins niður á almenningi en ekki þeim sem þær beinast að, þ.e. valdhöfunum. Powell segir á móti að aðeins fimmt- ungur allra tekna Íraka af olíusölu sé notaður til að sinna nauðþurftum al- mennings í Írak. Powell hefur í ferð sinni, er hófst á laugardag, m.a. hitt að máli Amr Moussa, utanríkisráðherra Egypta- lands, er sagðist greina teikn um já- kvæðar breytingar í stefnu Banda- ríkjamanna varðandi friðarferlið. Powell ræddi við Ariel Sharon, vænt- anlegan forsætisráðherra Ísraels, og hvatti utanríkisráðherrann Ísraela til að aflétta efnahagslegri einangrun Palestínumanna sem veldur miklu at- vinnuleysi og vaxandi örvæntingu meðal Palestínumanna. Hann hitti einnig Yasser Arafat, leiðtoga Palest- ínumanna, að máli og sagði Powell að líða myndi nokkur tími áður en deilu- aðilar hæfu aftur friðarviðræður. Til mótmælaaðgerða kom er ráðherrann kom til fundar við Arafat í Ramallah. Hart hefur verið deilt um refsiað- gerðirnar gegn Írak í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Frakkar, Rúss- ar og Kínverjar vilja að aðgerðunum verði aflétt en Bandaríkjamenn og Bretar segja þær nauðsynlegar til að Saddam færi sig ekki upp á skaftið. Einnig vofi stöðugt yfir sú hætta að Írakar komi sér upp gereyðingar- vopnum og langdrægum eldflaugum og geti þá ógnað jafnt grönnum sínum sem fjarlægari þjóðum. Saddam nýtur vinsælda Loftárásir Bandaríkjamanna og Breta á ratsjárstöðvar Íraka að und- anförnu hafa ekki fengið stuðning fyrrverandi bandamanna þeirra á svæðinu í Persaflóastríðinu ef Ísrael- ar eru undanskildir. Írakar njóta mik- ils stuðnings meðal almennings í arabaríkjum og Saddam er þar álitinn sýna að hægt sé að standa uppi í hárinu á vesturveldunum. Bandaríkin eru auk þess sögð eiga sök á vanda Palestínumanna með ótrauðum stuðningi sínum við Ísrael. Powell ræddi í gær við ráðamenn í Saudi-Arabíu og var væntanlegur til Sýrlands. Málgagn Sýrlandsstjórnar, Al-Baath, átaldi í gær Powell fyrir að beina eingöngu sjónum sínum að mál- efnum Íraks en hunsa „morðin“ sem Ísraelar fremdu á Palestínumönnum. Ísrael væri hin raunverulega ógn við friðinn í Miðausturlöndum. Powell gagnrýndi stefnu Íraks- stjórnar í gær í Kúveit er hann lagði blómsveig að minnismerki um nær 150 bandaríska hermenn er féllu í Persaflóastríðinu gegn Írak 1991. Ferð utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Miðausturlönd Powell lofar að verja Kúveit Jerúsalem, Kúveitborg, Damaskus, Riyadh, Kaíró. AP, AFP, The Daily Telegraph. Reuters George Bush, fv. Bandaríkjaforseti (fyrir miðju), tók þátt í hátíðarhöld- unum í Kúveit í gær í tilefni þess að 10 ár voru frá frelsun landsins. T.v. er Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, t.h. er Norman Schwarzkopf, yfirhershöfðingi Bandaríkjanna í Persaflóastríðinu. STJÓRNVÖLD í Indónesíu sögðust í gær ætla að senda fleiri hermenn til Borneó til að binda enda á dráp Daj- aka, mongólskra frumbyggja eyj- unnar, á innflytjendum frá eyjunni Madúra. Hundruð Madúra hafa þeg- ar beðið bana og óttast er að ofbeldið breiðist