Morgunblaðið - 24.04.2001, Page 43

Morgunblaðið - 24.04.2001, Page 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 43 SÍÐAN ég skrifaði grein mína um bið eftir heyrnartækjum og tekjuafgang ríkissjóðs hafa nokkrar greinar verið skrifaðar hér í Morgunblaðið um mál- ið. Er lítið á þessum greinum að græða nema hvað grein Birgis Áss Guðmundssonar, forstjóra Heyrnar- og talmeinastöðvar Ís- lands, greindi frá ýms- um staðreyndum um málið samkvæmt ósk minni. Það er afleitt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli komast upp með átölulaust að ríkissjóður haldi að sér höndunum með fjárveit- ingar til þessara mála. Það eru hrein lögbrot. Í lögum um Heyrnar- og tal- meinastöð Íslands segir að stofnunin skuli annast hverskonar þjónustu við heyrnarskerta t.d. prófun og úthlut- un heyrnartækja og annast útvegun á tækjum fyrir heyrnarskerta og mál- halta sem yfirlæknir úrskurðar nauð- synleg og úthluta þeim samkvæmt gjaldskrá. Í reglum um þátttöku ríkisins í kostnaði vegna hjálpartækja fyrir heyrnarskerta segir í 1. grein: Allir landsmenn skulu eiga rétt á heyrn- artækjum. Allt virðist gert til þess að hindra framkvæmd þess sem lögin segja fyrir um. Fyrsta hindrunin er, að koma á fót stofnun sem samkvæmt ummælum forstjóra hennar er engan veginn í stakk búin til að sinna verk- efninu. Síðan er sett önnur hindrun með því að láta fólk bíða 3–4 mánuði eftir að komast í skoðun þótt fyrir liggi vottorð eyrnalæknis um að heyrnartæki sé nauðsynlegt. Þegar úr- skurður stofnunarinnar liggur loks fyrir er sett upp þriðja hindrunin með því að bera því við að ekki séu peningar fyrir hendi til að kaupa tækin og verða menn að bíða enn í 9–10 mánuði eftir tækjum. Það er ekki furða þótt ríkisstjórnin geti sýnt góða af- komu ríkissjóðs ef þetta ásamt fleiru þvílíku er grunnurinn að tekjuaf- ganginum. Svo kemur fjármálaráð- herra eins og álfur út úr hól og segist ekki vita hvað hann eigi að gera við allan þennan tekjuafgang. En það eru ekki Davíð og Geir sem eru sökudólg- arnir í þessu máli, þeir eru aðeins peð í valdatafli auðmannaklíkunnar sem stjórnar Sjálfstæðisflokknum og stjórnar landinu. Það er ekki í hennar þágu að aldraðir og sjúkir fái heyrn- artæki sem þeir eiga heimtingu á samkvæmt lögum. Þessu ófremdarástandi verður að ljúka Gamla fólkið á stóran þátt í uppeldi barnanna. Það er ekki stætt á því að gera afa og ömmu illfært að sinna þessu hlutverki ef ekki fást heyrnar- tæki fyrr en eftir dúk og disk. Flest gamalt fólk er meira eða minna heyrnarskert og því er mikill vandi á höndum þegar það þarf að gæta barnabarnanna. Slíkt getur valdið slysum og ekki er heyrnardauft fólk óhult í umferðinni. Er þá ótalið hversu hvimleitt er að geta ekki tekið þátt í samræðum vegna heyrnar- deyfu. Það er með ólíkindum hve ríkis- stjórninni hefir tekist að hindra það að fólk fái heyrnartæki. Hinn langi tími sem líður, allt á annað ár eins og að framan segir, þar til tækin fást, gerir að verkum að svo fari í mörgum tilfellum að tækin duga alls ekki þeg- ar þau loks koma vegna þess að heyrnardeyfan hefir aukist og við- komandi verður að byrja ferlið á ný: Bíða í 3–4 mánuði eftir nýrri skoðun hjá Heyrnar- og talmeinastöðinni og síðan 9–10 mánuði þar til ríkisstjórn- inni þóknast að reiða fram fé til kaup- anna. Allur þessi skrípaleikur er svo yf- irþyrmandi