Morgunblaðið - 24.04.2001, Síða 20
SUÐURNES
20 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMNINGAR eru á lokastigi við
verktaka um byggingu á 25 félagsleg-
um leiguíbúðum fyrir aldraða í
Reykjanesbæ, samkvæmt alútboði
sem fram hefur farið. Íbúðirnar eiga
að vera tilbúnar að ári. Hugmynda-
fræði rekstraráætlunar hefur verið
notuð við undirbúning byggingarinn-
ar og er það nýjung við alútboð op-
inberra bygginga hér á landi.
Fyrir tveimur árum, vegna árs
aldraðra, var gerð könnun á húsnæð-
isþörf aldraðra í Reykjanesbæ. Að
sögn Hjördísar Árnadóttur félags-
málastjóra staðfesti könnunin þann
grun félagsmálayfirvalda að margir
aldraðir einstaklingar væru í húsnæð-
isvandræðum. „Við héldum að þetta
væri sá hópur sem byggi við trygg-
ustu húsnæðisaðstæður,“ segir Hjör-
dís. Í ljós kom hins vegar að margir
aldraðir einstaklingar eiga ekki íbúð-
ir, hafa misst þær af mismunandi
ástæðum eða skulda mikið í þeim.
Ekki unnt að bæta við sameig-
inlegum tómstundakjarna
Fjölskyldu- og félagsmálaráð
Reykjanesbæjar lagði þá hugmynd
fyrir Íbúðalánasjóð að byggt verði 25
íbúða hús, sem félagslegar leiguíbúðir
fyrir aldraða einstaklinga, og var það
samþykkt. Þrír embættismenn bæj-
arins, Stefán Bjarkason tómstunda-
fulltrúi, Hjörtur Zakaríasson bæjar-
ritari og Hjördís félagsmálastjóri,
fengu það verkefni að undirbúa bygg-
inguna. Jafnframt var kannað hvort
unnt yrði að koma stórum kjarna fyr-
ir félagsþjónustu aldraðra í Reykja-
nesbæ fyrir í byggingunni en það
reyndist ekki mögulegt á þeirri lóð
sem úthlutað var, það er að segja
Kirkjuvegi 5 í Keflavík.
Ákveðið var að fara í alútboð og
VSÓ-ráðgjöf tók að sér umsjón verks-
ins. Fjórir verktakar tóku þátt í út-
boðinu. Þótti tilboð Hjalta Guð-
mundssonar ehf. best, að teknu tilliti
til gæða byggingarinnar, en önnur til-
boð voru lægri.
Íbúðalánasjóður hefur lofað láni að
fjárhæð tæpar 142 milljónir kr. og á
síðasta bæjarráðsfundi var ákveðið að
sækja um viðbótarlán. Hlutur
Reykjanesbæjar er áætlaður 19 millj-
ónir kr.
Einar S. Gunnarsson, verkfræðing-
ur hjá VSÓ-ráðgjöf, segir að staðið
hafi verið að undirbúningi bygg-
ingarinnar á óhefðbundinn hátt.
Verkefnið hafi frá upphafi verið
hugsað út frá hugmyndafræði rekstr-
aráætlunar. Þörfin hafi verið fyrir
hendi og lánsloforð fengist. Ákveðið
hafi verið að halda byggingar- og
rekstrarkostnaði hússins í skefjum
þannig að hægt yrði að halda
leigugjaldi íbúðanna í lágmarki.
Bendir Hjördís Árnadóttir á það að
væntanlegir leigjendur séu úr þeim
hópi í samfélaginu sem hafi einna
minnst fé handa í milli. Segir Einar að
markmiðið með alútboðinu hafi náðst
og byggingin yrði góð til sinna nota.
Hjördís er einnig ánægð með ár-
angurinn. Segir að tillagan sem valin
var hefði marga góða kosti fyrir vænt-
anlega íbúa. Byggingin er hönnuð af
Teiknistofunni ehf., Ármúla 6.
Húsið er einkum ætlað öldruðum
einstaklingum og eru íbúðirnar hann-
aðar með það í huga. Allar jafnstórar,
eða liðlega 60 fermetrar að stærð. Þó
eiga hjón að geta búið þar ef því er að
skipta.
