Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 48
UMRÆÐAN 48 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FÁTT er ógeðfelldara en óheiðarleg opinber umræða svo sem lands- menn hafa mátt reyna undanfarna áratugi í sambandi við fiskveiði- stjórnunarkerfið. For- sætisráðherra landsins er í fylkingarbrjósti að telja landsmönnum trú um að allt sé í góðu lagi með stjórnun fiskveiða landsins og að við búum við bezta fiskveiðistjórn- unarkerfi heimsins. Mis- notkunin á Háskóla Ís- lands til stuðnings þessum uppspuna er ámælisverð og vekur furðu að yfir- stjórn Háskólans skuli láta þetta við gangast átölulaust árum saman. Pró- fessorar hafa verið á þönum um allar jarðir til að mæla með ósómanum og er ekkert til sparað. Kerfið er búið til af „Skömmtunarkerfaflokknum“ þe. öðru nafni Framsóknarflokknum, sem í meir en 70 ár hefir lifað á því að búa til slík opinber skömmtunarkerfi og misnota þau síðan í eigin þágu og gæðinga flokksins. Kvótakerfi Fram- sóknar er nú gert í fullri samstöðu við hagsmunasamtök stórútgerðarinnar, LÍÚ, og hefir þó ekki gengið betur en það, að stórútgerðin hefir ekki borgað neina skatta til ríkisins árum saman og skuldar nú samtals yfir 200 millj- arða króna, sem mun gera þennan stærsta atvinnuveg landsins skatt- lausan í mörg ár fram í tímann. Stefn- an er útgerð án framtíðar. Tvær meginröksemdir hafa verið færðar fram til stuðnings kvótakerf- inu: Betri stjórnun við uppbyggingu fiskstofnanna og aukin hagræðing vegna stærðar útgerðarfyrirtækj- anna. Hvorugt hefir staðist. Ákveðið hefir verið að nú skuli skera niður veiðiheimildir á þorski úr 220.000 tonnum í 190.000 tonn, þeas. í rúman þriðjung þess sem áður var meðan ekkert kvótakerfi var til. Þetta gerist í kjölfar þess, að Hafró hefir lýst því mjög fjálglega að hrygning þorsk- stofnsins hafi tekist með miklum ágætum á undanförnum árum. Stórútgerðin hælir sér af því að búið sé að loka frystihúsum í fjöl- mörgum byggðum á landsbyggðinni og læt- ur sem almenningi komi þetta mál ekki við. Landsbyggðin er að miklu leyti komin í auðn vegna þessarar stefnu sem jafnvel Morgunblaðið segist styðja, hvað svo sem það þýðir. Fólkið í fiskiþorpunum er gert að landflóttamönnum á hraðri leið til Reykjavíkur og skilur eftir sig verð- lausar eignir og brunna jörð. „For- ingjanum“ og hirðinni er skemmt. Stjórnsýslan er eins og á dögum Hit- lers. Minnkun þorskveiðanna um 300.000 tonn árlega nemur amk.um 60 milljarða króna árlegri skerðingu á þjóðartekjum landsins. Hver græðir á þessu? Samt eru flestar stórútgerðir landsins á mörkum gjaldþrots, nema kannske Samherji hf. Það vefst fyrir talsmönnum stórútgerðarinnar að rökstyðja hagræðinguna við samein- ingu Granda hf í Reykjavík og H. Böðvarsson hf. á Akranesi sem nú mun vera á dagskrá. Hrygningarstofn þorsksins minnk- aði um helming síðasta ár í um 570.000 tonn segir Hafró. Samkvæmt reglum mætti þannig veiða 25% af þeim stofni eða 140.000 tonn. Samt er óheimilt samkvæmt óskeikulum lög- um hins óskeikula Alþingis að gefa út lægri veiðikvóta en 190.000 tonn eða 30.000 tonnum minna en sl. ár. Óábyrgt gaspur stjórnvalda er orðið leiðinlegt. Maí er bezti tími ársins til karfa- veiða. Allan mánuðinn leitaði djúp- veiðiflotinn að karfa en fann hann ekki í íslenzku