Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 24
VIÐSKIPTI 24 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ VILTU VITA MEIRA? Námstefna á vegum Tölvudreifingar og Microsoft verður haldin í Salnum þann 8. maí nk. Kynnt verða Office XP og Windows XP og fleiri nýjungar frá Microsoft. Ókeypis aðgangur. Nánari upplýsingar og skráning á www.td.is og í síma 591 9100. SAMKVÆMT upplýsingum frá greiningardeild Búnaðarbankans verðbréfa hefur velta félaga í Úr- valsvísitölu Verðbréfaþings Íslands dregist saman um 70% frá síðasta ári. Úrvalsvísitalan er samsett úr þeim fimmtán félögum á Verðbréfa- þingi sem hafa mest markaðsvirði og mest viðskipti eru með. Verðmyndun þessara félaga er því að öðru jöfnu skilvirkust og seljanleikaáhætta þeirra minnst. Þau félög sem nú eru í Úrvalsvísi- tölunni eru sýnd í meðfylgjandi töflu og þar kemur fram hver velta bréfa þeirra á nafnvirði er sem hlutfall af nafnvirði hlutafjár. Þetta hlutfall er fundið þannig að velta félags á fyrsta ársfjórðungi er reiknuð upp til árs- veltu og svo er deilt í þá tölu með nafnvirði hlutafjár í viðkomandi félags. Úr töflunni má lesa að miðað við veltuhraða síðustu þriggja mán- aða skipta 67% bréfa Íslandsbanka- FBA um hendur á ári, en aðeins 2% bréfa Þormóðs ramma – Sæbergs. Þar sem tvö félög, Íslandsbanki- FBA og Húsasmiðjan, voru ekki skráð á fyrsta fjórðungi ársins 2000 er ekki hægt að bera saman veltu þeirra þá og nú. Sé velta hinna þrett- án félaganna í Úrvalsvísitölunni á fyrsta fjórðungi í ár borin saman við það sem þau veltu á sama tímabili í fyrra kemur í ljós að viðskiptin voru rúmir 42 milljarðar króna í fyrra en tæpir 13 milljarðar króna í ár, sem þýðir að veltan hefur minnkað um 70%. Greiningardeild Búnaðarbankans verðbréfa segir mestu muna um við- skiptin með ríkisviðskiptabankana, Búnaðarbanka og Landsbanka, þar sem mikil viðskipti hafi verið með þá í kjölfar sölu á hlut ríkisins í desem- ber 1999. Sé litið fram hjá þessum tveimur félögum og þau ellefu sem eftir eru skoðuð, má sjá að veltan í fyrra var rúmir 32 milljarðar króna, en rúmir 11 milljarðar króna í ár. Hún hefur því minnkað um 65%. $ 41 / *  3$ 4$$44  '  5& 67  8   9 :    5 ; <= >?  @    ' 6 4  ?@A' B 57   ' = C    ! (  + ( +   )) )) )   (   $ 41 " 4*    ""  &#$$ Velta hluta- bréfa 70% minni Viðskipti á Verðbréfaþingi Íslands ÁRLEG velta þeirra 19 fyrirtækja sem voru í eignasafni áhættufjár- festingarsjóðsins Talentu-Hátækni um síðustu áramót jókst að með- altali um 51% á síðastliðnum þrem- ur árum. Þá var árleg fjölgun starfa hjá þessum fyrirtækjum að meðaltali 52% á sama tímabili. Af fyrirtækjunum 19 skiluðu 5 hagn- aði á síðasta ári. Samkvæmt áætl- unum er gert ráð fyrir að 12 þeirra skili hagnaði á þessu ári en að þau skili öll hagnaði á árinu 2002. Þetta kom meðal annars fram í máli Bjarna K. Þorvarðarsonar, sjóð- stjóra Talentu-Hátækni, á fundi sem sjóðurinn hélt nýlega fyrir hluthafa og fjárfesta til kynningar á niðurstöðum síðasta árs, horfum framundan og sýn sjóðsins á ávöxt- unartækifæri í hátæknigeiranum. Kynningarfundurinn var haldinn í tengslum við aðalfund félagsins, sem haldinn var í Lúxemborg en sjóðurinn er skráður þar. Bjarni sagði á kynningarfundin- um að Talenta-Hátækni hefði fjár- fest í tveimur fyrirtækjum frá ára- mótum og ætti því hlut í 21 fyrirtæki nú. Fyrirtækin skiptust nokkuð jafnt á milli fjarskipta-, hugbúnaðar- og tölvufyrirtækja, en stefna sjóðsins væri að fjárfesta í ungum vaxtarfyrirtækjum. Tap 188 milljónir á árinu 2000 Samkvæmt rekstrarreikningi Talentu-Hátækni nam tap til lækk- unar á eigin fé sjóðsins á árinu 2000 samtals 188 milljónum króna. Þar af var óinnleyst gengistap 143 milljónir. Eignir sjóðsins sam- kvæmt efnahagsreikningi á ára- mótum námu samtals 1.190 millj- ónum króna og var eigið fé 1.179 milljónir. Talenta-Hátækni sjóðurinn var stofnaður í mars á síðasta ári. Bjarni segist ekki vera ánægður með afkomu ársins en hún hafi að