Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 26
ÚR VERINU
26 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Bylgjan á Vestfjörðum efndi til fund-
ar síðastliðinn laugardag á Ísafirði
með Grétari Mar, forseta Far-
manna- og fiskimannasambandsins,
og Benedikt Valssyni, framkvæmda-
stjóra sambandsins.
Sunnanmenn fóru yfir stöðu
samningamála og Vestfirðingarnir
sögðu þeim sínar skoðanir á málun-
um, að sögn Gísla Hjartarsonar,
starfsmanns Bylgjunnar.
Hann sagði að mikill einhugur
hefði verið á fundinum, þar sem
flestir skipstjórnarmenn í verkfalli á
norðanverðum Vestfjörðum voru
samankomnir, en Barðstrendingar
komust ekki vegna óveðurs og
óvissrar færðar. Hann sagði að menn
væru mjög óánægðir með gang mála,
en einhugur ríkti um að klára dæmið
án afskipta stjórnvalda.
Í ályktun sem fundurinn sendi frá
sér kemur fram að skipstjóra- og
stýrimannafélagið Bylgjan lýsir yfir
fullu trausti á samninganefnd FFSÍ
og hvetur hana til að standa þétt með
öðrum samtökum sjómanna við að
verjast ósanngjörnum málflutningi
LÍÚ varðandi mönnunarmál.
Jafnframt er skorað á stjórnvöld
að virða sjálfsagðan rétt sjómanna til
að berjast fyrir kjörum sínum á
sama grunni og aðrar stéttir í þjóð-
félaginu.
Hugmyndir um verðmyndun á
fiski telur fundurinn allt of flóknar
og telur beina markaðssetningu mun
nær sanngirni.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Frá fundi Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar á Ísafirði. Við háborðið eru Stígur Arnórsson, Bene-
dikt Valsson, Grétar Mar Jónsson, Bergþór Gunnlaugsson og Gísli Hjartarson.
Lýsa fullu trausti á
samninganefnd FFSÍ
Ísafirði. Morgunblaðið.
HALLDÓR Árnason, sjómaður á
Patreksfirði, sendi nýverið Árna
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
bréf þar sem hann hvetur til kvóta-
setningar krókabáta undir 6 tonn-
um. „Mig langaði að koma þessum
ábendingum á framfæri og ráð-
herrann hefur lesið bréfið og gefið
mér svör sem ég er sáttur við,“ sagði
Halldór í samtali við Morgunblaðið.
Í bréfi sínu til ráðherra segir
Halldór meðal annars, „Báturinn
hjá mér er 10,76 tonn og hefur verið
kvótasettur síðan 1984. Þá var kvóti
settur á veiðistofna til að hlífa þeim
vegna ofveiði. Ef árangur yrði af
vernduninni átti það að koma við-
komandi veiðiskipi til góða. Lítill
hefur árangur þó orðið.
Í upphafi kvótakerfisins var mið-
að við 10 tonna báta. Bátar undir því
marki voru að miklu leyti frjálsir til
veiða. Allir þekkja þá hörmungar-
sögu.
Nú síðast var ákveðið að hafa báta
undir 6 tonnum að mestu frjálsa.
Staðreyndin er hins vegar sú að 6
tonna bátur í dag er orðinn stærri
en þessi 11 tonna bátur hjá mér og
mun öflugri, þ.e.a.s. með þrefalda
vélarstærð.
Vinsamlega berðu nú saman kvót-
ann hjá mér og þessum öflugu 6
tonna bátum eins og þeir kæmu út
eftir kvótasetningu samkvæmt nú-
verandi lögum.
Eins og allir vita, eru þessir bátar
búnir að éta út úr fyrsta kerfinu
stóran kvóta og mættu vera sáttir
við það. Nú er mælirinn fullur og ef
enn verður gefið eftir eykst mis-
ræmið ennþá meira.
Jafnræði á að gilda
Ég tel að jafnræði eigi að gilda
milli allra stærða af veiðiskipum.
Það er allt mælt upp á kíló hjá okk-
ur, en bátar undir 6 tonnum mega
veiða samtals tugi þúsunda fram yfir
úthlutaðan kvóta. Það hefur engin
áhrif að þeirra sögn og margir al-
þingismenn eru þeim sammála. Ef
þetta er jafnræði og sami dansinn á
að vera í gangi áfram, þá skal ég
verða fyrstur manna til að fara í mál
við ráðuneytið vegna framkvæmda
fiskveiðilaganna. Byggðaröskun á
Vestfjörðum er allt annað mál og
kemur jafnrétti til fiskveiða ekkert
við. Við erum tveir eigendur að
bátnum Sæbjörgu BA-59 og búum
enn á Vestfjörðum þrátt fyrir
þröngan kost. Við ætlum að sjá til
enn um sinn áður en við pökkum
saman og flytjum í sæluríkið við
Faxaflóa.“
Halldór bætir við að afli skipa
sem eru undir 10 tonnum sé nú um
þriðjungur af öllum botnfiskafla
landsmanna, en hafi verið innan við
2% af heildarveiðinni þegar kvóti
var settur í fyrsta skipti árið 1984 og
sé það til marks um að fyrirkomulag
veiða hefur breyst gífurlega, en
reglugerðir ekki til góða í samræmi
við það.
