Morgunblaðið - 24.04.2001, Síða 1
91. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 24. APRÍL 2001
TALSMENN Ísraelsstjórnar sögðu
í gær að hún vísaði ekki algerlega á
bug tillögum sem Egyptar og Jórd-
aníumenn hafa sett fram um nýjar
friðarviðræður en í þeim er gert ráð
fyrir vopnahléi. Á hugmyndunum
væru hins vegar gallar sem þyrfti að
lagfæra. „Mikilvægt er að reynt sé
að þoka hlutunum áleiðis. Frum-
kvæðið getur orðið grundvöllur en
huga þarf nánar að smátriðunum,“
sagði Shimon Peres, utanríkisráð-
herra, er hann ræddi við Louis Mich-
el, utanríkisráðherra Belgíu.
Haldinn var fundur embættis-
manna öryggismála Ísraela og Pal-
estínumanna í gær, að því er kom
fram í yfirlýsingu hinna fyrrnefndu,
og var þar rætt hvernig draga mætti
úr ofbeldi.
Til átaka kom í gær á Gaza-svæð-
inu er gerð var útför palestínsks lög-
reglumanns sem féll í sprengjuárás
er Ísraelar gerðu í liðinni viku. Er
líkið var látið síga í gröfina skutu
nokkrir vopnaðir Palestínumenn 21
skoti upp í loftið til að heiðra minn-
ingu mannsins en þá var, að sögn
sjónarvotta, skotið í átt að líkfylgd-
inni frá herstöð við landnemabyggð
gyðinga í grenndinni. 12 ára drengur
féll og 11 manns særðust.
Sprengja sprakk í verkamanna-
hverfinu Or Yehuda austan við Tel
Aviv í gær og særðust fjórir lítillega.
Á sunnudag framdi hermdarverka-
maður sjálfsvíg með því að sprengja
sig í strætisvagni í borginni Kfar
Saba, skammt frá Tel Aviv. Auk
hans lét ísraelskur læknir lífið og um
60 manns slösuðust.
Varnarmálaráðherra Ísraels,
Benjamin Ben-Eliezer, gaf í skyn í
sjónvarpsviðtali á sunnudagskvöld
að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, réði að tjaldabaki hvort
gerðar væru árásir á Ísraela og gæti
stöðvað þær ef hann vildi.
AP
Þúsundir Palestínumanna fylgdu í gær lögreglumanninum Mahdi Mahdi til grafar á Gaza en hann féll í liðinni
viku. Margir flúðu í ofboði er ísraelskir hermenn skutu að líkfylgdinni,12 ára drengur féll. Hermennirnir sögðu
að skotið hefði verið að þeim en nokkrir Palestínumenn sýndu Mahdi virðingu með því að skjóta upp í loftið.
Mannskæð átök við útför Palestínumanns á Gaza
Ísraelar lýsa áhuga
á friðartillögum
Jerúsalem. AP, Reuters.
DANSKA sjónvarpsstöðin TV Dan-
mark dró í gær þrjá fyrrum þátt-
takendur í sjónvarpsþættinum
„Stóra bróður“ fyrir rétt og sakaði
þá um samningsbrot. Mikið hefur
gengið á í þáttunum, sem hófust í
janúar sl., en um páskana stungu
þremenningarnir af úr þáttunum.
Með málshöfðuninni hyggst TV
Danmark koma í veg fyrir að þeir
tjái sig um þátttökuna fyrr en þátt-
unum lýkur.
Dómsmálið hófst í gær og að
kröfu sjónvarpsstöðvarinnar fer
það fram fyrir luktum dyrum.
Ástæðuna segir hún vera að ýmis
atriði er varði framleiðsluna megi
ekki koma fram. Lögmenn þre-
menninganna kröfðust þess hins
vegar að réttarhaldið yrði opið þar
sem þeir byggju ekki yfir neinum
leyndarmálum og að þeir vildu fá
að verja sig í fjölmiðlum.
Málið allt er farsakennt; allir sjö
þátttakendurnir klifruðu fyrir viku
í skjóli nætur yfir girðinguna sem
umlykur upptökustaðinn en fjórir
ákváðu hins vegar að snúa aftur
eftir miklar fortölur. Slökkt var á
upptökuvélunum í tæpan sólar-
hring á meðan á þessu stóð en regl-
an hefur hingað til verið órofin út-
sending.
Til að halda í fjórmenningana
hefur sjónvarpsstöðin brotið flestar
reglur þáttanna, sem m.a. banna öll
samskipti við vini og ættingja. Öll
fengu þau heimsókn í húsið, mat að
eigin ósk o.fl. Þremenningarnir
sem héldu á brott eiga hins vegar
yfir höfði sér fjársektir, vinni TV
Danmark málið á hendur þeim.
Þá hefur sálfræðingi, sem hefur
yfirumsjón með andlegu heilbrigði
þátttakendanna, verið hótað brott-
rekstri úr danska sálfræðifélaginu,
þar sem hann þótti tjá sig of opin-
skátt um andlegt ástand þeirra.
Hefur hann lýst því yfir að þurfi
hann að velja muni hann taka sjón-
varpsþáttinn fram yfir félagið.