að óskiljanlegt er. Sam- kvæmt lögum er skipuð 7 manna stjórn Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands og er Jóhannes Pálmason for- maður skipaður af ráðherra. Þessi nefnd er launuð og kemur að jafnaði saman mánaðarlega. Ekki efa ég að stjórnin og allt starfsfólk stöðvarinn- ar gerir allt sem það getur til að flýta afgreiðslu heyrnartækja. Sannleikur- inn er sá að hægt er að útvega öllum sem nú bíða, tæki innan eins mánaðar því bið hjá framleiðendum er engin. Ráðherrarnir 10 hafa 85 milljónir tiltækar Það eru margar leiðir til að koma þessu í kring. Það myndi ekki þykja stór glæpur þótt ákveðið yrði að fara 28 milljónir fram úr fjárhagsáætlun þeirri sem ætluð er Heyrnar- og tal- meinastöðinni á þessu ári. Davíð hef- ur góða æfingu í að fara fram úr fjár- hagsáætlunum hins opinbera svo nemur hundruðum milljóna. Einföld lausn er einnig að allir ráðherrar nú- verandi ríkisstjórnar tækju sig sam- an og létu eftir 28 milljónir af þeim 85 milljónum sem þeir hafa til samans í umþóttunarfé árlega. Tilvalið að Ingi- björg Pálmadóttir riði á vaðið í þessu máli og byrsti sig aðeins við samráð- herra sína. Ráðherrarnir hefðu samt 57 milljónir til eigin umþóttunar. Einnig væri hægt að lýsa yfir hættuástandi vegna aðgerðaleysis og ákveða þegar í stað aukafjárveitingu til þess að allir sem nú bíða eftir heyrnartækjum fái þau þegar í stað. Sú aukafjárveiting þyrfti að nægja til þess að allir sem bíða eftir skoðun hjá Heyrnar- og talmeinastöðinni komist að innan eins mánaðar. Þegar ég var að ljúka við þessa grein barst mér í hendur Fréttabréf Heyrnarhjálpar 1. tbl. mars 2001. Þar er þessum málum gerð nokkur skil og sagt frá að heilbrigðisráðherra hafi falið Jóhannesi Pálmasyni stjórnar- formanni HTÍ að vinna að útfærslu eftirtalinna mála: 1. Að undirbúa í samvinnu við heil- brigðis- og tryggingaráðuneytið frumvarp til nýrra heildarlaga um Heyrnar- og talmeinastöð Íslands í stað laga nr. 35 frá 1980. 2. Að undirbúa gerð árangurs- stjórnunarsamninga heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis og Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands. 3. Að endurskoða núverandi stjórnskipulag og starfsmannahald Heyrnar- og talmeinastöðvar Ís- lands. 4. Að vinna tímasetta fram- kvæmdaráætlun sem miðar að því að stytta biðlista og meta kostnað við það verkefni. Þessu verkefni á að ljúka á sex mánuðum frá miðjum desember að telja. Ekki kemur fram hvort hér er átt við desember 2000 eða 2001. Hvort sem er, er það of seint. Hér er hættuástand sem verður að takast á við strax. Hinsvegar er ekkert nema gott um það að segja að þetta verk- efni verði unnið en verður að vera þannig útfært að í framtíðinni komi ekki til myndunar biðlista eftir heyrnartækjum. Það er kominn tími til að kippa þessum málum í lag. Það er smán- arblettur á íslensku þjóðinni að láta ríkisstjórnina komast upp með hermdarverk gegn öldruðum og sjúk- um. Félag aldraðara ætti að láta til sín taka í þessu máli, hætta bæna- skrám og láta vita að nú er sé nóg komið. Hindrunarhlaup Sjálfstæðis- flokksins fyrir heyrnarskerta Halldór Jakobsson Heyrn Það er smánarblettur á íslensku þjóðinni, segir Halldór Jakobsson, að láta ríkisstjórnina kom- ast upp með hermdar- verk gegn öldruðum og sjúkum. Höfundur er fyrrverandi forstjóri. TALSMENN LÍÚ hafa birt í fjölmiðlun