Morgunblaðið - 27.02.2001, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 27.02.2001, Qupperneq 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 51 mikil áhrif á líf mitt og amma. Hún var alltaf til staðar, boðin og búin að gera hvað sem var til að öllum liði eða vegnaði betur í því sem þeir tóku sér fyrir hendur. Blíðari og staðfastari manneskju get ég vart hugsað mér. Ég var heimagangur hjá ömmu og afa í Skerjó þegar ég var lítill. Ég minnist þess þegar við amma sátum saman í vondu veðri á vet- urna í Sillu herbergi, ég með stafla af gömlum Vikum en hún með eina af sínum óteljandi pocket-bókum. Amma lagði líka ríka áherslu á að mér vegnaði vel í skólanum og hlýddi mér yfir námsefnið á hverj- um degi, fyrr mátti ég ekki fara út að leika mér. Kaffitímar hennar voru mjög vinsælir hjá okkur félögunum í hverfinu, enda lumaði hún alltaf á einhverju heimagerðu sætabrauði. Hún tók öllum prakk- arastrikum okkar félaganna vel, þau voru bara okkar á milli. Í seinni tíð rifjuðum við þau upp saman og hlógum að allri vitleys- unni sem ungum strákum datt í hug. Það er eitt sem ég komst ekki að um ömmu fyrr en við vorum saman í fríi í Barcelona. Það er hvað amma var ævintýragjörn. Hún var til í að prófa allt og lang- aði til að skoða allan heiminn. Það var frábært að sjá ömmu og afa saman þegar við fórum og sýndum þeim diskótek borgarinnar með sinni seiðmögnuðu salsa-tónlist og þau fóru að dilla sér í takt við tón- listina. Það var toppurinn á ferð- inni. Þessi tími í Barcelona sem við fjölskyldan áttum með ömmu líður mér seint úr minni. Þó svo að amma hafi verið þó nokkur sjúklingur síðustu árin hélt hún alltaf sínu striki, hélt sitt heimili og í sínar venjur. Þessar venjur voru föstu punktarnir í fjöl- skyldulífi okkar og héldu okkur saman sem fjölskyldu. Nú verðum við sem eftir erum að taka við kyndlinum. Amma, það er erfitt að kveðja þig en þetta var eins og þú hefðir alltaf óskað, tók fljótt af og án þess að þú yrðir öðrum háð. Ég mun alltaf varðveita minn- ingarnar um elsku ömmu á sér- stökum stað í hjarta mínu. Þar til við sjáumst næst elsku amma. Þinn Arnar. Látin er í Reykjavík móðursyst- ir mín, Katrín S. Egilsdóttir. And- látið bar brátt að og kom fjöl- skyldunni í opna skjöldu. Þegar Katrínar er minnst koma í hugann orð eins og góð kona, skyldurækni og snyrtimennska. Seinni árin hef- ur hún í mínum huga verið höfuð fjölskyldunnar, sú sem gerði það sem þurfti að gera og sinnti skyld- um sínum. Hún var fædd í sveit, elst fimm systkina sem fæddust á sjö árum og á bernskumyndum stendur hún gjarnan í miðjum hópnum og leiðir bræður sína, eða þá sem næst henni standa, og þannig hefur hún verið þau ár sem ég hef séð til hennar, reynt að halda saman hópnum sínum. Kynni mín af þessari frænku minni eru auðvitað í byrjun kynni barns af fullorðinni konu. Hún átti traustan og góðan mann og þrjú væn börn. Ég bar óttablandna virðingu fyrir henni, sem m.a. kom fram í því þegar við systkinin vor- um eitt sinn í pössun hjá henni og hún bar á borð mat sem ég borðaði alls ekki, hrogn og sveskjugraut, þá þorði ég ekki fyrir mitt litla líf að segja hvers kyns var og borðaði það sem fyrir mig var sett. Flestar minningar mínar um hana eru þó jákvæðar, brúna kakan með hvíta kreminu sem var svo sérstakt á bragðið, kjólarnir sem hún keypti handa mér í útlöndum um leið og hún keypti sparikjóla á dætur sín- ar og ógleymanlegar ferðirnar að Langárfossi í veiði. Þetta var nýtt, spennandi og framandi. Heimilið hennar var fallegt og auðvitað allt- af snyrtilegt. Fyrstu og sterkustu minningarnar um fjölskylduna eru af Rauðalæknum – íbúðin var stór og falleg og það var arinn í stof- unni sem stundum