verulegu leyti ráðist af árferðinu. Skrifstofa í Lundúnum Að sögn Bjarna er unnið að því að opna skrifstofu Talentu-Há- tækni í Lundúnum næstkomandi sumar. „Okkar hlutverk er að verulegu leyti að aðstoða þau fyr- irtæki sem við eigum í. Fyrirtækin eiga það nánast öll sameiginlegt að vera annað hvort að leita að fjár- magni, jafnvel erlendis, eða að leita að erlendum samstarfsaðilum til að geta stækkað og gert útrásar- möguleika að veruleika. Við getum mun auðveldar aðstoðað fyrirtæki ef við erum með skrifstofu í Lund- únum heldur en ef við reynum það héðan frá Íslandi. Þetta er ný hugsun meðal fjárfesta hér á landi, þ.e. að styðja við bakið á þeim fyr- irtækjum sem við höfum fjárfest í frekar en að leita stöðugt að nýj- um,“ segir Bjarni. Eitt skráð og 18 óskráð Talenta-Hátækni á hlut í einu skráðu félagi, Columbus IT Partn- er í Danmörku, og í 20 óskráðum íslenskum fyrirtækjum. Eignar- hlutur Talentu-Hátækni er 26,8% í Eignarhaldsfélaginu Halló!, 25,0% í Bestun og ráðgjöf hf., 25% í Flyware hf., sem sjóðurinn keypti á þessu ári, 21,4% í Áliti ehf. og 20,0% í Króla verkfræðistofu ehf. Eignarhlutur sjóðsins er minni í öðrum félögum. Bókfært verð hlutabréfa sjóðsins nemur samtals 973 milljónum króna, þar af eru 256 milljónir bókfært verð eign- arhlutar í EJS hf., sem er 2,8% hlutur í fyrirtækinu. 19 vaxtarfyrirtæki í eignasafni Talentu-Hátækni á áramótum Fimm fyrirtæki skil- uðu hagnaði á árinu Morgunblaðið/Ásdís Bjarni K. Þorvarðarson, sjóðstjóri Talentu-Hátækni, segir að unnið sé að því að sjóðurinn opni skrifstofu í Lundúnum næstkomandi sumar. STJÓRN sænsku hótelkeðjunnar Scandic hefur fyrir sitt leyti sam- þykkt tilboð bresku hótelkeðjunn- ar Hilton upp á 612 milljónir punda eða 82 milljarða íslenskra króna, og ráðleggur hluthöfum Scandic að samþykkja tilboðið. Scandic rekur 150 hótel í ellefu löndum og voru hótel undir merkjum Scandic einnig rekin á Íslandi um tíma. Hilton býður 108 sænskar krónur og 1,12 hlut í Hilton á hvern hlut í Scandic. Scandic metur tilboðið á sem samsvarar 144 sænskum krónum á hlut og er það um 30% yfir lokagengi hlutabréfa Scandic sl. föstudag. Roland Nilson, forstjóri Scandic, er ánægður með tilboðið og segir Norðurlöndin mikilvægt mark- aðssvæði fyrir hótelkeðju eins og Hilton. „Scandic-hótelin eru í for- ystuhlutverki á norræna mark- aðnum og samruni við eins sterkt og þekkt fyrirtæki og Hilton, mun hafa umtalsverð samlegðar- áhrif.“ David Michels, forstjóri Hilton, sagði samninginn í sam- ræmi við áætlanir félagsins um aukin umsvif í Evrópu. „Þetta er mikilvægt skref í því ferli. Við er- um að kaupa mjög gott fyrirtæki með mikla möguleika. Hilton býst við samlegðaráhrifum upp á sem samsvarar 2,2 milljörðum ís- lenskra króna á ári fyrir árið 2003.“ Scandic er stærsta hótelkeðja á Norðurlöndunum og á síðasta ári nam hagnaður fyrirtækisins um 3,7 milljörðum króna en sala nam 55 milljörðum. Afkoma Hilton á fyrsta ársfjórðungi var góð, og jókst hagnaður um 27% miðað við sama tíma í fyrra. Stærsti hlut- hafinn í Scandic, Ratos sem á 25% hlutafjár, hefur þegar sam- þykkt tilboð Hilton, að því er Dagens Industri greinir frá, og hefur skuldbundið sig til að halda hluta greiðslunnar, 1,3% hluta- bréfa í Hilton, í tólf mánuði. Sölu- hagnaður Ratos nemur um 15 milljörðum íslenskra króna. Hilton mun setja nafn sitt á um 20 Scandic-hótel á Norðurlönd- unum en halda Scandic-nafninu á hinum. Hilton rekur nú aðeins eitt hótel á Norðurlöndunum, þ.e. við Kastrup flugvöllinn í Kaup- mannahöfn. Scandic rekur um 120 hótel á Norðurlöndunum og um 30 annars staðar í Evrópu. Hilton rekur 220 hótel um allan heim, þar af 127 í Evópu. Hluta- bréf Hilton eru skráð í Kauphöll- inni í London og er markaðs- verðmæti þeirra um 450 milljarðar króna. Gengi hluta- bréfanna hækkaði um 4% í við- skiptum fyrri hluta gærdagsins í kjölfar tilkynningarinnar. Hilton kaupir Scandic Ósló. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.