Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 53
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ATVINNA ÓSKAST
Atvinna óskast
Kona með Samvinnuskólapróf óskar eftir starfi.
Hef langa reynslu af skrifstofustörfum, einkum
ritarastörfum. Margt kemur til greina en eink-
um þó störf sem tengjast íslensku og gera
kröfu til íslenskukunnáttu.
Upplýsingar í síma 567 4054.
Víðines,
hjúkrunarheimili aldraðra,
Kjalarnesi, 116 Reykjavík.
Sjúkraliðar
Sjúkraliði óskast til starfa. Starfshlutfall sam-
komulag. Ennfremur óskast sjúkraliðar til starfa
í afleysingar vegna vetrarfría.
Starfsfólk
í aðhlynningu
Starfsfólk óskast til starfa í afleysingar til að-
hlynningar aldraðra.
Starfshlutfall samkomulag.
Víðines er nýtt hjúkrunarheimili. Á heimil-
inu eru 2 hjúkrunardeildir, 19 og 18 rúma.
Við viljum leggja áherslu á heimilislegt
umhverfi fyrir íbúa og starfsfólk.
Víðines er staðsett á fallegum og friðsæl-
um stað ca 10 km fyrir utan Mosfellsbæ.
Bifreiðastyrkur er greiddur samkvæmt
reglum þar um.
Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri,
Borghildur Ragnarsdóttir, í síma 563 8803.
Rafmagns-
verkfræðingur —
Rafmagns-
tæknifræðingur
Staða tæknimanns á umdæmisskrifstofu
RARIK á Blönduósi er laus til umsóknar. Um
er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkom-
andi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.
Starfssvið:
● Áætlanagerð.
● Hönnun raforkukerfa.
● Kerfisskráningar.
● Viðhald tölvuteikninga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
● Tæknifræði- eða verkfræðimenntun af sterk-
straumssviði.
● Æskilegt er að umsækjendur hafi sveinspróf
í rafvirkjun eða reynslu af rafveitustörfum.
● Góð þekking á CAD-vinnslu.
● Góðir samstarfshæfileikar og skipulögð vinnu-
brögð.
● Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt.
Nánari upplýsingar veitir umdæmisstjóri,
Haukur Ásgeirsson, í síma 452 4600 og einnig
starfsmannastjóri í síma 560 5500.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir fyrir
9. mars nk.
Rauðarárstíg 10,
105 Reykjavík.
Mógilsá — Rannsóknastöð skógræktar
Icelandic Forest Research
Tvær stöður
sérfræðinga við
skógræktarrannsóknir
Eftirfarandi stöður við Rannsóknastöð Skóg-
ræktar ríkisins á Mógilsá eru lausar til umsókn-
ar. Um er að ræða fjölbreytt framtíðarstörf við
rannsóknir og þróun í þágu skógræktar. Störfin
verða unnin í nánu samstarfi við aðra sérfræð-
inga á stofnuninni og á systurstofnunum.
1. Sérfræðingur á sviði viðar- og
árhringjafræði
Starfssvið: Starfið felst í rannsóknum á trjá-
vexti og áhrifum umhverfis (einkum veðurfars)
á vöxt trjáa. Sérfræðingur skal hafa umsjón
með árhringjamælingastofu á Mógilsá. Einnig
felst starfið í þátttöku í og ábyrgð á fjölþjóðleg-
um rannsóknaverkefnum í tengslum við hnatt-
rænar umhverfisbreytingar á norðurslóðum.
Jafnframt þátttaka í verkefnum sem tengjast
viðargæðum og nýtingarmöguleikum íslensks
trjáviðar.
Hæfniskröfur:
● Doktorspróf í náttúruvísindum.
● Reynsla af stjórnun rannsóknaverkefna,
þ.m.t. fjölþjóðlegum rannsóknaverkefnum.
● Þekking á viðarfræði og árhringjatímatals-
fræði.
● Haldgóð þekking á tölfræðilegri úrvinnslu
rannsóknagagna.
● Frumkvæði, hæfni til samvinnu og skipulags-
hæfileikar.
● Hæfni til þess að tjá sig munnlega og skrif-
lega á a.m.k. íslensku, ensku og einu Norður-
landamálanna.
