Morgunblaðið - 24.04.2001, Síða 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 47
✝ Sólveig Þórðar-dóttir fæddist í
Seljabrekku í Mos-
fellssveit 14. maí
1952. Hún lést á heim-
ili sínu 17. apríl. For-
eldrar hennar eru
Þórður Jónsson, f.
10.5. 1927, d. 22.1.
1972, fósturfaðir Ein-
ar Leó Guðmundsson,
f. 4.12. 1928, d. 26.1.
1989, og Margrét
Erla Einarsdóttir, f.
11.5. 1931. Systkini
Sólveigar eru: Ragn-
hildur Aldís Kristins-
dóttir, f. 1950, Einar Marel Þórð-
arson (tvíburabróðir) f. 1952,
Arnbjörg Þórðardóttir, f. 1953,
Laufey Dís Einarsdóttir, f. 1958,
og Erla Björk Einarsdóttir, f. 1963.
Hinn 15. apríl 1974 giftist Sól-
veig Baldri Brjánssyni veitinga-
manni, f. 30.9. 1948. Hann er sonur
hjónanna Brjáns Guðjónssonar, f.
19.11. 1923, og Ragnheiðar Hlífar
Júlíusdóttur, f. 10.7. 1927. Börn
þeirra eru: 1) Erla
Dröfn Baldursdóttir
leikskólakennari, f.
28.10. 1972. Eigin-
maður hennar er Jó-
hann Bjarni Gunn-
arsson, f. 22.7. 1971.
Börn þeirra eru Arn-
ór Orri, f. 26.7. 1996,
og Aníta Sólveig, f.
16.6. 1999. 2) Ragn-
heiður Mjöll Baldurs-
dóttir sölu- og mark-
aðsfulltrúi, f. 8.3.
1974. Sambýlismað-
ur hennar er Harald-
ur Þór Gunnlaugsson
rafvirki, f. 23.12. 1967. Sonur
þeirra er Baldur Þór, f. 10.3. 1997.
Sólveig vann ýmis störf, m.a.
sem móttökuritari á Borgarspítal-
anum. Ráku þau hjónin krána
Feita dverginn í þrjú ár og eftir
það starfaði hún á hjúkrunarheim-
ilinu Eir við aðhlynningu.
Útför Sólveigar fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Í dag ætla ég að kveðja hana
mömmu mína, þessa stórkostlegu
konu, sem fór svo sannarlega ótroðn-
ar slóðir í lífi sínu.
Mér hlotnuðust þau forréttindi að
fá að koma inn í þennan heim fyrir 27
árum og fá að vera undir stjórn henn-
ar og njóta hlýju hennar þann tíma.
Mamma mín hefur alltaf verið fyr-
irmynd mín í öllu sem tengdist henni,
fegurð hennar og þokki þar á meðal.
Ég hef alltaf verið stolt af lifnaðar-
háttum hennar þar sem heilsan var í
fyrirrúmi. Mamma spáði í allt sem
viðkom hollustu og mataræði og fór
ekki hvað sem er ofan í hennar líkama
eða á.
Við systurnar fengum mjög strangt
uppeldi og vorum við langt frá því að
vera sáttar við það að fá aldrei kókó
pöffs í morgunmat né nokkurn tím-
ann sælgæti eða súkkulaðikex. Við
systurnar dóum þó ekki ráðalausar
því við báðum bara oftar um að fá að
sofa hjá Siggu og Bryndísi, því þar
fengum við alltaf kókó pöffs eða hun-
angsseríos í morgunmat.
Í dag er ég þér mjög þakklát því ég
bý við góða heilsu og hef sterkar tenn-
ur.
Margar eru minningarnar sem rifj-
ast upp fyrir mér er ég skrifa þetta og
er tilhugsunin sár því þú ert ekki
lengur hjá mér og það eina sem við
eigum orðið sameiginlegt eru minn-
ingar mínar og hringurinn þinn, sem
ég ber nú.
Elsku mamma mín, núna ertu kom-
in til hans afa, laus frá þessum hræði-
lega sjúkdómi sem þú barðist við af
hugrekki og dugnaði í rúmt ár, og veit
ég að afi hefur tekið vel á móti þér því
ég fann svo sterkt fyrir honum heima
daginn sem þú kvaddir okkur.
