Morgunblaðið - 24.04.2001, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 27
JUNICHIRO Koizumi, sem
telst til umbótasinna í japanska
stjórnarflokknum LDP, vann
yfirburðasigur í prófkjöri í gær,
sem gerir hann líklegastan til að
verða næsti forsætisráðherra
Japans.
Hann hefur
lýst því yfir
að komist
hann til
valda muni
hann stýra
ríkisstjórn
sem endur-
spegli
„rödd þjóð-
arinnar“.
Koizumi
hlaut stuðning 123 af 141 hér-
aðsdeild flokksins, en vali á leið-
toga flokksins í komandi kosn-
ingum lýkur í dag er hinir 346
þingmenn LDP greiða atkvæði.
Drukknir
gæslumenn
UPPLÝST hefur verið, að sum-
ir gæslumannanna á Hróars-
kelduhátíðinni á síðasta sumri
voru drukknir við störfin er níu
manns létu lífið í miklum troðn-
ingi. Hefur það vakið mikla
hneykslan í Danmörku og
danska blaðið Berlingske Tid-
ende upplýsir, að enginn gæslu-
mannanna hafi fengið nokkra
þjálfun. Talsmenn hátíðarinnar
fullyrða raunar, að enginn
gæslumannanna megi vera ölv-
aður en eftir einum þeirra er
haft, að hann hafi verið ölvaður
allan daginn og illa upplagður
til vinnu. Auk þess hefði hann
ekki haft neina hugmynd um
hvað gera skyldi ef til hans
kasta hefði komið.
Síðasta
nazista-
réttarhaldið?
LÆKNAR í München stað-
festu í gær að Anton Malloth, 89
ára gamall fyrrverandi liðsmað-
ur gæzlusveita SS í fangabúð-
um nazista í Theresienstadt, nú
Terezin í Tékklandi, væri nægi-
lega heill heilsu til að geta kom-
ið fyrir rétt, en hann hefur verið
ákærður fyrir morð á þremur
gyðingum á tímabilinu 1943–
1945. Verði af réttarhöldunum
má bóka að það verði með síð-
ustu skiptunum sem réttað er
yfir meintum stríðsglæpamönn-
um nazista.
Gates ekki
ríkastur
S. ROBSON Walton, aðaleig-
andi verzlanakeðjunnar Wal-
Mart, hefur steypt Bill Gates,
stofnanda og stjórnarformanni
hugbúnaðarfyrirtækisins Micro-
soft, af stalli sem ríkasta manni
heims, að því er skýrt er frá í
brezka blaðinu Sunday Times.
Samkvæmt frétt blaðsins eru
eignir Waltons, sem er elzti son-
ur Sams Waltons, stofnanda
Wal-Mart, metnar á 65 millj-
arða Bandaríkjadala, eða rúma
6 þúsund milljarða króna. Eign-
ir Gates eru metnar á 54 millj-
arða dala eða rúmlega 5 þúsund
milljarða króna. Larry Ellison
forstjóri hugbúnaðarfyrirtæk-
isins Oracle er í 3. sæti á listan-
um með 42,5 milljarða dala og
Fahd konungur Sádi-Arabíu er
í 4. sæti með 28,8 milljarða.
STUTT
Koizumi
næsti Jap-
ansleiðtogi?
Junichiro
Koizumi
VEL vopnaðir Tsjetsjenar, sem tóku
tugi manna í gíslingu á glæsihóteli í
Istanbul í fyrrakvöld, gáfust upp í
gærmorgun og slepptu fólkinu. Með
gíslatökunni vildu þeir mótmæla
hernaði Rússa í Tsjetsjníu.
Gíslatakan á Swisshotel í Istanbul
stóð í 12 tíma en að því búnu voru
Tsjetsjenarnir, 13 að tölu, færðir í
járnum á lögreglustöð. Engan gísl-
anna, sem voru 120, sakaði en í
þeirra hópi voru nokkrir Rússar.
Barátta Tsjetsjena gegn Rússum
nýtur samúðar í Tyrklandi en Bulent
Ecevit, forsætisráðherra Tyrklands,
sagði í gær, að landið væri enginn
griðastaður fyrir skæruliða. Óttast
margir, að atburðurinn geti dregið
úr líkum á því, að Istanbul fái að
halda Ólympíuleikana 2008.
Gíslataka Tsjetsjena í Istanbul
Öllum sleppt
heilum á húfi
Istanbul. AFP.
AP
Þessi kona, með barn sitt í fanginu, var í hópi gíslanna.