var kveikt upp í og inn af honum sunnanmegin stofa Katrínar og norðanmegin skrifstofa Vilhjálms manns henn- ar. Það var nýtt í mínum huga að konur ættu sér stofu – í þessari stofu voru spennandi hlutir frá formæðrum hennar, m.a. bekkur sem móðursystur hennar höfðu skorið út og saumað áklæðið, myndir og allar Agötubækurnar í þéttskipaðri bókahillunni. Seinni árin spjölluðum við saman um gamla daga og fjölskylduna og ein- kenndi hana í því spjalli hvað hún var orðvör og skynsöm. Þeir sem kynntust Katrínu Sig- ríði urðu ríkari af þeim kynnum og bið ég Guð að blessa minningu hennar og styðja Vilhjálm og fjöl- skylduna þeirra. Málfríður Finnbogadóttir. Hún var frá Langárfossi, Mýra- sýslu, fædd 1. júní 1923. Í skóla- bókina mína vorið, sem við útskrif- uðumst, skrifaði hún: „Þó að leiðin virðist vönd, vertu aldrei hryggur, Það er eins og hulin hönd hjálpi er mest á liggur.“ Hún þakkaði samveruna, – en kynnin hófust veturinn 1936–1937 er við hófum nám við Verzlunar- skóla Íslands. Við útskrifuðumst vorið 1940 en þá dreifðist hópurinn í ýmsar áttir. Flest okkar hafa bú- ið hér á höfuðborgarsvæðinu en aðrir ýmist fyrir vestan, norðan eða austan eða þá erlendis. Við vorum 40 stúlkur og 33 piltar sem kvöddum skóla okkar þetta vor mikilla umbreytinga en seinni heimsstyrjöldin hafði geisað í 8 mánuði og aðeins nokkrir dagar óliðnir þar til land okkar var her- numið af Bretum. Mikil og innileg samheldni hefur ætíð ríkt í hópi okkar en þar er nú þegar stórt skarð fyrir skildi því 30 skóla- systkini eru horfin yfir móðuna miklu. Skólastjóri okkar og allir kennarar okkar eru látnir. Við sem eftir lifum minnumst nú félaga okkar og fræðara með söknuði. Katrín tók ávallt fullan þátt í félagslífi okkar en við höfum haft það fyrir fastan sið að hittast á fimm ára fresti og þannig haft tækifæri til að rifja upp fornar stundir og endurnýja kynnin. Síð- ast hittumst við í apríl lok árið 2000 og minntumst 60 ára útskrift- arafmælis okkar. Einnig hefur það verið venja okkar, sem tök hafa á, undanfarin ár að hittast einn dag í mánuði yfir vetrarmánuðina og drekka saman síðdegiskaffi og hafa þessir samfundir verið ánægjulegir og treyst vinaböndin. Katrín mætti vel á þessum fundum okkar og setti svip á hópinn með glaðværð sinni og háttprýði. Auk kunningsskapar okkar Katrínar gegnum skóla okkar hef ég haft þá ánægju að kynnast henni enn betur sem eiginkonu forstjóra míns og yfirmanns í ára- tugi, Vilhjálms Jónssonar hrl. Þau hjónin hafa búið á yndisfögrum stað í Skerjafirði þar sem Katrín undi hag sínum vel og hafði hvorttvegja í senn ánægju af að rækta og snyrta garð sinn og njóta fagurs útsýnis lands og hafs. – Hún var mikilhæf húsmóðir og er nú sárt saknað af eiginmanni, börnum og ömmubörnum. Ég sendi Vilhjálmi og fjölskyld- unni innilegar samúðarkveðjur og óska Katrínu blessunar á Guðs vegum. Árni Kr. Þorsteinsson. Við Katrín – Daddí – kynntumst fyrst á matreiðslunámskeiði í Hús- mæðraskóla Reykjavíkur í árs- byrjun 1946. Reyndar hafði ég hitt hana nokkru fyrr og þá í fylgd með tilvonandi eiginmanni sínum, Vilhjálmi Jónssyni. Þeir Vilhjálm- ur Árnason, eiginmaður minn, eru bekkjarbræður úr MA og voru herbergisfélagar á Nýja-Garði um þetta leyti, lásu báðir lög. Katrín var alin upp á Langár- fossi á Mýrum en bjó á þessum ár- um hjá móðursystur sinni Sigríði Magnúsdóttur og hennar manni Ólafi Lárussyni lagaprófessor í Tjarnargötu 16. Hún stundaði nám í Verslunarskólanum og útskrifað- ist þaðan 1942 aðeins 17 ára. Kært var með þeim Katrínu og þessum ágætu hjónum meðan þau lifðu. Daddí var falleg stúlka, grönn og kvik á fæti. Ég tók strax eftir hvað hún var fljótvirk og vel virk við matargerð og eldhúsverk