Þörfin er mikil því 50 sýndu áhuga
á leigu, í könnun sem gerð var, og tel-
ur Hjördís að þar af eigi að minnsta
kosti 30 rétt á leiguíbúð af þessu tagi.
Samningar á lokastigi um byggingu 25 félagslegra leiguíbúða fyrir aldraða
25 félagslegar leiguíbúðir fyrir aldraða í Reykjanesbæ verða í þessari
blokk sem byggð verður á Kirkjuvegi 5 í Keflavík.
Verkefnið hugsað út
frá hugmyndafræði
rekstraráætlana
Reykjanesbær
ÍBÚATALA Vatnsleysustrandar-
hrepps hækkar úr 730 í 1.100, eða um
50%, þegar nýtt hverfi verður full-
byggt. Á síðasta ári var úthlutað 140
lóðum og runnu þær út eins og heitar
lummur. Er nú biðlisti eftir lóðum
sem losna.
Á vegum Vatnsleysustrandar-
hrepps var skipulagt nýtt bygginga-
svæði norðan við þorpið í Vogum og
tveimur götum einnig bætt við sunn-
an við núverandi byggð. Á vegum
hreppsnefndar var efnt til markaðs-
átaks í því skyni að selja lóðirnar og
að sögn Þóru Bragadóttur oddvita
gekk það vonum framar. Seldust allar
lóðirnar á tiltölulega stuttum tíma og
nú er biðlisti eftir lóðum sem losna en
að hennar sögn er fáum lóðum skilað.
Byrjað er að byggja hús á nýju
svæðunum og margir lóðahafar eru
að hugsa sér til hreyfings um þessar
mundir.
Vinnur á höfuðborgarsvæðinu
Fólkið sem keypt hefur lóðir í Vog-
um og hyggst flytja þangað kemur af
höfuðborgarsvæðinu en einnig af
landsbyggðinni, að sögn Þóru. Marg-
ir hafa komið úr Hafnarfirði en nú er
hópurinn blandaðri en oft áður, til
dæmis nokkuð um að fólk hyggist
flytja úr Kópavogi. Nýju íbúarnir eru
ekki að sækjast eftir vinnu í Vogum
heldur vilja vinna áfram á höfuðborg-
arsvæðinu og aka á milli. Þetta er
mikið ungt fólk, með börn, sem vill
komast í barnvænna umhverfi, að
sögn Þóru.
Hreppsfélagið er ágætlega í stakk
búið til að taka við þessum nýju íbú-
um, að sögn oddvitans. Unnið er að
stækkun leikskólans og áformað að
stækka grunnskólann aftur eftir tvö
til þrjú ár. Með íbúafjölguninni er
verið að nýta betur þjónustuna sem
fyrir er og gera hana hagkvæmari. Ef
til frekari stækkunar þorpsins kem-
ur, þarf að gera það í mun stærra
stökki, að sögn Þóru Bragadóttur, því
þá þarf að mynda nýtt skólahverfi.
Engar ákvarðanir hafa verið teknar
um slíkt enda segir Þóra mikilvægast
að ljúka þeirri uppbyggingu sem nú
eigi sér stað.
Á vegum Vatnsleysustrandar-
hrepps er nú unnið að skipulagningu
nýs iðnaðarhverfis.
Biðlisti eftir lóðum í Vogum
Stefnir í 50%
fjölgun íbúa
Vogar
„MÉR LÍST ágætlega á þetta og
tel að íþróttahreyfingin sé til við-
ræðna um málið ef góð aðstaða
fæst og vel verður gert við hana,“
segir Ólafur Thordersen, formaður
Íþróttabandalags Reykjanesbæjar,
um hugmyndir um að taka íþrótta-
svæðin í Keflavík og Njarðvík und-
ir byggingar og gera nýtt íþrótta-
svæði á Neðra-Nickelsvæðinu,
ofan við Reykjaneshöllina.
Hugmyndin um uppbyggingu
sameiginlegs íþróttasvæðis kom
upp í skipulags- og byggingar-
nefnd Reykjanesbæjar og íþrótta-
og tómstundaráð taldi hana at-
hyglisverða.
