Morgunblaðið - 27.02.2001, Qupperneq 63
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 63
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0028-0625
4507-2800-0004-9377
! "#
"$% &'
()( )$$$
Trimform losar um spennu í axlarvöðvum,
eykur blóðflæði og mýkir upp vöðvana.
Trimform getur einnig linað þjáningar
vegna bakverkja og ofreynsu á hrygg.
meðferðartækin eru m.a. notuð við:
Leið til betri heilsu
Vöðvabólga, bakverkir, höfuðverkur
• Líkamsþjálfun
• Vöðvabólgu
• Örvun á blóðflæði
• Bakverkjum
• Íþróttameiðslum
Verð frá kr. 33.000
SPORT-ELEC rafnuddtæki
Fallegri línur
fyrir líkama og andlit.
• Styrkir og mótar líkamann
• Styrkir brjóstvöðva - fegrar barminn
• Styrkir andlitsvöðva, dregur úr hrukkum
og minnkar bjúg.
Alþjóða Verslunarfélagið ehf
Hamraborg 5, 200 Kópavogur - S: 511 4100
Sport Elec 12 fyrir líkama og andlit verð kr. 15.840,-
Sport Elec Visagio sérhannað fyrir andlit kr. 11.460,-
ATHUGIÐ BREYTT HEIMILISFANG
• Gigt
• Þvagleka
• Grenningu
• Appelsínuhúð
• o.fl.
Krákan: Endurlausnin
(Crow: Salvation)
S p e n n u m y n d
Leikstjóri: Bharat Nalluri.
Handrit: Chip Johannsen. Leikarar:
Kirsten Dunst, Eric Mabius.
Bandaríkin 2000. Bergvík.
Bönnuð innan 16 ára.
KRÁKAN kom fyrst út í teikni-
myndablaðaformi en höfundur henn-
ar var James O’Barr og var sagan full
af dulúð og miklu
ofbeldi sem heillaði
þyrsta teikni-
myndablaðaáhuga-
menn sem voru
orðnir þreyttir á
veggjaklifrurum og
bláklæddum
hetjum í rauðum
nærbuxum. Fyrsta
myndin sem fjallaði
um þessa söguper-
sónu er líklega best þekkt fyrir hinn
sorglega atburð sem átti sér stað við
tökur myndarinnar en Brandon Lee
(sonur Bruce) lést þegar byssa sem
átti að vera saklaus reyndist ekki vera
svo. Þetta er í þriðja skiptið sem
Krákan kemur fyrir í kvikmynd
(einnig voru gerðir hörmulegir sjón-
varpsþættir um hana með Mark Dac-
ascos í aðalhlutverki). Handritshöf-
undur myndarinnar, Chip Johannsen,
hefur áður unnið með dekkri hliðar
mannlegs eðlis en hann var framleið-
andi Millennium-þáttanna. Hérna
virðist ekkert ganga upp, leikurinn er
afleitur, söguþráðurinn varla sýnileg-
ur og leikstjórnin kauðaleg. Verst er
að leikarar eins og Kirsten Dunst og
Fred Ward hafi látið hafa sig út í að
taka þátt í myndinni.
Ottó Geir Borg
MYNDBÖND
Vængbrot-
inn krummi
Aftur til mín
(Return to Me)
R ó m a n t í s k
g a m a n m y n d
Leikstjóri: Bonnie Hunt. Handrit:
Bonnie Hunt og Don Lake. Aðal-
hlutverk: David Duchovny, Minnie
Driver, Carroll O’Connor. (113
mín.) Bandaríkin, 2000. Skífan.
Öllum leyfð.
AFTUR til mín er rómantísk gam-
anmynd, sem er ekki ætlað mikið
meira en að veita ljúfa afþreyingu
eina kvöldstund, og
tekst það ætlunar-
verk sitt ágætlega.
Þar segir frá stúlk-
unni Grace (Minnie
Driver) sem þjáist
af ættgengum
hjartasjúkdómi en
fer að geta lifað
eðlilegu lífi eftir að
hún gengur í gegn-
um hjartaígræðslu.
Hún kynnist huggulegum manni,
Bob (David Duchovny), sem misst
hefur eiginkonu sína í bílslysi. Ein-
hverjir dularfullir straumar leiða
Grace og Bob saman, en hvorugt veit
að nýja hjartað hennar Grace var úr
eiginkonu Bob. Þessi mynd er ágæt-
lega gerð og er að mörgu leyti lág-
stemmd og laus við tilgerð. Myndin
hefst með nokkurri dramatík, og
kemst frá því án teljandi væmni, og
tekst almennt að skauta yfir helstu
melódramatísku pyttina, sem hlýtur
að teljast kostur í þessari kvik-
myndagrein. Þau Duchovny og Driv-
er eru fín í aðalhlutverkunum og sér-
staklega nær Driver að búa til
aðlaðandi persónu.
Heiða Jóhannsdótt ir
Laus við
tilgerð
ÁRSHÁTÍÐ miðstigs Hrafna-
gilsskóla var haldin nú nýlega
og fjölmenntu foreldrar og að-
standendur á árshátíðina og
skemmtu sér hið besta.
Nemendur í 6. bekk sýndu
atriði úr söngleiknum Grease
sem var vel æft og gerði mikla
lukku.
Nemendur í 5. bekk léku vík-
ingaleikrit og sungu þjóðlög og
komust einnig mjög vel frá því.
