Morgunblaðið - 27.02.2001, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík
hafnaði í gær kröfu arkitektastof-
unnar Glámu/Kíms um lögbann við
útboði og forvali um rannsókna- og
nýsköpunarhús við Háskólann á Ak-
ureyri en ráðgert er að opna tilboðin
í dag. Árni Kjartansson, arkitekt hjá
Glámu/Kími, sagði að ákveðið hefði
verið að kæra niðurstöðu sýslu-
manns til Héraðsdóms Reykjavíkur.
„Þessi niðurstaða sýslumanns er
miklu meira en vonbrigði, þetta er
stórmál,“ sagði Árni. „Þetta varðar
okkar hagsmuni sem höfundarrétt-
arhafa.“
Ef héraðsdómur úrskurðar að
sýslumaður hafi gert rangt í því að
hafna lögbannskröfunni verður lög-
bann sett á, en ef úrskurðað verður
að sýslumaður hafi gert rétt mun
málið falla niður. Málið gæti hins
vegar farið alla leið til Hæstaréttar
ákveði arkitektastofan að kæra
væntanlegan úrskurð héraðsdóms.
Telja sig hafa lög-
varinn höfundarrétt
Í Morgunblaðinu 4. febrúar aug-
lýstu Ríkiskaup, fyrir hönd mennta-
málaráðherra, útboð og forval vegna
einkaframkvæmdar á byggingu og
rekstri rannsókna- og nýsköpunar-
hússins sem á að standa á lóð Há-
skólans á Akureyri á Sólborg. Lög-
maður Glámu/Kíms hafði áður
mótmælt fyrirhuguðu útboði með
bréfi og skorað á stjórnvöld að virða
höfundarrétt stofunnar og ganga til
viðræðna við hana áður en frekari
skref yrðu tekin.
Í lögbannskröfunni kemur fram
að með birtingu auglýsingarinnar
hefði fengist endanlega staðfest að
stjórnvöld hygðust ganga gegn höf-
undarrétti Glámu/Kíms. Því hafi
arkitektastofan ákveðið að fara fram
á lögbann. Gláma/Kím byggir kröfu
sína á því að í kjölfar verðlaunatil-
lögu hennar í samkeppni um heild-
arskipulag Háskólans á Akureyri ár-
ið 1996 og samningum um skipulag
og uppbyggingu háskólans, hafi
arkitektastofan öðlast lögvarinn höf-
undarrétt á hönnun er varði heild-
arskipulag Sólborgarsvæðisins og
hönnun hússins.
Í lögbannskröfunni segir: „Hinn
lögvarði réttur tekur ekki eingöngu
til þeirra áfanga sem þegar er lokið
heldur til heildarmyndar svæðisins
samkvæmt þeirri tillögu sem valin
var til útfærslu svæðisins og fylgt
hefur verið við nánari samningsgerð
milli gerðarþola og gerðarbeiðanda
um framkvæmd einstakra áfanga.
Er því ljóst að fyrirhugað útboð á
hönnun rannsóknarhúss mun valda
tjóni á lögvörðum hagsmunum gerð-
arbeiðanda og er hann því knúinn til
að krefjast lögbanns nú svo röskun
verði ekki á þeim hagsmunum.“
Enn fremur kemur fram í lög-
bannskröfunni að ef útboð fari fram
muni aðrir hefjast handa við að
teikna nýtt rannsóknahús eða breyta
hönnun umræddrar byggingar.
„Við það gæti myndast nýr höf-
undarréttur sem yrði staðsettur inni
í hugverki gerðarbeiðanda sem á
höfundarrétt að hönnun og útliti
bæði svæðisins sem og rannsókna-
hússins. Slíkt fyrirkomulag er úti-
lokað enda liggur samþykki höfund-
ar ekki fyrir,“ segir í
lögbannskröfunni.
Arkitektafélag Íslands
styður lögbannskröfuna
Stjórn Arkitektafélags Íslands
hefur lýst yfir stuðningi við lög-
bannskröfuna og telur að um alvar-
legt mál sé að ræða sem varði grund-
vallaratriði í höfundarrétti og að
niðurstaða þess geti verið stefnu-
markandi.
Í orðsendingu frá stjórn Arki-
tektafélagsins segir: „Siðareglur
Arkitektafélags Íslands kveða á um
að félagsmenn skuli ekki ganga í
störf annarra arkitekta fyrr en geng-
ið hafi verið frá samningum við þá á
eðlilegan hátt. Stjórn Arkitekta-
félags Íslands hvetur félaga sína ein-
dregið til að hafast ekki að verði til
þeirra leitað um þátttöku í fyrr-
greindu útboði og forvali og að ljá
ekki máls á slíku fyrr en niðurstaða
er fengin úr væntanlegu dómsmáli.
Stjórnin leggur sérstaka áherslu á
samstöðu félagsmanna í þessu máli.
Annað stríðir gegn hagsmunum
arkitektastéttarinnar.“
Niðurstaða sýslumanns
kærð til héraðsdóms
Lögbannskröfu á byggingu rannsóknahúss við Háskólann á Akureyri hafnað
SPRENGIDAGURINN er runninn
upp með tilheyrandi þjóðarsið,
þ.e. að innbyrða saltkjöt og baun-
ir. Vertíð hefur verið í kjöt-
vinnslum landsins enda talið að
Íslendingar borði nokkur hundr-
uð tonn af saltkjöti og þúsundir
lítra af baunasúpu.
Annríki var í kjötborði Nóatúns
í gær og einn viðskiptavinurinn
tekur hér við vænum poka af
kjöti, þó líklega fyrir meiri fjár-
hæð en túkall.
