Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 66

Morgunblaðið - 27.02.2001, Page 66
FÓLK Í FRÉTTUM 66 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ ERU væntanlega allir búnir að fá nóg af hinu umdeilda „Stan“ lagi Eminem. Vissulega eftirminni- legt lag og magnað myndband, en það var viðlagið sem greip mann og sat fast í höfðinu. Sú sem á heiðurinn af því er ung bresk söngkona sem kallar sig Dido. Þessi stelpa sló í gegn með bróður sínum Rollo í dansgrúppunni Faithless og ef einhver man eftir sólstrandar-európoppsmellnum „Salva Mea“ þá söng Dido það lag. En það hlaut að koma að því að daman yrði uppgötvuð og það gerði ekki ómerkari maður en Clive Davis hjá Arista, sem upp- götvaði m.a. Whitney Houston, og viti menn, hann hafði rétt fyrir sér því hún er búin að selja grimmt í Bretlandi, tilnefnd til Brit-verð- launa og búin að fá töluverða spil- un á „Thank You“ í Banda- ríkjunum, lag- inu sem hefur að geyma „Stan“-stefið. No Angel fer af stað með „Here With Me“. Byrjar líkt og Portis- head lag, draumkennt og dramatískt en fylgir svo popp- formúlunni. Hefði viljað heyra meira af byrjuninni – mun sterkari en restin af laginu. Næstu tvö lög, „Hunter“ og „Don’t Think of Me“, minna töluvert á Cranberries og Texas þar sem grípandi góð viðlög og góður söngur gera góð popp- lög. Textinn er sérstaklega góð- ur í því síðara þar sem mikil eft- irsjá minnir um margt á biturleik- ann og reiðina gagnvart fyrrverandi maka í „You Oughta Know“ með Alanis Morrisette. „Thank You“ er hins vegar lang- besta lagið á disknum: „My tea’s gone cold, I’m wond- ering why I got out of bed at all. The morning rain clouds up my window and I can’t see at all and even if I could it’d all be grey, but your picture on my wall, it re- minds me that it’s not so bad, it’s not so bad.“ Þetta er línurnar sem gripu milljónir Eminem-aðdáenda um heim allan í laginu um brjálaða aðdáandann „Stan“ og kynnti jafn- framt heimsbyggðina fyrir Dido. „Stan“ er löngu búið en uppruna- lega lagið hennar Dido er farið að heyrast í útvarpinu við miklar vin- sældir. Frábær texti í pottþéttri útsetningu sem einfaldlega situr fastur í höfðinu á manni. „Honestly OK“ fer skemmtilega af stað með löngu og flottum inn- gangi og væri meistari Moby stolt- ur af útsetningunni. „I just want to feel safe in my own skin …“ syngur hún og það situr í manni. Þéttur en hálfdraumkenndur takt- ur líður ljúft áfram en síðan á hár- réttu augnabliki kemur flauelsm- júk rödd Dido inn og setur punktinn yfir i-ið. „All You Want“, „Slide“ og „Iso- bel“, eru ekki eins góð og það fyrr- nefnda. Söngkonan missir sig í slökum lokakafla „Slide“ og „Iso- bel“ er leiðinlega þungt. Vonbrigði miðað við önnur lög á disknum. Engar áhyggjur, Dido bjargar sér fyrir horn með titillaginu „I’m No Angel“. Fersk sjálfskoðun söngkonunnar er grípandi og skemmtileg og í næsta lagi „My Life“ koma Portishead áhrifin aft- ur inn og rödd Dido nýtur sín til hins ýtrasta og hefði maður viljað heyra meira af slíkum útsetning- um á disknum – sem hefði e.t.v. bjargað slakari lögunum. Síðan er óþarft aukalag „Take My Hand“ sem dansblaðran Sister Biss útsetur með systkinunum og það sem fer flott af stað endar í tæplega sjö mínútna leiðindum. Alltof langt og hefði mátt klippa rúmar tvær mínútur af laginu. Lagið er alveg við það að verða einhver sólstrandarsíbylja og það