2. Sérfræðingur/ráðunautur í skógar-
plöntuframleiðslu
Starfssvið:
● Rannsóknir sem tengjast bættri framleiðslu
skógarplantna.
● Ráðgjöf og fræðsla til þeirra sem stunda
uppeldi skógarplantna á Íslandi.
● Skipulag gæðaeftirlits með skógarplöntum.
● Þátttaka í fjölþjóðlegu rannsókna- og
fræðslusamstarfi um framleiðslu skógar-
plantna.
Hæfniskröfur:
● M.Sc. í skógfræði eða garðyrkju, eða sam-
bærilegt rannsóknanám sem nýtist í starfi.
● Starfsreynsla og haldgóð þekking á sviði
trjáplöntuuppeldis.
● Frumkvæði, hæfni til samvinnu og skipulags-
hæfileikar.
● Hæfni til þess að tjá sig munnlega og skrif-
lega á a.m.k. íslensku, ensku og einu Norður-
landamálanna.
Umsóknum skulu fylgja nákvæmar ferilsskýrsl-
ur sem greina frá vísindastörfum, ritsmíðum,
störfum og námi umsækjanda.
Ráðningarstaður: Mógilsá á Kjalarnesi, en aðrir
ráðningarstaðir geta komið til greina, eftir nán-
ara samkomulagi.
Umsækjandi verður að geta hafið störf sem
fyrst.
Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra
starfsmanna.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 15. mars til:
Aðalsteins Sigurgeirssonar, forstöðumanns,
Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins, Mógilsá,
116 Reykjavík, s. 515 4500 og 898 7862, fax
515 4501, netfang: adalrsr@simnet.is .
Gleraugnaverslun
á Stór-Reykjavíkursvæðinu
auglýsir eftir starfsfólki hálfan daginn til af-
greiðslustarfa. Ath. reyklaust fyrirtæki.
Umsókn með mynd sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 1. mars nk., merkt: „Gleraugu — 2001“.
Sjálfboðavinna í Afríku
Sjálfboða vantar til þróunarhjálpar í
Angóla og Guinea Bissau.
Barnahjálp
Úthlutun neyðarhjálpar
AIDS forvarnarstarf
Fræðsla fyrir götubörn
14 mán. þjálfun með alþjóðlegum hópi, þar af 6 mán.
þjálfun hjá Den rejsende Højskole í Danmörku.
Hringdu núna í síma : 0045 56 72 61 00.
lotte@humana.org www.lindersvold.dk
Sex mánaða herra-
maður í Vogunum
óskar eftir að kynnast sérlega ljúfri og
yndislegri manneskju.
Ég er meðalmaður á hæð, óvenju brosmildur
og dásamlegur í alla staði. Helstu áhugamál
eru að kúra, hjala og hlæja … og nú vantar mig
bara manneskju til að dást að mér og brosa
til baka milli klukkan 8.30 og 14.30 á daginn
á meðan mamma er í vinnunni. Einnig væri
gott ef hún væri til í að taka á móti 7 ára systur
minni þegar hún kemur heim úr skólanum.
Síminn hjá mér er 553 5791 … svo nú er bara
að taka upp tólið og slá á þráðinn.
Rekstrarstjóri
heilbrigðisstofnunarinnar á Egilsstöðum
Um er að ræða rekstrarstjórn heilbrigðisstofn-
unarinnar á Egilsstöðum, en hún er deild í Heil-
brigðisstofnun Austurlands.
Starf rekstrarstjóra felst m.a í starfsmanna-
haldi, áætlanagerð, þróunar- og samræmingar-
starfi, viðhaldi eigna og öðru því er honum er
falið. Rekstrarstjóri þarf að hafa góða almenna
menntun, góða samskiptahæfni, þekkingu á
bókhaldi og góða tölvukunnáttu.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. apríl
2001 eða fyrr. Umsóknarfrestur er til 12. mars
nk. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Heil-
brigðisstofnunar Austurlands, Einar R. Haralds-
son, í síma 861 1999.
Heilbrigðisstofnun Austurlands,
Strandgötu 31, 735 Eskifirði,
s. 470 1404, bréfs. 470 1409.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu 530 fm jarðhæð á besta
stað við Ármúla.
Leigutími frá 1. maí nk.
Upplýsingar í síma 848 4847 eftir
kl. 18.00.
ÝMISLEGT