Morgunblaðið/Benjamín
Víkingagrínið vakti verðskuldaða lukku í Hrafnagilsskóla.
Söngleikurinn Koppafeiti fékk skemmtilega meðhöndlun.
Árshátíð
í Hrafnagilsskóla
HÉR er á ferðinni önnur ein-
leiksskífa Heimis Björgúlfssonar.
Heimir er einn þriðji hluti sveit-
arinnar Stilluppsteypu en sveitin
sú hefur að undanförnu getið sér
gott orð á sviði
tilraunakenndrar
raftónlistar og
það um heim all-
an. Platan er
önnur afurð hans
á tæpu ári en í
fyrra kom út
þriggja tommu
geislaplatan The
Opposite. Hér er
verið að höggva
nokkurn veginn í
sama knérunn og
þar var gert, ekki
bara að hljóð/tón-
listin sé um
margt svipuð
heldur eru hug-
myndir þær sem
liggja að baki
fyrri disknum teknar og framþró-
aðar.
The Opposite innihélt upptökur,
gerðar í íslenskri náttúru, ásamt
stafrænt unnum hljóðum og er
verkið einhvers konar athugun á
þessum tveimur ólíku heimum. Á
þessum nýja diski eru öll hljóð
hins vegar runnin undan rifjum
tölvunnar og er disknum ætlað að
vera nokkurs konar ferðalag í
gegnum stafræna veröld sem
Heimir hefur skapað. Þessi þáttur
disksins er svo undirstrikaður með
texta sem er að finna í umbúðum
disksins, sömdum af listamannin-
um Mike Tyler.
Nafn plötunnar lýsir því sem er
hér á ferðinni einna best: Varfærn-
islegt, stafrænt ferðalag. Líkt og
með list Stilluppsteypu og Heimis
sjálfs eru hljóð, ómar og sónar í
forgrunni fremur en tónar, hljóm-
ar og melódíur. Og að tilganginum
gefnum er manni hægt um vik að
ímynda sér að maður sé fljúgandi
yfir torkennilega reikistjörnu,
hlustandi eftir umhverfishljóðum.
Heimir virðist hér nokkuð upp-
tekinn af þögninni og áhrifamætti
hennar. Naumhyggjuleg („minim-
alísk“) hljóð rísa hægt en bítandi
upp og hverfa svo aftur á braut
eftir stutta viðdvöl. Oft er hljóðið
vart greinanlegt mínútum saman.
Tíðnisvið þess sem heyrist er
breitt. Mikill bassi og skerandi há-
tíðnihljóð eru hér í einni sæng. Og
hér eru engin óhljóð, engin bjögun
– þvert á móti fínleg hljóð, hrein
og tær – ísköld eins og stálið.
„Verkin“ hér (það er ekki hægt að
kalla þetta lög) eru oft brotin
skyndilega upp með háum, hvell-
um, iðulega alls ólíkum hljóðum og
við tekur öðruvísi stemning. Svona
tilraunir með handahófskennd
uppbrot eru áberandi og eru
sterkt minni frá fyrri disknum. Á
einum stað vísar Heimir líka
skemmtilega í The Opposite er
hann leyfir okkur að heyra hvernig
„stafrænt“ vatn rennur (Verk 8,
0,23 mín. – 3,18 mín.).
Stundum er
líka að finna til-
vísun í tónlist
hérna. Já, merki-
legt nokk! Það er
nettur tæknó-
andi í fyrsta lag-
inu og annað lag-
ið minnir nokkuð
á bresku raf-
sveitina Aut-
echre.
Ég veit samt
ekki með textann
sem fylgir diskn-
um og á að vera
samsíða hljóðun-
um. Full mikil
spírulykt af hon-
um.
Að hlusta á
diskinn er einkar þægileg upplif-
un, tónlistin er sveimkennd og líð-
ur ljúflega um eyrun. „Verkin“ eru
svo krydduð með nægilega miklu
magni af óvæntum og stuðandi
hlutum til að forða plötunni frá
einsleitni og leiðindum. Umlykj-
andi drungi og spenna gerir að
verkum að maður er ávallt viðbú-
inn – afslappað andrúmsloft sem
gerir þó kröfur um að fylgst sé
með.
Tón/hljóðlist eins og þessi dæm-
ist oft til að vera einkamál þeirra
sem kantsæknir eru. Dómur al-
mennings er jafnan í besta falli
„áhugavert“ eða „athyglisvert“, í
langflestum tilfellum er þetta kall-
að „bull og vitleysa“, „sýra“ eða
„steypa“. En eigi skyldi dæma fyr-
irfram. Fyrst að hlusta með opn-
um huga enda alltaf allt að vinna.
„Skrýtin“ tónlist getur verið
skemmtileg. Það sannast ágætlega
hér.
Allt í einu eitt-
hvað annað
TÓNLIST
G e i s l a d i s k u r
Discreet Journey Digitalis, geisla-
diskur Heimis Björgúlfssonar.
Unnið og samsett í Mostlywood,
Amsterdam, 1999–2000. Peter
Fleur aðstoðaði við hljómjöfnun.
Texta innan á hulstri samdi
Mike Tyler. 35,37 mín. Ritornell/
Mille Plateaux gefur út.
DISCREET JOURNEY
DIGITALIS
Arnar Eggert Thoroddsen
Discreet Journey Digitalis
er önnur einherjaskífa Heimis
Björgúlfssonar.