þarna á námskeiðinu, þegar allt snerist öfugt fyrir mér lauk hún sínum verkum á mettíma. Þessi fyrstu kynni okkar urðu upphaf að ævilangri vináttu sem aldrei bar skugga á, þótt fundir hafi verið strjálir í seinni tíð, nema þá helst spjall í síma endrum og eins. En þá létum við líka móðan mása um okkar hagi og okkar fólks. Ég held að við höfum alltaf átt fullan trúnað hvor annarrar sem við flíkuðum ógjarnan. Daddí var jafnframt fróð um menn og málefni og kunni vel að taka gam- anmálum. Við Vilhjálmur giftum okkur vorið 1946 en þau Vilhjálmur og Katrín þá um haustið. Þau byrjuðu búskapinn í kjallaraíbúð í vestur- bænum í húsi sómamannsins Guð- mundar Kristjánssonar stýri- mannaskólakennara. Það vakti strax athygli, hvað notalegt og heimilislegt var hjá þeim, hvernig frúin unga hafði tjaldað dyr og glugga með rósóttu klæði og hús- bóndinn hlaðið bókahillur úr múr- steinum. Katrín vann úti þessi fyrstu ár eða þar til elsta barnið fæddist. Þá voru þau flutt í Lönguhlíð 9. Síðar byggðu þau íbúð á Rauðalæk og loks fallegt einbýlishús út við Skerjafjörð, vel búið fallegum hús- búnaði og annarri híbýlaprýði. Um það er garður, sem þau hjónin hafa lagt mikla vinnu í, enda er ár- angurinn eftir því – unaðsreitur í brekkunni niður að fjörunni. Í öll- um þessum húsakynnum áttum við Vilhjálmur margar glaðar stundir sem við þökkum nú að leiðarlok- um. Nokkur skemmtileg ferðalög fórum við saman og ekki má gleyma yndisstundum í laxveiði við Langá á Mýrum. Gamla veiðihúsið við Langá stendur í túnfætinum á Langárfossi svo þarna var Katrín á heimavelli og fræddi okkur um margt. Daddí var einstök húsmóðir og matargerðarkona ágæt. Þetta kom sér oft vel, því hún þurfti æði oft að standa fyrir beina m.a. í sam- bandi við störf manns síns. Hún var umhyggjusöm móðir barnanna þriggja. Þegar þau voru uppkomin vann hún úti í nokkur ár, var gjaldkeri hjá Vikunni, vel látin þar sem annars staðar. Hún var komin yfir miðjan aldur þegar hún tók að sér umönnun tveggja ungra dóttursona á daginn þegar móðir þeirra var við vinnu sína. Hún leysti það vandaverk af hendi með stakri prýði. Voru þeir meira og minna hjá ömmu og afa öll sín uppvaxtarár. Seinni árin fóru þau Vilhjálmur og Katrín æði oft utan, ekki síst til sólarlanda, og undu sér vel. Katrín þjáðist af æðakölkun sem sótti á hana með aldrinum og gekk undir stórar aðgerðir sem hjálp- uðu henni í bili, en þó dró þessi krankleiki hana til dauða að lok- um, hafði þó í þetta skipti ekki langan aðdraganda. Og nú er ekki annað eftir en að kveðja, með kærri þökk fyrir daginn, fyrir ótal ánægjustundir og góðan vinskap í meira en hálfa öld. Vilhjálmi og fjölskyldu, svo og systrum Katr- ínar, Hrefnu og Þórdísi, sendum við öll innilegar samúðarkveðjur. Sigríður Ingimarsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga er andlát verður í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Gestabók Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Sjáum einnig um útfararþjónustu á allri landsbyggðinni. Áratuga reynsla.                12 <  $211 9 )) ')"G  !       ! -    2.     : #'' 3    /  !   ( ),>/!#( '( : ',&" !#( </!#( '( 9) 9 '  "-/!#( '( 9 )) + )# ,&" ;  ; (;  ;  ; /      $51  : 9 '' 7  " 9)!- ; A  9 : :"-"  ! 5 ; 1    4       $ *+      ! 4        : #'' 9), /"- ,&"  /"-''( (:. ,:&)/                                           !"# #$ " % &   ' ( #$ " #) *+ , !"# ( ##  -"  ( #$ " . /0" ( ##  1 '( ( #$ " 2""3 0" 4$ " 30" % ##   /   #$ " !"# . /##  %   ' 30"#$ " % 30" 30"##  " #& 5+ 6040 $#$ " 60 " 30"##   &#7 2 8#$ " !" ()0" 30"##   "&40"  "#$ " !"# !"# ##   & 2""3 60 "#$ "  7'," !"# #$ "  0"40" 6040 $## +
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.