greinar, til að leiða al- menning inn á það að hlutaskiptakerfi það, sem sjómönnum er greitt eftir, sé gamalt og úrelt. Þeir benda á þau rök, að ef fækkað er í áhöfn ber áhöfnin meira úr býtum, en hjá þeim er kostnaður bara meiri. Þetta telja þeir að- alorsökina, að ekki er hægt að endurnýja flotann eða auka tæknivæðingu þeirra. Sjómenn eru tilbúnir að ræða þessi mál, sem og önnur samninga- mál. Þessi söngur útgerðarmanna er ekki nýr af nálinni. Hann hefur heyrst allar götur síðan hin raun- verulega tæknibylting hófst eftir seinna stríð. Einn söngur þeirra er um laun skipstjóra á nótaveiðum. Það væri fróðlegt að rifja það upp hvernig þróun þeirra launa hefur orðið. Fyrir sjötta áratugnum var sú tilhögun, að sá sem stjórnaði veið- unum var ekki skipstjórinn, heldur maður sem hafði kunnáttu þar um og var kallaður bassi og laun þess- ara manna aðskilin. Á sjötta áratugnum breyttist þetta í þá veru að skipstjórinn tók að sér bassahlutverkið.Við þá breytingu jukust laun skipstjóra upp í það að vera 12% af brúttó- verðmæti af aflanum. Útgerðarmenn voru fljótir að koma skipstjóra niður í 8% af brúttóverðmæti en aldrei minna en tvo hásetahluti. En þá var háseta- hluturinn um 4%. Í upphafi sjöunda áratugarins hófst nú tæknibylting. Kraftblökk- in og asdic-tæki voru sett í bátana. Hér varð allmikil bylting í síldveið- unum. Skipum var breytt og ný skip smíðuð, sem hentuðu hinni miklu þróun. Út- gerðarmenn kröfðust að sjómenn tækju þátt í að fjármagna bylt- inguna. Þeim varð að ósk sinni. Laun skipstjóra lækkuðu í 6,4% af brúttóverði og aðrir sjómenn í hlutfalli við það. Nú hófst grátur út- gerðarmanna fyrir al- vöru og var þá ekki bundinn við nótaskip- in heldur allan flot- ann. Hver sjóðurinn af öðrum spratt upp. Sjóðir til að styrkja útgerðarmenn, t.d. má nefna Stofnfjársjóð fiskiskipa, sem var til að greiða af lánum, sem voru fengin til að fjármagna nýsmíði og endurnýjun. Eitt var sameiginlegt með þess- um sjóðum að fjármagn til þeirra var greitt af óskiptu brúttóverð- mæti afla. Skiptaverðmæti var það, sem eftir stóð. Um miðjan áttunda áratuginn var mælirinn fullur. Með verkfalls- aðgerðum hófst mikil rimma, sem endaði með því að ríkisstjórnin áhvað að fara í saumana á þessu sjóðasukki. Niðurstaðan var sú að fjöldi sjóða minnkaði, en niðurstaðan er eins og hún er í dag. 30% af brúttóverðmæti er tekið af óskiptu, sem fer í að greiða olíu, tryggingar o.m.fl. Hlutur áhafnar um 40% af skiptaverði, sem eru í raun 28% af brúttóverðmæti skipa. Til þess að klára dæmið um skip- stjórahlut nótaskipa stendur það í 6,4% af skiptaverðmæti, eða 4,48% af brúttóverðmæti. Í stuttu máli hefur hlutur hans farið úr 12% nið- ur í 4,48% á þessu umrædda tíma- bili. Á öðrum skipum er skipstjóra- hluturinn talsvert minni, en það er enn meiri raunasaga að segja frá því. Hann hefur tekið mið af há- setahlut en er ekki föst prósenta. Hásetahluturinn var 1960 4% af brúttóverðmæti en er nú um 2% af skiptaverðmæti, sem þýðir 1,4% af brúttóverðmæti. Skipstjórinn hef- ur því farið úr 8% niður í tæp 3%. Þarna er vissulega talsverður mismunur á nótaskipstjórum og öðrum skipstjórum, enda hafa út- gerðarmenn sífellt verið að kyrja um það. Ef einhverrar breytingar er þörf væri það að skipstjórahlutur á t.d. frystitogurum yrði hærri. Þeirra vinnuálag hefur margfaldast síð- ustu