Morgunblaðið - 27.02.2001, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 35
HEIMURINN
Í ÞINNI DEILD
Vinsamlegast skoðið
heimasíðu okkar og fáið
nánari upplýsingar:
www.rsm.nl
Til að skrá sig á fundinn, hafið vinsamlegast
samband:
Netfang: info@rsm.nl
Sími 0031-10- 408-2222
Fax 0031-10-452-9509
eða skrifið til:
Rotterdam School of Management
P.O. Box 1738, 3000 DR Rotterdam
The Netherlands.
The Rotterdam School of Management er hinn virti viðskiptaskóli Erasmus
háskólans í Hollandi, og er talinn einn af þeim bestu í Evrópu. Í könnun tíma-
ritsins The Economist „Hvaða MBA nám?“ er honum lýst sem nútímalegum,
áhugaverðum og vinalegum skóla.
ALÞJÓÐLEGT NÁM Á MBA STIGI
The Rotterdam School of Management býður upp á Alþjóðlegt MBA nám (Almenn
stjórnun) og MBA/MBI nám (auk upplýsingatækni). Nemendur frá 50 löndum sækja 18
mánaða krefjandi fullt nám í stjórnun, þar sem áhersla er lögð á verklega kennslu. Öll
kennsla fer fram á ensku. Starfsreynsla nauðsynleg.
Fyrir fólk sem hefur a.m.k. fjögurra ára starfsreynslu, býður RSM upp á tveggja ára Al-
þjóðlegt kvöld- og helgarnám á MBA og MBA/MBI stigi. Námskeiðin eru kennd á
föstudagskvöldum og laugardögum aðra hverja viku. Námið felur í sér námsferðir til
útlanda.
STJÓRNENDANÁM
The Rotterdam School of Management býður einnig upp á opin námskeið fyrir stjórnend-
ur og sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki.
KYNNINGARFUNDUR
RSM heldur kynningarfund þar sem alþjóðlegar námsleiðir skólans á MBA stigi verða
kynntar, fimmtudaginn 8. mars 2001:
REYKJAVÍK
Hótel Saga, Hagatorgi,
107 Reykjavík.
Fundurinn stendur frá kl. 19.30-21.00.
Styrkt af
vegar auðveldlega mátt
gera innan gamla stigs-
prófakerfisins með því
að láta sömu prófdóm-
arana dæma á öllu land-
inu í þriðja, fimmta og sjöunda
stigsprófi og gera þau að einhvers
konar aðalprófum í stað þess að
leggja helminginn af prófunum nið-
ur. Þessar breytingar á prófakerf-
inu koma sérstaklega á
óvart, þar sem nýja
námskráin setur að
öðru leyti víðsýnan og
skynsamlegan ramma
utan um tónlistarnám í landinu, út-
listar tilgang og markmið tónlistar-
náms á heildrænan hátt og er
greinilega samin af fólki sem hefur
mikla innsýn í menntamál.
Hvað er unnið
með breytingunni?
Það er eðlilegt að lesandi velti
því nú fyrir sér hvort ekki sé eitt-
hvað unnið með þessari breytingu
prófafyrirkomulags tónlistarskól-
anna. Undirritaður hefur sjálfur
ekki enn fundið neitt sem bendir
til þess og á hann þó að baki fimm
ára háskólanám í tónlist. Vonandi
getur þó einhver upplýst hann um
kosti hins nýja fyrirkomulags.
Að lokum skal þess getið að
gömlu stigsprófin eru byggð upp á
mjög svipaðan hátt og inntökupróf
tónlistarháskóla erlendis og telur
undirritaður að sú þjálfun sem
nemendur hafa fengið með því að
taka þau eigi ekki síst þátt í því að
íslenskir tónlistarnemar hafa und-
anfarna áratugi náð að komast inn
í nánast alla fremstu tónlistarhá-
skóla heims.
Nauðsynlegt er að um þetta
mikilvæga mál skapist málefnaleg
umræða og er það undirrituðum
raunar hulin ráðgáta hversu hljótt
hefur verið um þessar viðamiklu
breytingar.
Hver er kost-
urinn við
áfangapróf?