lögsögunni fyrr en nú eftir mánaðamótin. Það tekur minnst 25 ár að byggja upp karfastofninn. Færeyingar eru ábyrgir menn og farsælir. Þeir hafa gefið skít í íslenzka kerfið og segja öllum að það sé ónot- hæft. Þeir reyndu þetta í 2 ár og voru nógu heiðarlegir til að segja satt frá um galla þess og hið óstjórnlega brottkast og smáfiskadráp. Allar tog- veiðar og dragnótaveiðar eru bann- aðar innan fiskilögsögu Færeyja sem viðurkennd er sem uppeldissvæði fyr- ir ungfisk. Síðasta ár veiddu þeir tvö- falt meira af þorski en nokkru sinni áður meðan Íslendingar stunduðu smáfiskadráp og dældu fyrir borð með „slógdælum með hnífum.“ Þetta gerir gæfumuninn. Þeir eru heiðar- legir, við ljúgum til um allar jarðir. Færeyingar stjórna veiðum með sóknardögum krókabáta innan fiski- lögsögu sinnar og allur afli er tekinn á land. Þar er ekkert brottkast. Sjónvarpið hefir margoft sýnt að þegar hvolft er 3-5 tonnum úr botn- vörpunum er þar mest kóð eða smá- fiskur, sem augljóslega fer beint í slógdælurnar. Reglan er sú, að ekki megi koma að landi með smærri þorsk en 55 cm. Meðan stjórnvöld hindra að leitað sé heiðarlega að or- sökum minnkandi þorskafla verða engar framfarir í veiði eða veiði- stjórnun í landinu. Umræðan nú sýnir að allir eru ráðþrota gagnvart þessu ofbeldi stjórnvalda. Framtíðarsýn forsætisráðherrans er að gera for- mann Framsóknar og höfund kvóta- kerfisins að næsta forsætisráðherra. Enginn mótmælir þessum áformum opinberlega enn. Landauðnarstefnan Ønundur Ásgeirsson Kvótinn Færeyingar, segir Ønundur Ásgeirsson, hafa gefið skít í íslenzka kerfið. Höfundur er fv. forstjóri. ÞRÓUN húsnæðis- kostnaðar í Reykjavík á undanförnum árum er ískyggileg. Stórfelldar hækkanir á lóðaverði, fasteignamati íbúða, söluverði, leiguverði á almennum markaði hafa bitnað harkalega á húsbyggjendum, eig- endum og leigjendum íbúðarhúsnæðis og þeim sem eru að eign- ast íbúð í fyrsta sinn. Auk þess hafa fast- eigna- og eignaskattar og holræsagjöld hækk- að um tugi prósenta í kjölfarið þar sem þessir skattar og gjöld taka mið af fast- eignamati. Nokkrar ástæður eru fyrir þessari þróun en ein sú veigamesta er úr- ræðaleysi í skipulags- og lóðamálum borgarinnar, skortur á lóðum og leiguhúsnæði og uppboðsstefna R- listans á lóðum í nýjum byggðahverf- um. Húseigendur og leigjendur súpa seyðið af þessari stefnu og eru erf- iðleikarnir mestir hjá þeim einstak- lingum sem eru að byggja eða kaupa húsnæði í fyrsta sinn. Þær gríðar- legu hækkanir sem sýndar eru hér á eftir sýna svo ekki verður um villst hvílíkum vanda Reykvíkingar standa frammi fyrir í þessum efnum. Hækkun lóðaverðs Í framhaldi af miklum lóðaskorti og uppboðsstefnu R-listans á lóðum hækkaði söluverð þeirra lóða sem Reykjavíkurborg úthlutar um 140% en söluverð lóða er í raun ígildi gatnagerðargjalda. Hækkun söluverðs íbúða Ekki síst vegna lóðaskorts hjá Reykjavíkurborg og stórhækkunar á lóðaverði hefur orðið gífurleg hækk- un á fasteignaverði í Reykjavík (meðalhækkun). 1997: 2ja herb.78 þús.kr./m² 3ja herb.75 þús.kr./m² 4ra herb.70 þús.kr./m² 2001 (apríl): 2ja h. 118 þús.kr./m² eða 51% hækkun, 3ja h. 114 þús.kr./m² eða 52% hækkun, 4ra h. 106 þús.kr./m² eða 51% hækkun. Hækkun húsaleigu á almennum markaði Í framhaldi af hækkun söluverðs hefur húsaleiga á almennum markaði hækkað gífurlega (meðalhækkun). 