Morgunblaðið - 24.04.2001, Síða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Opið mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9–12 og 16–20,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 9–16.
Æfingabekkir Hreyfingar
Ármúla 24, sími 568 0677
Er vöðvabólga að hrjá
þig í baki, öxlum eða
handleggjum?
Stirðleiki í mjöðmum
og þreyta í fótum?
Vantar þig aukið
blóðstreymi og þol?
Þá hentar æfingakerfið
okkar þér vel.
Reynslan hefur sýnt að
þetta æfingakerfi hentar
sérlega vel fólki á öllum
aldri, sem ekki hefur
stundað einhverja líkams-
þjálfun í langan tíma. Sjö
bekkja æfingakerfið liðkar
styrkir og eykur blóð-
streymi til vöðvanna. Hver
tími endar á góðri slökun.
Við erum einnig
með göngubraut,
þrekstiga og tvo
auka nuddbekki.
Getur eldra fólk notið góðs af þessum bekkjum?
Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg, liðkar og gefur góða slökun.
Og er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk.
Vortilboð
:
12 tímar
kr. 6.500
„Ég er með slitgigt og beinþynningu. Ég
tel að æfingabekkirnir hafi haft mjög góð
áhrif á þessa sjúkdóma. Ráðlegg ég öllum
sem eru með gigt að reyna þá.“
Guðrún Þorsteinsdóttir
„Fyrir 8 árum var ég svo slæm í baki að ég
varð að vera í bakbelti og gat ekki verið í
leikfimi. Æfingabekkirnir hafa hjálpað mér
mikið.“
Vigdís Guðmundsdóttir
Frír kynningartími
SAMFARA því að bráðlega þarf að
hyggja að endurbótum á þaki Hótels
Borgar vilja eigendur hótelsins nota
tækifærið, koma fyrir lyftuhúsi á
efstu hæðinni og bæta við herbergj-
um. Sótt hefur verið um leyfi til
Reykjavíkurborgar um að gera þess-
ar breytingar og hafa jákvæð við-
brögð borist frá skipulagsnefnd og
byggingarnefnd að ákveðnum skil-
yrðum uppfylltum, en fleiri nefndir
koma reyndar að málinu.
Heiður Gunnarsdóttir hótelstjóri
segir að verið sé að kanna alla mögu-
leika en málið sé í biðstöðu og fáist
samþykki á viðkomandi stöðum fyrir
breytingunum verði sennilega ekki
ráðist í framkvæmdir fyrr en í fyrsta
lagi að tveimur árum liðnum.
Fyrst og fremst er verið að skoða
hvort hægt sé að hækka þakið en við
það skapast aukið rými fyrir lyftu-
hús og herbergi. Heiður segir að að-
eins sé um þreifingar að ræða og
engin ákvörðun hafi verið tekin um
framkvæmdir en Ívar Guðmundsson
arkitekt hafi verið fenginn til að gera
tillögur um hugsanlegar breytingar.
Nú eru tvö herbergi á efstu hæð-
inni og geymslur. Með því að hækka
þakið verður hægt að bæta fjórum til
fimm herbergjum við, en ekki er fyr-
irhugað að breyta turnherberginu.
Lyfta hótelsins nær upp á fjórðu
hæð fyrir ofan jarðhæðina og segir
Heiður að vegna nýrra reglna um
stjörnugjöf og annað sé mikilvægt að
gestir hafi aðgang að lyftu á öllum
hæðum, en til að það verði hægt
verði að lyfta þakinu. Fyrsta um-
sóknin vegna málsins var send
Reykjavíkurborg í janúar sl., önnur í
febrúar og sú þriðja í aprílbyrjun.
Heiður segir að aðalatriðið sé að líta
á málið í heild og hafa skipulag og
hagkvæmni að leiðarljósi. Svona
framkvæmdir kosti líka sitt og því sé
ekki verið að tala um að ráðast í þær
strax heldur sé frekar um framtíð-
arsýn að ræða.
Hún segir að húsið sé orðið 71 árs
gamalt og það sé fullur hugur allra
að vernda eins og hægt er uppruna-
legt útlit hótelsins og vinna með öll-
um hlutaðeigandi nefndum að því
máli. „Hönnuður, friðunarnefnd og
fleiri vinna saman að þessu til að allir
séu ánægðir og þetta tekur sinn tíma
en við leggjum áherslu á að halda
hótelinu sem fallegustu,“ segir Heið-
ur.
Morgunblaðið/Golli
Eigendur Hótels Borgar hafa hug á að koma fyrir lyftuhúsi á efstu hæð hótelsins og bæta við herbergjum, en
þar sem kvistirnir eru eru nú tvö stór herbergi og geymslur.
