Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 47
kerfisins og styður heilshugar
verkefni sem stuðlað geta að upp-
lýsingavæðingu sem skila sér í
bættri þjónustu við sjúklinga og
hagræðingu í rekstri heilbrigðis-
stofnana.
Upplýsingavæðing sú sem ÍE hef-
ur hug á að styðja er sú sem gera
mun heilbrigðisstarfsfólki auðveld-
ara að skrá heilbrigðisupplýsingar
á samræmdan og staðlaðan máta
og leiðir til þess að sjúkraskrár
innihalda betri gögn til að þjóna
þörfum heilbrigðisstarfsfólks og
sjúklinga, og jafnframt betri gögn
til rannsókna.
Stöðlun skráningar heilbrigðis-
gagna eykur gæði skráningarinnar
og eykur úrvinnslumöguleika á
gögnum innan hverrar heilbrigðis-
stofnunar. Sömuleiðis auðveldar
rafræn skráning kóðun gagna, og
ópersónugreinanleika þeirra, sem
eru forsendur fyrir afritun og
flutningi þeirra í MGH.
Þannig fara þarfir heilbrigðisþjón-
ustunnar og ÍE saman hvað snertir
samræmd rafræn sjúkraskrárkerfi á
heilbrigðisstofnunum, og það er ÍE
ljúft að styðja við upplýsingavæðingu
þeirra á fyrrgreindum forsendum.
Hvað snertir nánari hönnun, þróun
og innleiðingu tölvu- og upplýsinga-
kerfa í heilbrigðiskerfinu er það vit-
anlega á höndum heilbrigðiskerfisins
og mun miðast alfarið við þarfir not-
enda.
Viðskipti
og vísindi
Um siðferði viðskipta og vísinda í
tengslum við rannsóknarstarfsemi
ÍE hefur margt verið skrifað og rætt.
Við viljum minna á að vísindarann-
sóknir á heilbrigðissviði eru kostnað-
arsamar. Opinbert fjármagn til viða-
mikilla heilbrigðisrannsókna
hérlendis er bæði eftirsótt og stendur
hvergi undir kostnaði viðamikilla
rannsókna á borð við þær sem eru
þegar í framkvæmd og eru í þróun
hjá líftæknifyrirtækjum svo sem ÍE.
Til að standa straum af rannsóknum
verða slík rannsóknarfyrirtæki því að
leita fanga annarsstaðar. ÍE hefur
þannig markaðssett hugmyndir,
rannsóknarniðurstöður og hugbúnað
sem byggist á rannsóknum fyrirtæk-
isins. Vegna eðlis MGH fara ekki úr
honum, til markaðssetningar eða
annars, persónugreinanlegar heilsu-
farsupplýsingar um einstaklinga eða
upplýsingar sem á nokkurn hátt má
rekja til einstaklinga.
Lokaorð
Það er ekki stefna ÍE að svara fjöl-
mörgum ádeilum á starfsemi fyrir-
tækisins í fjölmiðlum, heldur er það
vilji og stefna forráðamanna sem og
fjölda vísindamanna sem starfa innan
fyrirtækisins, að láta verkin tala.
Verkin eru þegar orðin fjölmörg og
öll snúa þau í einu eða öðru að rann-
sóknum til framþróunar heilbrigðis-
vísindum, rannsóknum sem eru fram-
kvæmdar í fullu samræmi við
innlendar sem og alþjóðlegar siða-
reglur um vísindarannsóknir. Við,
sem störfum í heilbrigðishópi ÍE, höf-
um öll reynslu í samskiptum við sjúk-
linga auk þess að hafa menntun,
reynslu og þekkingu á framkvæmd
vísindarannsókna á heilbrigðissviði.
Við erum öll heilbrigðisstarfsfólk sem
er bundið trúnaðarskyldu við skjól-
stæðinga okkar. Okkur er öllum annt
um persónuvernd og velferð bæði
þeirra sem sækja heilbrigðisþjónustu
og samstarfsfólks okkar sem veitir
hana. Það er von okkar að með þess-
ari umfjöllun hafi okkur tekist að
greiða úr misskilningi sem enn virðist
gæta um margt er varðar MGH.
