Morgunblaðið - 24.04.2001, Qupperneq 22
VIÐSKIPTI
22 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NORSK Hydro skilaði betri afkomu
en vænst var á fyrsta fjórðungi árs-
ins og tekur Eivind Reiten því við
góðu búi af Egil Myklebust þegar
hann sest í forstjórastólinn í næstu
viku.
Hagnaður Norsk Hydro fyrir
skatta á fyrstu þremur mánuðum
þessa árs nemur um 73 milljörðum
íslenskra króna en sérfræðingar
höfðu búist við um 65 milljarða
króna hagnaði. Á sama tímabili í
fyrra nam hagnaðurinn 59 milljörð-
um íslenskra króna. Hátt verð á olíu
og gasi, hátt gengi bandaríkjadals og
góður árangur af endurskipulagn-
ingu landbúnaðardeildar Hydro og
áburðarframleiðslu, Hydro Agri, eru
ástæður góðrar afkomu á tímabilinu,
að sögn talsmanna Hydro.
Góð afkoma Hydro
mestu leyti frá móttökugjöldum
vegna urðunar og endurvinnslu-
stöðvunum. Rekstrargjöld jukust
einnig, um tæp 12%, og eru gjöldin
mest vegna móttöku- og urðunar-
kostnaðar og kostnaðar vegna
rekstrar endurvinnslustöðva.
HAGNAÐUR af rekstri Sorpeyðing-
ar höfuðborgarsvæðisins b.s. jókst
um 84% á milli áranna 1999 og 2000,
fór úr 31 milljón króna í 57 milljónir
króna.
Rekstrartekjur félagsins jukust
um rúm 10% en tekjurnar koma að
2 "
, 13#4), / )
!!
"!!
# !
$%!%
!&
'&%
'
(!&
)
*
!&!
# +
!&,
'
!%
! *
!%
! )
! !
()*
++*
,-
*-
-
(
.)/
++/
)*+
)*,
01
112*3
)2(3
+1
-
-
.
/
!""#$$ !""#$$ !""#$$
*)4)-4 *)4)-4
84% hagnaðaraukning
LÍNA.NET gekk í gær frá samningi
um kaup á búnaði frá Ascom til
gagnaflutnings í gegnum rafdreifi-
kerfi en stefnt er að því að u.þ.b. 20%
heimila á höfuðborgarsvæðinu geti
nýtt sér rafdreifikerfið til netnotkun-
ar í sumar. Settur verður upp bún-
aður til gagnaflutnings í 70 spenni-
stöðvar á höfuðborgarsvæðinu í
sumar og munu fyrstu notendurnir
geta tengst þjónustunni í júnímánuði.
Kostnaður af verkinu er áætlaður um
60 milljónir króna, að sögn Alfreðs
Þorsteinssonar, stjórnarformanns
Línu.Nets.
Þetta er í fyrsta sinn sem almenn-
ingi á Íslandi verður gert kleift að
tengja heimilistölvur sínar við Netið í
gegnum rafmagnsinnstungur í stað
símatengla en tengingin fer um fyr-
irliggjandi rafdreifikerfi Orkuveitu
Reykjavíkur á höfuðborgarsvæðinu.
Notendur kerfisins verða með þessu
sítengdir við Netið í stað þess að
hringja inn um símalínu til að fá teng-
ingu.
Lína.Net getur með þessari tækni
boðið, að sögn Eiríks Bragasonar,
framkvæmdastjóra Línu.Nets, upp á
mun hraðvirkari gagnaflutninga en
áður hefur þekkst hérlendis auk þess
sem símgjöld af netnotkun heyra
sögunni til. Hann segir mánaðargjald
fyrir svokallaða Raflínu með aðgangi
að 4,5 Mbps-tengingu verða 3.990
krónur. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort um ákveðið stofn-
gjald verður að að ræða en það gæti
að sögn Eiríks numið um 20 þúsund
krónum.
Niðurstöður úr ársreikningi Línu.-
Nets hf. fyrir sl. ár voru einnig kynnt-
ar í gær en árið 2000 var fyrsta heila
árið sem félagið var í rekstri. 471
milljónar króna tap varð af rekstri
félagsins en þar af nemur afskrifuð
viðskiptavild 435 milljónum króna.
Tap af reglulegri starfsemi nam því
um 36 milljónum króna og er það í
samræmi við áætlanir félagsins, að
því er fram kom í máli stjórnarfor-
manns þegar niðurstaðan var kynnt.
„Ákveðið var að afskrifa viðskipta-
vild, sem er verðmæti viðskipta sem
tekin voru yfir árið 2000, að fullu
sama ár, meðal annars vegna þess að
félagið fer væntanlega á markað á
þessu ári. Viðskiptavild sem er af-
skrifuð er vegna kaupa á örbylgju-
kerfinu Gagnaveitunni, örbylgjukerfi
Skýrr og vegna Tetra-kerfis Irju,“
segir í tilkynningu frá Línu.Neti en
samkvæmt upplýsingum frá stjórn
félagsins er hlutur Irju um 35–40% af
afskriftunum.
Eiríkur lýsti ánægju sinni með af-
komu Línu.Nets á árinu 2000 og
sagði marga stóra samninga hafa
verið gerða um gagnaflutninga. Jafn-
framt sagði hann að útlit væri fyrir að
áætlun um tekjur ársins 2000, um 590
milljónir króna, myndi ganga eftir.
Stefnt er að hlutafjárútboði í maí
nk. eins og áður hefur komið fram og
skráningu félagsins á hlutabréfa-
markað í lok árs. Varðandi það sagði
Helgi Hjörvar að ljóst hefði verið frá
upphafi að Orkuveitan yrði ekki
meirihlutaeigandi í félaginu til fram-
tíðar og sú stefna væri óbreytt.
Afkoma Línu.Nets árið 2000 í samræmi við áætlanir
Gagnaflutningur um raf-
dreifikerfið hefst í sumar
Morgunblaðið/Golli
Stjórnarmennirnir Helgi Hjörvar, Guðmundur Þóroddsson og Alfreð Þor-
steinsson kynntu í gær ásamt Eiríki Bragasyni framkvæmdastjóra afkomu
Línu.Nets og áætlanir um að hefja nettengingar um rafdreifikerfið í sumar.
! "
!!
"!!
#%
" 0
& "
" "!!((1
# $
'(
%&
:"%$
; %%&
"
""#$)
ARNGRÍMUR Jóhannsson, for-
stjóri og annar aðaleigenda flug-
félagsins Atlanta, segir að sam-
starf Atlanta og Flugleiða gæti
mögulega aukist á sviðum eins og
viðhaldi og þjálfunarmálum flug-
manna, en það sé hins vegar af og
frá að félögin séu að fara að sam-
einast. Ákveðið hafi verið að for-
svarsmenn félaganna tali saman
enda kaupi Atlanta þjónustu af
Flugleiðum á Keflavíkurflugvelli.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, segir að
fundur hafi verði fyrirhugaður
síðastliðinn föstudag en honum
hafi verið frestað. Þar hafi verið
ætlunin að ræða flugafgreiðslu í
Keflavík. Flugleiðir hafi í gegnum
tíðina átt ágætt samstarf við mörg
innlend sem erlend flugfélög,
einkum í því augnamiði að minnka
kostnað. Hann segir að Flugleiðir
og Atlanta séu í eðli sínu mjög ólík
félög sem starfa á ólíkum mörk-
uðum og því sé ekki líklegt að
sameining geti skilað mikilli hag-
ræðingu.
Samstarf Atlanta og Flugleiða
Sameining við Flug-
leiðir ekki á döfinni