Morgunblaðið - 24.04.2001, Page 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Dagskrá Alþingis þriðjudaginn 24.
apríl 2001 hefst kl. 13:30.
Atkvæðagreiðslur:
1. Árósarsamn. um aðgang að upp-
lýsingum.
2. Samn. um verndun norðaustur
Atlantshafssins.
3. Genfarsamn. um skráningu
hönnunar á sviði iðnaðar.
4. Menntun og þjálfun, skírteini og
vaktstöður áhafnar fiskiskips.
5. Girðingarlög.
6. Landgræðsluáætlun 2002-2013.
7. Smitsjúkdómavarnir og eftirlit
með innfl. matvælum og aðföng-
um.
Önnur mál:
8. Stéttarfélög og vinnudeilur.
9. Lækningatæki.
10. Samningur um bann við notkun
jarðsprengna.
11. Samningur um allsherjarbann
við tilraunum með kjarnavopn.
12. Staða, stjórn og starfshættir
þjóðkirkjunnar.
13. Dýrasjúkdómar.
14. Barnalög.
15. Umgengni um nytjastofna
sjávar.
16. Bókasafnsfræðingar.
17. Fjarskipti.
18. Almenn hegningarlög.
19. Meðferð opinberra mála.
20. Skylduskil til safna.
21. Viðurkenning á menntun og
prófskírteinum.
22. Leikskólar.
23. Framhaldsskólar.
24. Grunnskólar.
25. Kvikmyndalög.
26. Grunnskólar.
27. Útvarps- og sjónvarpssendingar
á öll heimili á Íslandi.
28. Rekstur Ríkisútvarpsins.
29. Ný námsbraut við Sjómanna-
skóla Íslands.
ALLS voru 1.186 liðsmenn Banda-
ríkjaflota í varnarliðinu á Keflavíkur-
velli 31. mars sl. Af þeim voru 635 úr
flugher, 2 úr landher og 52 land-
gönguliðar flotans. Engar áætlanir
liggja fyrir um fækkun í varnarliðinu
á næstunni. Þetta kom fram í svari
Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra á Alþingi við fyrirspurn Þór-
unnar Sveinbjarnardóttur, Samfylk-
ingunni, um starfsemi Keflavíkur-
stöðvarinnar og framkvæmd varnar-
samningsins.
Í svari utanríkisráðherra kemur
fram að starfsemi Keflavíkurstöðvar-
innar sem slíkrar hafi ekki tekið
breytingum frá því bókun um
varnarsamstarf Íslands og Banda-
ríkjanna var staðfest árið 1996. Hins
vegar hafi orðið breyting á her-
stjórnarskipulagi Atlantshafsbanda-
lagsins sem tók gildi 1998. Hún feli í
sér aukin tengsl varnarliðsins við
höfuðstöðvar Atlantshafsbandalags-
ins í Northwood í Bretlandi (Allied
Command Eastern Atlantic, EAST-
LANT).
Íslenska loftvarnakerfið saman-
stendur af fjórum ratsjárstöðvum
ásamt tilheyrandi fjarskiptabúnaði og
stjórnstöðvum sem fylgjast með flug-
umferð. Hús ratsjár-, stjórn- og fjar-
skiptastöðvanna, svo og skýli orrustu-
flugvélanna, eru sérstaklega styrkt til
að takmarka skemmdir af völdum
sprenginga. Orrustuþotur varnarliðs-
ins (F-15) eru búnar litlum flugskeyt-
um og byssum gegn flugvélum. Eft-
irlitsflugvélar varnarliðsins (P-3) eru
hýstar í flugskýli af hefðbundinni
gerð. Þær geta borið tundurskeyti
gegn kafbátum og lítil flugskeyti
gegn skipum og skotmörkum á landi.
Að því er fram kemur í svari ráð-
herra, hefur einu sinni gerst að orr-
ustuþotur á Keflavíkurflugvelli hafi
flogið til móts við erlendar herflug-
vélar frá árinu 1996 og gerðist það ár-
ið 1999.
Fjórar HH-60G Pavehawk bryn-
varðar björgunarþyrlur og ein
HC-130 Hercules fjarskipta- og elds-
neytisvél eru í flugflota varnarliðsins
til aðstoðar við leit og björgun. Um-
ræddur flugkostur gegnir einnig mik-
ilvægu borgaralegu björgunarhlut-
verk á sjó og landi í samstarfi við
Landhelgisgæsluna.