ár. Vinna þeirra byggist ekki einungis á siglingum og veiðiskap, heldur stýra þeir stóru frystihúsi. Og stýrimenn eru orðnir verkstjór- ar frystihússins með tilheyrandi vinnu og skýrslugerðum, til viðbót- ar veiðiskapnum. Vélstjóraálagið hefur aukist vegna keyrslu frysti- búnað sem og vinnsluvéla. Því ætti krafa útgerðarmanna um lægri laun nótaskipstjóra að snúast í þá veru að laun annarra skipstjóra, sem og annarra sjó- manna, ættu að hækka. Af þessu leyti er ég sammála stjórn LÍÚ, um að hlutaskiptakerf- ið er úrelt. Um áramót var samningaaðilum LÍÚ boðið upp á það, að leysa samningamálin með því að semja um fjögur atriði og samningstíma- bilið yrði stutt. Samninganefnd sjómanna taldi það rétt að tími mundi vinnast til að skoða önnur mál. Samninga- nefnd LÍÚ svaraði þessu tilboði með því að segja að ef samningar kostuðu útgerðina eitt gaddað sent væri ekki grundvöllur til samninga. Eins og gefur að skilja var þetta ein köld vatnsgusa framan í samn- inganefnd sjómanna. Því er staðan komin á það stig að allt er í hnút, og verkfall. LÍÚ Hvaða skammstöfun er þetta? Jú, það þýðir Landssamband ís- lenskra útvegsmanna. Samkvæmt lögum fer atkvæða- vægi félagsmanna eftir skipaeign og stærð skipa, sem þýðir að fulltrúar stóru sjávarútvegsfyrir- tækjanna hafa yfir að ráða marg- földu vægi, miðað við hinn dæmi- gerða útgerðarmann. Mikil óánægja fylgir þessu og má sjá það, að klofningur innan LÍÚ er alltaf að aukast. Eigendur minni útgerða eru sífellt að ganga út úr samtökunum og stofna ný félög. Þeir vilja meina að LÍÚ sé hætt að vinna fyrir þá. Ég er minnugur þess, að áður sátu útgerðarmenn og sjómenn hlið við hlið, þegar unnið var að verðlagsmálum, auk þess studdu þeir þær aðgerðir sjómanna, þegar þeir sigldu í land til að mótmæla fiskverði. Þeir sem eru nú allsráð- andi í sambandinu eru hinum meg- in við borðið og slagurinn snýst um verðlagningu fisks. LÍÚ er orðið úrelt Sambandið er orðið málpípa „stóru sjávarútvegsfyrirtækj- anna“. Fyrirtækja sem hafa sótt sitt hlutafé í sparifé landsmanna og lífeyrissjóði þeirra. Veðheimild á veiðikvóta hefur svo gert þeim fært að afla lánsfjármagns frá banka- stofnunum til frekari kvótakaupa. Ársuppgjör þessara fyrirtækja eru nú hvert af öðru að líta dagsins ljós. Flest eru rekin með tapi og skuldastaða fer hríðversnandi. Síðasta von þeirra beinist nú að sjómönnum. Nú skal ná til launa þeirra á einn eða annan hátt. Fækka réttindamönnum, rústa hlutaskiptakerfinu og lækka laun þeirra sem eftir verða. Á meðan situr hinn raunverulegi útgerðar- maður úti í horni og bíður óþreyju- fullur eftir því hvað verða vill. Láir honum það nokkur? Hann skilur ekki þá vitleysu, sem hann er flæktur í. Hann ígrundar það hvort hann geti ekki sjálfur samið við sína menn og haldið til róðra nú þegar. Ég tel að forustumenn sjó- mannasamtakanna ættu að skoða það mál, hvort sú leið sé ekki fram- kvæmanleg. Og láta samninga- nefnd LÍÚ sigla sinn eigin sjó. Grátur og táraflóð stjórnar LÍÚ er orðið úrelt. Úrelt Ingvi R. Einarsson Kjaradeila Þeir sem eru nú allsráð- andi í sambandinu, segir Ingvi R. Einarsson, eru hinum megin við borðið og slagurinn beinist að verðlagningu fisks. Höfundur er skipstjóri. verslunarmiðst. Eiðstorgi, sími 552 3970. Stretchbuxur St. 38–50 - Frábært úrval

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.