1997: 2ja herb.b35 þús. 3ja herb. 42 þús. 4ra herb. 50 þús. 2001: 2ja h. 53 þús. eða 51% hækkun 3ja h. 74 þús. eða 76% hækkun 4ra h. 90 þús. eða 80% hækkun Hækkun fasteignamats 1997 4,5% 1998 5,0% 1999 18,0% 2000 14,0% Hækkun fasteignagjalda Í kjölfar stórhækk- aðs fasteignamats hafa fasteignaskattar og holræsagjöld hækkað með sama hætti á und- anförnum árum eða um 40%. Hækkun húsbréfa- og viðbótarlána Stórhækkað íbúða- verð hefur leitt til þess að þeir sem kaupa eða byggja íbúð í fyrsta sinn þurfa að axla 40% hærra íbúðalán nú en fyrir tveimur árum. Það hefur í för með sér verulega aukinn fjármagns- kostnað fyrir eigendur þessa hús- næðis. Ný stefna er nauðsyn Eins og ofangreindar tölur bera með sér má segja að neyðarástand ríki í húsnæðismálum Reykvíkinga. Ekki einungis að verulegur skortur sé á lóðum og almennum leiguíbúð- um heldur hafa biðlistar eftir hjúkr- unarrýmum, þjónustuíbúðum og félagslegum leiguíbúðum hjá Reykjavíkurborg aldrei fyrr verið jafnlangir og nú. Við Reykvíkingar þurfum nýja framtíðarsýn í skipulags- og lóðamál- um sem eyðir lóðaskorti, upp- sprengdu lóðaverði, háum fasteigna- gjöldum og fyrirhyggju- og aðgerð- arleysi í skipulagningu nýrra íbúða- hverfa. Við þurfum nýja framtíðarsýn í húsnæðis-, skipulags- og lóðamálum sem gerir ungu fólki kleift að byggja eða kaupa sína fyrstu íbúð í stað stefnu R-listans að þrýsta því á biðl- ista eftir félagslegu húsnæði hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík. Við þurfum nýja framtíðarsýn fyr- ir Reykvíkinga sem byggir á bjart- sýni, fyrirhyggju og krafti og getu einstaklinganna til að byggja og þróa sína framtíðarbyggð meðfram ströndinni en ekki upp til heiða. Í stað framkvæmda- og áhugaleys- is núverandi meirihluta í Reykjavík á byggingu hjúkrunar- og þjónustu- íbúða fyrir aldraða verða Sjálfstæð- ismenn að standa fyrir stórátaki á þessum vettvangi og gera skipulagt átak í að eyða biðlistum í samvinnu við ríki, félagasamtök og fyrirtæki. Til að þetta geti orðið að raunveru- leika þarf nýjan meirihluta í Reykja- vík. Húsnæðis- kostnaður í Reykjavík Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Höfundur er borgarfulltrúi. Íbúðir Tölur bera með sér, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, að segja má að neyðarástand ríki í húsnæðismálum Reykvíkinga. ENGIN félagsmála- stofnun er fyrirsögn við- tals við Þorstein Vil- helmsson í Mbl. 24. maí sl. Í viðtalinu sendir hann mér tóninn fyrir hugmyndir um byggða- kvóta eða svæðisbund- inn kvóta og kallar mig kommúnista fyrir vikið. Reyndar gefur hann stjórnmálamönnum ekki háa einkunn, biður guð að hjálpa sér ætli þeir að úthluta kvóta. Minna má það nú ekki vera en að kvitta fyrir sendinguna. Ég held að það sé best gert án stóryrða og jafn- vel að best fari á því að Þorsteinn sjálfur og félagar hans tali fyrir sig. Þorsteinn telur að kvótakerfið sé gott fiskveiðistjórnunarkerfi og rekur í viðtalinu að þegar hann og frændur hans keyptu togarann Guðstein sem nú heitir Akureyrin árið 1983 hafði skipið legið í reiðileysi í höfninni í níu mánuði og enginn vildi eiga skipið. En síðan kom kvótakerfið og fiskveiðarn- ar urðu fyrir vikið arðbærari og bætir hann við: „Þegar við byrjuðum með Akureyrina, held ég að það hafi verið fleiri sem vorkenndu okkur fyrir að fara út í þetta glæfraspil, en þeir sem öfunduðu okkur. Þeir sem ekkert höfðu viljað á sig leggja áður, hófu síð- an kórinn, vildu komast inn og sögðu að kvótinn hefði verið gefinn. Þeir ein- ir fengu kvóta sem til þess höfðu unn- ið.