Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 24
LANDIÐ 24 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ sími 562 6470 Sveitarfélög - verktakar - fyrirtæki Ýmsir möguleikar við rýmis- og lagerlausnir. Kynntu þér möguleikana. Getum með stuttum fyrirvara afgreitt gámahús frá eftir þínum óskum. HESTAMANNAFÉLAGIÐ Blær í Norðfirði hélt nýlega skemmtidag fyrir félagsmenn og aðra á Kirkjubólseyrum en þar hefur félagið byggt upp ágætis félags- aðstöðu undanfarin ár. Ýmislegt stóð gestum og gangandi til boða, m.a. sýndi æskulýðsdeild félags- ins listir sínar, ungum sem öldn- um var boðið að skella sér á bak og allir þáðu veitingar. Svein- björg Dione Steinþórsdóttir var meðal þeirra mörgu sem þáðu reiðtúr. Sveinbjörg Dione Steinþórsdóttir var meðal þeirra mörgu sem þáðu reiðtúr. Skemmti- dagur á Kirkjubóls- eyrum Neskaupstaður ENGIN þjóð í heiminum framleiðir meira af bleikju en Íslendingar í dag. Náðst hefur umtalsvert forskot á aðrar þjóðir á þessu sviði, sér- staklega hvað varðar fram- leiðsluþætti. Kynbætur stofnsins eru ein af forsendum þess að þessu forskoti verði haldið og með vígslu nýrrar kynbótastöðvar í bleikjueldi var lagður hornsteinn að viðhaldi þess forskots á Hólum í Hjaltadal á laugardag. Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra skrúfaði frá ein- um krananum sem veitir vatni í eitt af kerjum stöðvarinnar og lýsti því yfir að frá þeirri stundu væri starf- semi stöðvarinnar hafin. Helgi Thorarensen yfirmaður stöðvarinnar sagði við vígsluna að þessi nýja stöð væri af nýrri kynslóð slíkra stöðva. Nýjungarnar væru meðal annars fólgnar í því að vatn sem notað er væri endurnýtt og því þyrfti minna af bæði heitu og köldu vatni. Úrgangsvatn væri minna og það sem færi út úr stöðinni aftur væri hreinsað og hægt væri að full- yrða að hún væri umhverfisvænni en nokkur önnur stöð á landinu. Sagði Helgi að að þessu leyti mark- aði hún tímamót. Það er kannski tímanna tákn að húsið sem hýsir þessa nýju vistvænu stöð eru gömlu fjárhús Hólabúsins en fjárstofn þess hefur nú fyrir all- nokkru verið afsettur og sauð- fjárrækt ekki lengur stunduð á Hól- um. Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins á sínum tíma, teiknaði húsin upphaflega en fram kom í máli Helga að kynbótastöðin hefði að stærstum hluta verið hönnuð á Hólum. Einar Svavarsson og Theódór Kristjánsson höfðu þar veg og vanda af því verki ásamt fleiri starfsmönnum. Við end- urhönnun hússins unnu Björn Krist- leifsson arkitekt og Bragi Þór Har- aldsson verkfræðingur. Fiskeldi á Hólum í Hjaltadal Landbúnaðarráðherra vígði kynbótastöð fyrir bleikjueldi Morgunblaðið/Valdimar Hólar Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra skrúfaði frá einum krananum sem veitir vatni í eitt af kerjum stöðvarinnar. STJÓRN Menningar- sjóðs Kaupfélags Skag- firðinga bauð til kaffi- samsætis fyrir skemmstu í tilefni þess að fjörutíu ár eru liðin frá stofnun sjóðsins. Formaður sjóðstjórn- ar, Stefán Guðmundsson, bauð gesti velkomna og sagði í nokkrum orðum frá sjóðnum, stofnun hans og starfsemi. Ýmsir mætir menn hafa setið í stjórn sjóðs- ins, en einn þeirra, Guð- jón Ingimundarson fyrr- verandi kennari, hafði átt sæti í stjórn öll árin, allt frá