Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 57
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 57
AÐ skilja ástina í lífi sínu er heiti á
samskiptanámskeiði, sem haldið
verður í Digraneskirkju fimmtudag-
inn 26. 4. og hefst það kl. 19. Þetta er
6 klst. námskeið fyrir hjón og sam-
býlisfólk. Markmið námskeiðsins er
að pörin kynnist betur og læri að
meta styrkleika og mismun hvors
annars. Leiðbeinendur eru hjónin
séra Magnús Björn Björnsson,
prestur í Digraneskirkju og Guðrún
Dóra Guðmannsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur. Seinni kennsludagurinn
er laugardagurinn 28. 4. kl. 10. Verð
er 6000 kr. fyrir parið og innifalið í
verði eru vinnubók og hressing. Inn-
ritun er í Digraneskirkju.
Sunnudaga-
skólaferðalag
Árbæjarkirkju
LAUGARDAGINN 28. apríl kl. 10
verður lagt af stað með rútum út í
óvissuferð sunnudagaskólans. Ungir
sem aldnir eru boðnir velkomnir í
þessa ferð. Það eins sem þarf að
gera er að hafa samband við kirkj-
una í síma 587-2405 og skrá sig og
sína í ferðina. Ennfremur þurfa
ferðalangar að vera klæddir í sam-
ræmi við veður. Boðið verður upp á
grillaðar pylsur og ávaxtasafa. Farið
verður í leiki og helgistund á óvenju-
legum stað. Fyrirhuguð heimkoma
verður kl. 14 að kirkjunni. Munið
eftir skráningunni núna í vikunni.
Starfsfólk sunnudagaskólans.
Íslensk kristni
í Vesturheimi
SÉRA Ingþór Indriðason Ísfeld,
fyrrverandi prestur við Fyrstu lúth-
ersku kirkjuna í Winnipeg í Mani-
toba í Kanada heldur fyrirlestur í
safnaðarheimilinu Borgum miðviku-
daginn 25. apríl kl. 20. Í fyrirlestr-
inum mun séra Ingþór fjalla um
fyrstu ár íslensku landnemanna í
Vesturheimi. Hann mun m.a. fjalla
um ástæður vesturferða og þær
nýju aðstæður sem mættu löndum
okkar sem héldu vestur um haf. Þar
var engin þjóðkirkja eins og hér
heima og margt annað með öðrum
hætti en í gamla landinu.
Séra Ingþór mun svo halda annað
erindi á sama stað miðvikudaginn 2.
maí kl. 20. Í þeim fyrirlestri mun
hann einkum fjalla um umbrot í
Nýja-Íslandi, einkum stefnuna í
félags- og trúmálum.
Allir eru hjartanlega velkomnir til
að hlýða á fyrirlestra séra Ingþórs
um þetta áhugaverða efni sem hann
þekkir flestum betur. Hann mun
svara fyrirspurnum og taka þátt í
umræðum að fyrirlestrunum lokn-
um.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa í neðri safnaðarsal kl. 10–14 í
umsjá Þórönnu Þórarinsdóttur.
Skemmtiganga kl. 10.30. Júlíana
Tyrfingsdóttir leiðir gönguhópinn.
Bæna- og fyrirbænastund í kirkj-
unni kl. 12 í umsjá Guðrúnar K.
Þórsdóttur, djákna. Léttur hádeg-
isverður á vægu verði eftir stundina.
Samvera foreldra ungra barna kl.
14–16 í neðri safnaðarsal. Tólf spora
hóparnir hittast kl. 19 í neðri safn-
aðarsal.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12.10. Orgelleikur, ritning-
arlestur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheim-
ilinu eftir stundina. Æfing barna-
kórs kl. 17–19.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguð-
sþjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Háteigskirkja. Fundur í Æskulýðs-
félaginu Vináttu kl. 19.30. Spurt og
svarað.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin til
hljóðrar bænagjörðar í hádeginu.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45–7.05. Fullorðinsfræðsla kl. 20.
Skírnarfræðsla. Foreldrar skírnar-
barna árið 2000 hvattir til þátttöku.
Bjarni Karlsson kennir um gildi
skírnarinnar og fjallar um trúarupp-
eldi ungra barna. Þriðjudagur með
Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund þar
sem Þorvaldur Halldórsson leiðir
söng við undirleik Gunnars Gunn-
arssonar. Félagi úr fullorðins-
fræðslunni greinir frá gildi trúar-
innar í eigin lífi og sóknarprestur
stýrir fyrirbæn fyrir skírnarbörn-
um. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í
umsjón bænahóps kirkjunnar.