„Stóri bróðir“ kærir
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
LITLU munaði á fylgi stuðnings-
manna stjórnarflokkanna og and-
stæðinga sambandsslita við Serbíu í
þingkosningunum sem fram fóru í
Svartfjallalandi á sunnudag. Er búið
var að telja nær 99% atkvæða höfðu
stjórnarflokkarnir fengið um 42% at-
kvæða en andstæðingar þeirra
40,7%. Frjálslynda bandalagið, sem
er utan stjórnar og vill sjálfstæði
eins og stjórnarflokkarnir, fékk 7,6%
og því ljóst að sjálfstæðissinnar eru
með meirihluta á þingi. Fögnuðu
þeir því ákaft sigri í höfuðborginni
Podgorica í gær en andstæðingar
þeirra jafnvel enn meira vegna þess
að árangur þeirra var betri en spáð
hafði verið.
Niðurstaðan er nokkur vonbrigði
fyrir sjálfstæðissinna en kannanir
höfðu gefið til kynna að þeir myndu
vinna mun stærri sigur. Stjórnar-
flokkarnir verða að líkindum með
jafnmörg þingsæti og áður, 35, en
andstæðingar sjálfstæðis 33. Milo
Djukanovic, forseti Svartfjallalands,
vill þjóðaratkvæði í sumar um sjálf-
stæði en jafnframt að Svartfellingar
og Serbar, sem mynda sambandsrík-
ið Júgóslavíu, eigi með sér náið sam-
starf á nokkrum sviðum.
Til að breyta stjórnarskránni þarf
tvo þriðju af 77 þingsætum eða 52 og
skortir sjálfstæðissinna nokkur sæti
upp á slíkan aukinn meirihluta.
Vesturveldin studdu lengi Djuk-
anovic vegna andstöðu hans við
stefnu Slobodans Milosevic, fyrrver-
andi Júgóslavíuforseta, en óttast nú
að sambandsslitin geti valdið átök-
um. Utanríkisráðherra Þýskalands,
Joschka Fischer, varaði við skyndi-
ákvörðunum um sjálfstæði Svartfell-
inga og hvatti þá til að reyna að
semja við Serba um að Júgóslavía
héldi velli. Bandaríkjamenn tóku í
gær í sama streng. Anna Lindh, ut-
anríkisráðherra Svíþjóðar, sem er
forysturíki Evrópusambandsins
þetta misserið, benti á að Svartfell-
ingar væru klofnir í málinu. Ef þeir
segðu sig úr lögum við Júgóslavíu
gæti það valdið blóðsúthellingum
víða á Balkanskaga.
Fulltrúar Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu, ÖSE, sem fylgd-
ust með framkvæmd kosninganna,
sögðu þær hafa farið vel fram. Kjör-
sókn var rúmlega 80% og er búist við
endanlegum tölum á fimmtudag.
Kosningaúrslitin í Svartfjallalandi
Spá þrátefli um
sambandsslit
Podgorica, Belgrad. AP, AFP, The Daily Telegraph.
AP
Sjálfstæðissinni í Svartfjalla-
landi veifar gömlum fána í gær.
Úrslitin vekja/28
SAKSÓKNARAR í Frankfurt
tilkynntu í gær að fallið yrði frá
frekari rannsókn á ásökunum
þess efnis að Joschka Fischer,
utanríkisráðherra Þýzkalands,
hefði gerzt sekur um að segja
ósatt er hann bar vitni í rétt-
arhaldi í vetur yfir fyrrverandi
pólitískum samherja sínum,
Hans-Joachim Klein.
Talsmaður saksóknara í
Frankfurt, Petra Bertelsmeier,
sagði að ekki væru næg sönn-
unargögn fyrir hendi.
Réttað var yfir Klein vegna
þátttöku hans í hryðjuverka-
árás á ráðherrafund OPEC í
Vínarborg árið 1975. Réttar-
höldin beindu kastljósinu að
fortíð ráðherrans sem virks
vinstriöfgamanns uppúr 1970.
Meint ljúgvitni
Joschka Fischers
Rannsókn
hætt
Berlín, Frankfurt. AP, Reuters.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur að sögn embættismanna
ákveðið að selja Taívönum ekki
tundurspilla með háþróuðum Aegis-
flugskeytavarnarbúnaði. Í staðinn fá
þeir skip af svonefndri Kidd-gerð
sem eru ekki jafn öflug vopn. Að
sögn BBC fór Bush að tillögu
Donalds Rumsfelds varnarmálaráð-
herra í málinu.
Stjórn Kína hefur lýst harðri and-
stöðu við söluna á Aegis-tundurspill-
um. Segir hún að salan muni spilla
samskiptum ríkjanna. Kínverjar
álíta að Taívan sé uppreisnarhérað
og hafa hótað að leggja eyjuna undir
sig með vopnavaldi ef Taívanar lýsi
yfir fullu sjálfstæði.
Fulltrúar bandarískra stórfyrir-
tækja hafa varað við áhrifunum á
viðskipti við Kína ef Taívanar fengju
að kaupa umrædd herskip en margir
herskáir repúblikanar vilja hunsa
mótmæli Kínastjórnar.
Varnir Taívans
Fá ekki
Aegis-
tundur-
spilla
♦ ♦ ♦