Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 4

Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ STARFSMENN Listasafns Reykjavíkur unnu í gær við að flytja verk eftir Erró úr geymslu á Kjarvalsstöðum í Hafnarhúsið en opnunarsýning Errósafnsins hefst þar í öllum sölum annan laugar- dag. Erró ánafnaði Reykjavíkur- borg myndarlegu safni verka sinna 1989. Þetta eru málverk, vatnslita- myndir, grafíkverk, skúlptúrar, teiknimyndir, klippimyndir og fleira. Þessi listaverkaeign Reyk- víkinga hefur haldið áfram að vaxa á undanförnum árum og eru nú ríf- lega þrjú þúsund verk í eigu safns- ins. Í fyrra var Errósafninu svo fundinn varanlegur staður í Hafn- arhúsinu. Sýningin er skipulögð með þeim hætti, að góð yfirsýn fæst yfir all- an feril listamannsins, allt frá sjötta áratugnum til síðustu ára. Morgunblaðið/Sverrir Erró á faraldsfæti ÍSLANDSBANKI vinnur nú að und- irbúningi fjármögnunar á lagningu nýs sæstrengs milli Íslands, Fær- eyja og Skotlands. Gert er ráð fyrir að verkið kosti á bilinu 6,5 til 7 millj- arða. Fulltrúar Landssíma Íslands og Föroya Tela sem hafa síðustu tvö árin rætt samstarf um verkið hafa átt fundi með fulltrúum bankans um málið. Undirbúningur fjármögnunar hófst fyrir 5 til 6 mánuðum og er nú á lokastigi. Er gert ráð fyrir að unnt verði að bjóða verkið út meðal er- lendra banka og fjármálastofnana á næstu vikum en gert er einnig ráð fyrir að Íslandsbanki fjármagni hluta verksins. Þá er búist við að yf- irvöld á Hjaltlandseyjum og skosk olíufyrirtæki taki einnig þátt í fjár- mögnuninni en með öllu er þó óljóst um hugsanlegan hlut þeirra en Ís- landsbanki mun annast umsjón með allri fjármögnun. Gera má ráð fyrir að 6 til 8 mán- uðir líði þar til fjármögnun er að fullu frágengin og er stefnt að því að verk- inu geti verið lokið í lok ársins 2003. Sæstrengurinn milli Íslands, Færeyja og Skotlands Fjármögn- un boðin út á næstunni STJÓRN Landsvirkjunar hefur ákveðið að hækka gjaldskrá fyr- irtækisins til almenningsveitna um 4,9% frá og með 1. júlí nk. Ástæða hækkunarinnar er auk- inn rekstrarkostnaður fyrirtæk- isins, ekki síst í kjölfar óhag- stæðrar gengisþróunar undan- farin misseri sem eykur mjög fjármagnskostnað fyrirtækisins. Á tveimur árum hefur gjald- skrá Landsvirkjunar hækkað um 7,9% en á sama tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 12,6%. Á þeim mælikvarða er raun- lækkun gjaldskrárinnar á þess- um tíma því 4,4% og er það í samræmi við þá stefnu eigenda fyrirtækisins að lækka að jafn- aði raunverð gjaldskrár um 2–3% árlega á tímabilinu 2001– 2010. Orkuveitan ekki búin að taka ákvörðun um hækkun Ásgeir Margeirsson, aðstoð- arforstjóri Orkuveitu Reykja- víkur, segir að ekki sé búið að taka ákvörðun um það hvernig Orkuveitan bregðist við um- ræddri hækkun gjaldskrá Landsvirkjunar. „Nú erum við að skoða kostn- aðarþættina. Raforkukaup frá Landsvirkjun ráða býsna miklu um okkar raforkuverð. Þetta er í allt í skoðun og verður tekið fyrir í stjórn fyrirtækisins núna mjög fljótlega,“ segir Ásgeir. Rafmagn hækkar frá Landsvirkjun HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkurdæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða lögreglumanni vaktaálag, dagpeninga og ferðakostnað til viðbótar þeim launum sem hann vann sér inn þegar hann stundaði nám á seinni önn í Lögregluskóla ríkisins. Greiðslur vegna þessa nema um 710 þúsund krónum. Af þeirri upp- hæð voru 535 þúsund vegna dag- peninga og rúmlega 30 þúsund í ferðakostnað. Gylfi Thorlacius hrl., lögmaður Landssambands lögreglumanna, sagði í gær að alls ættu 30 lög- reglumenn rétt á bótum í sam- ræmi við dóminn. Tíu þeirra voru búsettir á landsbyggðinni og því eigi þeir rétt á dagpeningum og greiðslum vegna ferðakostnaðar. Hinir 20 geti hvorki krafist greiðlu vegna ferðakostnaður né dagpen- inga en eigi inni greiðslur vegna vaktaálags. Kostnaður ríkisins vegna þessa geti því orðið tölu- verður. „Næsta skref er að reikna út kröfur fyrir þá aðila sem dóm- urinn nær til og síðan er bara að bíða og sjá hvort ríkið áfrýjar,“ sagði Gylfi. Krafðist vaktaálags, dagpen- inga og ferðakostnaðar Lögreglumaðurinn sem stefndi ríkinu hóf nám á fyrri önn Lög- regluskólans árið 1997. Í lögum um Lögregluskólann sem þá voru í gildi stóð að nám við skólann skyldi vera tvær annir og skyldi sú síðari vera launuð. Eftir fyrri önn- ina var maðurinn ráðinn til lög- reglunnar á Akureyri. Hann hóf nám á seinni önn í byrjun árs 1999 og lauk því í maí sama ár. Lög- reglumaðurinn taldi að ríkið ætti að greiða sér vaktaálag, dagpen- inga og ferðakostnað þann tíma. Hann byggði á því að laun lög- reglumanna væru bundin í kjara- samning lögreglumanna og ríkis- ins sem var endurnýjaður í ágúst 1997, tveimur mánuðum eftir að ný lög um Lögregluskólann frá 1996 tóku gildi. Í samningnum sé skýrt kveðið á um að lögreglumenn sem stundi nám við Lögregluskólann skuli fá greidd föst laun og vakta- álag, ferðakostnað og dvalarkostn- að. Fullyrðingar fjármálaráðuneyt- is um að breytingar sem gerðar voru á lögreglulögum árið 1996 hafi fellt niður þennan rétt stand- ist ekki lög. Kjarninn í málflutningi ríkisins var sá að miklar breytingar hefðu orðið á námi við Lögregluskólann með gildistöku nýju laganna. Lög- reglumenn séu ekki lengur sendir í nám heldur sæki þeir um skóla- vist. Um leið hafi þeir misst rétt á vaktaálagi, dagpeningum og ferða- kostnaði. Þó svo að kjarasamning- ur frá 1997 geri ráð fyrir því að lögreglunemar fái greitt eftir samningnum eigi það ekki við á meðan þeir stunda nám í skólanum Héraðsdómur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu, að af kjara- samningi, lögum og reglugerðum yrði engan veginn ráðið með óyggjandi hætti að nemar á síðari önn í Lögregluskólanum nytu ekki fullra réttinda samkvæmt um- ræddum kjarasamningi þó að nem- endur væru ekki lengur formlega sendir í Lögregluskólann að beiðni lögreglustjóra. Lögreglumanni dæmdar 710 þúsund kr. í bætur „ÞAÐ var mjög gott veður á tindinum, blés nokkuð hressilega en það var heiðskírt og glampandi sól og magnað hvernig sést af tindinum beint nið- ur í sjó, hann rís svo brattur upp frá sjáv- armáli,“ sagði Har- aldur Örn Ólafsson í samtali við Morg- unblaðið í gær en hann náði tindi Den- ali, hæsta fjalls Norð- ur-Ameríku sl. laug- ardagskvöld. Á mánudagskvöld kom- ust