stofnun, og þakkaði for- maðurinn Guðjóni frábær störf. Þá kom fram að sjóðurinn hefur styrkt ýmis menningar- og fram- faramál á löngum ferli og benti Stefán á að um verulegar fjárhæð- ir hefur verið að ræða og margir aðilar sem notið hafa. Að þessu sinni sagði hann að ákveðið hefði verið í tilefni afmæl- isins að veita eina sérstaka viður- kenningu, sem nefndist Skag- firskt framtak, og kallaði hann til þá Gunnar Björn Rögnvaldsson formann skíðadeildar Umf. Tinda- stóls og Viggó Jónasson fram- kvæmdastjóra skíðasvæðis félagsins og tóku þeir á móti við- urkenningarskjali og fjárupphæð, kr. 500 þúsund, þessu til staðfest- ingar. Benti Stefán á, að félagar í skíðadeildinni, ásamt fleirum hefðu á undraskömmum tíma ná að byggja upp glæsilegt skíða- svæði í vestuhlíðum Tindastóls, svæði sem aðeins á einum vetri hefði orðið þekkt og vinsælt, ekki einasta meðal heimamanna heldur einnig bestu skíðamanna landsins sem komið hefðu og lýst sérstakri ánægju með svæðið og þá aðstöðu sem búið er að koma upp. Sagðist Stefán vonast til þess að áfram yrði haldið á sömu braut og vonandi myndi unnt síðar að styðja enn betur þessar fram- kvæmdir. Gunnar Björn og Viggó tóku til máls og þökkuðu þann stuðning og þá viðurkenningu sem hér fengist og lofuðu því að í vestur- hlíðum Tindastóls hefðu nú aðeins verið stigin fyrstu sporin til upp- bygginar þessa glæsilega útivist- arsvæðis. Morgunblaðið/Björn Björnsson Viggó Jónsson tekur við 500 þúsund krónum frá formanni Menningarsjóðs Kaupfélags Skagfirðinga. Milli þeirra er Gunnar Björn Rögnvaldsson formað- ur skíðadeildar Tindastóls. Viðurkenning á afmælisári Sauðárkrókur Menningarsjóður Kaupfélags Skagfirðinga UM mánaðamótin maí-júní var undirritaður í Vestmannaeyjum samningur á milli Háskólans á Ak- ureyri og Rannsóknarsetursins í Vestmannaeyjum, en markmið samstarfsins er að efla háskóla- menntun í þágu fólksins í landinu og til þess verður notuð fullkomn- asta upplýsingatækni við nám og kennslu. Í áföngum verður kennsla hafin í rekstrarfræði, nú- tímafræði og síðar í hjúkrunar- fræði. Í Vestmannaeyjum verður fjarnám um þriggja símalínu fjar- fundabúnað og um vefsíðu á tölvu- neti frá Háskólanum á Akureyri, en HA leggur til námsefni og ann- ast alla kennslu og ber faglega ábyrgð á náminu og sérhæfðri bókasafnsþjónustu. Um nokkra hríð hefur verið unnið að þessum málum og eru þetta góðar málalyktir fyrir það fólk sem lagt hefur mesta vinnu í þetta málefni, auk þess sem þetta hefur jákvæð áhrif fyrir lands- byggðina í heild sinni. Í Vest- mannaeyjum hefur verið skortur á hjúkrunarfræðingum um árabil en vonast er eftir að úr rætist með tilkomu fjarnámsins. Það voru Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri og Páll Marvin Jónsson forstöðumað- ur Rannsóknarsetursins í Vest- mannaeyjum sem undirrituðu samninga í húsnæði Rannsóknar- setursins í Hvíta húsinu í Eyjum. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Þorsteinn Gunnarsson rektor og Páll Marvin takast í hendur að undirskrift lokinni. Háskólanám í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar Rannsóknarsetur HÍ og Háskólinn á Akureyri gera með sér samstarfssamning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.