Morgunblaðið - 24.04.2001, Síða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 17
SÝSLUMANNSEMBÆTTIÐ í
Kópavogi flytur sig um set í næsta
mánuði að Dalvegi í Kópavogsdal
en embættið er nú til húsa í Auð-
brekku 10.
Að sögn Þorleifs Pálssonar,
sýslumanns í Kópavogi, verður
mikil bót að nýja húsnæðinu.
„Þetta verður meira rými sem við
fáum og betri aðstaða á allan hátt,
bæði fyrir lögreglu og skrifstofu,“
segir hann. Með nýja húsnæðinu
sameinast starfsemin á einn stað
en embættið hefur neyðst til að
leigja viðbótarhúsnæði á öðrum
stað í Kópavogi.
Flutningarnir munu breyta
miklu varðandi aðgengi fatlaðra að
embættinu því að sögn Þorleifs
fullnægir húsnæðið að Auðbrekku
ekki núgildandi reglum um að-
gengi fatlaðra. Þá segir hann
að samfara flutningnum verði
tækjabúnaður, svo sem hús-
gögn og tölvukostur, endurnýj-
aður að nokkru leyti.
Þrengsli hafa
háð starfseminni
Hann segir mikil þrengsli
hafa verið hjá lögreglunni og
það hafi háð starfseminni
nokkuð. Til að mynda hafi
þurft að skipta herbergjum
niður og dreifa starfseminni á
fleiri staði en einn svo eitthvað
sé nefnt.
Tæplega 60 manns starfa
hjá lögreglu og á skrifstofu
sýslumannsins í Kópavogi.
Sýslumaður í
nýtt húsnæði
Kópavogur
Morgunblaðið/Golli
Bráðlega flyst sýslumaðurinn í Kópavogi í þetta húsnæði við Dalveg.
ATHUGASEMDIR hafa borist
vegna fyrirhugaðra bygginga á
Hrólfskálamelum á Seltjarnarnesi
en samkvæmt verðlaunatillögu er
gert ráð fyrir sex hæða fjölbýlishúsi
við Kirkjubraut og tveimur fimm
hæða fjölbýlishúsum sunnan Mýrar-
húsaskóla.
Að sögn Einars Norðfjörð, bygg-
ingafulltrúa Seltjarnarness hafa 3-4
athugasemdir borist vegna bygging-
anna en það er hæð húsanna sem
fólkið setur fyrir sig. „Fólk óttast
skuggavarp inn á skólalóðina og svo
eru einhverjir sem missa útsýni.“
Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig
um athugasemdirnar fyrr en skipu-
lagsnefnd Seltjarnarness hefði
fjallað um þær. Nefndin kemur sam-
an til fundar í næstu viku.
Íbúar gera
athuga-
semdir
Seltjarnarnes
ÖLL börn á aldrinum 6–16 ára í Mos-
fellsbæ fá kennslu í skák í öllum
íþróttatímum alla þess viku, og njóta
þar aðstoðar Helga Ólafssonar stór-
meistara og Guðlaugar Stefánsdóttur
skákkonu, en hún er systir Hannesar
Hlífars Stefánssonar stórmeistara.
Er þetta liður í því sem bæjarstjórnin
hefur verið að gera undanfarið, sem
er að reyna að hvetja börn til þátt-
töku í íþróttum og tómstundum.
Það var á fundi íþrótta- og tóm-
stundanefndar bæjarins 17. mars síð-
astliðinn að samþykkt var að Sigurð-
ur Guðmundsson íþróttafulltrúi
leitaði til bæjarráðs um 100.000
króna fjárveitingu til þessa verkefnis,
til að greiða laun skákkennaranna, og
var það einróma samþykkt í bæjar-
ráði.
„Það er kennt á tveimur stöðum,
þar sem eru á að giska 40 krakkar á
hvorum stað,“ sagði Sigurður Guð-
mundsson í samtali við Morgunblaðið
í gær.
„Þetta er aðallega hugsað sem
kynning á skáklistinni, því við erum
að fara í einsetningu grunnskólans í
haust og einn þáttur verður að bjóða
upp á félagsstarf. Því höfum við velt
fyrir okkur hvað við gætum helst boð-
ið krökkunum upp á og þetta er eitt af
því, enda teljum við skák bæði holla
og góða íþrótt fyrir hugann. Krakk-
arnir eru mjög ánægðir með þetta, og
hér ríkir mikil gleði. Hvert barn fær
kennslu í tvö skipti að lágmarki, auk
þess að fá að taka þátt í skákmóti í lok
kennsluvikunnar, þar sem skipting
keppenda verður eftir aldri.“
En þetta er ekki eini skákviðburð-
urinn í Mosfellsbæ, því Íslandsmótið í
grunnskólaskák verður haldið í
Varmárskóla um helgina, 28.–29. apr-
íl, og einnig er fyrirhugað að hafa eitt
af helgarskákmótum Skáksambands
Íslands í Mosfellsbæ um sömu helgi.
Skákveisla
í grunn-
skólanum
Mosfellsbær
♦ ♦ ♦