Greinargóðar upplýsingar um gagna-
grunninn og verkefni ÍE má að auki
finna á vefsíðu fyrirtækisins (http://
www.decode.is/).
Anna Birna Almarsdóttir lyfjafræð-
ingur, Einar Stefánsson læknir,
Gyða Björnsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur, Halldór Skúlason læknir,
Ingibjörg Þórhallsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, Ívar Helgason lækn-
ir, Júlíus Schopka tannlæknir, Krist-
ín Vilhjálmsdóttir læknaritari,
Kristján Erlendsson læknir, Krist-
leifur Kristjánsson læknir, Lárus Jón
Guðmundsson sjúkraþjálfari, María
Heimisdóttir læknir, Sigurður Árna-
son læknir, Valgerður Gunn-
arsdóttir sjúkraþjálfari.
Óverðtryggð skuldabréf
SP-fjármögnunar hf.,
1. flokkur 2001,
skráð á Verðbréfaþing Íslands.
Verðbréfaþing hefur samþykkt að taka skuldabréf
SP-fjármögnunar hf., 1. flokk 2001, á skrá þingsins.
Bréfin verða skráð mánudaginn 5. mars nk.
Skuldabréfin greiðast í einu lagi 9. febrúar 2004,
bréfin eru vaxtalaus og óverðtryggð.
Skráningarlýsingu og þau gögn sem vitnað er til í
skráningarlýsingunni er hægt að nálgast hjá
Kaupþingi hf.
Ármúla 13A, 108 Reykjavík
Sími 515-1500, fax 515-1509
HIÐ árlega Linares-skákmót á
Spáni er nú hafið. Meðal keppenda
að þessu sinni eru Kasparov, Karp-
ov, Grischuk, Leko, Judit Polgar og
Shirov. Helst saknar maður heims-
meistaranna Anands og Kramniks,
en einungis þeir hafa veitt Kasparov
einhverja keppni. Ástæða Kramniks
fyrir að vera ekki með er sú, að hann
vildi fá samskonar þóknun og Kasp-
arov þar sem hann titlar sig nú einu
sinni heimsmeistara! Nöfn flestra
þátttakenda í mótinu hljóma kunn-
uglega, fyrir utan kannski Grischuk,
en honum skaut hratt upp á stjörnu-
himininn eftir að hafa komist í átta
manna úrslit á heimsmeistara-
mótinu í Nýju-Delhi á síðasta ári.
Hann þykir sérlega hættulegur með
hvítu mönnunum. Karpov er nú með
í Linares eftir nokkurra ára hlé.
Hann hefur dalað undanfarin ár og
er nú í 20 sæti á stigalista FIDE. Þó
má ekki afskrifa hann og hafa ber í
huga að lengi lifir í gömlum glæð-
um! Leko hefur verið á topp tíu list-
anum undanfarin ár. Hann þykir
ekki standa Kasparov langt að baki í
byrjanaþekkingu, en það sem helst
hefur á vantað er keppnisskapið.
Hann tekur sjaldan mikla áhættu og
enda því margar skákir hans í jafnt-
efli. Shirov leiddi síðasta ofurskák-
mót í Wijk aan Zee allt þar til hann
klikkaði á lokasprettinun. Spenn-
andi verður að fylgjast með honum
nú. Judit Polgar hefur ekki verið
mikið í sviðsljósinu undanfarin ár,
en hún mun hafa gift sig á síðasta
ári. Kannski hún hafi róast eitthvað
við það?
Í fyrstu umferð tefldu saman
Leko-Kasparov, Grischuk-Polgar og
Shirov-Karpov. Í skák þeirra Leko
og Kasparovs kom upp Najdoraf-
brigðið í Sikileyjarvörn. Leko náði
snemma frumkvæðinu, og var Kasp-
arov í vörn, en eftir snjalla skipta-
munsfórn náði hann að jafna taflið
og lauk skákinni með jafntefli um
síðir. Í skák þeirra Grischuk og Jud-
it kom upp Taimanov afbrigðið í Sik-
ileyjarvörn. Fékk sá fyrrnefndi ekk-
ert frumkvæði með hvítu mönn-
unum og stóð löngum höllum fæti,
en náði jafntefli eftir að Judit gaf
kost á mannsfórn. Shirov hafði hvítt
á móti Karpov og fer sú skák hér á
eftir.