út. Hermt er að stjórnin hyggist einn- ig senda illræmda sérsveit til Borneó til að aðstoða við að stöðva árásir Dajaka sem hófust fyrir rúmri viku. Um 30.000 innflytjendur á Borneó, aðallega Madúrar, hafa flúið frá Sampit og fleiri bæjum í héraðinu Mið-Kalimantan þar sem átökin hóf- ust. Öryggissveitir eyjunnar hafa lít- ið gert til að hindra drápin. Fórnarlömbin afhöfðuð Þúsundir flóttamanna voru fluttar með skipi til borgarinnar Surabaya á Jövu um helgina. „Þeir stöðvuðu bíl- inn okkar á miðjum veginum, drógu einn farþeganna út og skáru af hon- um höfuðið. Þeir afhöfðuðu síðan þrjá til viðbótar,“ sagði einn flótta- mannanna. „Þrjú barnanna minna grétu af hræðslu. Við héldum að við yrðum næst en þeir létu okkur í friði. Þeir sögðu: Ekki vera hrædd, þið er- uð ekki Madúrar. Við þekkjum lykt- ina af þeim.“ Flóttafólkið sagði að þúsundir inn- flytjenda hefðu flúið í skóga í grennd við Sampit og Dajakar væru að leita þeirra. Áætlað var í gær að um 10.000 Madúrar væru enn í Sampit og stefnt er að því að flytja þá þaðan í vikunni. Íbúar Sampit sögðu að her- og lögreglumenn hefði lítið sem ekkert gert til að hindra drápin og látið sem þeir sæju ekki vopnaða Dajaka sem gengu um göturnar og héldu á höfðum fórnarlamba sinna. Stjórnin virðist ráðþrota Indónesísk stjórnvöld virðast einnig vera ráðþrota. Megawati Suk- arnoputri varaforseti rauf loks þögn sína um drápin á sunnudag og við- urkenndi að erfitt væri fyrir stjórn- ina að taka á málinu þar sem hún ætti þegar við of mörg vandamál að stríða vegna blóðugra átaka á öðrum eyjum Indónesíu. Embættismenn sögðu að öryggis- sveitirnar hefðu nú hemil á Dajökum í Sampit. Dajakar, vopnaðir sverðum og spjótum, réðust inn í verslanir og íbúðarhús í Palangkaraya, höfuðstað Mið-Kalimantan, og kveiktu í þeim. Þeir settu einnig upp vegartálma og stöðvuðu bíla til að leita að Madúrum sem þeir sögðust ætla að drepa. Abdurrahman Wahid, forseti Indónesíu, sem var á leiðtogafundi þróunarríkja í Kaíró, kvaðst vilja senda liðsmenn illræmdrar sérsveit- ar, Kopassus, til Borneó. Sérsveitin hefur oft verið sökuð um mannrétt- indabrot og er sögð hafa kynt undir átökum á nokkrum eyjum Indónesíu. Wahid er nú í tveggja vikna ferð um Miðausturlönd og Afríku og hef- ur lítið tjáð sig um ofbeldið í Borneó. Allt að þúsund manns liggja í valnum Embættismenn á eyjunni sögðu að vitað væri með vissu að 270 manns hefðu beðið bana í Sampit og ná- grenni. Þeir bættu þó við að enn væri verið að leita að líkum fórnarlamba og tala látinna gæti hækkað í 1.000. „Allir Madúrar sem fara ekki úr héraðinu verða drepnir,“ sagði Azan Tein, einn vígamannanna úr röðum Dajaka. „Við höfum fengið nóg af þeim. Þeir nauðga konunum okkar. Þeir virða ekki menningu okkar. Annaðhvort fara þeir eða deyja. Mið- Kalimantan er fyrir Dajaka eina.