Haraldur Örn og félagi hans, Guðmundur Eyjólfsson, úr neðstu búðunum í fjallinu í um 2.200 m hæð í flugvél til bæjarins Talkeetna en þá var að skella á hið versta veður. „Eftir að hafa náð niður í neðstu búðir var allt mjög tæpt því við rétt sluppum upp í flugvél en þokubakk- ar voru að hrannast upp og síðan hefur ekkert verið flogið frá búð- unum. Við áttum að fá farangur okkar með næstu flugvél en hann er ennþá þarna upp frá,“ sagði Har- aldur Örn. Sagði hann að þar væri allur búnaður og tæki, myndavélar og filmur, Iridium-gervihnattasím- inn og peningar og hafði hann það á orði að líklega yrðu þeir félagar að hlaupa í í gripavinnu við bíla- þvott til að vinna fyrir mat sínum. Úr því varð þó ekki því síðar í gær- kvöld fékk Haraldur þær fréttir að veðrið hefði skánað og að farang- urinn væri á leið til þeirra. Síðasti áfanginn tók sex og hálfan tíma „Það var kalt á tindinum og eins gott að vera mjög vel klæddur,“ sagði Haraldur Örn. „Þarna í kring eru líka svo margir aðrir tindar, allt blátt og hvítt og mjög tært, topparnir eins og syk- urhúðaðir og ólýs- anlega fallegir,“ og sagði hann varla einu sinni hægt að lýsa þess- ari fegurð á myndum. Ferðin á tindinn, sem er 6.194 m hár, tók sex og hálfan tíma og síðan voru þeir félagar þrjá tíma niður í efstu búðir og sagði Har- aldur það nokkuð hratt farið. Þá var strikið tekið niður í neðstu búðir sem eru í 2.200 metra hæð. Hann kvaðst vera í skýjunum yfir því að hafa byrjað leiðangurinn svo vel. Hann væri vel á sig kominn en þeir félagarnir urðu að gera tvær til- raunir áður en tindinum var náð. Um 50% þeirra sem reyndu næðu markinu, veður og heilsufar gætu spillt fyrir og heppni réði oft ein- hverju líka um gengi manna. Hann sagði síðustu brekkurnar hafa ver- ið feikn erfiðar, þeir hefðu aðeins gengið fáein skref og síðan orðið að hvílast enda súrefnið orðið af skornum skammti. Hann sagði menn ekki taka súrefni með heldur reyna að aðlagast þunna loftinu í að minnsta kosti hálfan mánuð, ekki væri ráðlegt að halda á tindinn fyrr en á 14. degi aðlögunar, sem þeir og gerðu. Haraldur Örn gerði ráð fyrir að halda af stað heimleiðis í dag. Guð- mundur Eyjólfsson er nú við ágæta heilsu en hann fékk snert af há- fjallaveiki og varð að hætta við uppgöngu. Haraldur Örn lagði því á tindinn ásamt Bandaríkjamann- inum Erik Fryman. Næsti áfangi Haraldar Arnar í leiðangri hans á tindana sjö hefst 19. ágúst þegar hann klífur hæsta fjall Evrópu, sem er í Rússlandi, og hæsta fjall Afr- íku. Haraldur Örn Ólafsson á tind Denali Síðustu brekkurnar feikn erfiðar Haraldur Örn Ólafsson ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi til að sækja fót- brotinn mann á Fimmvörðuháls. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli hafði maðurinn, sem er þýskur ferðalang- ur, hringt sjálfur í neyðarlínu en ferðafélagi mannsins hafði haldið áfram í átt til Skóga að sækja hjálp. Ekki lá fyrir í gærkvöldi með hvaða hætti slysið bar að. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala –háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Slys á Fimm- vörðuhálsi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.