Morgunblaðið/Golli
Annríki í
kjötsölu
Eignast
tæp 30% í
Slátur-
félaginu
SVÍNABÚIÐ Brautarholti hefur
eignast 23,87% í Sláturfélagi Suður-
lands og Geysir, félag í eigu fram-
kvæmdastjóra svínabúsins, hefur
eignast 5,89% hlut í Sláturfélaginu.
Alls nemur því hluturinn 29,76%.
Um B-deildarbréf er að ræða en
eigendur þeirra njóta skertra rétt-
inda m.a. á aðalfundi en bréfin hafa
forgang á arði, en auk þess er
Svínabúið Brautarholti stærsti ein-
staki eigandi í A-deild stofnsjóðs með
2% eignarhlut. Nafnverð bréfanna er
tæpar 60 milljónir króna en viðskiptin
voru á genginu 1,3 og er kaupverð
bréfanna því tæpar 78 milljónir.
Að sögn Kristins Gylfa Jónssonar,
framkvæmdastjóra Svínabúsins
Brautarholti, eru seljendur bréfanna
m.a. sjóðir í vörslu Kaupþings og líf-
eyrissjóðir. Ekki er ætlunin að koma á
sameiningu Síldar og fisks en svínabú-
ið keypti í júní á síðasta ári 2⁄3 hluta
þess fyrirtækis af systkinunum Katr-
ínu og Skúla Þorvaldsbörnum ásamt
öllum fasteignum Síldar og fisks.
„Þetta er traust og vel rekið félag
og gengi bréfanna mjög hagstætt.
Sláturfélagið fór síðast í hlutafjárút-
boð með B-deildarbréf vorið 1997 og
var útboðsgengið þá 3. Fyrst á eftir
hækkaði gengi bréfanna en hefur síð-
an lækkað mjög mikið og við kaupum
bréfin nú á genginu 1,3. Við teljum því
að um mjög góð kaup sé að ræða og
lítum á þetta sem góða fjárfestingu en
einnig góða stuðningsyfirlýsingu við
vel rekið félag,“ segir Kristinn Gylfi.
Stærsti/21
Lækninga-
forstjóri fari
með ákvörð-
unarvald
STJÓRN Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss fundaði um ákvörðun-
arvald í afhendingu heilsufarsupp-
lýsinga í gærmorgun.
Að sögn Magnúsar Péturssonar,
forstjóra spítalans, voru þessi mál
fyrst og fremst rædd út frá því
hvaða starfsreglur spítalinn mun
setja sér í þessum efnum en ekki
eingöngu með hliðsjón af miðlæg-
um gagnagrunni á heilbrigðissviði.
Drög að slíkum reglum voru lögð
fyrir læknaráð og hjúkrunarráð
sjúkrahússins og óskaði stjórn
spítalans eftir umsögn þeirra um
málið.
Þá fylgdi drögunum lögfræðileg
greinargerð um málið. „Okkur sýn-
ist að lögin tali ansi sterkt fyrir því
að það sé lækningaforstjóri spít-
alans sem eigi að fara með þetta
vald,“ sagði Magnús í samtali við
Morgunblaðið í gær en óskaði að
öðru leyti ekki eftir að tjá sig um
málið.
Farið yfir ágreining
um ráðningu yfirlækna
Skipulagsmál Landspítalans
voru einnig rædd á fundinum í gær
en á föstudag settu læknar fram
gagnrýni á stjórnendur spítalans
fyrir að ganga á svig við lög og að
standa illa og ófaglega að ráðningu
yfirlækna. Að sögn Magnúsar var á
fundinum í gær farið yfir þau mál-
efni sem valda ágreiningi og ákveð-
ið að formaður læknaráðs og lækn-
ingaforstjóri spítalans myndu
hittast á fundi á miðvikudag til að
ræða málið. „Ég held að það sé vilji
af beggja hálfu að reyna að leiða
þetta áfram,“ segir Magnús.
Ekki náðist í Sverri Bergmann,
formann læknaráðs.
Stjórn Landspítalans
fundar um afhendingu
heilsufarsupplýsinga
Bíl hvolfdi
á Óshlíð-
arvegi
FÓLKSBIFREIÐ valt á Ós-
hlíðarvegi á tólfta tímanum í
gær. Ökumaður var einn í bíln-
um og slapp ómeiddur.
Að sögn lögreglunnar á Ísa-
firði var hálka á veginum þegar
óhappið varð. Ökumaðurinn
missti stjórn á bílnum skammt
fyrir utan vegskála í Hvanngili
og hafnaði bíllinn á hvolfi á veg-
inum.
NÝGERÐUR kjarasamningur
leikara Leikfélags Reykjavíkur í
Borgarleikhúsinu var felldur í at-
kvæðagreiðslu í gær með 75%
greiddra atkvæða. Átján leikarar
greiddu atkvæði gegn samningn-
um, sem undirritaður var í síðustu
viku, en sex leikarar samþykktu
hann.
Samningurinn átti að gilda til
fjögurra ára og í honum var gert
ráð fyrir talsverðum breytingum
á uppbyggingu hans, frá því sem
verið hefur.
Meðal nýjunga í samningnum
var að sýningarkaup leikaranna
var fellt inn í dagvinnulaunin sem
áttu þá að hækka verulega. Til
þessa hafa leikarar í Borgarleik-
húsinu verið á dagvinnukaupi og
fengið greitt sérstaklega fyrir
hverja leiksýningu.
Leikarar felldu
nýjan kjarasamning