Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 27

Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 27 Dragtir Neðst á Skólavörðustíg STJÓRNMÁLAMENN og stjórn- sýslufræðingar taka undir gagnrýni danskra fjölmiðla á það hvernig fjár- málum dönsku konungsfjölskyldunn- ar er háttað. Upplýsingaskylda dönsku hirðarinnar er sú takmark- aðasta í Evrópu og nýtur drottning meiri fríðinda en flestir aðrir þjóð- höfðingjar Evrópu. Danir eru með af- brigðum konunghollir og mun þetta í fyrsta sinn sem fjölmiðlar gagnrýna drottninguna á þennan hátt. Tvo daga í röð hefur stærsta blað Danmerkur, Politiken, skrifað um skort á upplýsingaskyldu konungs- fjölskyldunnar og hafa allmargir stjórnmálamenn og stjórnsýslufræð- ingar, sem blaðið hefur leitað til, tek- ið undir það með blaðinu að opnari og meiri umræðu sé þörf. Aðrir fjöl- miðlar hafa tekið málið upp en um- ræðan er engu að síður afar hófstillt og gagnrýnin einnig. Almenningur sem rætt er við er að jafnaði á því að láta eigi drottninguna í friði, hún sé landinu til sóma. Danadrottning greiðir ekki skatt eða virðisaukaskatt og engin gjöld, t.d. af bílum eða hlutabréfum. Danska hirðin fær nú 67,5 milljónir dkr. eða um 700 milljónir ísl.kr. til rekstrar. Af því fé eru greidd laun til starfsmanna, minniháttar viðhald á húseignum, opinberar veislur, gjafir og persónuleg útgjöld. Kostnaður við utanlandsferðir er hins vegar greidd- ur af utanríkisráðuneytinu. Greiðslur til drottningar hafa hækkað um 37,5% á síðasta áratug. Engar upplýsingar eru gefnar um útgjöld og ekki einu sinni ríkisend- urskoðandi hefur aðgang að reikn- ingum fjölskyldunnar. Slíkt býður heim hættu á misnotkun að mati sagn- og stjórnsýslufræðinga auk þess sem þeir benda á að þar sem hið opinbera greiði kostnað við rekstur- inn hljóti hið opinbera jafnframt að eiga rétt á að endurskoða hvernig fénu sé varið. Utan við lögin Drottning ber samkvæmt lögum enga ábyrgð og ekki er hægt að sækja hana eða nokkurn úr fjölskyld- unni til saka samkvæmt lögum, sem reyndar eru frá árinu 1665. Til marks um það er, að þegar Friðrik krón- prins var staðinn að of hröðum akstri fyrir nokkrum árum, var ekki hægt að sekta hann og sú eina sem gat áminnt hann var móðir hans. Stöðu drottningar vegna getur hún ekki gert neina launasamninga, t.d. við starfsfólk sitt. Allir meðlimir kon- ungsfjölskyldunnar stunda önnur störf en að sinna embættisskyldum; drottningin er listamaður sem hann- ar og málar í frístundum, maður hennar Hinrik prins er vínbóndi, son- urinn Friðrik er hermaður og Jóakim prins hefur búrekstur með höndum á Jótlandi. „Vilji konungsfjölskyldan lifa borgaralegu lífi á hún jafnframt að geta vænst þess að litið verði á hana sem borgaralega,“ segir Stig Jørgensen, prófessor í stjórnskipun- arrétti við Árósaháskóla. Gagnrýnin er þó eins og áður segir hófstillt og ekki eru gerðar aðrar kröfur en þær að danska hirðin opni reikningshald sitt og fari að greiða skatt, eins og tilfellið er með t.d. sænsku og bresku konungsfjölskyld- una. Í leiðara Politiken segir að þar sem konungsfjölskyldan njóti eins mikilla vinsælda og raun beri vitni, detti engum heilvita manni í hug að hrófla við tilvist hennar. Það útiloki hins vegar ekki að reynt verði að end- urnýja og nútímavæða aðstæður hennar. Fríðindi Dana- drottningar gagnrýnd Reuters Margrét Þórhildur Danadrottning hvíslar í eyra eiginmanns síns, Hinriks prins. Fyrirkomulag fjármála konungsfjölskyldunnar hefur verið gagnrýnt í dönskum fjölmiðlum fyrir að vera ekki nógu opið. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Ármúla 21, sími 533 2020 Fagmennirnir þekkja Müpro Rörafestingar og upphengi Allar stærðir og gerðir rörafestinga og upphengja HEILSALA - SMÁSALA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.