Hvítt: Alexei Shirov
Svart: Anatoly Karpov
Caro-Kan [B17]
1.e4 c6 2.d4 d5 3.Rc3 dxe4
4.Rxe4 Rd7 5.Bd3 Rgf6 6.Rg5 e6
7.R1f3 Bd6 8.De2 h6 9.Re4 Rxe4
10.Dxe4 c5 Nú velur Shirov frekar
sjaldgæfan leik, en Karpov er við
öllu búinn! 11.Dg4 Df6! Þessi eðli-
legi leikur er nýr í stöðunni. Áður
hefur verið leikið g5 eða Kf8 12.c3
Þessi hægláti leikur gefur til kynna
að svartur hafi þegar náð að jafna
taflið. Hættulegt getur verið að tefla
upp á frumkvæðið með 12.Be3 cxd4
13.Bxd4 e5 14.Bc3 Rc5 15.Bb5+ Kf8
16.Dh5 Bf5 og svartur stendur bett-
ur 12...cxd4 13.cxd4 b6 14.0–0 Bb7
15.Be3 h5!? Karpov teflir djarft!
Eftir 15...0–0 16.Rd2 De7! 17.Rc4 er
staðan í jafnvægi 16.Dh3 Bxf3
17.gxf3 Hd8
Svartur hefur náð að veikja
kóngsstöðu hvíts, en á móti hefur
hvítur biskupaparið og má því segja
að staðan sé í „dýnamísku“ jafnvægi
18.Hac1 g5 Svartur undirbýr g4.
Einnig myndast haldreipi fyrir bisk-
upinn á f4 19.Be4 Nú má svara
19…f4 með 20. Dg2 19...Bf4 20.Hfe1
Ke7 21.Bxf4 Dxf4 22.d5?
Nú leggur hvítur of mikið á stöð-
una. Eftir 22.Dg3 er jafntefli líkleg-
ustu úrslitin, en Shirov hefur verið
þekktur fyrir allt annað en að tefla
upp á það! Sennilega hefur það líka
haft áhrif að mjög var farið að sax-
ast á tíma Karpovs. 22...Re5
23.dxe6 f5! Hraustlega leikið! Hafa
ber í huga að nú átti Karpov aðeins
rúmar tvær mínútur á 17 leiki.
24.Hc7+ Ef 24.Bb7 kemur 24...Rd3!
24...Kd6 25.Hxa7 fxe4 26.e7 Rxf3+
27.Kf1 Hde8! 28.Dd7+ Ke5 29.Hd1
Kf6 Kóngurinn leitar skjóls á g7
30.Dc6+ Kf7 31.Hd8 Rxh2+ 32.Ke1
Rg4 Staða hvíts er gjörtöpuð, en þú
vinnur ekki skák með því að gefa
hana! 33.Dxb6 e3 Einfaldast var
33...Rf6 34.Db3+ Kg7 35.Dc3+ Df6
36.fxe3 Dxc3+ 37.bxc3
Þegar hér var komið sögu voru
allir stórmeistaranir búnir að bóka
vinning á Karpov, en Shirov nær að
galdra fram það ótrúlega í tímahraki
svarts 37...Re5? Svartur gat unnið
auðveldlega með 37...h4 38.Hd5 Kh6
39.Ha6+ Kh5 40.Had5 Hhg8
38.Hd5 Kf6 39.e4! Rf3+ 40.Kf2 g4
Tímamörkunum er nú náð og getur
Karpov andað léttara 41.Kg3
41...Hh7? Nú missir Karpov af
þvingaðri vinningsleið, en það hefur
aldrei verið hans sterkasta hlið að
reikna út leikjaraðir. Svartur vinnur