Ýmsar endurbætur gerðar á
vellinum undanfarin ár
Fram kemur í svari utanríkisráð-
herra að frá árinu 1996 hafa verið
gerðar ýmsar endurbætur á flugvall-
ar- og varnarmannvirkjum á Kefla-
víkurfugvelli, íbúðum, þjónustu- og
starfsaðstöðu varnarliðsmanna og
fjölskyldna þeirra. Eitt flugskýli var
endurnýjað frá grunni, nýtt verk-
stæði reist til viðhalds á vopnabúnaði
flugvéla flotans, níu stórir íbúðarskál-
ar hermanna voru endurnýjaðir frá
grunni, auk tíu fjölskylduíbúða. Verið
er að endurnýja lendingarljósabúnað
flugvallarins og áætluð er áframhald-
andi endurnýjun á íbúðar- og þjón-
ustuhúsnæði, viðhald á flugbrautum,
lagning skolpræsis í sjó fram í sam-
vinnu við Reykjanesbæ og endurnýj-
un á vopnageymslum varnarliðsins á
Patterson-flugvelli.
Samkvæmt upplýsingum frá varn-
arliðinu nam árlegur heildarkostnað-
ur við rekstur varnarstöðvarinnar á
Keflavíkurflugvelli að meðaltali um
27 milljörðum króna (300 milljónum
Bandaríkjadala) á árunum 1997–99
og er þar meðtalinn rekstur Keflavík-
urflugvallar. Skiptist sá kostnaður
þannig að vinnulaun, þ.m.t. til her-
manna, námu 95.524.000 dölum, efni
15.560.000 dölum, verksamningar
59.095.000 dölum, verkefni 29.696.000
dölum og annað 99.935.000 dölum.
Í svari Halldórs Ásgrímssonar ut-
anríkisráðherra kemur einnig fram
að ríkisstjórnin hefur engin áform
þess efnis að óska eftir breytingum á
fjölda orrustuflugvéla og kafbátaleit-
arvéla varnarliðsins í Keflavík.
Utanríkisráðherra segir engar áætlanir um fækkun í varnarliðinu
1.186 liðsmenn Banda-
ríkjaflota eru í Keflavík
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði á Alþingi í gær, að málefni
Þjóðhagsstofnunar væru enn í
skoðun og nefnd undir stjórn Ólafs
Davíðssonar, ráðuneytisstjóra í
forsætisráðuneytinu, hefði haft
þessi mál með höndum að und-
anförnu. Hann upplýsti að málefni
stofnunarinnar hefðu tvívegis
komið til umræðu í ríkisstjórn.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir, þingmaður Samfylkingarinnar,
innti forsætisráðherra eftir svör-
um um áform sín varðandi Þjóð-
hagsstofnun í fyrirspurnatíma og
minnti á að ráðherrann hefði nán-
ast sett stofnunina af í fjölmiðlum
á dögunum. Vildi hún fá að vita
hvenær ráðherra gerði ráð fyrir að
leggja stofnunina niður og þá hve-
nær frumvarp um slíkt yrði lagt
fram.
Davíð Oddsson svaraði því til að
Þjóðhagsstofnun og hugmyndir
um breytingu á rekstri hennar
hefðu tvívegis verið rædd með efn-
islegum hætti innan ríkisstjórnar-
innar, fyrst í fyrra í tengslum við
ársfund Seðlabankans og síðan í
fyrra mánuði. Sagði hann unnt að
gera breytingar á starfsemi stofn-
unarinnar í samræmi við núgild-
andi lög, en hins vegar væri það
sín skoðun að áður en endanlega
verði ákveðið um niðurlagningu
Þjóðhagsstofnunar, verði sú nið-
urstaðan, að þá þurfi þau mál að
ræða með formlegum hætti í rík-
isstjórn og á Alþingi.
Sagði forsætisráðherra augljóst
að þessi mál komi ekki til kasta
þingsins í vor, það verði ekki fyrr
en á haustmánuðum.
Málefni
Þjóðhagsstofnunar
Ekki
frumvarp
fyrr en
í haust
ÞINGFLOKKUR Framsóknar-
flokksins tilnefndi í gær Ólaf Örn
Haraldsson, fyrsta þingmann
flokksins í Reykjavík, sem for-
mann fjárlaganefndar Alþingis í
stað Jóns Kristjánssonar sem tek-
ið hefur við embætti heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra.
Enn á eftir að ráðstafa sætum
þeim sem Jón Kristjánsson hefur
haft með höndum í heilbrigðis-
nefnd og utanríkisnefnd, en það
verður gert á næstu dögum, að
sögn Kristins H. Gunnarssonar,
formanns þingflokks Framsóknar-
flokksins.