“ Það er einmitt það, þeir höfðu kjarkinn, lögðu mikið á sig og tóku áhættuna og unnu með kerfinu, eða eins og Þorsteinn segir í viðtalinu: „Samherji er gott dæmi um það sem hægt var að gera og aðrir hefðu einn- ig getað gert. Hefðu menn tekið þá stefnu að vinna með kvótakerfinu og nýta sér það, sem þar var í boði“ og sendir Vestfirðingum eitraða pillu. Fyrst var vandi... Annað hljóð var í strokknum við upphaf kvótakerfisins. Í viðtali við Mbl. 14. des. 1983 lýsti Þorsteinn Vil- helmsson því að kvótinn ylli meiri vanda en hann leysti. „Ég vil hvorki sjá, heyra né ræða um kvótann eins og hann er hugsaður nú. Ég hélt að það væri and- stætt stefnu Sjálfstæðisflokksins að koma á slíku kerfi.“ Aðspurður sagð- ist hann efast um að Akureyrin fengi nokkurn kvóta úthlutaðan á næsta ári vegna þess að næstliðin þrjú ár hefði skipið nánast ekkert verið að veiðum. Hann taldi því nær að miða við stærð skipa. Til dæmis þyrfti Akureyrin að fiska um 4.000 lestir á ári, þar af helminginn þorsk, til að bera sig. Þor- steinn Már Baldvinsson lýsti sömu viðhorfum í Degi 6. janúar 1984. Hann væri á móti kvótafyrirkomulagi við fiskveiðar, slíkt leiddi til áhuga- leysis meðal áhafnar og skipstjóra og bætir við: „Verði það úr að hér verði tekið upp kvótakerfi þá er fáránlegt að miða kvótann undantekningar- laust við afla skipsins undanfarin þrjú ár. Við getum tekið Þorstein Vil- helmsson, frænda minn, sem dæmi. Á hann að gjalda þess að henn er kom- inn með vel búið og endurbætt skip í hendurnar? Á hann einungis að fá að veiða einhverja hungurlús, af því skipið hefur verið lítið á veiðum þessi þrjú ár, þrátt fyrir að hann hafi verið einn af aflahæstu skipstjórum lands- ins á sama tíma en á öðru skipi? Hvaða réttlæti er í slíku?“ Vandinn sem blasti við þeim frændum í árslok 1983 var að þeir höfðu keypt skip sem hafði litla aflareynslu og hlaut því að fá lítinn kvóta í sinn hlut þegar kvótakerfið var tekið upp 1984 og hvernig skyldi Þorsteinn Vilhelms- son og félagar hafa brugðist við? Með því að vinna með kvótakerfinu? „...svo var stjórnmálamaður...“ Eða með því að snúa sér til stjórn- málamanna? Það var að vísu ekki vænlegt því Þorsteinn segir að „stjórnmálamenn geta aldrei úthlut- að kvóta nema með skít og skömm“. En viti menn, Halldór Blöndal þing- maður kjördæmisins dró ekki af sér og lýsti því í þingræðu 12. desember 1983 í umræðu um kvótafrumvarpið að „til þess að kvótakerfi á fiskveiðar sé réttlætanlegt er óhjákvæmilegt að taka tillit til óvenjulegra og sér- Þeir einir fengu kvóta sem til þess höfðu unnið Kristinn H. Gunnarsson Fiskveiðistjórnun Skyndilega var Akureyrin komin með kvóta upp á 4.445 lestir og veiddi reyndar rúm- lega 5.000 lestir á árinu, segir Kristinn H. Gunnarsson. Samherja var borgið. verslunarmiðst. Eiðstorgi, sími 552 3970. Stretchbuxur St. 38–50 - Frábært úrval                               
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.