með 41...h4+ 42.Kxg4 h3 43.Ha6+
Kg7 44.Kxf3 h2 45.Hg5+ Kf7
46.Hf5+ Kxe7 47.Ha7+ (47.He5+
Kd7 48.Hd5+ Kc7 og svartur kemst
úr þráskákinni) 47...Ke6 48.Ha6+
Kd7 49.Ha7+ (49.Hf7+ He7
50.Ha7+ Kc6! 51.Hf6+ Kb5
52.Hf5+ Kc4 og vinnur) 49...Kc6
50.Hf6+ Kb5 51.Hb7+ Kc4 og
svartur vinnur 42.Hf5+ Kg6
43.Ha6+ Kg7 44.Ha7! Nú hefur
Karpov áttað sig á að vinningurinn
er allt annað en auðveldur 44...Kg6
Ennþá var vinning að finna í stöð-
unni, en það verður að virða Karpov
það til vorkunnar að mikla útreikn-
inga þarf til að komast að þeirri nið-
urstöðu! Eftir 44...h4+ 45.Kxg4 h3
46.Hf8! Re5+! Á hvítur tvö mögu-
leika A) 47.Kg3 h2 48.Hxe8 h1D
49.Hg8+ Kf6 50.e8R+ (50.Ha6+
Kxe7 51.Ha7+ Rd7) 50...Ke6
51.Rg7+ Kd6 52.Rf5+ Kc5 og
svartur vinnur; B) 47.Kf4 47...h2!
(ekki 47...Rg6+ 48.Kg3! Hxe7
49.Hxe7+ Rxe7 50.Hf2 með jafnt-
efli) 48.Hxe8 h1D 49.Hg8+ Kf6
50.Hf8+ Hf7 51.Hxf7+ Kxf7
52.Kxe5 Dh8+ og svartur ætti að
vinna 45.Ha6+ Kg7 46.Ha7 Hh6
47.Hd7 He6 48.Hxh5 Hxe4 49.Hf5
Nú er hvítur sloppinn úr því versta.
Karpov reynir í framhaldinu að
kreista eitthvað úr jafnteflisstöð-
unni kóngur, hrókur og riddari á
móti kóngi og hrók en Shirov heldur
auðveldlega jafntefli Re5 50.Hc7
He1 51.a4 Rf7 52.a5 Rh6 53.Hf4
H8xe7 54.Hxe7+ Hxe7 55.a6 He3+
56.Kg2 Hxc3 57.Ha4 Hc8 58.a7 Ha8
59.Kg3 Kf6 60.Kf4 Ke7 61.Ha6 Rf7
62.Kxg4 Kd7 63.Kf5 Rd6+ 64.Kf4
Rb5 65.Ke5 Kc7 66.Kd5 Kb7
67.Ha1 Rxa7 68.Hb1+ Kc7 69.Hc1+
Kb6 70.Hb1+ Rb5 71.Kc4 Hc8+
72.Kd5 Hc5+ 73.Ke4 Kc6 74.Ha1
Rd6+ 75.Kd4 Hd5+ 76.Ke3 Kd7
77.Ha8 Ke6 78.Ha7 Kf5 79.Hc7
He5+ 80.Kd3 Hd5+ 81.Ke3 Re4
82.Hc4 Rc5 83.Hc3 Ke5 84.Ha3 Hd4
85.Hc3 Kd5 86.Ha3 He4+ 87.Kf3
He8 88.He3 Hf8+ 89.Ke2 Kd4
90.He7 Hf6 91.He8 Re6 92.Ha8
Rf4+ 93.Kf3 Rd3+ 94.Kg4 ½-½
Þremur umferðum er nú lokið á
Linares skákmótinu og hefur öllum
skákunum, níu að tölu, lyktað með
jafntefli. Í gær var frídagur, en
fjórða umferð verður tefld í dag. Á
morgun verður svo viðureign sem
margir bíða eftir, en þá mætast
Kasparov og Karpov. Beinar út-
sendingar eru á skákunum á Netinu.
Nánari upplýsingar má finna á
skak.is.
Jafntefli
í Linares
SKÁK
L i n a r e s
23.2.–7.3. 2001
LINARES-SKÁKMÓTIÐ
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson