Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 31 „VORTÓNLEIKAR“ voru ekki nefndir á nafn, en ætli það hugtak hljóti samt ekki að hafa átt við fram- komu Kórs Menntaskólans í Reykja- vík á sunnudagskvöldið var í Ými, sönghúsi Karlakórs Reykjavíkur við Skógarhlíð. Því miður voru kórfélag- ar og þar með raddskipan þeirra hvergi tilgreind í tónleikaskrá, en þó að kvenraddir væru að vonum í áber- andi meirihluta, vakti fljótlega at- hygli hvað heyrðist mikið í karlrödd- um – að vísu mest í bassa. Samt sem áður gilti um herrana, að söngur þeirra var oftast tandurhreinn, að mestu rembingslaus, og þar á ofan hljómfyllri en gengur og gerist í blönduðum ungmennakórum, sem eins og kunnugt er þurfa jafnan að kljást við krónískt undirframboð af bössum og sérstaklega tenórum. Fyrstu sjö lögin voru með einni undantekningu sungin a cappella. Hljómurinn í Hver á sér fegra föð- urland (Emil Thoroddsen) var smá- gerður en öruggur í inntónun, þrátt fyrir örlítinn vott af tímastreitu milli hendinga, sem vildi víðar einkenna mótun hins annars þaulreynda kór- stjóra. Á hinn bóginn var hressandi að heyra þar sem oft síðar meir hvað kýlt var beint á tóninn í stað þess að læðast inn í hann með tilheyrandi eftirreigingi, eins og algengt er í ung- um kórsöng hérlendis. Marteinn H. Friðriksson stjórnaði frá píanóinu í Sjá dagar koma (Sigurður Þórðar- son), að virtist í einfaldari píanósatz en fylgir einsöngsgerðinni, enda vantaði tilfinnanlega hreyfingu og „komplementer-rytmík“ í undirleik- inn til að ljá laginu nægilega epíska reisn. Fyrrgetinn hressileiki ein- kenndi aftur á móti skemmtilega Smávinir fagrir (Jón Nordal) og eink- um Maístjörnu Jóns Ásgeirssonar. Síðendurreisnin kvaddi sér hljóðs með Mín sál, þinn söngur hljómi eftir Adam Gumpelzhaimer, sem tekið var látlaust og ferskt með miklum glæsi- brag, og barokktíminn með Lofið Drottin (Antonio Caldara), þrátt fyr- ir smá eirðarleysi í tempó. Í Rorando coeli defluant eftir Vodnansky söngst 10 manna kammerkór á sviði antí- fónalt á við afgangskórinn uppstilltan meðfram veggjum í hálfhring kring- um hlustendasætin, og kom það dá- vel út, þó að sungið væri ívið of hægt fyrir fremur stuttan eftirhljóm Ým- issalarins. Síðust fyrir hlé voru fjórar þjóð- lagaraddsetningar eftir stjórnand- ann, er leiddi sönginn frá slaghörp- unni. Eftir hið júgóslavneska Glötuð ást, er svipar til upphafsstefsins í Slavneskum mars Tsjækovskíjs, kom fallegt þýzkt þjóðlag – „Bárðabrunn- ur á jökli“ í íslenzkun Þorsteins Valdimarssonar – sem menn könn- uðust við í meðförum Brahms og ugglaust fleiri; flutt í hraðari kant- inum og að auki nokkuð slitrótt í hendingamótun. Hið japanska Sak- úra var fínlega sungið og ljúft sem kirsuberjavín, þó að austurlenzki fimmtónastíllinn væri svolítið strauj- aður út í vestrænni hljómsetningu. Allt voru þetta prýðilegar raddsetn- ingar, en þó var hin bezta eftir, Söng- ur Volguferjumanna, þar sem Mar- teinn náði skemmtilega breiðum og þrælrússneskum blæ úr hugvits- samri útsetningu sinni, og hefði hún óefað náð enn meiri áhrifum hefði lagið fengið að hvíla ögn betur í sjálfu sér. Seinni hlutinn hófst á óskráðu at- riði án undirleiks, Integer vitae, er setti „stúdentíkósan“ svip á and- rúmsloftið áður en lagt var til atlögu við tvær söngleikjasyrpur frá Broadway. Hin meistaralega Vestur- bæjarsaga Bernsteins var fyrst, og sönggleðin og krafturinn sem þar leystist úr læðingi við píanóundirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur var slíkur, að mann langaði fyrr en varði til að skella stimplinum „Bezti bland- aði ungmennamjúsíkalkórinn á höf- uðborgarsvæðinu!“ á menntlingana og spyrja hvort leikfélag þeirra Herranótt þekkti almennilega sinn vitjunartíma með því að nýta ekki slíkt gæðaapparat hið snarasta í söngleiksuppfærslu. Fátt brá skugga á vandaðan flutninginn, og mætti kannski helzt nefna tilhlaup til rangr- ar píanóinnkomu lokalagsins í miðri syrpu, sem setti kórinn út af laginu eitt augnablik, auk þess sem maður saknaði ósjálfrátt gjammandi undir- söngs-ískra púertorísku stúlknanna í hemíóluðu 6/8-sennu þeirra America. Bragi Sveinsson söng svolítið feiminn en snotran einsöng í Make Of Our hands, og lokaballaðan frábæra, Therés A Place For Us (lagið af sum- um talið fremur eftir Stephen Sond- heim en Bernstein), tókst afburðavel, þó að enn mætti gefa laglínunni að- eins betri tíma á kostnað asans. Píanóparturinn í seinni syrpunni, úr Porgy and Bess eftir Gershwin- bræður, var áfram í höndum Önnu Guðnýjar; ef nokkuð var enn kröfu- harðari en hjá Bernstein, sem var þó ekki árennilegur fyrir. En miðað við trúlega takmarkaðan samæfingar- tíma var sá leikur leystur af hendi með snöfurlegum þokka og jafnvel votti af sveiflu, sem einnig gat að heyra ávæning af í kórsöngnum þeg- ar bezt lét – þrátt fyrir dálítið hart stakkató á stundum, sem hefði mátt fljóta aðeins betur. Mér var hins veg- ar hulið hvaðan ábúðarmikla emb- ættismannahrynjandin var fengin (útsetjara hvorugrar syrpu var getið) í It Ain’t Necessarily So – í stað hinna vel kunnu rúllandi tríólna – en að öðru leyti fór kórinn glimrandi vel með sitt, ekki sízt í glansmiklum forte-lokahljómum. Sigrún Ólafsdóttir opinberaði í Summertime efnilegt „krún“-söng- talent, sem orðið gæti mikið úr með tíð, tíma og auknum krafti. Tvísöngur hennar og Hjalta Snæs Ægissonar ásamt kórnum að P&B loknu í Pie Jesu úr Sálumessu Lloyds Webbers í raddsetningu kórstjórans hljómaði mjög vel og myndaði bráðfallegt nið- urlag á vel heppnuðum MR-kórtón- leikum. Músíkalskir menntlingar TÓNLIST Ý m i r Ýmis inn- og erlend lög auk laga- syrpna úr West Side Story og Porgy and Bess. Kór Menntaskól- ans í Reykjavík. Píanóundirleikur: Anna Guðný Guðmundsdóttir. Stjórnandi: Marteinn H. Frið- riksson. Sunnudaginn 22. apríl kl. 20:30. KÓRTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson STOFNFUNDUR Samtaka um leik- minjasafn var haldinn í Iðnó síðast- liðinn laugardag. Tilgangur sam- takanna er að vinna að skráningu leiklistarsögulegra minja og stofn- un leikminjasafns á Íslandi. Að stofnun samtakanna stóðu 26 félög, samtök og stofnanir á sviði leik- listar, kvikmyndagerðar, tónlistar og lista- og menningarlífs almennt. Stofnfundurinn tókst vel og var vel sóttur. Samþykkt voru lög fyrir samtökin og kosin var stjórn átján fulltrúa aðildarfélaganna. Frum- mælendur voru Sveinn Einarsson leikstjóri og dr. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur og fjölluðu þeir um leikminjavörslu á Íslandi út frá ólíkum sjónarhornum. Þá afhenti Sveinn samtökunum leikminjar úr sínum fórum sem höfðu borist hon- um og Steindóri Hjörleifssyni. Ólaf- ur J. Engilbertsson, formaður félags leikmynda- og búningahöf- unda, flutti skýrslu undirbúnings- nefndar. Vigdís Finnbogadóttir var útnefnd verndari samtakanna en í erindi sínu sagði hún að með því starfi sem nú lægi fyrir höndum væri gamall draumur sinn að ræt- ast. Tinna Gunnlaugsdóttir, formað- ur Bandalags íslenskra listamanna, var fundarstjóri. Eftirtaldir aðilar voru tilnefndir í fyrstu stjórn samtakanna: Ari Krist- insson fyrir Samtök kvikmynda- framleiðenda, Benóný Ægisson fyr- ir Leikskáldafélag Íslands, Björn G. Börnsson fyrir Félag leikmynda- og búningahöfunda, Helga Steffensen fyrir brúðuleikhússamtökin Unima á Íslandi, Hjálmtýr Heiðdal fyrir Félag kvikmyndagerðarmanna, Ingibjörg Björnsdóttir fyrir Félag íslenskra listdansara og Íslenska dansflokkinn, Jón Viðar Jónsson fyrir Félag leiklistarfræðinga, Jón Þórisson fyrir Leikfélag Reykjavík- ur, Magnús Geir Þórðarson fyrir Bandalag sjálfstæðra leikhúsa og Leikfélag Íslands, Ólafur