Vilja stækka Hótel Borg
Miðborgin
NÝR skóli hefur starfsemi í
Kópavogi á haustdögum og
nefnist hann Salaskóli. Í fyrstu
munu einungis 1.– 4. bekkur
stunda þar nám, en eldri bekk-
ir koma svo að skólanum er
fram í sækir. Áætlað er að
fyrsti áfangi skólabygg-
ingarinnar verði tilbúinn í
haust, auk þess sem umhverfi
skólans býður upp á ýmsa
möguleika til fjölbreyttrar
kennslu.
Við skólann verður byggð
íþróttamiðstöð og þar verður
íþróttasalur, inni- og úti-
sundlaug og fleira. Fyrsti
áfangi íþróttamiðstöðvarinnar
verður væntanlega tilbúinn
eftir ár.
Hafsteinn Karlsson hefur
verið ráðinn skólastjóri Sala-
skóla. Hann er fæddur á Rang-
árvöllum en fluttist 5 ára gam-
all í Kópavoginn og ólst þar
upp. „Já, ég átti heima rétt hjá
trönunum og sandgryfjunum,
rétt hjá þessum nýja skóla,“
sagði Hafsteinn í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann hef-
ur verið skólastjóri um 15 ára
skeið, fyrst í Villingaholtsskóla
í Flóa, en síðastliðin fimm ár í
Selásskóla í Reykjavík.
Breyttar áherslur frá
því sem nú tíðkast
„Þetta leggst mjög vel í mig.
Þetta er mjög spennandi; nýr
skóli og nýjar hugmyndir. Við
ætlum að koma á fót skóla sem
byggir á sterkum hliðum ein-
staklinganna. Ég legg áherslu
á, að strax frá fyrsta degi
verði hugað að sérþörfum og
hæfileikum hvers og eins. Hug-
myndafræðin er fengin héðan
og þaðan og úr henni saumuð
flík sem passar þessum skóla.
Það má segja að ég sé þarna
yfirskraddari, en svo munu
koma að málinu þeir kennarar
sem ráðast að skólanum í
haust. Þetta er semsagt allt í
mótun.
En því verður ekki neitað að
ég er með ákveðnar hug-
myndir, sem verða að ein-
hverju marki leiðandi. Ég er
t.d. að hugsa um umhverf-
ismálin, að þetta verði grænn
skóli strax frá upphafi, og
einnig verður hugað að jafn-
réttismálum m.t.t. mismunandi
þarfa kynjanna og öðru slíku.
Þá er ljóst að íþróttir koma til
með að leika þarna stórt hlut-
verk, eftir að íþróttamiðstöðin
verður komin, með sundlaug-
um og öllu.“
Skólinn nú þegar
kominn með heimasíðu
Athygli vekur, að hinn nýi
skóli er þegar kominn með
heimasíðu (salaskoli.kopavog-
ur.is), þótt ekki sé byggingin
enn kominn í ljós. „Jú, þetta er
í fyrsta skipti sem verið er að
setja nýjan skóla af stað og
hann er strax kominn með vef-
setur,“ sagði Hafsteinn.
„Hugmyndin er sú að for-
eldrar og nemendur geti strax
kynnst skólanum og þannig
verði hægt að byggja upp sam-
félag í kringum hann, áður en
húsið sjálft verður til. Eins er
ráðgert að setja inn á vefinn
möguleika fyrir foreldra til
þess að taka þátt í umræðum
um skólann og taka þannig
þátt í að móta hugmyndafræð-
ina. Þar er einnig hægt að
koma á framfæri ábendingum
til kennara og skólastjóra um
það sem betur má fara, og þar
fram eftir götunum.“
Gert ráð fyrir um
100 nemendum
Hafsteinn kveðst ekki óttast
að skólahúsnæðið verði ekki
tilbúið fyrir haustið. „Nei, nei.
Þetta er fyrsti áfanginn og
hann er fyrir 1.–4. bekk og
verður tilbúinn til að taka við
þeim nemendum sem koma.
Það er annars alveg óvíst
hversu margir hefja nám á
haustdögum, en gert ráð fyrir
að þeir verði eitthvað um 100
talsins og 7–8 kennarar.
Við erum einmitt núna að
leita að áhugasömu fólki sem
er tilbúið til að taka þátt í að
byggja upp og þróa frá grunni
metnaðarfullt skólastarf og
umsóknarfrestur um kenn-
arastörfin er til 8. maí.
Fljótlega verður svo einnig
auglýst eftir öðru starfsfólki.
Við erum nýlega búin að aug-
lýsa, og ég er samt þegar kom-
inn með þrjár umsóknir og
fjöldann allan af fyrirspurnum,
svo að ég lít björtum augum til
haustsins og komandi vetrar.“
Nýr skóli, Salaskóli, hefur starf-
semi í Kópavogi á haustdögum
Byggt verður á
sterkum hliðum
einstaklinganna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrsti áfangi Salaskóla er að rísa af grunni í Kópavogi og á að
verða tilbúinn fyrir haustið til að taka við þeim nemendum sem
koma í 1., 2., 3. og 4. bekk.
Salahverfi