Morgunblaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
NÝ sög verður sett upp í steypuskála álversins í
Straumsvík í sumar og haust og er hún nærfellt
helmingi afkastameiri en sögin sem hún leysir af
hólmi, sem er orðin um þrjátíu ára gömul. Áætl-
að er að framkvæmdin kosti í það heila tekið um
400 milljónir kr. Þá er fyrirhugað að auka afköst
steypuskála ÍSAL um 30 þúsund tonn með kaup-
um á nýjum bræðsluofni. Þar verður endurbrætt
ál sem keypt verður að utan og breytt yfir í dýr-
ari afurð og að því meðtöldu verður framleiðslu-
geta álversins um 200 þúsund tonn á ári.
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi ÍSAL,
sagði að framkvæmdir við nýju sögina hæfust á
næstu dögum. Byrjað yrði á að grafa fyrir henni
í steypuskálanum til að búa til kjallara undir vél-
ina, en hún væri 50–60 metrar að lengd. Sögin
sjálf kæmi til landsins síðla sumars og síðan tæki
2–3 mánuði að setja hana upp og prófa hana.
Hrannar sagði að nýja sögin gæti afkastað allt
að 300 þúsund tonnum á ári, en það réðist dálítið
af því hvers konar melmi væri sagað og hvaða
stærðir væru á börrunum sem sagaðir væru.
Nýja sögin leysti af hólmi þrjátíu ára gamla sög
sem tæplega hefði haft undan síðustu árin.
Gamla sögin væri hjólsög með 12 mm þykku
blaði, en sú nýja bandsög með 3 mm blaði, en
það gerði það að verkum að nýtingin yrði betri
og minna af spæni félli til. Þannig hefðu verið að
falla til um 700 tonn af spæni á ári með gömlu
söginni, en með nýju söginni yrðu það um 2–300
tonn. Hrannar sagði að einnig stæði til að kaupa
nýjan bræðsluofn inn í steypuskálann, en með
honum væri hægt að framleiða barra úr hrááli.
Með þessum nýja ofni yrði hægt að auka fram-
leiðslugetu einnar steypuvélarinnar um 30 þús-
und tonn og þá yrði framleiðslugeta steypuskál-
ans um 200 þúsund tonn á ári. Þá yrði framleitt í
kerskálanum svipað magn og verið hefði, en í
fyrra voru framleidd þar 168 þúsund tonn af áli
og síðan yrði hægt að bæta við 30 þúsund tonna
framleiðslu í steypuskálanum með því að end-
urbræða ál sem keypt væri að utan og breytt yf-
ir í barra, sem væri dýrari afurð. Stefnt væri að
því að setja þennan ofn í gang í byrjun næsta
árs.
400 milljóna króna álsög verður sett upp í Álverinu í Straumsvík
200 þúsund tonna fram-
leiðsla með nýjum ofni
UNG stúlka nýtur hér leiðsagnar
sér eldri skipamálara og ekki skort-
ir einbeitinguna hjá þeim. Myndin
var tekin í Skipasmíðastöð Njarð-
víkur í gær þar sem Melavík SF frá
Hornafirði var til viðgerðar í verk-
falli sjómanna.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Málað í
verkfalli
TOYOTA hefur hækkað verð á
nýjum bílum um 5% og Hekla hf.
um 3,5–7% eftir tegundum. Ingv-
ar Helgason hf. mun að líkindum
hækka verð á sínum bílum í vik-
unni.
Björn Víglundsson, markaðs-
stjóri Toyota, segir að gengis-
rýrnun krónunnar gagnvart þeim
gjaldmiðlum sem þeir kaupa inn
á, hafi verið 16% síðastliðna tíu
mánuði. Björn segir að það beri
vott um mikla samkeppni í sölu á
nýjum bílum að bílverð hafi ekki
hækkað meira. Hann segir að
ákvörðun hafi verið tekin um að
bíða með frekari breytingar og
sjá til hver þróunin verði.
Jakob Möller, yfirmaður er-
lendra samskipta hjá Ingvari
Helgasyni hf., segir að gengið
hafi hækkað verulega í langan
tíma en þó misjafnt eftir gjald-
miðlum.
Veruleg gengishækkun
Nú sé svo komið að grípa verði
til þess að hækka verð á bílum
og það verði gert í takt við
breytingar hjá öðrum á mark-
aðnum, að öllum líkindum í þess-
ari viku. Fyrirtækið kaupir inn
Nissan-bíla í sterlingspundum,
Opel í þýskum mörkum og evr-
um og Subaru í japönskum jen-
um. „Við höfum setið á okkur
lengi en hækkuðum verð reyndar
örlítið fyrir skemmstu en ekki
nóg til þess að vega upp á móti
gengishækkununum,“ segir Jak-
ob.
Jóhannes Reykdal, blaða-
fulltrúi Heklu hf., segir að á und-
anförnum tíu mánuðum hafi verð
nýrra bifreiða hjá Heklu ekki
fylgt þeirri gengisþróun og verð-
hækkunum frá framleiðendum
sem átt hefur sér stað.
„Þeir bifreiðaframleiðendur,
sem Hekla hefur umboð fyrir,
hafa hækkað verð bifreiða sinna
sem nemur 2 til 7% á þessu tíma-
bili og samhliða þeirri miklu
gengissveiflu, sem orðið hefur
undanfarið, var ljóst að ekki varð
komist hjá því að hækka verð
nýrra bifreiða,“ segir Jóhannes.
Nálægt 5% verðhækk-
un á nýjum bílum
ÞÝSKA rokksveitin Ramm-
stein er á leið hingað til lands
til hljómleikahalds, 15. júní
næstkomandi, og mun leika í
Laugardalshöllinni.
Rammstein er með umdeild-
ustu og vinsælustu rokksveit-
um heims í dag og þykir vera
með allra bestu tónleikasveit-
um. Hérlendis nýtur hún gríð-
arvinsælda og til marks um
það hefur nýútkomin breið-
skífa hennar selst í yfir 4.000
eintökum á aðeins þremur vik-
um.
Ramm-
stein með
tónleika á
Íslandi
Rammstein / 64
RANNSÓKNAR- og veiðiskipið
Fengur RE 006 hefur verið aug-
lýst til sölu og verður söluand-
virðinu varið til þróunaraðstoðar á
sviði fiskveiðirannsókna í Mós-
ambík.
Þróunarsamvinnustofnun Ís-
lands fékk í fyrra heimild til að
gefa sjávarútvegsráðuneyti Mós-
ambík skipið í þágu fiskveiðirann-
sókna. Ráðuneytið óskaði hins veg-
ar eftir því við eiganda skipsins,
Þróunarsamvinnustofnun, að skip-
ið yrði selt og andvirðið notað til
að fjármagna fiskveiðirannsóknir í
Mósambík. Ástæðan var sú að
ráðuneytið treysti sér ekki til að
reka skipið. Við þessu hefur Þró-
unarsamvinnustofnun orðið og
verður andvirði skipsins ráðstafað
til fiskveiðirannsókna sem stofn-
unin samþykkir.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Treystu
sér ekki
til að reka
Feng
Skip sem átti að gefa
Mósambík verður selt