J. Eng- ilbertsson fyrir Ríkisútvarpið, Pét- ur Eggerz fyrir Assitej á Íslandi, Pétur Stefánsson fyrir Samband ís- lenskra myndlistarmanna, Stefán Baldursson fyrir Þjóðleikhúsið, Stefán Jónsson fyrir Félag íslenskra leikara, Sveinn Einarsson fyrir Félag leikstjóra á Íslandi, Sigurður Hróarsson fyrir Leikfélag Akureyr- ar og Vilborg Valgarðsdóttir fyrir Bandalag sjálfstæðra leikhúsa. Síð- ar verða skipaðir tveir fulltrúar, fyrir Íslensku óperuna annars veg- ar og Félag íslenskra tónlistar- manna, Félag íslenskra hljómlist- armanna og Tónskáldafélagið hins vegar. Stofnaðilar án stjórnarsetu eru auk þess fjórir, Bandalag ís- lenskra listamanna, Leiklistar- samband Íslands, Listaháskóli Ís- lands – leiklistardeild og Þjóðminjasafn Íslands. Aðstaða til skráningar Forsaga stofnunar samtakanna er sú að undanfarið hefur Félag leikmynda- og búningahöfunda leit- að samráðs við önnur fagfélög og stofnanir á sviði lista og menningar um stofnun safns um leikmuni sem hafa leiklistarsögulegt gildi og hefja kerfisbundna skráningu þeirra. Á undanförnum mánuðum hefur félagið kynnt málið þjóð- minjaverði og menntamálaráð- herra, m.a. með fulltingi Bandalags íslenskra listamanna, við jákvæðar undirtektir. Nýlega ákvað mennta- málaráðherra að styrkja undirbún- ing að leikminjasafni og er nú svo komið að 26 aðildarfélög hafa sam- einast um stofnun Samtaka um leik- minjasafn. Ólafur J. Engilbertsson segir að næsta skref stjórnarinnar verði að kjósa fimm manna starfsstjórn. „Fyrsta verk starfsstjórnarinnar yrði að afla fjármagns og koma upp aðstöðu til skráningar. Stefnt er að því að leikminjarnar verði skráðar í Sarp, skráningarkerfi Þjóðminja- safnsins. Skráningin mun auðvelda allar rannsóknir á leiklistarsögu og sýningahald í tengslum við leiklist. Þá verður staðið fyrir ýmiss konar kynningarstarfsemi, fyrirlestrum, sýningum o.fl. Að lokum má jafn- framt vænta þess að til verði safn þar sem leikminjum yrði komið fyr- ir á einum stað,“ segir Ólafur. Samtök um leikminjasafn eru áhugasamtök og munu þau ekki standa að neins konar atvinnu- rekstri. „Þær stofnanir og félög sem standa að samtökunum verða með tilfallandi starfskrafta í skráning- unni. Einnig mun háskólanemum bjóðast að sækja um að vinna við skráningu, en til þess þyrftu þeir að sækja um nýsköpunarstyrki.“ Ólaf- ur telur stofnun samtakanna hafa mikið gildi og segist vona að þau veki fólk til vitundar um mikilvægi leikminja, sem fram til þessa hafa lítillar varðveislu notið, ólíkt öðrum minjum sem hafa sögulegt gildi. „Þetta hefur staðið lengi til og margir hafa vakið máls á þessu mál- efni í gegnum tíðina. Það er því stór áfangi að ná svo breiðri samstöðu um þetta mál,“ segir hann að lokum. Samtökum um leikminjasafn komið á fót og stefnt að skráningu leiklistarsögulegra minja Morgunblaðið/Jim Smart Vigdís Finnbogadóttir, Sveinn Einarsson og Guðrún Ásmundsdóttir voru meðal viðstaddra á fundinum. „Stór áfangi að ná svo breiðri samstöðu“ FRESTUR til að skila inn handritum til Bókmenntaverð- launa Halldórs Laxness rennur út 1. maí. Verðlaunin, sem nema 500.000 krónum, eru veitt fyrir nýja og áður óbirta ís- lenska skáldsögu eða safn smá- sagna og verða veitt í fimmta sinn í haust. Samkeppnin er öll- um opin og mun bókin, sem verðlaunin hlýtur, koma út hjá Vöku-Helgafelli sama dag og þau verða afhent. Vaka-Helga- fell leggur fram verðlaunaféð, en við þá upphæð bætast venju- leg höfundarlaun samkvæmt rammasamningi Rithöfunda- sambands Íslands og Félags ís- lenskra bókaútgefenda. Utanáskriftin er Bók- menntaverðlaun Halldórs Lax- ness, Vaka-Helgafell, Suður- landsbraut 12, 108 Reykjavík. Handrit eiga að vera merkt dulnefni en rétt nafn fylgi með í lokuðu umslagi. Frestur til handritaskila að renna út
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.