Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 29 Suzuki bílar eru alltaf á meðal þeirra sparneytnustu FAÐIR flugmanns lítillar einshreyfils flug- vélar bandarískra trúboða, sem var skotin nið- ur yfir Amazon-fljóti á laugardag, sagði í gær að hún hefði fengið heimild til lendingar áður en þota flughers Perú hefði skotið hana niður án viðvörunar. Flugher Perú sagði hins vegar að vélin hefði hvorki gefið upp flugáætlun né haft samband við flugumferðarstjóra þegar hún hefði flogið yfir afskekkt frumskógarsvæði, sömu leið og fíkniefnasmyglarar hefðu oft notað til að sækja kókaín á vinnslustöðvar í Kólumbíu. Bandarísk eftirlitsvél veitti herþotunni upplýsingar Embættismaður bandarísku leyniþjónust- unnar, CIA, sagði á sunnudag að eftirlitsflug- vél á vegum CIA hefði greint flugher Perú frá því að flugvélin kynni að vera á vegum eitur- lyfjasmyglara en seinna lagst gegn því að hún yrði skotin niður. George W. Bush Banda- ríkjaforseti sagði að bandarískir embættis- menn hefðu aðstoðað flugher Perú við að bera kennsl á hugsanlega eiturlyfjasmyglara með því að veita honum upplýsingar, m.a. um stélnúmer flugvéla sem gefa ekki upp flug- áætlun. Annar bandarískur embættismaður sagði að fulltrúar hers Perú tækju síðan sjálfir ákvörðun um hvort ástæða væri til að stöðva flugvélarnar og þeir hefðu dregið þá röngu ályktun í þessu tilviki að um eiturlyfjasmygl- ara væri að ræða. Bush sagði að Bandaríkjamenn hefðu ákveðið að hætta eftirlitsfluginu á svæðinu þar til upplýst yrði til fulls „hvað fór úrskeiðis í þessu hörmulega slysi“. CIA hefur tekið þátt í slíku eftirlitsflugi yfir Perú frá árinu 1995 eftir að Bandaríkjaþing samþykkti lög sem heimila leyniþjónustunni að aðstoða erlend ríki við að stöðva flugvélar ef rökstuddur grunur leikur á að þær séu not- aðar til eiturlyfjasmygls. Samkvæmt samningi ríkjanna getur her Perú aðeins notað upplýsingar Bandaríkja- manna til að gera árás á flugvél ef hún hefur ekki gefið upp flugáætlun. Herflugvélarnar þurfa fyrst að reyna að ná talstöðvarsambandi við flugvélina og gefa henni merki um að lenda. Fari flugvélin ekki eftir fyrirmælunum eiga herflugvélarnar að skjóta viðvörunarskotum áður en þær reyna að skjóta flugvélina niður. Bandarískir embættismenn segja að flugher Perú hafi ef til vill ekki farið eftir þessum reglum. Faðir flugmanns vélarinnar, sem var skotin niður yfir Amazon-fljóti, sagði að hún hefði fengið heimild til lendingar um tíu mínútum áður en herþotan skaut á hana. Flugmaður- inn hefði ekki fengið neina viðvörun. Yfirmaður nálægs flugvallar sagði að vélin hefði gefið upp flugáætlun um 45 mínútum eftir að fyrst varð vart við hana og flugmaðurinn hefði verið í talstöðvarsambandi við flug- turn vallarins. Faðir flugmannsins sagði hins vegar að sonur sinn hefði gefið upp flugáætlun áður en flugið hófst og kvaðst hafa séð eintak af henni á flugvellinum á laugardag. Al- þjóðleg trúboðasamtök babtista sögðu að herþotan hefði ekki notað sömu talstöðvarrás og flugvél trú- boðanna. Flugvélin var af gerðinni Cessna 185 og á leiðinni frá bænum Islandia, við landamærin að Brasilíu. 35 ára kona og sjö mánaða dóttir hennar létu lífið en eiginmaður hennar og sex ára sonur þeirra komust lífs af. Flugmaðurinn slasaðist á báðum fótum. Árásin á flugvél bandarískra trúboða Frásögn flughers Perú vefengd AP Kevin Donaldson, flugmaður vélarinnar sem var skotin niður í Perú, er hér borinn út úr flugvél á al- þjóðaflugvellinum í Fíladelfíu. Hann slasaðist á báð- um fótum í árásinni. Lima. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.