Morgunblaðið - 24.04.2001, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 11
HUGMYNDIR eru uppi um að
reisa alhliða verslunar- og þjón-
ustumiðstöð við Sunnumörk í
Hveragerði, við þjóðveg 1,
skammt frá Eden.
Bæjarstjórn hefur falið Hálf-
dáni Kristjánssyni bæjarstjóra að
kynna líklegum fjárfestum fyr-
irhugaða byggingu 3 þúsund fer-
metra verslunarmiðstöðvar. Gert
er ráð fyrir að vinnu þar að lút-
andi ljúki í maílok. Þegar hafa
fyrirspurnir borist vegna lóð-
arinnar. Frétt birtist um málið
hér í blaðinu á sunnudag en hér
birtist kort sem sýnir fyrirhug-
aða staðsetningu.
Að sögn Hálfdáns hefur bærinn
mikinn áhuga á því að við Sunnu-
mörk rísi verslunar- og þjón-
ustumiðstöð sem rúmi þá
þjónustu sem sveitarfélög al-
mennt bjóði. Þess er vænst að
miðstöðin hýsi banka, mat-
vöruverslun, byggingarvöruversl-
un, upplýsingamiðstöð, vínbúð,
veitingasölu og hugsanlega fleiri
verslanir.
&#
'!%
(
)
*% "%+
,#
Áform um versl-
unarmiðstöð
í Hveragerði
Verslunarmiðstöðinni er ætlaður staður við Sunnumörk í Hveragerði.
FINNBJÖRN A. Hermannsson,
formaður Samiðnar, segir að hús-
næðismál hafi verið ofarlega á baugi
á þingi samtakanna á Grand Hóteli
um síðustu helgi og þar hafi komið
fram að ungt fólk og tekjulægra fólk
er að lenda í gildru vegna fyrir-
komulagsins á þeim málum og sjái
ekki fram á tækifæri til að eignast
húsnæði.
„Eins og kerfið er uppbyggt í dag
er nauðsynlegt að leggja fram eigið
fé til íbúðarkaupa sem ungt fólk og
tekjulægra fólk á ekki. Það nær því
ekki að koma sér upp húsnæði.
Margir fara út á leigumarkaðinn
sem er skelfilegur í augnablikinu.
Við horfum því til þess að menn eru
að lenda í þeirri gildru að geta ekki
verið í öruggu húsnæði,“ segir Finn-
björn.
Hann bendir á að áður en vaxta-
bótakerfið var tekið upp hafi verið
við lýði niðurgreidd lán til ákveðinna
hópa. Samiðn leggur til að vaxtabæt-
ur verði greiddar í formi niður-
greiddra lána til þessa hóps um leið
og hann festir kaup á húsnæði. Þetta
myndi hjálpa mörgum til að eignast
húsnæði. Finnbjörn sagði að þetta
myndi kalla á talsverða kerfisbreyt-
ingu en augljóst væri að gera þyrfti
breytingu í þessa veru.
Atvinnuáætlun skortir
Einnig voru atvinnumál til um-
ræðu á þinginu og sagði Finnbjörn
að skortur væri á atvinnuáætlun af
hálfu hins opinbera til lengri tíma
sem atvinnulífið gæti lagað sig að.
„Einnig viljum við að ríkið haldi að
sér höndum þegar þensla er mikil og
komi inn á markaðinn á dauðum tím-
um. Auk þess viljum við sjá öflugri
stuðning við atvinnulífið úti á landi.
Við teljum ekki að verið sé að bjarga
íslensku atvinnulífi þegar verið er að
færa örfá fyrirtæki frá Reykjavík út
á land. Við lítum á Ísland sem eitt
atvinnusvæði og við erum að tapa
bæði fólki og störfum úr landi. Við
viljum því að fyrirtæki sem setjast
að úti á landi fái fyrirgreiðslu svo
þau dragi ekki stofnkostnaðinn,
menntunarkostnaðinn og þróunar-
kostnað eilíflega á eftir sér,“ segir
Finnbjörn.
Húsnæðismál ofarlega á baugi á þingi Samiðnar um síðustu helgi
Ungt fólk í erfiðleikum með
að koma sér upp húsnæði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá þingi Samiðnar á Grand Hóteli um síðustu helgi.
ÞRÍR refsifangar á Litla-Hrauni
hafa verið ákærðir fyrir að hafa
undir höndum lítilræði af fíkniefn-
um. LSD fannst hjá tveimur
þeirra en hass hjá þeim þriðja.
Samkvæmt upplýsingum frá
embætti sýslumannsins á Selfossi
koma endrum og sinnum upp
fíkniefnamál í fangelsinu á Litla-
Hrauni.
Þrír refsi-
fangar
ákærðir
ELDUR kviknaði í timburstæðu í
Hafnarfjarðarhöfn í hádeginu í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
var dekkjastafli við hlið timbursins.
Slökkviliðinu tókst að koma í veg
fyrir að eldurinn næði að læsa sig í
dekkin. Að sögn slökkviliðs slapp
þetta tiltölulega vel en dekkin sviðn-
uðu þó aðeins. Grunur leikur á að um
íkveikju hafi verið að ræða.
Eldur í timb-
urstæðu
♦ ♦ ♦
GIEDRIUS Cekuolis, varautanrík-
isráðherra Litháen, mun í dag eiga
fundi með Halldóri Ásgrímssyni
utanríkisráðherra, embættismönn-
um utanríkisráðuneytisins og for-
sætisráðuneytisins auk þess sem
hann hittir fulltrúa utanríkismála-
nefndar Alþingis.