Ég kveð þig, mamma mín, með
bæninni minni og bið þig að hvíla í
friði og hafa engar áhyggjur af okkur
því það varst þú sem kenndir okkur
að vera sterk. Ég veit að þú átt eftir
að veita okkur áfram þann styrk sem
við þörfnumst:
„Guð, gefðu mér æðruleysi til að
sætta mig við það, sem ég fæ ekki
breytt, kjark til að breyta því, sem ég
get breytt, og vit til að greina þar á
milli.“ (Æðruleysisbænin.)
Þín dóttir,
Ragnheiður Mjöll Baldursdóttir.
Elsku besta mamma mín, nú hefur
þú kvatt okkur og ert komin á stað
þar sem þú ert laus úr viðjum sjúk-
dómsins og ég veit að þér líður vel.
Eftir að þú veiktist átti ég mér eina
ósk. Hún var sú að þú gætir verið með
mér á útskriftardaginn minn í júní.
Ég veit að þú verður viðstödd, mér til
halds og trausts; á annan hátt en ég
óskaði mér en ekki síður stolt en þú
hefur verið af mér í gegnum skóla-
göngu mína. Ég á eftir að sakna þín
mikið en ég sé ljós í myrkrinu því ég
veit að við eigum eftir að hittast á ný.
Þín dóttir,
Erla Dröfn.
Elsku amma, nú ertu farin frá okk-
ur og ert ekki lengur veik. Við vitum
að þér líður vel núna á þeim stað sem
þú ert. Við eigum eftir að sakna þín
mikið en ætlum að geyma minn-
inguna um þig í hjartanu okkar.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgr. Pét.)
Arnór Orri og Aníta Sólveig.
Í sorgarinnar sölum,
er sálin ein svo hrygg.
Í dimmum táradölum
er döpur vonin stygg.
Og dagsins ljúfu draumar
dofna ósköp hljótt
og allir sælu straumar
sofna ósköp fljótt.
Í hljóðum aftans hnígur
hjartans óskin mín.
Og svefninn ávallt sígur
í sorgardraum til þín.
Því vonir aldrei vakna
í veröld aftur hér.
Í sorgum ákaft sakna,
sárt græt í hjarta mér.
Þú ert bros sálar minnar og æsku-
hlýjan er hjá mér krýpur. Þú léttir
huga minn í minningum kærleikans.
Þú verndaðir hjarta mitt í örmum um-
hyggjunnar. Þú lyftir von minni upp á
hærri hæðir þannig að hamingjan óx í
brjósti mér. Þú tendraðir kerti ljóss-
ins svo myrkrið náði ekki að skelfa
unga sál mína.
Þú nærðir ástina í vöggu bernsk-
unnar og fórst höndum þínum með
nærandi góðvild um barnssál mína,
sem ég væri viðkvæmt blóm. Þú gafst
mér anda þinn og kærleika, dýrmæt-
ustu gjöf frá guði. Ég elska þig af
hreinleik sálar minnar, alltaf, alls
staðar, í öllum heimum drottins.
Góður guð, ég bið þig með nístandi
sársauka sorgarinnar og vanmætti
anda míns að umvefja móður mína
Margréti Erlu, systkin, mág minn,
Baldur Brjánsson, dætur þeirra, Erlu
Dröfn og Ragnheiði Mjöll, barnabörn
og tengdasyni líknandi örmum þín-
um.
Kveiktu yl ljóssins í hjarta þeirra
allra með líknandi krafti hins heilaga
anda.
Guð varðveiti sál þína, elsku Solla
mín.
Þín elskandi systir,
Laufey Dís.
Elsku Sólveig, á þessari saknaðar-
stundu hverfur hugur okkar aftur til
bernskunnar þegar þú varst stoð okk-
ar og stytta, studdir okkur í hverri
þraut, gladdist með okkur á gleði-
stundum og skammaðir okkur þegar
við áttum það skilið. Þú fékkst
ábyrgðartilfinningu í vöggugjöf og frá
fyrstu tíð hélstu utan um systkina-
hópinn og lagðir þitt af mörkum í upp-
eldi okkar allra þótt þú hafir eiginlega
verið jafngömul okkur eldri systkin-
unum.
Við viljum í dag kveðja þig um sinn
með þessu ljóði:
Í dagsins önnum dreymdi mig
þinn djúpa frið, og svo varð nótt.
Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt,
þeim svefni enginn rænir þig.