Neskirkja. Tíðasöngur kl. 12. Litli
kórinn, kór eldri borgara kl. 16.30–
18. Stjórnandi Inga J. Backman.
Foreldramorgunn miðvikudag kl.
10–12. Fræðsla: Tónlist fyrir ung
börn og foreldra. Ólöf María Ing-
ólfsdóttir.
Seltjarnarneskirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Fríkirkjan í Reykjavík. Bænastund
í kapellunni í safnaðarheimilinu 2.
hæð kl. 12. Koma má bænarefnum á
framfæri áður en bænastund hefst
eða með því að hringja í síma 552-
7270 og fá bænarefnin skráð. Safn-
aðarprestur leiðir bænastundirnar.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í
safnaðarheimilinu kl. 10–12. Heim-
sókn á gæsluvöll í hverfinu. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl.
18.30.Bænaefnum má koma til sókn-
arprests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM&K og
kirkjunnar kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Foreldra-
stundir kl. 10–12. Starf fyrir 11–12
ára stúlkur kl. 17–18.
Digraneskirkja. Kirkjustarf aldr-
aðra. Leikfimi ÍAK kl. 11.20. Sam-
vera, léttur málsverður, kaffi.
Æskulýðsstarf KFUM&K og Digra-
neskirkju fyrir stúlkur (10–12 ára)
kl. 17.30.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 13.30. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Alltaf
eitthvað got t með kaffinu. Kirkju-
krakkar í Engjaskóla kl. 18–19 fyrir
börn á aldrinum 7–9 ára.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn
í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu
Borgum.
Seljakirkja. Foreldramorgnar. Opið
hús milli kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
10–12 ára börn í Vonarhöfn, Strand-
bergi, kl. 17–18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl.17–18.30 fyrir 7–9 ára börn.
Vídalínskirkja. Helgistund í
tengslum við félagsstarf aldraðra kl.
16. Starf fyrir stúlkur 10–12 ára í
samstarfi við KFUK kl. 17.30 í safn-
aðarheimilinu.
Lágafellskirkja. Fjölskyldumorg-
unn í safnaðarheimili Þverholti 3, 3.
hæð frá kl. 10–12. Fundur hjá
kirkjukrökkum frá kl. 17.15–18.15.
Safnaðarheimilið opnað kl. 17.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10–12.
Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára
starf alla þriðjudaga kl. 17–18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15–19.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. TTT-starf í
dag kl. 17 í umsjá Ástríðar Helgu
Sigurðardóttur og undirleikari er
Tune Solbakke. Starfið er ætlað
börnum 10–12 ára.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudögum kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 16.30 KKK Kirkjuprakkarar 7–9
ára. Allir krakkar velkomnir.
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20 í Hrakhólum.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn-
ir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.
Safnaðarfélag Digranespresta-
kalls. Fundur verður haldinn í kvöld
kl. 20.30 í safnaðarsal kirkjunnar.
Aðalefni fundarins eru að Eggert
Vigfússon flytur erindi um reynslu
sína af Alfanámskeiði sem haldið var
í kirkjuni og kynnt verður fyrirhug-
uð vorferð safnaðarfélagsins. Allir
eru velkomnir.
KFUK. Afmælis- og inntökufundur í
kvöld kl. 19. Guðrún Edda Gunn-
arsdóttir og Einar Sigurbjörnsson
segja frá heimsókn til Kenya á sl.
ári. Ástríður Haraldsdóttir leikur á
flygil. Nýjar konur teknar inn í
félagið. Fundurinn hefst með borð-
haldi kl. 19.
Samskipta-
námskeið í
Digraneskirkju
VILTU SPARA?
Kíktu þá til okkar
2.000
Hvítir/svartir
st. 30-41
2.000
Bláir og svartir
st. 40-46
2.500
Svartir st. 36-41
KRINGLAN
sími 568 6062
Ábyrgð –
áreiðanleiki
Gullsmiðir
&
Sprenghlægilegt verð!
Skart og klútar kr. 150 - Töskur kr. 500 -
Regnhlífar og sólgleraugu kr. 200 -
Húfur og hattar kr. 500-1000 - Buxur kr. 1000 -
Pils frá kr. 800-1.500 - Kjólar frá 1.250-3.000 -
Stutterma jakkar kr. 2.000 - Síðerma jakkar kr. 2.500
Opið alla daga frá kl. 12-18
Grensásvegi 16
(inni í portinu)
LOKADAGAR
Sprenghlæ ilegt verð!
Enn meiri verðlækkun
Öll föt á kr. 1.000.