Megintilgangur heimsóknar
Cekuolis er að leita eftir stuðningi
við aðild Litháen að Atlantshafs-
bandalaginu og kynna með hvaða
hætti unnið sé að undirbúningi að-
ildar landsins að því. Litháen tek-
ur þátt í aðgerðaáætlun umsókn-
arríkja Atlantshafsbandalagsins
sem samþykkt var á leiðtogafundi
bandalagsins í Washington 1999.
Níu ríki hafa sótt um aðild að
bandalaginu, þar á meðal Eystra-
saltsríkin þrjú.
Varautanrík-
isráðherra
Litháen
í heimsókn
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
STUTT
FJALLAÐ hefur verið um mögu-
legar skattalækkanir í ríkisfjár-
málanefnd ríkisstjórnarinnar. Er
þar einkum horft til eignarskatta
einstaklinga og fyrirtækja og
tekjuskatta fyrirtækja, en Davíð
Oddsson forsætisráðherra segir að
helst ætti að fara með hann niður
fyrir 20% .
Davíð sagði í samtali við Morg-
unblaðið að á undanförnum árum
hefðu verið gerðar ýmsar breyt-
ingar á skattkerfinu. Í fyrsta lagi
hefðu aðstöðugjöld verið aflögð,
sem hefði hjálpað fyrirtækjum
heilmikið. Síðan hefði ríkisstjórnin
snúið sér að því að lækka skatta
einstaklinga og einnig hefðu skatt-
ar á fyrirtæki verið lækkaðir. Þá
hefðu barnabætur verið hækkaðar
og nú síðast í tengslum við endur-
skoðun kjarasamninga hefði verið
ákveðið að verja 1.200 milljónum
kr. í það að hækka persónuafslátt-
inn.
Davíð sagði að nú fyndist þeim
nauðsynlegt að huga að sköttum
fyrirtækja á nýjan leik. Við hefðum
verið komnir á nokkuð gott ról í
þeim efnum í öllum samanburði.
Síðan hefðu aðrir fetað í þessi
sömu fótspor, þannig að við værum
ekki lengur framar öðrum í þess-
um efnum og um sumt værum við
aftarlega til að mynda varðandi
eignarskattinn bæði gagnvart ein-
staklingum og fyrirtækjum.
„Við höfum viljað skoða þessa
þætti og hvað við gætum gert
varðandi eignarskatt bæði hjá fyr-
irtækjum og einstaklingum og eins
varðandi tekjuskattinn,“ sagði
Davíð.
Hann sagði að engar tölur hefðu
verið nefndar í þessum efnum, en
að hans mati ætti að hugsa til
framtíðar, því við gætum fengið
miklar tekjur ef við gættum þess
að hafa skattprósentuna lága þann-
ig að hún myndi draga að fyr-
irtæki.
Hann sagði að helst ætti að fara
með tekjuskatt fyrirtækja niður
fyrir 20%. Fyrirtækin væru að
reyna að standa undir háum launa-
kostnaði, en kaupmáttur hefði auk-
ist mikið. Þetta myndi einnig
skapa skilyrði fyrir því að hluta-
fjármarkaðir styrktust þar sem
möguleikar til hagnaðar í fyrir-
tækjum myndu aukast. En hann
væri líka sannfærður um að skatt-
tekjurnar myndu aukast eins og
þegar skattprósenta fyrirtækja
hefði verið lækkuð á sínum tíma.
Davíð sagði að einnig væri verið
að skoða hluti eins og stimpilgjöld,
eins og komið hefði fram.
Hann sagði að tillögur í þessum
efnum yrðu ekki lagðar fram fyrr
en í haust og myndu þá miðast við
næsta fjárlagaár.
Hækka þarf gólf
hátekjuskatts
Aðspurður um hátekjuskatt á
einstaklinga og tekjuviðmið hans
og að hann hefði ekki haldið í við
þróun kaupmáttar, sagði Davíð, að
hátekjuskatturinn væri ekki mjög
nútímalegur skattur og ætti
kannski að fara, en það gæti verið
pólitískur ágreiningur um það. Alla
vega væri ljóst að eins og hann
væri innheimtur nú væri hann
millitekjuskattur og varla það. Því
væri óhjákvæmilegt að hækka að
minnsta kosti gólfið í þeim efnum.
Davíð Oddsson forsætisráðherra um mögulegar skattalækkanir
Tekjuskattur
fyrirtækja helst
niður fyrir 20%
KOREA Ginseng Corp., sem fram-
leiðir rautt eðalginseng og selur til
Íslands, hefur stefnt Heilsuverslun
Íslands fyrir Héraðsdóm Reykjavík-
ur vegna fullyrðinga sem fram koma
í auglýsingu frá Heilsuverslun Ís-
lands 11. febrúar sl.
Krefst fyrirtækið þess að fullyrð-
ingar í auglýsingu stefnda verði
dæmdar dauðar og ómerkar enda
hafi þær valdið sér fjárhagslegu
tjóni. Stefnt er fyrir fullyrðingar í
auglýsingunni þess efnis m.a., að í
Kóreu sé jarðvegur oft bættur kem-
ískum efnum, bæði skordýraeitri og
tilbúnum áburði. Þar sem örveru-
fræðilegt jafnvægi sé ekki til staðar
verði ginsengið mun viðkvæmara
fyrir skaða af völdum skordýra og
sveppa og kalli það á enn frekari
notkun skordýraeiturs.
Stefnandi krefst greiðslu máls-
kostnaðar úr hendi stefnda auk 250
þúsund króna til að standa straum af
birtingu dóms.
Stefnt fyrir
fullyrðingar
í auglýsingu