stingur í stúf við önnur lög á disknum. Það fer ekki á milli mála að Dido getur sungið og mörg lög á No Angel bera því vitni að hér er á ferðinni áhugaverð söngkona. Fólk er greinilega hrifið því hún hefur ekki enn gefið út smáskífu í Bret- landi en samt selst breiðskífan í bílförmum og hefur þegar náð toppsæti breiðskífulistans. Miðað við frumraun, er um góð- an grip að ræða þegar á heildina er litið og hann er skemmtilegur á að hlusta. Nokkur misgóð lög skemma ekki fyrir þeim sterkari og hvað mig varðar hlakka ég til að heyra meira frá þessari áhuga- verðu söngkonu. ERLENDAR P L Ö T U R Jón Gunnar Geirdal kannar No Angel, sólóskífu Dido, söngkonunnar sem syngur með Eminem í laginu „Stan“.  Ekki minnast á lagið „Stan“ við Dido. Hlakka til að heyra meira TAMÍR, Síberíu, 26. febrúar 2001. Síbería nær yfir ótrúlega stórt landsvæði og geymir mörg leyndarmál í öruggri geymslu freðmýrarinnar. Eitt þeirra leyndarmála er mammúturinn, löngu útdauð dýrategund, náskyld afríska og indverska fílnum. Á síðustu árum hafa fundist ýmsar menjar um tilveru þeirra en sjaldgæft er eða nánast einsdæmi að fundist hafi heil dýr. Það gerðist þó 1999 þegar fransk/rússneskur leiðangur undir stjórn Bernar Buig gróf upp mammút sem varðveist hafði heill með húð og hári í fleiri þúsund ár. Raunar var það Jarkoff Gavril, maður af ætt- bálki Dolgan, innfæddra íbúa freðmýrarinnar, sem fann skepnuna þegar hann var á veiðiferð árið 1997. Dýrið hefur verið nefnd Jarkoff (borið fram „carkov“) honum til heiðurs. Hann sá eitthvað torkennilegt sem við nánari athugun reyndist vera tennur mammútsins. En það var það eina sem sást af skepnunni. Tennurnar og höfuðkúpuna á mynd- inni sá ég á safni hér í Dudninka en beinin fundust ekki langt héðan (á rússneskan mælikvarða innan við 1000 km). Það er ómögulegt annað en hrífast af þessum feiknaskepnum fortíðar og það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvort vísindamönnum tekst það ætlunarverk sitt að ná heilum DNA-sameindum úr dýrinu. Mér skilst að ef það tekst dreymi vísindamennina um að klóna dýrið með hjálp erfðavísa úr nútímafílum. – Fær mann nú bara til að hugsa um bíómyndinna Jurassic Park. Dagbók ljósmyndara Morgunblaðið/Þorkell Land mammútanna STÚLKNASVEITIN All Saints hef- ur gefið út þá yfirlýsingu að sam- starfið sé komið í salt og verði þar um óákveðinn tíma. Í yfirlýsingunni er líka skýrt tekið fram að þetta þýði ekki hrein endalok All Saints, þær vinkonur þurfi einungis tíma og rúm til þess að ná áttum og jafna ágreining þann sem ríkt hefur á milli þeirra. Auglýstri tónleikaferð í sumar hefur verið aflýst en engar yfirlýsingar hafa verið gefnar út um hvenær eða hvort hægt verður að sjá þær stöllur saman á sviði á næstunni. Þeir sem þekkja náið til samstarfsins fullyrða hinsvegar að ágreiningurinn milli sé svo djúpstæður að það sé ekki möguleiki að þær stöllur geti með nokkru móti unnið sam- an í nánustu framtíð, því þær rífist hreinlega um allt og ekkert þessa dagana og geta ekki verið í sama herberg- inu. Þær eru þegar farnar að vinna að nýju efni í hver í sínu lagi. Appleton systur eru að leggja drög að nýrri plötu saman og sjón- varpsþætti og Shaznay Lewis hefur tekið upp efni með K-Gee og er að vinna með Guy Chamber, sem er hægri hönd Robbie Williams. Saltaðir dýrlingar Það var þá ...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.