Einar Haraldsson, formaður að-
alstjórnar Keflavíkur, íþrótta- og
ungmennafélags, segir að málið
hafi ekki verið kynnt félaginu og
því ekkert verið fjallað um það á
þeim vettvangi. Íþróttavöllurinn í
Keflavík er orðinn gamall og gera
þarf á honum lagfæringar, skipta
um gras og laga öryggismál. Segir
Einar að fram til þessa hafi ekki
annað komið til tals en félagið yrði
áfram þarna með sína starfsemi og
hefði haft áhuga á að fá þar að-
stöðu fyrir félagsstarfsemina. En
þegar nýir fletir kæmu upp þyrfti
að ræða þá.
Ólafur Thordersen segir að
vissulega séu skiptar skoðanir
meðal félagsmanna á flutningi
íþróttasvæðanna. Þetta sé tilfinn-
ingamál, ekki síst meðal eldri
manna. Sjálfur segist hann ekki
sjá neitt því til fyrirstöðu að ræða
framtíðina á þessum grundvelli.
Segir Ólafur að miklar fram-
kvæmdir séu fram undan á vell-
inum í Keflavík og þar sé ónotaður
malarvöllur. Telur hann brýnt að
bæjarstjórnin svari því hvort ráð-
ast eigi í lagfæringar á vellinum
eða stíga skrefið og byggja upp á
nýjum stað. Hins vegar segist
hann ekki sjá fyrir sér að íþrótta-
svæðið í Njarðvík verði lagt niður
á næstunni enda verið að ljúka við
uppbyggingu þess og enn til lóðir í
nágrenni þess.
Hugmyndir um nýtt íþróttasvæði ofan Reykjaneshallar
Íþróttahreyfingin er til
viðræðna um vallarmálið
Reykjanesbær
Morgunblaðið/Jim Smart
Hugmyndin er að nýr leikvangur Reykjanesbæjar og æfingavellir knatt-
spyrnufélaganna verði byggðir á Neðra-Nickelsvæðinu, ofan Reykjanes-
hallarinnar. Það er varnarsvæði og þarf að hreinsa það fyrir aðra notkun.
KÖRFUKNATTLEIKSMENN í
Grindavík héldu uppskeruhátíð
sína fyrir skömmu. Það kemur
kannski ekki neinum á óvart að
Sigríður Anna Ólafsdóttir var
valin besti leikmaðurinn hjá
kvenfólkinu og Páll Axel Vil-
bergsson hjá körlunum.
Hátíðin fór fram á Sjó-
mannastofunni Vör og var vel
mætt og ball á eftir. Boðið var
upp á heimatilbúin skemmti-
atriði frá bæði kvennakörfunni
og karlakörfunni sem vöktu
mikla lukku.
Viðurkenningin best
Jovana Stefánsdóttir hlaut
viðurkenningu fyrir mestu
framfarir en sú efnilegasta var
Erna Rún Magnúsdóttir. Hjá
körlunum voru veittar við-
urkenningar fyrir hina ýmsu
tölfræðiþætti körfuboltans.
„Það jákvæðasta fyrir mig við
þennan vetur er þessi viður-
kenning að vera kosin besti
leikmaðurinn og líka það að
vera valin í landsliðshópinn“,
sagði Sigríður Anna Ólafsdóttir.
Unnum titil
Aðspurður um þennan vetur
sagði Páll Axel Vilbergsson:
„Það er margt jákvætt og
margt neikvætt við veturinn.
Við unnum titil en stóðum okk-
ur ekki jafn vel og við ætluðum.
Við misstum erlenda leikmann-
inn okkar þegar við vorum að
ná góðu jafnvægi í leik okkar.
Ég verð að spila körfubolta
næsta vetur en ég samdi bara
til eins árs í fyrra þannig að ég
get ekki sagt til um það hvar ég
verð að spila.“
Sigríður Anna sagðist ætla að
spila með Grindavíkurliðinu
næsta vetur.
Uppskeruhátíð körfuknattleiksmanna í Grindavík
Sigríður
Anna og
Páll Axel
best
Morgunblaðið/GPV
Þau bestu í Grindavík á nýliðinni körfuboltavertíð, Sigríður Anna
Ólafsdóttir og Páll Axel Vilbergsson.
Grindavík