“ Rúmlega 100.000 Madúrar voru fluttir til indónesískra héraða Bor- neó frá sjöunda áratug síðustu aldar og þar til í fyrra þegar stjórnvöld féllu frá þeirri stefnu sinni að flytja fólk frá þéttbýlustu eyjunum til strjálbýlla héraða. Fólksflutningarn- ir höfðu þá sætt harðri gagnrýni og stjórnin var sökuð um að virða að engu menningu frumbyggja Borneó. Dajakar segja að þeir hafi verið hraktir frá jörðum sínum og innflytj- endurnir hafi tekið frá þeim störf í gull-, tin- og koparnámum eyjunnar. Þeir kvarta einnig yfir því að hafa fengið verri menntun en innflytjend- urnir. Voru þekktir fyrir mannát Flestir Madúrar eru trúaðir músl- imar og hafa óbeit á ýmsum siðum Dajaka. Þeir telja þá einnig lata og frumstæða. Dajakar saka hins vegar Madúra um fordóma og ofríki. Flestir Dajakar eru kristinnar trúar þótt margir þeirra fylgi enn ýmsum fornum siðum sem byggjast á andatrú og forfeðradýrkun. Dajakar voru þekktir sem mann- ætur þar til hausaveiðar voru bann- aðar í Borneó undir lok 19. aldar. Madúrar hafa einnig getið sér orð fyrir að vera grimmir stríðsmenn. Stjórn Indónesíu reynir að binda enda á blóðsúthellingarnar á Borneó Frumbyggjar hafa vegið hundruð innflytjenda Palangkaraya. Reuters, AFP, AP. AP Dajaki, vopnaður spjóti, stendur við hús í bænum Sampit á Borneó eftir að hafa kveikt í því. Húsið var í eigu innflytjenda sem hafa flúið. DANSKIR stjórnmálamenn eru nær einróma um að skynsamlegt sé að Færeyingar ákveði að hætta við þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf- stæði. Þess er vænst að endanleg ákvörðun um það liggi fyrir í vikulok- in en Anfinn Kallsberg, lögmaður Færeyja, lagði til fyrir helgi að fyr- irhuguð atkvæðagreiðsla yrði blásin af. Poul Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, hefur ekki vilj- að tjá sig um yfirlýsingu Kallsbergs en Peter Duetoft, formaður Fær- eyjanefndar danska þingsins, telur lögmanninn hafa tekið „afar skyn- samlega“ ákvörðun. Segir Duetoft að ákvörðun færeysku landsstjórnar- innar um að boða til atkvæðagreiðslu hafi verið út í hött. „Það var rangt að biðja Færeyinga að greiða atkvæði um sjálfstæði með skilyrðum sem danska stjórnin hafði þegar sagt að hún myndi ekki fallast á. Afleiðingin hefði getað orðið sú að Færeyingar hefðu samþykkt sjálfstæði með skil- yrðum sem síðar stæðust ekki. Því er það af hinu góða að lögmaðurinn tók þessa ákvörðun,“ segir Duetoft og tekur jafnframt fram að ekkert sé at- hugavert við að Færeyingar greiði síðar meir atkvæði um málið, þegar tekist hafi samningar um skilyrði fyr- ir sjálfstæði. Jákvæð áhrif „Þetta er skynsamleg niðurstaða,“ segir íhaldsmaðurinn Bendt Bendt- sen, sem einnig á sæti í Færeyja- nefndinni. „Við höfum verið með Færeyjum [í ríkjasambandi] í 600 ár og eigi leiðir að skilja á það að gerast á verðugan hátt. Nú þegar þeir fresta þjóðaratkvæðinu, mýkjast hlutirnir og það getur haft jákvæð áhrif á samningana við Danmörku ef línurn- ar eru ekki jafn afgerandi,“ sagði Bendtsen. Anders Fogh Rasmussen, formað- ur Venstre, tók í sama streng og kvaðst vona að samningaviðræðurn- ar við Dani yrðu nú ögn afslappaðri en verið hefði. Þjóðaratkvæði um sjálfstæði Færeyja Danir telja skynsam- legt að hætta við Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.