Þá hefur heldur ekki verið
ákveðið hver taki við formennsku í
umhverfisnefnd Alþingis, en þeirri
nefnd hefur Ólafur Örn stýrt.
Hann er einnig varaformaður
menntamálanefndar og félags-
málanefndar og á sæti í allsherj-
arnefnd. Ekki er ljóst á þessu stigi
hvort breyting verður á þeirri til-
högun.
Ólafur Örn er fyrst-
ur þingmanna Reykja-
víkur til þess að verða
formaður fjárlaga-
nefndar, en það emb-
ætti er jafnan talið
eitt hið annasamasta í
nefndastörfum Al-
þingis. Hann var ekki
viðstaddur fund þing-
flokksins í gær, þar
sem hann er staddur í
Strassborg á fundi
Evrópuráðsins, en
sagðist í samtali við
Morgunblaðið ákveð-
inn í að sinna þessu
embætti af samvisku-
semi.
„Það var auðvitað ljóst að þetta
umfangsmikla embætti losnaði
með því að Jón Kristjánsson yrði
ráðherra og mér var boðið það.
Eftir sólarhrings umhugsun ákvað
ég að láta slag standa og taka boð-
inu,“ sagði Ólafur Örn og bætti við
að hann hefði borið
þennan ráðahag undir
fjölda manns, bæði
innan fjárlaganefnd-
arinnar og utan.
Þeirra á meðal væri
Jón Kristjánsson.
Mun beita mér
fyrir landið allt
„Ég skoðaði þetta
mál mjög rækilega og
mun hefja þessa
vinnu af krafti um
leið og ég kem heim.
Það er ljóst að fyrstu
drög að fjárlögum
koma til skoðunar á
vordögum og verða
síðan til vinnslu í sumar. Aðaltörn-
in hefst síðan í haust og stendur
fram eftir árinu,“ sagði Ólafur Örn
og sagði þá sem til þekkja segja
formennsku í fjárlaganefnd vera
afar annasamt starf, en hann
kveinki sér ekki undan því.
„Nefndin hefur yfir mjög góðu
starfsfólki að ráða og ég hlakka til
að takast á við þessi verkefni.“
Framsóknarmenn í Reykjavík
höfðu uppi óskir um að ráðherra-
stóll sá sem losnaði við brotthvarf
Ingibjargar Pálmadóttur úr emb-
ætti heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra færi til þingmanns
Reykjavíkur, en varð ekki að ósk
sinni. Það liggur því beinast við að
spyrja Ólaf Örn hvort hann telji að
formennska í fjárlaganefnd sé ætl-
uð sem smyrl á sár flokksmanna í
höfuðborginni.
„Ég skal ekki meta hvort svo er.
Það er ljóst að með þessu er fram-
sóknarmönnum í Reykjavík falin
mikil ábyrgð. Með þessu má því ef
til vill segja að Framsóknar-
flokkurinn viðurkenni mikilvægi
borgarinnar sem kjördæmis. En
það mun ekki skipta höfuðmáli í
störfum nefndarinnar og ég mun
beita mér fyrir landið allt,“ sagði
hann.
Ólafur Örn Haraldsson
formaður fjárlaganefndar
Ólafur Örn
Haraldsson
MAGNÚS Stefánsson tók sæti á Al-
þingi í gær sem 2. þingmaður Vest-
urlands með því að Ingibjörg
Pálmadóttir sagði af sér þing-
mennsku í gær með bréfi til forseta
Alþingis.
Magnús er ekki ókunnugur störf-
um Alþingis, hann hefur setið þetta
kjörtímabil sem varaþingmaður og
var þingmaður Framsóknarflokks-
ins í Vesturlandskjördæmi á ár-
unum 1995 til 1999. Hann gegnir
ennfremur stöðu framkvæmda-
stjóra Heilbrigðisstofnunar Suður-
lands.
Áður en þingfundur hófst í gær
buðu þingmenn Magnús velkominn
aftur til leiks á löggjafarsamkund-
unni. Hér eru það Guðni Ágústsson,
landbúnaðarráðherra, og Kristján
Pálsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, sem fagna nýja þing-
manninum. Að baki sjást sam-
fylkingarmennirnir Karl V.
Matthíasson og Einar Már Sigurð-
arson. Morgunblaðið/Árni SæbergFundir á Alþingi.
Magnús
aftur á þing
♦ ♦ ♦