Sjónarmið sem eiga rétt á sér
Halldór segir Árna Mathiesen
hafa brugðist vel við bréfi sínu og
hann hafi svarað sér nýverið. „Hann
segir hugmyndir mínar þess eðlis að
þær megi tvímælalaust koma fyrir
almenningssjónir. Á vegum sjávar-
útvegsráðuneytisins sé nú að störf-
um nefnd sem eigi að endurskoða
lög um stjórn fiskveiða. Nefndinni
sé ætlað að koma með tillögur að
breytingum á fiskveiðistjórnarlög-
unum sem meiri almenn sátt geti
orðið um en þau lög sem nú gilda án
þess þó að glata því góða sem sem
núverandi stjórnkerfi hefur í för
með sér. Hann segir að formaður
nefndarinnar hafi fengið afrit af
bréfi mínu þannig að sjónarmiðin
komi fram við endurskoðun lag-
anna.“
Smábátasjómaður hvetur til kvótasetningar krókabáta
Hótar málssókn verði
það ekki gert í haust
ERLENT
FUNDI leiðtoga 34 Ameríkuríkja í
Quebec-borg í Kanada lauk á
sunnudag með undirritun yfirlýs-
ingar um að stefnt væri að mynd-
un fríverslunarsvæðis, sem næði
heimskautanna á milli, fyrir árið
2005. Aðeins lýðræðisríki munu fá
aðild að fríverslunarbandalaginu,
sem yrði það stærsta í heimi.
Með myndun fríverslunarbanda-
lags Ameríkuríkja (FTAA) yrði
viðskiptahömlum aflétt á svæði
sem nær frá heimskautahéruðum
Kanada til Horn-höfða í Chile. Á
þessu svæði búa um 800 milljónir
manna, sem framleiða vörur og
veita þjónustu fyrir samtals 11,4
þúsund milljarða dollara á ári –
meira en í Evrópusambandinu.
Gert er ráð fyrir að tollar verði
felldir niður eða lækkaðir í við-
skiptum milli aðildarríkjanna og
að kvótar, niðurgreiðslur og aðrar
hindranir í vegi frjálsra viðskipta
verði afnumin. Í yfirlýsingunni er
kveðið á um að samningaviðræðum
um myndun FTAA verði í síðasta
lagi lokið í janúar 2005 og að
samningurinn taki gildi eigi síðar
en í desember sama ár.
Fríverslunarsamningur er þegar
í gildi milli Bandaríkjanna, Kan-
ada og Mexíkó (NAFTA).
Aðeins lýðræðisríki
fá aðild
Í yfirlýsingu þjóðarleiðtoganna
er skýrt tekið fram að einungis
lýðræðisríki geti átt aðild að frí-
verslunarbandalaginu. Varað er
við því að „ólýðræðislegar stjórn-
arfarsbreytingar eða hindrun lýð-
ræðislegra stjórnarhátta“ útiloki
ríki frá viðræðum um myndun
bandalagsins.
Kúba er eina ríkið í Ameríkuálf-
unum þar sem ekki fara fram lýð-
ræðislegar kosningar, og átti ekki
fulltrúa á fundinum í Quebec.
Þrátt fyrir að margt sé enn
óljóst varðandi hið fyrirhugaða frí-
verslunarsamkomulag og að ýmis
ágreiningsefni séu óleyst, lýsti
George W. Bush Bandaríkjaforseti
ánægju með niðurstöðu leiðtoga-
fundarins og sagði hann hafa verið
afar árangursríkan. „Mér er ljóst
að okkar bíður umfangsmikið
verkefni, en ég efast ekki um að
við getum sigrast á þessari áskor-
un.“
Ýmsir hafa áhyggjur af því að
Bandaríkjaþing kunni að setja for-
setanum stólinn fyrir dyrnar varð-
andi myndun fríverslunarbanda-
lagsins, en Bush hét því að þrýsta
á þingið að veita sér fulla heimild
til samninga.
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
skrifaði undir yfirlýsinguna, en
áskildi þjóð sinni rétt til að taka
afstöðu til tímamarkanna.
Óeirðaseggir mótmæla
frjálsum viðskiptum
Í lokayfirlýsingu fundarins
skuldbinda þjóðarleiðtogarnir sig
til að fækka þeim íbúum Ameríku-
ríkja sem búa við algjöra örbirgð
um helming fyrir árið 2015. Leið-
togarnir heita því einnig að efla
umhverfisvernd og stuðla að sjálf-
bærri nýtingu náttúruauðlinda,
með það fyrir augum að „tryggja
jafnvægi milli efnahagsþróunar,
þjóðfélagsþróunar og náttúru-
verndar“.
Fréttaskýrendur segja þessum
liðum yfirlýsingarinnar að ein-
hverju leyti ætlað að koma til móts
við kröfur andstæðinga hnattvæð-
ingar, sem héldu uppi mótmælum
gegn auknu frelsi í heimsviðskipt-
um við fundarstaðinn í Quebec-
borg.
Þrýstivatnsdælur og táragas
gegn ofbeldismönnum
Lögregla þurfti að beita þrýsti-
vatnsdælum og táragasi til að
halda aftur af óeirðaseggjum í
borginni um helgina. Reyndu þeir
að rífa niður girðingar, sem var
komið upp umhverfis fundarstað-
inn, og réðust að lögreglu. Á
fimmta hundrað manns var hand-
tekið. Talið er að um 6 þúsund
manns hafi átt aðild að ofbeldis-
fullum mótmælaaðgerðum, en um
25 þúsund tóku þátt í friðsamlegri
mótmælagöngu um borgina á laug-
ardag.
Reuters
George W. Bush Bandaríkjaforseti, Jean Chrétien, forsætisráðherra
Kanada, og Richardo Lagos, forseti Chile, takast í hendur við undir-
ritun lokayfirlýsingar fundar Ameríkuríkja í Quebec á sunnudag.
Fríverslunar-
svæði heim-
skauta á milli
Quebec-borg. AFP, AP.
Fundi leiðtoga Ameríkuríkja
lauk með undirritun yfirlýsingar
um viðskiptabandalag