En samt var nafn þitt nálægt mér
og nóttin full af söngvaklið
svo oft, og þetta auða svið
bar ætíð svip af þér.
Og þungur gnýr sem hrynji höf
mitt hjarta lýstur enn eitt sinn:
Mín hljóða sorg og hlátur þinn
sem hlutu sömu gröf.
(Steinn Steinarr.)
Þínar systur,
Arnbjörg og Erla Björk.
Elsku Solla frænka. Það er sárt að
þurfa að kveðja þig en það er mikil
huggun að vita að nú líður þér vel og
þú færð hvíld eftir erfið veikindi.
Ég þakka Guði fyrir að hafa átt þig
að og mun, eins og allir sem fengu að
kynnast þér, minnast þín fyrir sterk-
an persónuleika og manngæsku.
Mamma hefur stundum sagt að ég
líkist þér meira en henni og það er
ekki leiðum að líkjast.
Guð geymi þig, elsku Solla, ég
geymi þig ávallt í hjarta mínu.
Elsku Baldur, Erla, Ragnheiður,
amma Erla og aðrir aðstandendur:
Megi Guð styrkja ykkur og vernda á
þessum sorgartímum.
Gott er sjúkum að sofna,
meðan sólin er aftanrjóð.
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð.
Gott er sjúkum að sofa.
meðan sólin í djúpinu er.
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
(Davíð Stef.)
Lína Petra.
SÓLVEIG
ÞÓRÐARDÓTTIR
okkar systkina. Ég varð þess heið-
urs aðnjótandi að vinna með Óla
stóra eins og hann var kallaður af
okkur vinnufélögum hans hjá Tré-
smiðju Reykjavíkurborgar. Fram að
því að ég fór að vinna með afa hafði
ég líkt og systur mínar því miður
ekki haft mjög náið samband við
hann, móðir okkar var á unga aldri
tekin í fóstur hjá góðum ættingjum í
Hafnarfirði þegar móðir hennar,
Guðbjörg, dó úr berklum. Aðstæður
hjá afa þá leyfðu ekki að hann tæki
móður mína og Margréti systur
hennar til sín og ég veit að það þótti
honum erfitt.
Sem vinnufélagi var afi afskaplega
vel liðinn, allir áttu auðvelt með að
vinna með honum, aldrei sá ég hann
skipta skapi og hann stundaði vinnu
sína af kostgæfni.
Mér eru minnisstæðust orð hans
þegar hann var að kenna okkur
strákunum að það ætti að vinna
verkin af vandvirkni því þegar þeim
væri lokið þá myndu þau verða met-
in af því hve vel þau væru unnin, ekki
hversu langan tíma þau hefðu tekið.
Ég segi að þessi orð lýsi afa best.
Hin seinni ár fórum við í fjölskyld-
unni að hitta afa oftar, það var orð-
inn fastur punktur í tilverunni að
þegar fjöskyldan hittist á hátíðum að
afi kom og var með okkur. Hann
ljómaði af gleði þegar hann sá alla
afkomendurna, sérstaklega yngstu
börnin, því afi var afskaplega barn-
góður maður. Ég held að þessi síð-
ustu ár hafi hann og við tengst nán-
ari böndum og afi hafið farið sæll og
sáttur úr þessum heimi.
Við kveðjum þig, elsku afi Óli.
Guðbjörg, Guðlaugur,
Ásdís og Dagbjört.
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Á heimasíðu okkar er m.a.
• Undirbúningur á útför.
• Myndir af kistum.
• Myndir af kórum
og söngvurum.
• Listi yfir sálma.
• Verð á öllu sem lítur
að útför
Sími 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is - utfarir@utfarir.is
#
!!
#
**!D21!66.!.==*!
<
EF
!"# $
#
&
+
! G>'(
'
%G>' $" ("# 3 ''
(
'G>' # ' ''
0 0%
!"
#
!! (*6D
;2?!.==*!
5
9 )
0
1
&2
'
' %
!
#
!! &.?*6&-6.==*!
3D 3
'0,H !"# $
0
&3
4
! !$
-
"
!
!
&33/
+
5
5 $ ! !$
3/
!
&.
# + <4# 3
& 9''3 ,!
''
# %'3 ''
6 # $''3 '' '3
'3& '3 0#
6 ! 3 ''
'3
>'
= ''
( $+ '3 '' ( '3%
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.