Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 58

Morgunblaðið - 27.02.2001, Side 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. KÆRI Moggi! Við erum stelpur í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Við viljum kvarta yfir því að það sé alltaf verið að taka frídaga af okkur, s.s. 1. desember o.fl. Við þurfum líka að fara í skólann á ösku- daginn. Kennsla verður, en klukkan 12:00 hefst grímuball og ef við viljum ekki vera á því verðum við að vera í stofunni okkar með kennaranum okkar að gera eitthvað annað. Einnig er búið að fjölga skóladög- unum um 10 daga. En nóg um það. Við viljum koma því fram að Garðbæingar verða að vera með nammi tilbúið fyrir okkur og ekki bara búðir heldur allir íbúar. Núna ætlum við að ganga í hús og ef þið viljið ekki að við komum til ykkar hengið þá miða á hurðina ykkar í stað þess að hreyta ónotalegum orð- um í okkur. PERLA STEINSDÓTTIR, KARA INGÓLFSDÓTTIR, DÓRA HRUND GÍSLADÓTTIR, KRISTÍN SUNNA SVEINSDÓTTIR, í 6. bekk í Hofsstaðaskóla. Stelpurnar í Hofsstaðaskóla biðja Garðbæinga að taka vel á móti þeim þegar þær banka uppá á öskudaginn. Frá stúlkum í Hofsstaðaskóla: Öskudagur UNDANFARIÐ hefur farið fram undarleg umræða. Undarleg að því leyti að ómögulegt er að fá botn í um hvað hún snýst. Hér á ég við um- ræðuna um þá fyrirætlan meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að bjóða út rekstur nýs grunnskóla í bænum. Ekki lítur út fyrir að gera eigi til- raunir með nýja kennsluhætti, enda á slíkt sjaldan upptök í ráðum sveitar- félaga. Bæjaryfirvöld virðast ekki heldur stefna á að reka þennan nýja skóla fyrir minna fé en aðra skóla. Síður en svo. Það hefur margsinnis verið tekið fram. Þó á þetta að verða betra. Helst er á sveitarstjórnar- mönnum að skilja að með útboði eigi að takast að fá vel menntaðan hug- sjónamann með mikla reynslu til að taka að sér skólastjórn. Og þeim skólastjóra eigi að takast að ráða betri kennara að skólanum en skóla- skrifstofu Hafnarfjarðar og skóla- stjórum bæjarins hefur tekist til þessa og reka betri skóla en tíðkast hefur í Hafnarfirði. Vonandi tekst Hafnfirðingum að ráða til þessa nýja skóla alla helstu hugsjónamenn kennarastéttarinnar. Takist það ekki og þeir neyðast til að ráða venjulegt fólk sem vill fá laun fyrir sína vinnu þurfa þeir væntan- lega að fá það til að hætta í öðrum skólum – með því að bjóða því hærri laun en kveðið er á um í nýgerðum kjarasamningum kennara. Það er nú einu sinni gangurinn í hinu frjálsa hagkerfi. En verði skólastjóra og kennurum þessa nýja skóla Hafnfirð- inga greitt meira en öðrum skóla- stjórum og kennurum, en sveitar- félagið ætlar ekki að kosta meiru til hans en annarra, hlýtur væntanlegur skólastjóri að þurfa að skera niður út- gjöld annars staðar. Hvar skyldi hann skera niður? Skyldi hann stækka bekkina, setja 50–60 börn saman (sem er víst heimilt samkvæmt nýj- ustu grunnskólalögunum) og komast þannig af með færri kennara en ella? Skyldi hann spara í kennslugögnum eða kennslutækjum (til dæmis tölvu- kaupum)? Líklega kemst nýi skólastjórinn þó ekki upp með neitt múður því sveit- arstjórnarmenn hafnfirskir hafa lýst yfir því að skólaskrifstofa bæjarins eigi að hafa enn meira eftirlit með innra starfi þessa nýja skóla en með öðrum skólum, og eitthvað hlýtur það að kosta. Þar fór það. Um hvað snýst tilraunin þá eiginlega? Snýst hún ekki um pólitík, nú þeg- ar skammt er til sveitarstjórnakosn- inga? Einkennin eru augljós: menn taka afstöðu eftir því hvar í flokki þeir eru og takast á með gífuryrðum og skömmum hver í garð annars flokks. En enginn skilur um hvað mennirnir eru að tala og fréttamennirnir vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið og stara gapandi til beggja átta. Enda eru þeir ekki vanir öðru en að hlut- verk þeirra sé að koma sjónarmiðum deiluaðila óbrengluðum til skila. ÞORGRÍMUR GESTSSON, rithöfundur, Nönnugötu 10, Reykjavík. Um hvað snýst þetta eiginlega? Frá Þorgrími Gestssyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.